Morgunblaðið - 25.10.2006, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÉG ER AÐ FARA Á
STEFNUMÓT Í KVÖLD
OG ÞESSI KONA
FER SKO EKKI ÚT MEÐ
HVERJUM SEM ER...
EF ÞÚ SKILUR
HVAÐ ÉG MEINA
ÁTTU VIÐ AÐ
HÚN FARI BARA ÚT
MEÐ AULUM?
ÉG ÖFUNDA
ÞIG. ÞÚ ÞARFT
EKKI AÐ HAFA
ÁHYGGJUR AF
NEINU!
ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ HAFA
ÁHYGGJUR AF FRAMTÍÐ
HEIMSINS EÐA VERÐBÓLGU.
EKKI NEINU!! HVAÐ
ÆTLI
VERÐI Í
MATINN
Í KVÖLD?
ÞIÐ ERUÐ ÖLL BÚIN AÐ
LESA KAFLANN... HVER
GETUR SAGT MÉR AF HVERJU
ORUSTAN VIÐ LEXINGTON
VAR SVONA MIKILVÆG?
HVER
SEM ER
KALVIN,
HVAÐ MEÐ ÞIG?
ERFITT AÐ SEGJA, ÉG
HELD AÐ ÞAÐ HAFI KVIKNAÐ
Í LITLA HEILANUM Í MÉR
KONAN MÍN
SKILUR MIG EKKI
HVAÐ ER AÐ
SKILJA?
ÞÚ ERT
EINFELDNINGUR
ÖRYGGIS-
GÆSLA
Í SÍÐASTA
SKIPTI DÓROTEA,
ÞÚ VERÐUR
AÐ FARA ÚR
SKÓNUM
ÉG VEIT AÐ ÞÚ VARST EKKI AÐ
BÚAST VIÐ ÞVÍ AÐ FARA TIL ÍRAKS
ÞEGAR ÞÚ SKRÁÐIR ÞIG Í
ÞJÓÐVARNARLIÐIÐ... GANGI ÞÉR
VEL LÚLLI
EN ÞÚ ERT
HETJA FYRIR
AÐ GERA
ÞETTA ÁN
ÞESS AÐ
KVARTA
TAKK
LALLI, EN
ÉG ER
ENGIN
HETJA...
ÉG ER BARA NÁUNGI
SEM LAS EKKI
SMÁALETRIÐ
SAMT...
Æ... ÉG HÉLT
AÐ ÉG VÆRI
BÚINN AÐ
JAFNA MIG
ÞÚ HEFÐIR
EKKI ÁTT AÐ
REYNA SVONA
MIKIÐ Á ÞIG
ELSKAN
KOMUM BARA
HEIM
VIÐ HEYRÐUM
HANN SEGJA
AÐ HANN
ELSKAÐI HANA
OG SÍÐAN
FÓRU ÞAU HEIM
SAMAN
ÞETTA
ER
STÓR
FRÉTT
Forysta: Lærðu að nýtakrafta þína er yfirskriftnámskeiðs sem haldiðverður á vegum Endur-
menntunarstofnunar Háskóla Ís-
lands dagana 30. október, og 6. og
13. nóvember.
Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir
lektor við viðskipta- og hag-
fræðideild kennir námskeiðið:
„Námskeiðið byggist að stóru leyti á
því að þátttakendur líta í eigin
barm, skoða eigin viðhorf til lífsins,
og hvaða áhrif þetta viðhorf hefur,
og öðlast um leið betri skilning á
hegðun annarra,“ útskýrir Árelía.
„Nýjustu rannsóknir í leiðtoga-
fræðum sýna að það fólk sem nær
mestum árangri í stjórnun er ekki
þeir sem eru óskeikulir og eitil-
harðir heldur þeir sem þekkja best
eigin styrkleika og veikleika og
þekkja eigin takmörk og annarra.
Menn eru í auknum mæli að átta sig
á að hugmyndin um hetju-
stjórnandann sem er óskeikull, veit
allt og kann allt, er orðin úrelt. Og
það sem meira er, þá getur sú
„hetjudýrkun“, sem oft vill verða í
kringum stjórnendur, reynst skað-
leg.“
Námskeiðið hefst með því að þátt-
takendur þreyta Meyers-Briggs
persónuleikaprófið: „Það er gott
tæki og upphafspunktur sem nota
má til sjálfsþroska og getur ekki síst
hjálpað fólki að skilja hvernig við er-
um öll misjöfn. Með því er ekki sagt
að eftir námskeiðið geti þátttak-
endur lesið aðra eins og opna bók,
en það skiptir sköpum fyrir farsælt
samstarf og stjórnun að vera með-
vitaður um ýmsa þætti og marg-
breytileika mannlegs eðlis,“ segir
Árelía. „Seinni hluta námskeiðsins
verður verkefnavinna og umræður.
Þar köfum við dýpra ofan í efnið og
nemendur skiptast á skoðunum.“
Fyrir góða stjórnendur
En er hægt að læra stjórnun? Eru
stjórnunarhæfileikar ekki eitthvað
sem ekki verður kennt? Hvert er
gagnið af að sækja námskeið í
stjórnun: „Ef einhver er lélegur
stjórnandi og gerir ekkert í því, og
gerir sér jafnvel ekki grein fyrir því,
og vantar allan áhuga á að bæta sig,
þá gildir einu hversu mörg nám-
skeið hann situr eða hversu margar
kenningar og stjórnunaraðferðir
hann lærir,“ svarar Árelía. „Mín
reynsla er sú að það eru einmitt
góðu stjórnendurnir sem koma á
námskeið: þeir búa að því viðhorfi að
vilja stöðugt reyna að bæta sig, gera
sér grein fyrir að þeir kunna ekki
allt og geta ekki allt, og eru að leita
að nýjum leiðum og aðferðum til að
standa sig enn betur.“
Sem fyrr segir verður námskeiðið
Forysta: Lærðu að nýta krafta þína
kennt þrjá daga, og er kennsla frá 9
til 12 hvert sinn.
Vakin er athygli á að mörg stétt-
arfélög og fyrirtæki greiða fyrir
námskeiðsgjöld að hluta eða heild.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðið, skráningu og námskeiðs-
gjöld má finna á heimasíðu Endur-
menntunarstofnunar Háskólans á
slóðinni www.endurmenntun.is.
Menntun | Stjórnunarnámskeið hjá Endur-
menntun Háskóla Íslands hefst 30. október
Að skilja aðra
og stjórna vel
Árelía Eydís
Guðmundsdóttir
fæddist 1966.
Hún ólst upp í
Keflavík og lauk
stúdentsprófi frá
Kvennaskólanum
í Reykjavík 1987,
BA-gráðu í
stjórnmálafræði
frá Háskóla Íslands 1991, M.Sc. í
vinnumarkaðsfræði frá London
School of Economics 1993 og dokt-
orsgráðu í vinnumarkaðsfræði frá
University of Essex og Háskóla Ís-
lands 2001. Árelía starfaði sem ráð-
gjafi hjá Gallup, kenndi í fimm ár
við Háskólann í Reykjavík og hefur
frá árinu 2003 verið lektor við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla
Íslands. Árelía er gift Sigurði Áss
Grétarssyni forstöðumanni og eiga
þau samtals fimm börn.
LEIKKONAN Lindsay Lohan tekur hér við verðlaunum fyrir framúrskar-
andi árangur á leiklistarsviðinu á árlegri Hollywood-verðlaunahátíð í Be-
verly Hills í vikunni.
Hollywood-verðlaunin eru veitt ár hvert fyrir í tengslum við kvik-
myndahátíðina í Hollywood. Er þetta í tíunda sinn sem verðlaunin eru af-
hent, en þau eru veitt fyrir framúrskarandi árangur á sviði kvikmynda.
Fremst meðal jafningja