Morgunblaðið - 28.09.2006, Page 38
|fimmtudagur|28. 9. 2006| mbl.is
Staðurstund
Skærasystur í bland við Bagga-
lúta, Beyoncé og Justin Timb-
erlake koma við sögu Tónlist-
ans. » 43
tónlistinn
Kanadíski kvikmyndagerðar-
maðurinn Atom Egoyan hlýtur
verðlaun fyrir listræna kvik-
myndasýn á RIFF. » 40
hátíð
Birta Björnsdóttir fjallar í pistli
sínum um deilur vegna upp-
færslu á óperunni Idomeneo í
Berlínaróperunni. » 41
af listum
Vélrænn Schubert, magnaður
Sjostakovitsj skrifar Ríkarður
Örn Pálsson um kamm-
ertónleika í Bústaðakirkju. » 42
tónlist
Sýningunni Guðs útvalda þjóð
lýkur senn í Kling og Bang við
Laugaveg, en þar sýna tæplega
30 einstaklingar listir sínar. » 40
myndlist
KJARTAN Þorbjörnsson opnar í
dag kl. 15 ljósmyndasýningu í
Skotinu í Ljósmyndasafni Reykja-
víkur. Á sýningunni gefur að líta
ljósmyndir sem Kjartan, eða Golli
eins og hann er oftast nefndur, hef-
ur tekið af vistarverum fanga á
betrunarstofnunum og í vist-
arverum ungs fólks í heimavist-
arskólum.
Sýninguna nefnir hann „Skapandi
rými“ en þar skírskotar hann til
þess hversu ólíkar vistarverurnar
eru þrátt fyrir að útlit þeirra sé við
fyrstu sýn keimlíkt.
Þrúgandi innilokunarkennd
Golli segist hafa fengið hugmynd-
ina að sýningunni fyrir tveimur ár-
um þegar hann fékk það verkefni að
mynda fangelsi landsins fyrir Tíma-
rit Morgunblaðsins en Golli starfar
sem ljósmyndari á Morgunblaðinu.
„Ég fór í öll fimm fangelsin sem
finna má í landinu og á meðan ég
vann að því verkefni skoðaði ég að-
stöðu fanga, við hvað þeir bjuggju,
hvað þeir höfðust að og tók svo
myndir.
Það er mjög óþægileg tilfinning
að ganga inn í fangelsi og heyra
þungum stálhurðum skellt á eftir
sér. Maður á mjög erfitt með að
ímynda sér að nokkur maður geti
hafst þar við í lengri tíma – svo mjög
er innilokunarkenndin þrúgandi og
depurðin sem umlykur allt. En svo
gerðist nokkuð áhugavert þegar ég
hóf að sýna fólki þessar myndir því
að sú tilfinning sem heltók mig
komst ekki í gegn. Þeir sem skoðuðu
þær spurðu oft: „Á hvaða heimavist
er þetta tekið?“
Þá kviknaði hugmynd hjá mér að
heimsækja heimavistir um allt land
og mynda herbergin þar. Öfugt við
fangelsin var létt yfir öllu í heima-
vistinni. Frelsið og lífsgleðin skein
af fólkinu sem átti allt lífið fyrir sér.
Það var jákvætt og hlakkaði til
framtíðarinnar.
Þannig geta einstakar táknmynd-
ir frelsis og frelsissviptingar litið
eins út. Tvær hliðar á sama pen-
ingnum, sem sýnir manni kannski
hversu fallvölt hamingjan er í raun.“
Gestaþraut
Sýningunni í Skotinu er þannig
háttað að nítján ljósmyndum – ýmist
af fangavist eða heimavist – er varp-
að af myndvarpa og segir Golli að
með því skapist eins konar gesta-
þraut sem áhorfandinn lendir í þeg-
ar hann þarf að geta sér til um hvor
vistin eigi við í hverju tilviki.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 10–19 og frá kl. 13–17 um helgar.
Henni lýkur 22. nóvember.
Fallvaltleiki hamingjunnar í myndum
Morgunblaðið/Golli
Hegningarvist eða heimavist? Sýningin verður opnuð í dag í Skotinu.
Heil tíu ár eru frá því aðMargrét Kristín Sigurð-ardóttir sem kallar sigFabúlu sendi frá sér sína
fyrstu geislaplötu. Platan sem bar
nafnið Fabúla Cut My Strings vakti
þónokkra athygli og var Fabúla
meðal annars tilnefnd til Íslensku
tónlistarverðlaunanna sem besti ný-
liðinn. Fimm árum síðar eða árið
2001 kom út önnur plata Fabúlu,
Kossafar á ilinni og fyrir þá plötu
fékk listakonan aðra tilnefningu Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna í
flokknum besta plata ársins.
Á morgun kemur svo þriðja plata
Fabúlu út. Hún kallast Dusk og inni-
heldur 10 lög eftir þau Margréti,
Birki Rafn Gíslason gítarleikara og
Jökul Jörgensen bassaleikara.
Brothættur hljóðheimur
Segja má að á Dusk sé Fabúla á
svipuðum slóðum og fyrr. Lögin eru
ennþá angurvær og lágstemmd og
næfurþunn söngrödd Fabúlu flytur
áheyrandann inn í allsérstakan
hljóðheim sem listakonan hefur
smíðað tónlist sinni.
Margrét Kristín segir að það sé
alltaf erfitt að skilgreina verk sín ný-
kláruð „Ég held ég þurfi meiri fjar-
lægð frá þessari plötu til að geta út-
skýrt hana með góðu móti en ég get
þó sagt að hún er dekkri en Kossafar
á ilinni. Ef ég væri neydd til að finna
henni einfalda skilgreiningu myndi
ég líklega segja að hún einkenndist
af melankólskri leikgleði.“ Samstarf
Fabúlu við þá Birki Rafn og Jökul
virðist hafa verið óumflýjanlegt og
Fabúla segir að þau hafi einfaldlega
leitað hvort annað uppi á sínum tíma.
„Við byrjuðum fyrir tveimur árum
að hittast, bæði til að æfa og semja,
fyrir stóra tónleika sem við héldum í
Borgarleikhúsinu en að þeim lokn-
um vorum við með svo mikið um-
framefni að plata var í okkar huga
eðlilegt næsta skref. Þetta er í fyrsta
sinn sem ég sem efni á plötu með
öðrum og það hefur verið mjög
skemmtilegt og gefandi. Þeir Birkir
og Jökull eru báðir frábærir laga-
smiðir, en ólíkir, og saman sömdum
við efni sem ekkert okkar hefði ung-
að út eitt og sér. Tvö af þessum lög-
um rötuðu á plötuna, en Birkir og
Jökull eiga líka eigin lög á plötunni
sem ég held mikið upp á.“
Hæfileikamenn til hjálpar
Á Dusk koma við sögu nokkrir
reyndir og þekktir tónlistarmenn.
Má þar meðal annars nefna Sigtrygg
Baldursson trommuleikara, Júlíu
Mogensen sellóleikara, hina írsku
Söruh Fogg sem leikur á klukkuspil
og syngur, Dan Cassidy fiðluleikara,
og KK sem bæði syngur í einu lagi
og blæs í munnhörpu í öðru.
„Sigtryggur og KK eru einstakar
persónur og frábærir listamenn sem
ég met mikils. Sigtryggur kom með
okkur í bústað og vann með okkur
grunnupptökur og KK slóst í hópinn
á lokasprettinum, söng með mér í
einu lagi og lék á munnhörpu í öðru.
Það er ekki slæmt að hafa fingraför
þeirra á plötunni.“
Fabúla hyggst spila ásamt þeim
Jökli og Birki Rafni víða á næstunni
og fram að eiginlegum útgáfu-
tónleikum sem verða í Tjarnarbíói
föstudaginn17. nóvember.
Morgunblaðið/Eyþór
Gott samstarf „Saman sömdum við efni sem ekkert okkar hefði ungað út eitt og sér,“ segir Fabúla.
Melankólísk
leikgleði
www.myspace.com/fabulaband