Morgunblaðið - 28.09.2006, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BENSÍNVERÐ hefur lækkað um
10% á Íslandi frá því um miðjan júlí
en verðlækkun á mörkuðum erlendis
er töluvert meiri og hefur verð á
bensíni lækkað um 28% í krónum tal-
ið á sama tímabili, að því er fram
kemur í Vegvísi Landsbankans.
Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri
eldsneytis hjá Esso, segir bensínverð
næmt fyrir gengi dollara og þetta
þurfi að hafa í huga þegar verðbreyt-
ingar á bensíni eru skoðaðar. Gengi
dollars gagnvart krónu hafi undan-
farið lækkað úr um 75 krónum í um
70 krónur nú. „Heimsmarkaðsverð á
olíu í júlímánuði var 798 dollarar á
tonnið af bensíni, en í ágúst var það
715 dollarar. Á sama tíma hefur
gengisbreytingin verið hlutfallslega
næstunni segir Magnús að hann sé
ekki bjartsýnn á frekari verðlækkan-
ir á bensíni á næstunni. Hann hafi
verið bjartsýnn en í gærmorgun hafi
fregnir borist frá OPEC-framleiðslu-
ríkjunum að þau hygðust halda neyð-
arfund í lok október þar sem rætt
yrði um hugsanlega minnkun olíu-
framleiðslu. „Verðið hækkaði í gær
[fyrradag] á heimsmarkaði. Það er
eitthvað sem við gátum búist við því
reynslan sýnir okkur það að þegar
verð er búið að lækka mikið gengur
það til baka. Við höfum séð breyting-
ar upp á 30 dollara á einum degi en þá
gengur það mjög oft til baka um tvo
þriðju næsta dag.“ Hann segir að
næsta mánuðinn megi búast við
litlum breytingum á bensínverði, en
„síðan gæti frekar sigið á verri hliðina
í vetur ef það verður tekin ákvörðun
um minnkun olíuframleiðslu.“
því,“ segir Magnús. Hann bendir á að
mesta lækkunin hafi í raun orðið í
þessum mánuði, en þá „fór gengið að
skila sér inn og við höfum í þessum
mánuði lækkað verðið [á lítrann af
bensíni] um sex krónur og sjötíu
aura,“ segir hann. Um þróunina á
miklu minni. Verðið er næmt fyrir
genginu og því er ekki hægt að taka
bara erlenda verðið og reikna út frá
Meiri lækkanir á markaði
en á bensínverði hérlendis
! " #
Í HNOTSKURN
» Bensínverð náði hámarkiá Íslandi um miðjan júlí.
» Þá var lítraverð á 95 okt-ana bensíni, með þjónustu,
hærra en 135 krónur.
» Verðið hefur lækkað fráþessum tíma og í gær var
algengt verð á lítra af 95 okt-
ana bensíni 123,90 krónur.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
„HÉR er um nýtt úrræði að ræða
og ég er mjög bjartsýn á árangur
enda hefur reynslan verið afar góð
í öðrum löndum,“ segir Siv Frið-
leifsdóttir heilbrigðisráðherra um
sérhæfða sjúkrahústengda heima-
þjónustu fyrir aldraða sem form-
lega var sett af stað í gær. Um er
að ræða samvinnuverkefni Heilsu-
gæslunnar á höfuðborgarsvæðinu
(HH) og Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss (LSH) þar sem læknar,
hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar,
félagsliðar, sjúkraþjálfarar og iðju-
þjálfar veita veikum öldruðum
þjónustu í heimahúsum.
Að sögn Sivjar er þessu nýja úr-
ræði ætlað að leysa að nokkru
þann útskriftarvanda sem verið
hefur á LSH að undanförnu og
komst í hámæli sl. vor. Segist Siv
binda miklar vonir við að þetta
nýja úrræði geti minnkað útskrift-
arvanda LSH til muna og létt á
álaginu þar. Að sögn Sivjar er
þessi sérhæfða heimaþjónusta
hugsuð sem tímabundin þjónusta
sem standi fólki til boða. „Þannig
er reiknað með að hinn aldraði geti
þegið þessa þjónustuna í allt að
þrjá mánuði, en að þá taki annað
úrræði við, þ.e. annaðhvort heima-
þjónusta heilsugæslu höfuðborg-
arsvæðisins eða þá að sjúklingurinn
verði kominn inn á hjúkrunarheim-
ili, ef það þykir henta,“ segir Siv og
bendir á að veikist hinn aldraði
meira eftir útskrift þá sé leiðin
auðvitað opin aftur inn á sjúkra-
húsið. „Það er því mikið öryggi
sem felst í þessu fyrir hinn aldr-
aða.“
Aðspurð segir Siv úrræðið kosta
í kringum 70 milljónir króna á árs-
grundvelli. Segist hún afar ánægð
með hve vel ríkisstjórnin hafi
brugðist við þessu nýja úrræði með
tilliti til fjármögnunar þess, því þar
sem þetta sé nýtt úrræði hafi það
eðlilega ekki verið inni á fjárlögum
yfirstandandi árs.
Sérhæfð heimaþjónusta fyrir veika aldraða hafin
Bjartsýn á árangur
Í HNOTSKURN
» Sérhæfð sjúkrahústengdheimaþjónusta fyrir aldr-
aða kostar á ársgrundvelli um
70 milljónir.
»Gert er ráð fyrir að sér-hæfð heimaþjónusta nái að
jafnaði til 20 sjúklinga á hverj-
um tíma.
» Með þjónustunni er leitastvið að mæta óskum aldr-
aðra um að geta dvalið lengur
í heimahúsi þrátt fyrir veik-
indi og um leið að færri sjúk-
lingar í hópi aldraðra þurfi að
bíða eftir annarri þjónustu.
NÝR vikulegur skemmtiþáttur
Hemma Gunn hefur göngu sína í
beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld,
en þátturinn er sendur út frá
skemmtistaðnum Nasa við Aust-
urvöll.
„Það má nú minna sjá hérna í
miðbænum, því það er verið að um-
turna Austurvelli í tilefni af þessu,“
sagði Hemmi í samtali við Morg-
unblaðið.
Hann sagði að loksins væri verið
að lýsa upp Austuvöll því þau
þyrftu að sprella mikið úti, en ætl-
unin væri að vera einnig með atriði
fyrir utan húsið. Þá væri einnig
verið að tyrfa, en hann hafði haft
samband við borgarstjóra af þessu
tilefni.
„Við erum á draumastaðnum að
vera með þátt í miðborg Reykjavík-
ur í stað þess að vera bundin inni í
einhverju myndveri sjónvarps-
stöðvanna,“ sagði hann ennfremur.
Hemmi sagði að undirbúningur
væri í fullum gangi og gengi mjög
vel. Hann yrði var við mikið já-
kvæði í garð þáttarins. Allir sem
hann leitaði til væru tilbúnir að
taka þátt í undirbúningnum og það
væri virkilega ánægjulegt. Hemmi
sagði að einnig yrði farið víðar um
borgina. „Þó að þættirnir byggist
fyrst og fremst á skemmtun ætlum
við líka að láta gott af okkur leiða
og huga að þeim sem minna mega
sín og eru svolítið afskiptir í þjóð-
félaginu. Það er líka til mikils að
vinna því ég sendi alltaf einhvern
úr hópi gesta á Nasa til útlanda
daginn eftir,“ sagði Hemmi einnig.
Hann sagði að í þættinum í kvöld
yrði mikið stórskotalið og að hann
hlakkaði mikið til.
Hemmi
sprellar í
beinni frá
Austur-
velli
Morgunblaðið/Eyþór
Tekið til hendinni Unnið var við að tyrfa á Austurvelli í gær, en í baksýn má sjá húsnæði Nasa þaðan sem
skemmtiþátturinn verður sendur beint út þó að farið verði víðar um borgina og sprellað víða.
FRUMVARP til laga um breytingar
á ákvæðum skattalaga um vaxtabæt-
ur verður lagt fram í upphafi þings í
næstu viku, samkvæmt upplýsingum
Árna Mathiesen fjármálaráðherra.
Við álagningu í sumar vegna tekna
ársins 2005 kom í ljós að vaxtabætur
skertust verulega, meðal annars
vegna mikillar hækkunar á fast-
eignaverði.
Lýsti fjármálaráðherra því þá yfir
að leiðréttingar í þessum efnum yrðu
gerðar í haust en vaxtabæturnar
lækkuðu um 700 milljónir króna milli
ára og 10 þúsund færri einstaklingar
fengu vaxtabætur en á síðasta ári.
Unnið að tillögum í fjár-
málaráðuneytinu
Árni sagði að unnið væri að til-
lögugerð innan fjármálaráðuneytis-
ins í þessum efnum og þess að vænta
að frumvarpið kæmi fram í þinginu
fljótlega eftir að þing kæmi saman í
næstu viku. „Vonandi verður frum-
varpið afgreitt fljótt og vel í
þinginu,“ sagði Árni ennfremur.
Breytingar á
vaxtabótum
TAFIR á framleiðsluferli bóluefnis
við árstíðabundinni flensu valda því
að innflutningi á bóluefninu hingað
til lands seinkar, að sögn Haraldar
Briem, sóttvarnarlæknis hjá land-
læknisembættinu. Haraldur segir
að venjulega eigi bóluefnin að vera
komin inn í landið um þetta leyti árs
en nú verði sennilega bið eftir þeim
fram í miðjan október. Tafirnar or-
sakist af því að hálfilla hafi gengið
að finna bóluefni í ár því einn stofn
þeirrar veiru sem menn séu að
byggja upp varnir gegn hafi ekki
ræktast nógu vel. Þetta hafi komið
fyrir hjá öllum framleiðendum bólu-
efna, en um 70% þeirra bóluefna
sem flutt eru til Íslands koma frá
Evrópu.
Misjafnt hvenær flensan kemur
Haraldur segir að flensa hafi enn
ekki gert var við sig hér á landi í
haust og ekki hafi heldur heyrst af
henni í nágrannalöndunum. „Við
höfum ekki heyrt af neinu núna sem
er ágætt,“ segir Haraldur og vísar
til tafa á innflutningi bóluefna.
Hann segir misjafnt eftir árum hve-
nær flensan komi fram en flensu-
tímabilið standi venjulega yfir frá
október eða nóvember og fram í
mars eða apríl.
„Undanfarin ár hefur hún yfirleitt
ekki dúkkað upp fyrr en í desember
og náð hámarki í janúar og febr-
úar,“ segir Haraldur.
Haraldur segist ekki muna til
þess að Íslendingar hafi sloppið al-
farið við flensu yfir vetrartímann,
en flensan sé misskæð eftir árum.
Inflúensan ferðist um heiminn og
þegar vetur sé á suðurhveli jarðar
gangi flensan þar. Svo komi vetur á
norðurhveli jarðar og þá komi hún
upp þar. Þegar bóluefni séu fram-
leidd skoði menn því hvaða tegund
gangi yfir suðurhvelið og vinni út
frá því. Yfirleitt hitti menn nokkuð
rétt á.
Tafir verða á inn-
flutningi bóluefnis
TVEIR karlmenn á þrítugsaldri
voru færðir á lögreglustöðina við
Hverfisgötu vegna fíkniefnamála
í fyrrinótt. Þeir voru báðir teknir
í austurbæ Reykjavíkur en þó
ekki á sama tíma. Í fórum beggja
fundust ætluð fíkniefni en mál
þeirra eru óskyld.
Í fyrrinótt eða á þriðjudags-
kvöld var einnig gerð tilraun til
innbrots í húsnæði félagasamtaka
og þar urðu nokkrar skemmdir. Í
fyrradag var sömuleiðis tilkynnt
um rúðubrot á tveimur stöðum í
borginni og þá var skorið í hjól-
barða á fjórum bifreiðum, einni í
vesturbænum og þremur í einu af
úthverfum borgarinnar.
Tveir menn teknir
með fíkniefni
SLÁTRAÐ var 17.776 nautgripum,
sem vigtuðu alls 3.206 tonn á tíma-
bilinu 1. september árið 2005 og til
31. ágúst í ár. Jafnvægi í fram-
leiðslu og sölu er gott, þannig að
birgðasöfnun á tímabilinu er engin,
segir í frétt á vef Landssambands
kúabænda. Í úrkast fóru 37 gripir.
Slátrun á kálfum á tímabilinu
minnkar um 28%, miðað við tíma-
bilið 1. sept. 2004 til 31. ágúst 2005.
Þá fjölgar gripum sem fara í svo-
kallað UN-úrval talsvert, eða um
11%. 14% aukning er í slátrun á
ungum kúm, en samdráttur í slátr-
un á kúm er að magni til um 22%.
Fleiri ungar kýr
en færri kálfar
♦♦♦