Morgunblaðið - 28.09.2006, Side 28
28 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Þ
að kann að skýrast í
dag hver verður næsti
framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna.
Öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna mun sem sagt í dag í
þriðja skipti greiða atkvæði um þá
sjö sem hafa lýst yfir áhuga á emb-
ættinu og hljóti Ban ki-Moon, ut-
anríkisráðherra Suður-Kóreu, þar
góðan stuðning líkt og í hin fyrri
skipti má telja sennilegt að hann
hreppi hnossið.
Engu er þó hægt að slá föstu.
Hér er aðeins um „skoðanakönn-
un“ að ræða á fylgi við einstaka
frambjóðendur, hún er leynileg og
ekki bindandi og ýmislegt gæti
gerst, sem ekki er hægt að sjá fyr-
ir núna.
Tveir frambjóðendur hafa bæst í
hópinn frá því að fylgiskönnun fór
fram síðast (fyrir hálfum mánuði)
en þetta eru þau Vaira Vike-
Freiberga, forseti Lettlands, og
Ashraf Ghani, fyrrv. fjár-
málaráðherra Afganistans.
Hvort um sig er álitið sterkur
kandídat en það er hins vegar enn
skilningur flestra, að næsti fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna eigi að koma frá Asíu og sam-
kvæmt því á Vike-Freiberga litla
möguleika.
Hitt er, að bandarískir embætt-
ismenn hafa sagt, að það eigi ekki
að skipta máli úr hvaða álfu góður
framkvæmdastjóri komi. Taki
Bandaríkjamenn þann kost að
styðja Vike-Freiberga með ráðum
og dáð gæti það sett strik í reikn-
inginn, enda Bandaríkin eitt þeirra
fimm ríkja sem neitunarvald hefur
í öryggisráðinu.
En það þýðir í reynd að enginn
getur orðið framkvæmdastjóri SÞ
nema hann hafi tryggt sér stuðn-
ing Bandaríkjanna (eða í það
minnsta, að þeir beiti ekki neit-
unarvaldi gegn þeim).
Sama má hins vegar segja um
Kínverja, sem líka eru í hópi fasta-
fulltrúa ráðsins, og kínversk
stjórnvöld eru sögð ákveðin í að
tryggja að ekki verði gengið
framhjá Asíu í þessu kjöri. Kín-
verjar hafa hins vegar ekki sagt,
hvern Asíumannanna þeir styðji.
Ban ki-Moon hlaut í síðustu
skoðanakönnun fjórtán „hvetj-
andi“ atkvæði en eitt „letjandi“.
Fullyrt er í dagblaðinu The Aust-
ralian sl. laugardag að það hafi
verið Katar sem greiddi Ban ki-
Moon „letjandi“ atkvæði, sem
túlka má þannig, að allar líkur séu
á því að Ban verði næsti fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna. Katar er nefnilega ekki eitt
þeirra ríkja sem hafa neitunarvald
í öryggisráðinu og gæti því ekki
komið í veg fyrir, að öryggisráðið
samþykkti að mæla með því við
allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna (samkundu allra 192 aðild-
arríkja Sameinuðu þjóðanna) að
Ban verði kjörinn næsti fram-
kvæmdastjóri.
Komi Ban vel út úr könnuninni í
dag má ætla að hann hafi pálmann
í höndunum.
Hitt er hins vegar jafnvíst – eins
og sagði hér að framan – að með
því að nú eru tveir nýir frambjóð-
endur komnir fram á sjónarsviðið,
dreifist atkvæði á fleiri menn en
áður; þ.e. að einhver þeirra ríkja
sem greiddu Ban „hvetjandi“ at-
kvæði ákveði nú að fylkja sér að
baki einhverjum öðrum frambjóð-
anda.
Það er því hugsanlegt að í stað
þess að staðan skýrist verði allt
óljósara en áður. Þetta er semsé
mikill prófsteinn á styrk Bans; tapi
hann stuðningi í dag mætti túlka
það á þann veg, að þegar á hólminn
væri komið hefðu fulltrúar í örygg-
isráðinu ekki verið sannfærðir um
að hann sé rétti maðurinn í emb-
ættið.
Það gæti síðan aftur þýtt að nýr
frambjóðandi bættist enn í hópinn;
en það vill enginn útiloka þann
möguleika að allt fram á síðustu
stundu verði haldið áfram að leita
að vænlegum kandídat.
Að vísu hefur verið stefnt að því
að afgreiða valið á nýjum fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna í október; það fer því hver að
verða síðastur að bjóða sig fram.
En hvers konar einstakling vilja
menn í embætti framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna á þess-
um tímapunkti?
Um þetta eru skiptar skoðanir.
Sumir eru hlynntir því að fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna sé eins konar „borgaralegur
páfi“, en segja má að Kofi Annan
hafi gegnt slíku hlutverki á sínum
ferli með endalausum ferðalögum
sínum um veröldina og „móralskri
leiðsögn“. Hins vegar segja menn,
að framkvæmdastjórinn eigi að
vara sig á því að taka sér ekki
stærra hlutverk en raunhæft sé
(og þannig læra af mistökum Ann-
ans); framkvæmdastjórinn eigi
fyrst og fremst að vera hæfur
stjórnandi og forystumaður sam-
takanna, sem við köllum hinar
Sameinuðu þjóðir.
Menn segja að Kofi Annan hafi
ekki staðið sig nógu vel að þessu
leyti til, Sameinuðu þjóðirnar séu
enn það bjúrókratíska skrímsli
sem þær voru, samtök með fjárlög
upp á tvo milljarða Bandaríkjadala
sem enginn hefur stjórn á og sem
þar af leiðandi virka ekki sem
skyldi. Kofi Annan til varnar má
hins vegar segja að hann reyndi þó
a.m.k. (snemma árs 2005) að beita
sér fyrir uppstokkun á innri starf-
semi og stjórnarháttum Samein-
uðu þjóðanna (sem m.a. þýddi að
auðveldara átti að vera að reka
vanhæfa starfsmenn). Sú tilraun
hefur hins vegar ekki gengið upp
ennþá og verkefnið bíður arftaka
Annans.
Athygli vekur að Ban ki-Moon
sagði sl. mánudag að hann vildi
einbeita sér að hinum diplómatíska
þætti embættisins og láta næst-
ráðendur framkvæmdastjórans
um að sinna daglegri stjórn sam-
takanna. Ljóst er því hvaða skoðun
hann hefur á hlutverki fram-
kvæmdastjórans. Hún fellur ef til
vill ekki í kramið í Washington, en
í Bandaríkjunum telja menn ein-
sýnt að fyrst og síðast þurfi að
taka til innanhúss hjá Sameinuðu
þjóðanna.
Arftaki
Annans
» Fullyrt er í dagblaðinu The Australian sl.laugardag að það hafi verið Katar sem
greiddi Ban ki-Moon „letjandi“ atkvæði, sem
túlka má þannig, að allar líkur séu á því að Ban
verði næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna.
BLOGG: davidlogi.blog.is
VIÐHORF
Davíð Logi Sigurðsson
david@mbl.is
DÓMSTJÓRI Héraðsdóms
Reykjavíkur Helgi I. Jónsson svarar
skrifum mínum um skýrslutökur af
börnum vegna meintra kynferð-
isbrota með grein sem ber heitið
„Það sem Barnahúsi er fyrir bestu“ í
Morgunblaðinu. þann 26. september.
Í greininni gerir hann tilraun til að
villa um fyrir lesendum með því að
halda fram því sjón-
armiði að gagnrýni mín
á Héraðsdóminn snúist
ekki um hagsmuni og
velferð barna heldur
hagsmuni þeirrar
stofnunar sem ég veiti
forystu. Helgi reiðir
hátt til höggs og af-
greiðir málflutning
minn sem „algjörlega
tilefnislausan og til
þess eins fallinn að
efna að ástæðulausu til
ófriðar í samfélaginu“
og þjóni „eingöngu sér-
hagsmunum Barnahúss sem stofn-
unar“.
Mér er það ofraun að skilja hvern-
ig hús getur haft hagsmuni en það
hefur hins vegar aldrei verið leynd-
armál að starfsemi Barnahúss var
sett á laggirnar til að varðveita rétt-
indi og velferð barna í samræmi við
Barnasáttmála Sameinuðu þjóð-
anna. Það fyrirkomulag við meðferð
mála sem viðhaft er í Barnahúsi hef-
ur hlotið alþjóðlega viðurkenningu
sem framúrskarandi úrræði. Millj-
ónaþjóðir eru að taka upp þetta fyr-
irkomulag að fyrirmynd Íslands.
Fyrsta Barnahúsið var opnað í Sví-
þjóð fyrir ári og í lok þessa árs verða
húsin orðin sex í jafnmörgum borg-
um. Fleiri þjóðir eru að undirbúa
stofnun slíkra húsa og eru Norð-
menn þar lengst komnir. Í byrjun
september voru Barnahúsi veitt
verðlaun alþjóðlegu barnavernd-
arsamtakanna ISPCAN (Int-
ernational Society for Child Abuse
and Neglect), valið úr fjölmörgum
tilnefningum til þeirra alls staðar að
úr heiminum. Tilnefning til þessara
verðlauna kom ekki frá Íslandi, held-
ur frá bandarískum saksóknara og
samstarfsfólki hennar í Wash-
ingtonríki. Fyrr hafði Barnahúsið
öðlast viðurkenningu frá Save the
Children í Evrópu svo og fyrstu við-
urkenningu Barnaheilla fyrir sér-
stakt framlag í þágu réttinda barna
árið 2002 sem nú er veitt árlega. Mér
er ekki kunnugt um nokkurt framlag
í velferðarmálum frá Íslandi sem
hefur fengið jafn víðtæka alþjóðlega
viðurkenningu og
Barnahús.
Í ljósi ofangreinds
hlýt ég að undrast þeg-
ar dómstjórinn gerir
málflutning minn tor-
tryggilegan. Getur
málið ekki einfaldlega
snúist um það að nú-
tíma fagþekking og
skilningur á hags-
munum og réttindum
barna liggi öðruvísi fyr-
ir en hann hefur haldið?
Getur ekki verið að
„regluleg upphlaup“
forstjóra Barnaverndarstofu séu
einfaldlega einlægar tilraunir til að
tryggja börnum í Reykjavík jafn-
góða þjónustu og öðrum börnum á
Íslandi? Eða hvaðan hafa þeir fáu
dómarar við Lækjartorg sem hundsa
Barnahúsið öðlast þá visku sem gerir
þeim kleift að vísa á bug alþjóðlega
viðurkenndri þekkingu fagfólks
(þ.m.t. lögfræðinga) í málefnum
barna - sem stjórnvöld hjá ná-
grannaþjóðum okkar eru nú að færa
sér í nyt?
Þá verður að andmæla þeim þætti
í málatilbúnaði dómstjórans er lýtur
að meintum annmörkum á skýrslu-
tökum af börnum í Barnahúsi og vís-
ar hann til tveggja dóma í þeim efn-
um. Þeir dómar sem vísað er til fjalla
um galla í málsmeðferð sem á engan
hátt geta talist hliðstæðir þeim dóm-
um sem ég gerði að umfjöllunarefni í
grein minni. Enga lögfræðikunnáttu
þurfa menn til að sjá þann mun sem
þar er á heldur dugar sæmileg lestr-
arkunnátta og geta áhugasamir flett
upp á viðkomandi dómum á vefsíðum
Hæstaréttar og Dómstólaráðs og
lagt eigið mat á.
Í grein dómstjórans er að öðru
leyti ekki ný rök kynnt til sögunnar.
Enn er reynt að gera niðurstöðu
Hæstaréttar og leiðbeinandi reglur
Dómstólaráðs um skýrslutökur af
börnum í Barnahúsi tortryggilegar.
Svo langsóttur er þessi málflutn-
ingur að vísað er til þess að máli hafi
verið skotið til Mannréttinda-
dómstóls Evrópu á grundvelli þess
að skýrsla hafi verið tekin í Barna-
húsi. Hætt er við að þessi mála-
tilbúnaður muni snúast í höndunum
á dómstjóranum þegar afgreiðsla
dómstólsins liggur fyrir. Sá sem
þetta ritar starfar nú í sérfræð-
inganefnd á vegum Evrópuráðsins
um vernd barna gegn kynferðisof-
beldi sem vinnur að gerð draga að
Evrópusamningi í þessum efnum,
þar sem forgangsatriði er meðal
annars að treysta rétt barnsins til
barnvænlegrar málsmeðferðar,
t.a.m. skýrslugjafar. Nefndin nýtur
meðal annars ráðgjafar dr. Guð-
mundar Alfreðssonar, prófessors og
forstjóra Wallenbergstofnunarinnar,
sem er einn fremsti lögfræðingur
heims á sviði mannréttinda. Má ég
leyfa mér að nota þetta tækifæri til
að stinga upp á því við Héraðsdóm-
inn að hann leiti álits Guðmundar í
þessu ágreiningsefni og ennfremur
um þá strauma á sviði mannréttinda,
einkum réttinda barna, sem nú eru
uppi í alþjóðasamfélaginu.
Enn um Héraðsdóm Barnahús
Bragi Guðbrandsson svarar
grein Helga I. Jónssonar um
Barnahús
» Getur ekki verið að„regluleg upphlaup“
forstjóra Barnavernd-
arstofu séu einfaldlega
einlægar tilraunir til að
tryggja börnum í
Reykjavík jafn góða
þjónustu og öðrum
börnum á Íslandi?
Bragi Guðbrandsson
Höfundur er forstjóri Barnavernd-
arstofu.
ÝMSIR flokksmenn Vinstri
grænna hafa undanfarna daga skrif-
að í Morgunblaðið og
eru sárir vegna greinar
sem birtist eftir mig í
blaðinu þar sem ég
gagnrýndi afgreiðslu
VG í bæjarstjórn Mos-
fellsbæjar á máli sem
varðar lagningu tengi-
brautar við Álafoss-
kvos. Þau áform myndu
skerða náttúru kvos-
arinnar og setja Varmá,
einhverja helstu nátt-
úruperlu sveitarfé-
lagsins, í hættu auk
þess að breyta eðli
byggðar og atvinnu-
starfsemi í Álafosskvos. Gagnrýni
mín á afstöðu VG í Mosfellsbæ virtist
hafa vakið athygli flokksmanna um
land allt og er það vel.
Kjarni minnar greinar var að VG
lofaði því fyrir kosningar í vor að
lagning tengibrautar við Varmá og
Álafosskvos yrði endurskoðuð með
tilliti til ábendinga frá íbúum og Var-
mársamtökunum. Núna vilja fulltrú-
ar VG ekki kannast við loforðin og
dulbúast í skjóli vanhæfisreglu. Þeir
virðast því hafa fórnað loforðum sín-
um fyrir meirihlutasamstarfið með
Sjálfstæðisflokknum. Við þessu hefur
ekkert svar komið í greinunum frá
VG, hvorki frá Ólafi Gunnarssyni,
varaformanni skipulagsnefndar af
hálfu VG, né Karli Tómassyni, bæj-
arfulltrúa flokksins, sem lýsti sig van-
hæfan við afgreiðslu málsins.
Eina svar þeirra er að reyna að
koma ábyrgð af málinu yfir á aðra.
Rétt eins og önnur mál þá hefur þetta
átt sér feril hjá bæjaryfirvöldum.
Samfylkingarmenn tóku vissulega
þátt í því ferli sem staðið hefur allt frá
1983 með ýmsum breytingum. Því
var heitið í aðdraganda sveitarstjórn-
arkosninganna að end-
urskoða þetta skipulag í
takt við kröfur íbúa og
ábendingar Varmárs-
amtakanna. Það hefur
Sf flutt tillögu um. Þá
tillögu felldi VG.
Ólafur Gunnarsson
yfir-hugmyndasmiður
VG í Mosfellsbæ reynir í
grein sinni á laugardag
að breiða yfir vandræða-
gang VG í þessu máli og
ræðst á mig persónu-
lega. Hann segir meðal
annars: „Stóryrði og
rangar ályktanir ein-
kenna grein Valdimars sem ástæðu-
laust er að elta ólar við. En rétt er að
benda á að Varmá er ekki á nátt-
úruminjaskrá, eins og hann segir í
grein sinni, heldur aðeins ósar henn-
ar.“
Þetta eitt telur Ólafur ástæðu til að
„elta ólar við“.
Í grein í Morgunblaðinu á þriðju-
daginn ræðst síðan oddviti Vinstri
grænna í Mosfellsbæ, Karl Tóm-
asson, fram á ritvöllinn og reynir
einnig að gera mig ótrúverðugan,
meðal annars með þessu: „Varmáin
er ekki á náttúruminjaskrá eins og
Valdimar heldur fram í grein sinni.“
Hér virðast fulltrúar VG annað
hvort tala af vanþekkingu eða fara
vísvitandi með ósannindi. Hvort
tveggja er jafn slæmt fyrir oddvita
flokksins og skipulagsnefndarmann-
inn og er með ólíkindum að þeir skuli
ekki vera betur að sér í málum sem
varða Varmá og náttúruminjaskrá.
Varmá hefur nefnilega verið á nátt-
úruminjaskrá í 28 ár, síðan 21. apríl
1978. Ósarnir voru síðan gerðir að
friðlandi árið 1980.
Þegar íbúar stofna með sér samtök
til að berjast gegn skipulagi, hlýtur
að vera ástæða til að staldra við og
endurskoða áformin. Í stefnu VG seg-
ir: „Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð vill stuðla að sem bestri samvinnu
við samtök áhugafólks um umhverf-
isvernd.“ Það er ekki nema von að
fulltrúar flokksins skuli bregðast
jafnilla við og sjá má á greinum
þeirra Ólafs og Karls.
Bjarni Jónsson í Skagafirði skrif-
aði einnig grein í Morgunblaðið og
leiðréttir þar þá villu í minni gein að
meirihlutinn í Mosfellsbæ sé sá eini
sem VG hefur tekið þátt í. Rétt er að
VG myndaði sem flokkur einnig
meirihluta í Skagafirði á síðasta kjör-
tímabili og hlýt ég að biðjast afsök-
unar á að hafa ekki munað eftir far-
sælu samstarfi þeirra við íhaldið. Enn
bíðum við Mosfellingar svo eftir svari
frá forystumönnum VG um ást þeirra
á náttúru Álafosskvosar, Varmár og
annarra verðmætra svæða í sveitar-
félaginu.
Náttúruleysi Vinstri grænna
Valdimar Leó Friðriksson
fjallar um umhverfismál í Mos-
fellsbæ og svarar greinum
Karls Tómassonar og Ólafs
Gunnarssonar
» Varmá hefur nefni-lega verið á nátt-
úruminjaskrá í 28 ár,
síðan 21. apríl 1978. Ós-
arnir voru síðan gerðir
að friðlandi árið 1980.
Valdimar Leó
Friðriksson
Höfundur er þingmaður Samfylking-
arinnar í Suðvesturkjördæmi.