Morgunblaðið - 28.09.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2006 17
Eftir Guðjón Guðmundsson
gugu@mbl.is
FÉLAG í eigu Ingunnar Werners-
dóttur hefur fest kaup á Stradivar-
ius-fiðlu. Fiðlan var smíðuð í Cre-
mona á Ítalíu af Antonio Stradivari.
Stradivari, sem er einn þekktasti
hljóðfærasmiður sögunnar, var uppi
á árunum 1644–1737 og smíðaði fiðl-
ur, selló, gítara og fleiri tegundir
strengjahljóðfæra. Þykja Stradivar-
ius-fiðlur hafa ómótstæðilegan og
seiðmagnaðan hljóm. Vísindamenn
og fiðlusmiðir nútímans leita stöðugt
að leyndardómum Stradivari en
þrátt fyrir ýmsar kenningar og upp-
götvanir hefur engum tekist að ná
þeim hljómgæðum sem einkennir
Stradivarius-fiðlur.
600–700 hljóðfæri smíðuð af
Stradivari til í heiminum
Af um 1.100 hljóðfærum sem talið
er að Stradivari hafi smíðað eru í
dag 600–700 hljóðfæri til í heim-
inum, ýmist á söfnum eða í höndum
hljóðfæraleikara.
Það þykir draumur hvers fiðlu-
leikara að fá að leika á slíkt hljóðfæri
en ákveðið hefur verið að einn
fremsti fiðluleikari Íslands, Hjörleif-
ur Valsson, hafi umrædda fiðlu í
sinni vörslu.
Ljóst er að Stradivarius-fiðlan er
mikið innlegg í íslenskt tónlistar- og
menningarlíf. Hjörleifur er ekki al-
veg ókunnugur fiðlunni því hann lék
á hana í Grafarvogskirkju í mars-
mánuði, fyrir upplestur á Pass-
íusálmunum.
Þessi fiðla er ein af þeim síðustu
sem Stradivari smíðaði og telja sér-
fræðingar að hún hafi verið smíðuð á
árunum 1732–34. Stradivari var því
92 ára þegar smíði fiðlunnar hófst.
Fiðlan er metin á yfir 100 milljónir
kr.
Stradivarius
keyptur til Íslands
Morgunblaðið/Ásdís
Fjársjóður Christophe Landon fiðlusmiður, Ingunn Wernersdóttir at-
hafnakona og Hjörleifur Valsson fiðluleikari með Stradivarius-fiðluna.
HJÖRLEIFUR
Valsson fiðluleik-
ari var í sjöunda
himni með að
vera kominn með
Stradivarius-fiðlu
í sína vörslu þeg-
ar blaðamaður
ræddi við hann.
„Ég er alltaf með
augun opin fyrir
góðum fiðlum en var að sjálfsögðu
ekki að leita mér að Stradivarius-
fiðlu. Duttlungar örlaganna höguðu
því hins vegar þannig til að mér
gafst kostur á því að prófa þessa
fiðlu og vera með hana um nokkurn
tíma. Á þeim tíma varð ég harð-
ákveðinn í því að ég yrði að fá að
hafa hana áfram,“ segir Hjörleifur,
sem lék á fiðluna opinberlega í mars
síðastliðnum í Grafarvogskirkju.
Hjörleifur reyndi að fá fjárfesta í
lið með sér við að ná fiðlunni alfarið
hingað heim en rakst víðast hvar á
veggi. „Bankarnir afgreiddu erindi
mitt afar snyrtilega, allir nema einn.
En síðan vill svo til að ég hitti Ing-
unni Wernersdóttur, sem hefur
helgað sitt líf stuðningi við listir og
mannúðarmál. Hún var hrifin af
hugmyndinni og er mjög verðugur
eigandi þessarar fiðlu. Það hefur
tekið talsverðan tíma að koma þessu
á koppinn og hún hefur vaxið mjög
sem fiðlueigandi,“ segir Hjörleifur.
Fiðlan var áður í eigu fransks
manns og hefur verið í Frakklandi
undanfarna áratugi. Félagi Hjör-
leifs, sem er fiðlusmiður og verslar
með hljóðfæri og smíðaði fyrir Hjör-
leif fiðlu fyrir nokkrum árum, hafði
milligöngu um kaupin.
„Það er draumur hvers fiðluleik-
ara að leika á Stradivarius-fiðlu og
margir hafa þurft að ljúka glæstum
ferli án þess að hafa nokkurn tíma
fengið tækifæri til að snerta slíkt
hljóðfæri. Fiðlur Stradivari kosta al-
veg frá rúmum 100 milljónum kr. og
upp í 350 milljónir kr.“
Hann segir að ekki séu allar Stra-
divarius-fiðlur jafn góðar. Fiðlan
sem hann hafi undir höndum sé að
öllu leyti upprunaleg, að því undan-
skildu að hausinn á henni er ekki
skorinn út af meistaranum sjálfum
heldur sonum hans eða nemendum,
sem ekki var óalgengt með Stradiv-
arius-fiðlur eftir að hljóðfærasmið-
urinn komst á efri ár. Þetta er ein af
síðustu fiðlunum sem hann gerði og
hausinn á henni er endurgerð. Hjör-
leifur bendir ennfremur á að skipt
hafi verið um háls á öllum Stradiv-
arius-fiðlum í heiminum sem eru í
notkun. Ástæðan er breytingar sem
urðu jafnt á tónlistinni og tónlistar-
húsunum og fóru fiðlurnar því allar í
gegnum þetta breytingarferli á 19.
öldinni.
„Fiðlan skiptir mig gríðarlega
miklu máli. Ég starfa sem fiðluleik-
ari og spila við öll möguleg tækifæri.
Það er algjörlega ómótstæðilegt að
spila á Stradivarius-fiðlu. Fiðluleik-
ari sem spilar á Stradivarius-fiðlu
hefur líka ákveðinn sess,“ segir
Hjörleifur.
Skiptir mig
gríðarlega
miklu máli
Hjörleifur Valsson