Morgunblaðið - 29.08.2006, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 49
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
Frá leikstjóra Sixth Sense, Signs og Village.
PAUL GIAMATTI (SIDEWAYS) SÝNIR STJÖRNULEIK
STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI
eee
V.J.V - TOPP5.IS
eee
S.V. - MBL
GEGGJUÐ GRÍNMYND
með Owen Wilson (Wedding Crashers) sem fer á kostum,
ásamt Kate Hudson, Matt Dillon og Michael Douglas.
Ein fyndnasta grínmynd ársins
úr smiðju
Jim Henson
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskyldunaeeeL.I.B. Topp5.iseeeS.V. Mbl.
P.B.B. DV.
eeee
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
YOU, ME AND DUPREE kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20
YOU, ME AND DUPREE LUXUS VIP kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20
LADY IN THE WATER kl. 5:45 - 8 - 10:20 B.i. 12.ára.
5 CHILDREN AND IT M/- ensku tal. kl. 4 - 6
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 5 - 7 - 8 - 10 B.i. 12.ára.
THE LONG WEEKEND kl. 8 B.i. 14.ára.
OVER THE HEDGE M/- Ísl tal. kl. 3:45 Leyfð
OVER THE HEDGE M/- ensku tal. kl. 10:10 Leyfð
BÍLAR M/- Ísl tal. kl. 3:45 Leyfð
LADY IN THE WATER kl. 6 - 8:10 - 10:30 B.i. 12.ára. DIGITAL SÝN.
5 CHILDREN AND IT M/- ensku tal. kl. 6
MIAMI VICE kl. 8 - 10:45 B.i. 16.ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 8 - 10:45 B.i. 12.ára. DIGITAL SÝN.
OVER THE HEDGE M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð DIGITAL SÝN.
26.08.2006
17 20 22 24 38
4 8 8 3 6
4 4 8 2 1
35
23.08.2006
3 6 13 20 26 46
297 47
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Vinir hrútsins í öðrum heimshlutum
koma við sögu. Hvort sem hann saknar
þeirra mikið eða smávegis, gerir nær-
vera þeirra vart við sig með ýmsum
hætti. Það á ekki síst við ef fjarstaddi
vinurinn er í meyjarmerki.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sumar venjur sem nautið hefur ánægju
af taka bara fimm mínútur, eins og það
að lesa grein sem veitir innblástur eða að
gera magaæfingar. Á hinn bóginn, ef
einhver uppreisn er í þér, er uppreisn
það eina sem á eftir að gleðja þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er undir tvíburanum komið að halda
sambandi við besta fólkið sitt. Það er líka
á hans ábyrgð að vita hvert besta fólkið
er og taka það framyfir aðra. Til allrar
hamingju hefurðu ánægju af því að tak-
ast á við þess konar ábyrgð.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Jafnvel ástríkustu vinasambönd lenda í
undarlegum pyttum endrum og sinnum.
Finndu eitthvað skemmtilegt sem dreifir
huganum. Hættu að einbeita þér að
óþægilegum aðstæðum og leyfðu þeim
að leysast af sjálfu sér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Óundirbúinn rausnarskapur er besta til-
finningin sem hægt er að fá fyrir nokkra
hundraðkalla. Eins skapandi og þú ert
ættir þú ekki að vera í vandræðum með
að finna fullkomna leið til þess að koma
einhverjum á óvart og láta viðkomandi
finna til sín í leiðinni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Almenn skynsemi segir manni að brjóta
ekki brýr að baki sér, en ef engar brýr
væru brotnar sæti maður uppi með
gamlar úr sér gengnar brýr og ekkert
svigrúm til þess að smíða nýjar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogir og naut eiga það sameiginlegt að
laðast sterklega að allsnægtum. Vogin
Oscar Wilde sagði eitt sinn: „Sérhvern
þann, sem lifir eins og hann hefur ráð á,
skortir ímyndunarafl“.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Fáránlegar hugmyndir svífa á himni vit-
undar þinnar, eins og loftkennd teikni-
myndaský. Það fáránlegasta af öllu er,
að eitt þeirra geymir skyndilausn á öll-
um þínum vandamálum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn fær frábærar fréttir. En
hugsanlegt er að hann eigi ekki eftir að
fatta það. Kannski hugsar hann með sér
að þetta séu bara fréttir og kemst svo að
því eftir nokkrar vikur hversu frábærar
þær eru.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Stundum gerist það ef maður einblínir á
eitthvað eitt, að fjölmargir aðrir kostir
fara framhjá manni. Notaðu daginn til
þess að byrja að ná sambandi við fólk og
myndaðu lausleg, en heillandi tengsl.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það sem vatnsberinn gerir sjálfkrafa
gerir hann án þess að velta því fyrir sér
– eða líklega er um að ræða meðvitaða
ákvörðun sem hann tók fyrir löngu og er
nú orðin ómeðvituð. Lykillinn að breyt-
ingu er sá að vakna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Peningar kaupa ekki stíl. Reyndar koma
þeir stundum í veg fyrir hann með því að
gera eitthvað dýrt en óskapandi að raun-
verulegum valkosti.
Þú notar ímyndunaraflið til þess að
framkvæma eitthvað sem væri aldrei falt
fyrir peninga.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Hin dyggðuga orka meyj-
unnar er allsráðandi í
himninum núna og gæti
þess vegna talið einhvern
á, með skotheldum rökum,
að gera það sem á eftir að
koma sér best fyrir viðkomandi í framtíð-
inni. En þegar orka tungls í sporðdreka
kemur til sögunnar, tekur efinn við. Hver
mun sigra? Svarið er að finna í leynd-
ustu afkimum sálarinnar.
LISTAKONURNAR Hrafnhildur
Halldórsdóttir, Jóna Hlíf Halldórs-
dóttir og Stina Wirfelt sýna Úti/
Ute/Out í Gallerí +, Akureyri. Hug-
myndin að sýningunni vaknaði þeg-
ar listakonurnar hittust í Glasgow
þar sem þær stunduðu nám við
Masters-deildina við Glasgow Scho-
ol of Art.
Stendur til að þetta verði far-
andsýning, sem fara mun áfram til
Malmö og Glasgow. Þarna verða til
sýnis vídeóverk, ljósmyndir og inn-
setningar.
Úti/ute/Out í
Galleríi+, Akureyri
Guðsþjónustur | Hvern helgan dag
er guðsþjónusta kl. 11. Sunnudaga-
skólinn er á sama tíma í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Á sunnudag
hefst sunnudagaskólastarfið kl. 11.
Verður boðið upp á nýtt og
skemmtilegt efni sem höfðar til þess
aldurshóps sem sækir sunnudaga-
skólann. Annan sunnudag hvers
mánaðar sameinast guðsþjónust-
urnar og verða að fjölskylduguðs-
þjónustu. Boðið er upp á tónlistaguð-
sþjónustur þriðja sunnudag hvers
mánaðar þar sem ýmsum tónlista-
stefnum er boðið að taka þátt. Létt-
messur eru fyrsta sunnudag hvers
mánaðar.
Barna- og unglingastarf | Um langt
árabil hefur Árbæjarsöfnuður lagt
metnað sinn í að bjóða upp á öflugt
barna og unglingastarf. Boðið er
upp á starf fyrir börn á aldrinum 6-
12 ára í öllum hverfum sóknarinnar
í Ártúnsskóla, Árbæjarkirkju, Sel-
ásskóla og Norðlingaskóla. Starfið
er aldursskipt frá 6-9 ára og 10-12
ára. Nánari tímasetningar verða
sendar til viðkomandi aldurshópa
næstu daga.
Æskulýðsfélag fyrir unglinga |
Frá 13 ára til 16 ára aldurs og eldri
er starfrækt æskulýðsfélag í Árbæj-
arkirkju. Það starf er sömuleiðis
aldursskipt eða fyrir 8. bekkinga
(fermingarárganginn)14-16 ára eða
9.-10. bekkinga grunnskóla. Nýtt og
spennandi starf verður í boði í vetur.
Ekki hefur verið boðið upp á neitt
þessu líkt í þessu starfi fyrr hér á
landi.
Fermingarfræðslan | Hófst að
hluta í ágúst og verður framhaldið í
vetur fram að fermingum vorið
2007. Börnin eiga að vera búin að fá
dagskrá og tilhögun í hendur. Sam-
hliða fermingarfræðslu barna verð-
ur boðið upp á fræðslu fyrir foreldra
fermingarbarnanna. Kvöldnámskeið
með Höllu Jónsdóttur frá Kenn-
araháskóla Íslands í september og
október.
Helgi- og fyrirbænastund | Er
hvern mánudagsmorgun í fé-
lagsmiðstöð eldri borgara að
Hraunbæ 105. Helgi- og fyrirbæna-
stund er hvern miðvikudag kl.12 í
kirkjunni. Hægt er að koma fyr-
irbænaefnum til presta kirkjunnar.
Súpa og brauð á eftir í safn-
aðarheimili kirkjunnar gegn vægu
gjaldi.
Opið hús fyrir eldri borgara | Er á
miðvikudögum kl. 13-16. Þar er
spjallað og föndrað, farið í ferðalög,
fyrirlestrar, fræðsla og skemmtun.
Kvenfélag | Er starfandi við kirkj-
una og styður við hin ýmsu málefni
safnaðarins. Fundir eru í safn-
aðarheimili kirkjunnar fyrsta mánu-
dag hvers mánaðar kl. 20-22.
Foreldramorgnar | Eru á þriðju-
dagsmorgnum kl.10-12. Á þeim
morgnum gefst foreldrum tækifæri
til að koma saman með ung börn sín
og spjalla og fá ýmiskonar fræðslu
um umönnum barna.
Kórastarf | Tveir kórar eru starf-
ræktir við kirkjuna. Kirkjukórinn
syngur við almennar guðsþjónustur
safnaðarins. Kórinn æfir á fimmtu-
dögum kl.19-21. Áhugasamir geta
haft samband við kórstjórann og
organistann Krisztine Kalló Szklen-
ár. Gospelkór hefur verið starfandi
við kirkjuna frá 1998. Æfingar kórs-
ins eru á miðvikudögum kl.17.30-19.
Fullorðinsfræðsla | Verður í boði í
vetur. Nánari tilhögun og tímasetn-
ingar verða sendar út þegar nær
dregur atburðum.
Vonumst við til þess að sem flestir
sjái sér fært að njóta starfsins sem
boðið er uppá í vetur.
Vetrarstarf Árbæjarsafnaðar
Morgunblaðið/Arnaldur