Morgunblaðið - 28.09.2006, Síða 20

Morgunblaðið - 28.09.2006, Síða 20
Ferðalag til Afríku var gamall draumur Elísabetar Magnús- dóttur, sem nú kennir í grunn- skóla í Gana.» 22 |fimmtudagur|28. 9. 2006| mbl.is daglegtlíf Það geta allir lagt sitt af mörk- um til að draga úr gróður- húsaáhrif- unum.» 24 neytendur Nýlega fundust í Noregi leifar af skordýraeyði í argentínskum líf- rænt ræktuðum eplum. Hérlend- is er eftirlit reglubundið. » 25 lífrænt Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Ílitlum stjörnusjónauka sjást fjarlægarvetrarbrautir, tvístirni og gasþokur. Ein-ungis ein vetrarbraut sést með berumaugum frá norðurhveli, en hún nefnist Andrómeduvetrarbrautin og hefur ljósið verið tvær milljónir ára á leiðinni frá henni til jarðar. Það er reyndar gaman að velta því fyrir sér hvort það séu einhverjar vitsmunaverur í Andrómeduvetrarbrautinni sem eru að horfa í áttina til okkar,“ segir Sverrir Guðmundsson stjörnuáhugamaður í samtali við Daglegt líf, en hann ásamt félaga sínum Sævari Helga Braga- syni, sem deilir sama áhugamáli, ætlar að bjóða upp á stjörnuskoðun í kvöld í Minjasafni Orku- veitunnar í Elliðaárdal, gegnt gömlu rafstöð- inni. Þangað geta áhugasamir komið og horft á stjörnuhimininn í gegnum sjónauka frá klukkan níu til ellefu. Öll götuljós verða slökkt í Reykja- vík og víðar á þessum tíma sem veitir gestum kærkomið tækifæri til að virða fyrir sér undur næturhiminsins í stjörnuteiti í Elliðaárdal. Þetta mun vera í fjórða skiptið sem Stjörnu- fræðivefurinn stendur fyrir stjörnuteiti á Minjasafninu. „Það eru mörg áhugaverð fyr- irbæri að sjá á næturhimninum sem eru það dauf að þau sjást illa eða alls ekki með berum augum. Þess vegna er tilvalið að nota tækifærið og skoða þau í sjónauka,“ segir Sverrir. Félagarnir Sverrir og Sævar hafa haft áhuga á stjörnufræði og stjörnuskoðun frá því að þeir byrjuðu í barnaskóla. Þeir leggja nú báðir stund á jarðeðlisfræði við HÍ ásamt því að kenna stjörnufræði við MR í stundakennslu. Sævar kennir þá eðlisfræði við Borgarholtsskóla. Tunglið fyrir byrjendur „Það er nóg að fara út í garð og líta til himins. Það er ekki nauðsynlegt að hafa einhverjar sér- stakar græjur við stjörnuskoðunina. Lengst af létum við okkur nægja að nota augun til þess að virða fyrir okkur næturhimininn. Það spillir þó ekki fyrir að hafa lítinn handsjónauka enda stækka þeir yfirleitt sjö til tíu sinnum. Ef fólki finnst gaman í stjörnuskoðun þá getur það ef til vill keypt lítinn stjörnusjónauka með tíð og tíma,“ segja þeir. Þeir mæla með tunglinu þegar þeir eru beðn- ir um að mæla með einhverju fyrirbæri í him- ingeimnum fyrir byrjendur. „Tunglið kemur þó ekki til með að sjást í stjörnuteitinu í kvöld, en það ætti að sjást á næstu dögum. Þar sem ekk- ert tunglskin verður á borgarmyrkvanum ættu að sjást fleiri og daufari stjörnur en ella. Gasský í vetrarbrautinni okkar mynda svonefnda vetr- arbrautarslæðu, sem ætti að sjást á suðurhimni við góðar aðstæður. Það getur hjálpað að vera í myrkri í smástund því það tekur augun svolítinn tíma að venjast myrkrinu,“ segir Sverrir. Vaxandi áhugi á stjörnunum Þeim félögum finnst sem áhugi á stjörnu- skoðun hér á landi fari vaxandi. Væntanlega skýrist það bæði af aukinni sumarbústaðaeign og því að ekki þarf lengur að panta sjónauka er- lendis frá heldur má fara út í búð og kaupa sjón- auka á verði, sem hentar hverjum og einum. Á athygliverðum upplýsingavef, sem stjörnu- áhugamennirnir hafa komið sér upp, er að finna yfirlit um þekkingu mannanna á reikistjörn- unum og hinum fyrirbærunum sem saman mynda sólkerfið. Þar er að finna upplýsingar um sólina, reikistjörnurnar og tungl þeirra, halastjörnur, smástirni og fleira. Tvinnað er saman goðsögunum, sem tengjast nöfnum fyr- irbæranna og sögu könnunar á hnöttunum. Hver síða inniheldur texta og myndir en auk þess eru hljóðklippur og hreyfimyndir á nokkr- um þeirra. „Þekking okkar á sólkerfinu er yf- irgripsmikil, en um leið fjarri því að vera full- komin. Sum fyrirbæri hafa aldrei verið ljósmynduð í nálægð og enn finnast ný fyr- irbæri á sveimi um pláneturnar. Enn hefur ekk- ert geimfar heimsótt Plútó og enn eigum við margt eftir ólært.“ Mörg fyrirbæri eru á næturhimninum Morgunblaðið/Golli Stjörnuáhugamenn Sverrir Guðmundsson og Sævar Helgi Bragason ætla að efna til stjörnu- teitis í Elliðaárdalnum. TENGLAR ................................................................... www.stjornuskodun.is ÞETTA VAR ekki leiðinlegt. Ég er enn skæl- brosandi. Það er engu líkt að sitja í bíl með 500 hestöfl í skottinu og vitandi það að græjan kostar litlar 30 milljónir. Ég er virkilega ánægður með að hafa fengið þetta tækifæri,“ segir Guðmundur Árni Hilmarsson sem í Ís- landsheimsókn sinni um síðustu helgi fékk að fara í bíltúr á bíl sem er endurgerð á frægasta kappakstursbíl sögunnar, tveggja dyra Ford GT, sem vann m.a. þrefaldan sigur í Le Mans- kappaksturskeppninni árið 1966. Guðmundur var einn af þeim 40 sem dregnir voru úr lukkupotti hjá Brimborg og uppskáru bíltúr í ofur sportbílnum. „Þessi bíll er miklu lægri en venjulegur sportbíll, hann liggur al- veg í götunni og þar af leiðandi er mjög sér- stakt að ferðast í honum, en ég fékk ekki að keyra hann sjálfur, heldur var ég farþegi. Ökumaðurinn, starfsmaður Brimborgar, keyrði með mig góðan hring upp í Mosó. Hann lét bílinn vissulega vinna svolítið og hröðunin var svakaleg. Hann fór auðvitað ekki yfir lög- legan hraða, en það hefði óneitanlega verið gaman að finna betur fyrir kraftinum sem í honum býr með því að fara á meiri hraða. Þetta var samt alveg mögnuð upplifun.“ Guðmundur neitar því ekki að hann sé með ólæknandi bíladellu. „Ég er mikill Porche- áhugamaður og ég hef verið með sportbíla- dellu frá því ég man eftir mér og kannski er það þess vegna sem ég bý núna í Malmö, því hér er þó nokkuð um sportbíla,“ segir Guð- mundur sem starfar sem tölvunarfræðingur í Svíaríki og ekur þar um á gömlum Volkswa- gen. Aðspurður segist hann vissulega dreyma um að eignast sinn eigin alvöru sportbíl. „Það kemur að því einn góðan veðurdag, þó sá draumur sé enn fjarlægur. Kannski ég láti hann rætast þegar ég verð fimmtugur.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Hestöfl Guðmundur Árni naut í hvívetna nærverunnar við Ford GT. Ökuferðin mögnuð upplifun TENGLAR ..................................................... www.brimborg.is ferðalög

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.