Morgunblaðið - 25.10.2006, Page 21

Morgunblaðið - 25.10.2006, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006 21 LANDIÐ Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Hvanneyri | „Ég hef alltaf sótt í sveitina og vissi að ég yrði aldrei alvöru Reykvíkingur,“ segir Þor- björg Valdís Kristjánsdóttir sem ráðin hefur verið alþjóðafulltrúi hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Hún kynntist alþjóðlegu starfi þegar hún vann að þjálfun og aðlögun Keikós í Vest- mannaeyjum og Noregi og hefur síðan unnið á þeim vettvangi. Þorbjörg er alin upp í Laxholti í Borgarhreppi í Borgarfirði. Hún fór í menntaskóla að Laugar- vatni. „Ég hef alltaf verið sveitó og fannst ómögu- legt að fara í menntaskóla í Reykjavík,“ segir Þor- björg. Hún steig það skref þó að loknu mennta- skólanámi og nam líffræði í Háskóla Íslands, útskrifaðist með BS-gráðu 1996. Hún komst aftur í snertingu við sveitina með því að ráða sig í fræðsludeild Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Tók þátt í Keikó-ævintýrinu Háhyrningurinn Keikó kom síðan inn í líf henn- ar í byrjun árs 2002. „Þá voru uppi hugmyndir um að flytja Keikó til Stykkishólms og koma honum meira yfir á hendur Íslendinga. Ráða þurfti Ís- lendinga til að taka við af Bandaríkjamönnunum. Forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi sagði frá mér, að ég hefði óþrjótandi áhuga á dýrum og væri til í að flytja hvert á land sem væri,“ segir Þorbjörg. Hún flutti til Vestmannaeyja og tók þar þátt í þjálfun háhyrningsins og tilraunum til að laga hann að náttúrunni. „Þetta var afar spennandi verkefni og frábært tækifæri fyrir líffræðing sem hefur áhuga á atferlisfræði,“ segir hún. En svo stakk Keikó af og kom fram í Skálavíkurfirði í Noregi um haustið. Þorbjörg var send á eftir hon- um til að koma honum aftur út á meðal villtra há- hyrninga. Þetta átti að vera viku verkefni en svo teygðist úr því að hún var í Noregi á annað ár, eða þar til Keikó drapst. Í þessu verkefni vann hún með Bandaríkjamönnum, Kanadamanni og Norð- mönnum og kynntist alþjóðlegu samstarfi af eigin raun. Hún kynntist líka samskiptum við fjölmiðla í þeim fjölmiðlasirkus sem var í kringum Keikó. Segist ekki hafa áttað sig á því fyrr en þá hversu stórt nafn hann var. „Auðvitað tengdist maður honum. Þetta var ótrúlega skepna. Það var svipað og að missa hund- inn sinn þegar hann drapst,“ segir Þorbjörg. Fljótlega eftir að hún kom heim aftur fékk hún vinnu sem alþjóðafulltrúi hjá Rannís. Heldur þar utan um þátttöku Íslendinga í alþjóðlegum verk- efnum, ekki síst innan rammaáætlunar ESB. Hún og maður hennar, Hlöðver Hlöðversson, fluttu upp í Borgarnes og hún tók því síðan fagn- andi þegar henni var boðið að ráða sig í nýtt starf alþjóðafulltrúa hjá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Hún tekur til starfa þar um næstu mánaðamót. Hún segir gott að búa í Borgarnesi. Þar sé hún stutt frá sveitinni sinni og geti verið með hesta, hund og kött. Á Hvanneyri verður hún hægri hönd og næst- ráðandi kennslustjóra Landbúnaðarháskólans og alþjóðafulltrúi. Hún segir hlutverk sitt að byggja upp alþjóðleg sambönd í tiltölulega ungum en vax- andi háskóla. Það gerist meðal annars með því að senda nemendur til erlendra háskóla og fá erlenda nemendur til landsins. Einnig með kennaraskipt- um. „Þetta er gríðarlega mikilvægt í nútímasam- félagi þar sem heimurinn er alltaf að minnka,“ segir Þorbjörg. Kynntist alþjóðlegu starfi í vinnu við þjálfun Keikós Morgunblaðið/Eyþór Ánægð með lífið Þorbjörg Valdís Kristjáns- dóttir er búin að fá vinnu í sveitinni. Í HNOTSKURN »Þetta var afar spennandi verkefni og frá-bært tækifæri fyrir líffræðing sem hefur áhuga á atferlisfræði. »Það var svipað og að missa hundinn sinnþegar Keikó drapst. »Mikilvægt fyrir skólann að koma upp al-þjóðlegum samböndum. Samstaða til sigurs! - Björn Bjarnason í 2. sæti Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október www.bjorn.is Kosningamiðstöð Björns Bjarnasonar / Skúlagötu 51 / 551-6300 / www.bjorn.is Opið alla virka daga frá kl. 14:00 til 20:00 og frá kl. 13:00 til 17:00 um helgar. Akstur á kjörstað Stuðningsmenn Björns Bjarnasonar bjóða kjósendum akstur á kjörstað báða kjör- dagana, 27. og 28. október. Vinsamlega hringið í síma 551-6300. Tekið er við beiðnum á opnunartíma kosningamiðstöðvar Björns. Stuðningsmenn. Húsavík | Hvítt er yfir að líta á Húsavík um þessar mundir. Öku- menn voru margir hverjir ekki bún- ir að skipta yfir á vetrardekk og var því örtröð á dekkjaverkstæðum bæjarins í fyrradag. Þannig var nóg að gera hjá Ingv- ari Sveinbjörnssyni, eiganda Bíla- þjónustunnar hf., og starfsmönnun þann daginn. Útlit er fyrir áframhaldandi norðanátt næstu daga með snjó- komu eða slyddu um norðanvert landið. Það er því eins gott fyrir ökumenn að skipta strax um dekk. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Örtröð á dekkja- verkstæði Snæfellsnes | Sveitarfélögin á Snæ- fellsnesi hafa stofnað Umhverfissjóð Snæfellsness. Guðrún Bergmann og fjölskylda hennar höfðu frumkvæði að stofnun sjóðsins. Stofnframlag hans er sjóður sem stofnaður var til minningar um eiginmann Guðrúnar, Guðlaug Bergmann framkvæmda- stjóra og frumkvöðul, sem lést í lok ársins 2004. Fram kemur á vef Snæfellsbæjar að markmið sjóðsins er að styrkja ýmis verkefni í umhverfis- og sam- félagsmálum sem byggð eru á grunni sjálfbærrar þróunar í sveit- arfélögunum fimm á Snæfellsnesi. Stefán Gíslason umhverfisstjórn- unarfræðingur, Sigríður Finsen, for- seti bæjarstjórnar Grundarfjarðar, og Guðrún Bergmann framkvæmda- stjóri eru í stjórn sjóðsins. Umhverfis- sjóður stofnaður Árborg | Björgunarfélag Árborgar og Slysavarnadeildin Björg á Eyr- arbakka bjóða eldri íbúum Árborgar að koma í heimsókn til þeirra og gera úttekt á slysavörnum á heimilinu. Eiga allir íbúar 75 ára og eldri kost á þessari þjónustu. Í heimsókninni verður farið yfir ýms öryggisatriði, svo sem lýsingu, handföng, eldvarnir og hálkuvarnir og ráðlagt um úrbætur. Heimsókn- irnar eru íbúunum að kostnaðar- lausu. Kemur þetta fram á frétta- vefnum sudurland.is. Heimsóknirnar munu fara fram næstkomandi laugardag, 28. októ- ber, og munu félagar þessara sveita þá ganga í hús og bjóða þjónustuna. Þeim sem ekki verða heima þá býðst að fá aðra heimsókn eftir samkomu- lagi. Ráðleggja öldruðum ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.