Morgunblaðið - 28.09.2006, Page 44

Morgunblaðið - 28.09.2006, Page 44
44 FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Málþing um heilaskaða Fagráð um heilaskaða boðar til málþings um málefni fólks með heilaskaða og aðstandendur þess fimmtudaginn 28. september kl. 13-16 í Hringsal LSH við Barnaspítala Hringsins. Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÞESSI MYND HLJÓMAR VEL ÞETTA ER SAKAMÁLAMYND ÉG ER EKKI MJÖG HRIFINN AF ÞEIM HVAÐ MEÐ, GODZILLA GEGN MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU? HLJÓMAR VEL SJÁÐU TIL, ÞETTA ER ÞITT BARN EN EKKI MITT! ÉG Á LITLA SYSTUR HEIMA ÞÚ ERT SÚ SEM SETTI HÚFUNA Á HANN... NÚNA VERÐUR ÞÚ AÐ HUGSA UM HANN ÉG HEF EKKI LENGUR ÁHUGA. ÉG HEF ÝMISLEGT ANNAÐ AÐ GERA ÞÚ ERT ÖMURLEG MÓÐIR!! ? ÉG ER KALVIN, MANNLEGA LJÓSEINDIN! Á AUGNABLIKI ER ÉG KOMINN MÖRG ÞÚSUND KÍLÓMETRA Í BURTU! OG EKKERT Í HEIMINUM KEMST HRAÐAR EN ÉG! VONA ÉG HVERNIG GEKK AÐ HALDA GÓÐGERÐA- SKEMMTUNINA Í GÆR? GEKK ALVEG JAFN VEL OG Í FYRRA VIÐ SÖFNUÐUM HELLING AF PENING TIL GÓÐGERÐAMÁLA... ...OG PABBI ÞINN SKEMMTI SÉR NÓGU MIKIÐ FYRIR OKKUR ÖLL EKKI HAFA ÁHYGGJUR AF OKKUR, VIÐ ERUM BARA AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ VERKIÐ SÉ UNNIÐ RÉTT HÆ, HVERNIG LÍST ÞÉR Á? ÞÚ LÉST LITA Á ÞÉR HÁRIÐ. LÍTUR VEL ÚT LÍT VEL ÚT? ÉG LÍT ÚT EINS OG ÉG HAFI LÁTIÐ ÞVO HÁRIÐ Á MÉR UPP ÚR BLEKI! ÞAÐ ER REYNDAR FREKAR DÖKKT ER ÞAÐ VIRKILEGA SVONA SLÆMT? ÞÚ STANGAÐIR MIG ALVEG JAFN FAST OG ALVÖRU NASHYRNINGURINN ÞAÐ HLÝTUR AÐ VERA ÞESSI BÚNINGUR SEM ÉG ER Í AULI! ÆÆÆ ÞÚ ERT RAUN- VERULEGA MEIDDUR Arfur Bríetar 150 árum síð-ar“ er yfirskrift málþingssem Rannsóknastofa íkvenna- og kynjafræðum, Kvennasögusafn Íslands og Kven- réttindafélag Íslands efna til næst- komandi föstudag. Á málþinginu verður fjallað um Bríeti Bjarnhéð- insdóttur og arfleifð hennar, en 27. september voru liðin 150 ár frá fæð- ingu Bríetar. Auður Styrkársdóttir er for- stöðumaður Kvennasögusafns og einn fyrirlesara á málþinginu: „Bríet hefur verið kölluð pólitískt stórvirki á Íslandi. Hún fór framarlega í flokki kvenréttindakvenna í upphafi 19. aldar, var stofnandi Kvenrétt- indafélags Íslands og formaður fé- lagsins um langt skeið auk þess að vera eigandi og ritstýra Kvenna- blaðinu,“ segir Auður, en blað Bríet- ar kynnti konum um allt Ísland kvennabaráttuna hérlendis og úti í heimi. „Bríet var ötul við það sem í dag er kallað „lobbýismi“, varði löngum stundum á Alþingi og fylgdist með gangi mála, og eru lögin frá 1911 um jafnan rétt karla og kvenna til menntunar og embætta iðulega þökkuð hennar framtaki. Þykir víst að samstarf hennar og Hannesar Hafstein ráðherra hafi skipt sköpum fyrir það að lögin urðu að veruleika, og fékk Bríet meira að segja að lesa lagafrumvarpið yfir áður en ráð- herra lagði það fyrir Alþingi,“ segir Auður. Bríeti var boðið að sækja þing alþjóðasamtaka kvenrétt- indakvenna í Kaupmannahöfn árið 1906: „Þar kynnist hún evrópskum kvenréttindakonum og fyllist mikl- um eldmóði við það að upplifa þann mikla áhuga og baráttuvilja sem var að finna hjá konum erlendis. Bríet kemur heim til Íslands og hefst handa við að stofna kvenréttinda- félag og deila hugsjónum sínum með samlöndum sínum,“ útskýrir Auður. „Við stöndum í þakkarskuld við Bríeti og fjölmargar aðrar konur sem börðust fyrir réttindum kvenna.“ Málþingið hefst kl. 13.30 með ávarpi Kristínar Ingólfsdóttur, rekt- ors Háskóla Íslands, og ávarpi Magnúsar Stefánssonar félagsmála- ráðherra þar á eftir. Því næst mun Sigríður Th. Erlendsdóttir sagn- fræðingur flytja erindi um Bríeti, og að því loknu verður upplestur úr Kvennablaðinu. Kl. 14.20 ætlar Þorbjörg Inga Jónsdóttir, formaður KRFÍ, að flytja erindið „Bríet og kvennabar- áttan. Kvenréttindafélag Íslands í 99 ár“ en á eftir henni mun Þorgerður Einarsdóttir dósent flytja erindið „„Þær heimtuðu hærra kaup …“ – Lærum af Bríeti.“ Söngatriði verður kl. 14.50 og mun Auður Styrkársdóttir strax á eftir flytja erindið „„Minn glaðasti ævi- tími“ – Bríet og alþjóðabaráttan fyr- ir kosningarétti kvenna.“ Lesið verður úr bréfum Bríetar áður en Kristín Ástgeirsdóttir sagn- fræðingur flytur erindið „„Með hreinni hvatir og sterkari siðgæð- istilfinningu“ – Velferð og femínismi innan íslenskrar kvennahreyfingar.“ Loks verður söngatriði áður en málþingi er slitið kl. 16. Málþingið er haldið í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Þingið er öllum op- ið og aðgangur ókeypis. Málþing | Sagt frá baráttu og bakgrunni kvenréttindafrömuðar í HÍ á föstudag Arfur Bríetar Bjarnhéðinsdóttur  Auður Styrk- ársdóttir fæddist í Reykjavík 1951. Hún lauk stúd- entsprófi frá KHÍ 1971, BA- prófi í almennri þjóðfélagsfræði frá HÍ, mast- ersnámi í stjórn- málafræði frá Sussex-háskóla og doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Umeå-háskóla 1999. Auður starfaði lengi sem blaðamaður og sem kenn- ari við HÍ, en hún hefur frá árinu 2001 verið forstöðumaður Kvenna- sögusafns Íslands. Auður er gift Svani Kristjánssyni prófessor og eiga þau samtals fjögur börn. Kvikmyndaleikarinn og sjarm-örinn George Clooney hefur vísað á bug orðrómi um að hann hyggi á framboð. Clooney var viðstaddur þar sem vöðvatrölls-ríkisstjórinn Arnold Schwarzenegger undirritaði löggjöf sem ætlað er að aðstoða við að stöðva þjóðarmorð í Darfur-héraði í Súdan. Fjölmiðlamenn létu rigna yf- ir Clooney spurningum um mögu- legt framboð, en nokkrir aðdáenda óskarsverðlauna- leikarans hafa byrjað herferð sem meðal ann- ars felst í prent- un stuttermabola þar sem Clooney er hvattur til að bjóða sig fram til forseta árið 2008. Veitti Clooney mjög hóflega orðuð en afdráttarlaus svör, en hann hefur m.a. verið virkur í að taka þátt í ýmsum pólitískum að- gerðum, sérstaklega aðgerðum sem miða að því að binda endi á ofbeldi í Darfur. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.