Morgunblaðið - 25.10.2006, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006 15
BANDARÍSKA samheitalyfjafyr-
irtækið Barr Pharmaceuticals hef-
ur lokið yfirtöku á króatíska sam-
heitalyfjafyrirtækinu Pliva. Þar
með er endanlega lokið þeirri sjö
mánaða baráttu sem Actavis hrinti
af stað fyrr á þessu ári þegar félag-
ið lýsti yfir áuga á að yfirtaka
Pliva. Niðurstaðan varð hins vegar
ekki sú að Actavis yrði fyrir valinu.
Yfirtökutilboð Barr í Pliva hljóð-
ar upp á 1,9 milljarða evra, eða um
164 milljarða íslenskra króna, en
Barr greiddi 820 kúnur á hlut fyrir
Pliva. Í frétt í breska blaðinu Her-
ald Tribune segir að Barr hafi nú
eignast 95% hlutafjár í Pliva og hafi
jafnframt krafist innlausnar á þeim
5% sem eftir standa.
Eftir yfirtökuna er Barr orðið
þriðja stærsta samheitalyfjafyr-
irtækið í heiminum. Félagið er með
starfsemi í 30 löndum og starfs-
menn þess eru um átta þúsund tals-
ins. Ársvelta sameinaðs félags er
um 2,4 milljarðar Bandaríkjadala.
Barr hefur eignast
Pliva að fullu
Endalok á baráttu Með yfirtöku Barr á Pliva er endalega lokið þeirri sjö
mánaða baráttu sem Actavis hrinti af stað fyrr á þessu ári.
VIÐSKIPTASENDINEFND frá
Nýfundnalandi og Labrador, vel á
fjórða tug manns, kemur til Íslands
fyrstu vikuna í nóvember. Um er að
ræða fulltrúa fjórtán fyrirtækja af
þessum slóðum sem sækja Ísland
heim í því augnamiði að koma á við-
skiptasamböndum við íslensk fyrir-
tæki. Hópurinn kemur jafnframt
hingað til lands til þess að kynna sér
íslenska sögu og menningu, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Fyrirtækin frá Nýfundnalandi og
Labrador sem koma hingað til lands
eru af margbreytilegum toga. Þau
eru allt frá nokkurra manna fyrir-
tækjum og upp í stórfyrirtæki. Með-
al þeirra eru fyrirtæki á sviði fata- og
skartgripahönnunar, bifreiðavara-
hluta, auglýsinga- og markaðsmála,
prjónaiðnaðar, bókaútgáfu o.fl.
KOM almannatengslum hefur
verið falið að annast skipulagningu
heimsóknarinnar í samvinnu við
kanadíska sendiráðið á Íslandi. Segir
í tilkynningunni að undirtektir ís-
lenskra fyrirtækja hafi þegar verið
mjög góðar.
Leita
tækifæra
á Íslandi
LANDSBANKINN hefur í sam-
vinnu við sjóðastýringarfyrirtækið
AllianceBernstein sett á stofn nýjan
erlendan skuldabréfasjóð, Lands-
banki Diversified
Yield Fund.
Í tilkynningu
frá Landsbank-
anum segir að
bankinn hafi ver-
ið umboðsaðili
AllianceBern-
stein á Íslandi frá
árinu 1994 en fyr-
irtækið sé á með-
al stærstu sjóðastýringarfyrirtækja
heims með yfir 600 milljarða dollara
í stýringu.
Landsbanki Diversified Yield
Fund verður skráður í íslenskum
krónum og verður gjaldmiðlaáhætta
hans varin yfir í íslenskar krónur.
Fram kemur í tilkynningunni að
það sé mat Landsbankans að sjóð-
urinn geti skilað ávöxtun í íslenskum
krónum upp á 14–17% auk þess að
bjóða upp á góða áhættudreifingu og
lága fylgni við aðra markaði.
Stefán H. Stefánsson fram-
kvæmdastjóri eignastýringarsviðs
Landsbankans segist vera mjög
ánægður með samstarfið við Alli-
anceBernstein.
Nýr skulda-
bréfasjóður
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins hafnaði í gær til-
lögu Finna um að allt vodka, sem
ekki er framleitt annað hvort úr
kartöflum eða korni, verði merkt
sérstaklega. Það eru aðallega Norð-
urlöndin sem framleiða vodka úr
kartöflum.
Í frétt Ritzau fréttastofunnar seg-
ir að Finnar, Danir og Svíar vilji að
tekinn verði upp sérstakur gæða-
stimpill fyrir vodka líkt og er um
viskí eða koníak. Finnar fara með
formennsku í Evrópusambandinu
þetta misserið og á fundi landbún-
aðarráðherra ESB í Lúxemborg
lögðu Finnar til að vodka, sem búið
er til úr kartöflum eða korni, heiti
áfram bara vodka. Sé áfengið hins
vegar búið til úr öðru hráefni verði
það merkt: „Vodka framleitt úr ...“
Þótti tillagan gera vodka, fram-
leiddu úr þrúgum eða ávöxtum,
lægra undir höfði en öðru vodka.
Deilt um
vodka í ESB
♦♦♦
♦♦♦