Morgunblaðið - 29.08.2006, Síða 52

Morgunblaðið - 29.08.2006, Síða 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 241. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691122 mbl.is: netfrett@mbl.is  N 10–13 m/s. Súld eða rigning á N- og A-landi, þurrt og léttir til s-lands. Skýjað og úrkomu- lítið annars staðar. » 8 Heitast Kaldast 13°C 4°C ENDURSKOÐAÐ áhættumat vegna mannvirkja Kárahnjúkavirkjunar var kynnt á stjórnarfundi Landsvirkjunar í gær og kemur þar fram að áhætta sé ekki meiri en áður var talið og innan viðunandi marka. Einnig segir þar að afar ólík- legt sé að stíflur á Kárahnjúkasvæðinu bresti. „Menn geta haft mismunandi skoðanir á þessu verkefni í heild, en ég veit að ég tala fyrir hönd fleiri stjórnarmanna þegar ég segi að okkur hef- ur ekki þótt gott að sitja undir því að hætta lífi þeirra sem búa í nágrenni við þessa stíflu. Ég tel að með þessu hafi verið algerlega sýnt fram á að svo er ekki,“ segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar. Hann segir að ekkert nýtt hafi komið fram í endurskoðuðu mati en að stjórn Landsvirkjunar hafi lagt áherslu á að allrar varúðar sé gætt. Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. vann matið og kemur þar fram að enginn einn atburð- ur geti orðið til þess að ein af stíflunum rofni, heldur þurfi að koma til röð ólíklegra atburða sem tengjast eða gerast samhliða. Gert er ráð fyrir því að stíflurnar þoli leka, jarðskjálftaálag og stærstu möguleg flóð vegna úrkomu eða leysinga án þess að rofna. Ef hins vegar kemur til rofs í eina eða fleiri stíflur á Kárahnjúkasvæðinu sé ljóst að áhrifin yrðu mjög alvarleg, bæði á líf fólks og umhverfið á mögu- legu flóðasvæði. Einnig yrðu áhrifin alvarleg á rekstur Landsvirkjunar, Alcoa Fjarðaáls og þjóðarbúið í heild. Tillaga um óháðan hóp felld Álfheiður Ingadóttir, stjórnarmaður í Lands- virkjun, flutti á stjórnarfundinum tillögu um að óháður hópur jarðvísindamanna og verkfræðinga kynni sér hvað fór úrskeiðis við fyllingu lóna við Campos Novos-stífluna í Brasilíu og Mohale- stífluna í Leshoto. Tillagan hlaut ekki stuðning stjórnarinnar. Álfheiður telur að hið nýja áhættumat varðandi Kárahnjúkastíflu sé ekki trúverðugt enda hafi það verið algjörlega í hönd- um sömu einstaklinga og fyrirtækja og bæði hanni og hafi eftirlit með framkvæmdum á virkj- anasvæðinu. Endurskoðað áhættumat Kárahnjúkavirkjunar kynnt stjórn Landsvirkjunar Afar ólíklegt að stíflur bresti Morgunblaðið/Árni Sæberg  Áhættan innan marka | 6 Eftir Brján Jónasson og Árna Helgason STÚLKA um tvítugt lést í umferð- arslysi á fimmta tímanum á Eiða- vegi, skammt utan Egilsstaða, í gær- dag. Hún var ökumaður fólksbíls sem ekið var eftir veginum en bifreiðin rakst á sorphirðubifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Áreksturinn var sér- lega harður, höfnuðu báðar bifreið- arnar utan vegar og var veginum lokað og engum hleypt nær en um 100 metra frá slysstaðnum í um þrjár klukkustundir. Allt tiltækt lið sjúkraflutninga- manna og lögreglu var kallað á vett- vang. Stúlkan var flutt á Heilbrigð- isstofnun Austurlands þar sem hún lést. Ökumaður sorphirðubifreiða- rinnar slapp hins vegar án teljandi meiðsla og fékk að fara heim að lok- inni læknisskoðun. Tildrög slyssins eru ekki að fullu kunn en lögreglan á Egilsstöðum ásamt rannsóknarnefnd umferðar- slysa fer með rannsókn málsins. Ekki er hægt að greina frá nafni stúlkunnar að svo stöddu. Þetta er áttunda banaslysið í um- ferðinni í ágústmánuði og hið nítjánda það sem af er árinu – það eru jafnmörg banaslys í umferðinni og á öllu síðasta ári. Á árunum 2003 og 2004 urðu 23 banaslys í umferð- inni á hvoru ári hér á landi en á árinu 2002 létust hins vegar 29 einstak- lingar í umferðarslysum. 19 látnir í umferðinni á árinu eða jafnmargir og allt árið í fyrra Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Vettvangur Nítjánda banaslysið í umferðinni á þessu ári varð í gærdag skammt frá Egilsstöðum. Banaslys á Eiðavegi          !!!   "# " #  #  #    $      HAGNAÐUR umfram ávöxtunarkröfu af Kára- hnjúkavirkjun verður 2,2 milljörðum króna minni en upphaflega var áætlað. Þetta kemur fram í nýju arðsemismati Kárahnjúkavirkjunar sem fjallað var um á stjórnarfundi Landsvirkj- unar (LV) í gær. „Það var kynnt nýtt arðsemismat út frá stöðu verksins eins og það er í dag. Það voru teknar inn nýjar forsendur, við setjum inn byggingarkostnaðinn eins og við vitum hann réttastan núna, það eru settar inn nýjar for- sendur út frá álverði og gengi dollarans,“ segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður LV. LV miðaði við 11% ávöxtunarkröfu á eigið fé í upphaflegu arðsemismati, og þar var gert ráð fyrir að arðsemin yrði 1,8 prósentustig yfir þeirri kröfu, eða 12,8%. Í nýju arðsemismati hefur hlutfallið lækkað í 11,9%. Hagnaður af verkefninu umfram arðsemiskröfuna yrði sam- kvæmt því 4,3 milljarðar króna í stað 6,5 millj- arða áður, segir Jóhannes. Áætlaður hagn- aður LV lækkar um 2,2 milljarða HÉÐINN Steingrímsson og Hannes Hlífar Stefánsson munu í dag tefla úrslitaeinvígið á Íslandsmótinu í skák á heimsmeistaraborði Fisch- ers og Spasskís frá 1972. Einvíg- isborðið fer síðan í næstu viku utan til alþjóðlegra sýninga í Þýskalandi en það verður til sýnis í Bonn næstu mánuði á viðamikilli sýningu sem helguð er skák og stjórnmálum. Hefur aðeins verið leyft að tefla við borðið við sérstök tilefni. Hannes Hlífar og Héðinn eru báðir fyrrver- andi heimsmeistarar í skák í sínum aldursflokki og þykir mörgum við hæfi að þeir tefli á borðinu. Fer úr- slitaeinvígið fram klukkan fimm síðdegis í dag í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur og mun Helgi Ólafsson stórmeistari sjá um skákskýringar á staðnum. Úrslitaein- vígi á borði Fischers og Spasskís MIKIL hætta er nú á faraldri sitka- lúsar á ákveðnum svæðum á landinu. Getur lúsin valdið töluverðum skemmdum á sitkagrenitrjám. Undanfarnar vikur hafa starfs- menn Skógræktar ríkisins kannað stofnstærð sitkalúsar víðs vegar um landið. Guðmundur Halldórsson, skordýrafræðingur hjá Skógrækt ríkisins, segir að eins og menn hafi spáð sé mikið af sitkalús á vissum svæðum. „Uppsveitir Suðurlands munu líklega sleppa og einnig svæðið við Borgarfjörð. Hins vegar er hætta á haustfaraldri á Reykjanesi, í Reykjavík, á Hvalfjarðarsvæðinu, í Borgarnesi og á hluta Vestfjarða.“ Á þessum svæðum er mikið um sitkalús og töluverðar skemmdir farnar að sjást nú þegar á trjám, t.a.m. í Reykjavík. „Lúsin er ekki farin á fullt skrið ennþá en fjölgun hennar er helst á vorin og á haustin. Núna getur stofninn tífaldast á skömmum tíma.“ Sitkalúsin leggst eingöngu á greni- tré og drekkur vökva úr æðakerfi trésins með því að stinga í nálar þess. „Trén framleiða eiturefni til að sótt- hreinsa stungur og sár. Það virðist vera sem sitkalúsin valdi rosalega miklum viðbrögðum hjá trjánum og þau drepa ekki bara örverurnar held- ur alla nálina. Í raun ekki ósvipað of- næmisviðbrögðum,“ segir Guð- mundur. Eitrunin lýsir sér á þann hátt að nálar gulna og krónur verða brúnar og detta jafnvel af. Þetta get- ur tekið töluverðan tíma en Guð- mundur segir afar sjaldgæft að tré deyi vegna sitkalúsar. Garðeigendur geta enn brugðist við og segir Guð- mundur oft nægja að úða fyrsta tréð sem verður fyrir lúsinni. Hætta á sitkalúsafar- aldri á vissum svæðum »Sitkalús leggstá grenitré. Trén bregðast svo harka- lega við biti lús- arinnar að þau drepa eigin nálar. »Allt stefnir í að sitkalúsa-faraldur muni koma upp í Reykjavík, á Reykjanesi, Hvalfjarð- arsvæðinu, í Borgarnesi og á hluta Vestfjarða. Í HNOTSKURN TINNA Gunnlaugsdóttir þjóðleik- hússtjóri segir vetrardagskrá leik- hússins blómlega. Hins vegar sé ljóst að þörf sé á þriðja áfanganum í end- urnýjun við Þjóðleikhúsið, fyrir utan lagfæringar sem búið er að gera inn- anhúss og núverandi viðgerðir að ut- an. Vegna þrengsla vantar viðbygg- ingu til austurs og endurnýjun á tæknisviði. Bráðabirgðaskýrsla þýskra leikhússérfræðinga á þessum þáttum er svartari en Tinna átti von á, sem segir að aðstaðan sé farin að nálgast hættumörk. Svört skýrsla um að- stöðu Þjóðleikhússins  Svört skýrsla | 17

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.