Morgunblaðið - 23.12.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2006 45
son en í aftansöngnum kl. 23.30
gleður Helga Rós Indriðadóttir
söfnuðinn með söng sínum. Þá mun
sr. Magnús Björn Björnsson þjóna
fyrir altari og prédika.
Á jóladag verður hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. Þá þjóna báðir
prestarnir en sr. Yrsa Þórðardóttir
mun prédika. Vilborg Helgadóttir
mun syngja einsöng. Á öðrum degi
jóla verður svo messað kl. 11. Þar
mun kór Digraneskirkju leiða söng
undir stjórn organistans Kjartans
Sigurjónssonar.
Miðnæturmessa
í Kirkjuhvammskirkju
á jólanótt
EINS og undanfarin jól verður mið-
næturmessa í Kirkjuhvammskirkju
ofan Hvammstanga á jólanótt.
Hefst messan kl. tólf á miðnætti.
Sérlega hátíðlegt hefur verið í þess-
um messum enda loga nær ein-
göngu kertaljós í þessari látlausu
og fallegu kirkju sem staðið hefur í
Hvamminum frá árinu 1882. Sung-
in verður hátíðarmessa að hætti sr.
Bjarna Þorsteinssonar og leiðir
kirkjukór Hvammstanga sönginn.
Að ganga til jólamessu í þessari
kirkju er eins og að njóta samvistar
við löngu gengnar kynslóðir þar
sem tíminn stendur í stað en Orð
Guðs varir að eilífu.
Páll Óskar og Mónika
í miðnæturmessu í Frí-
kirkjunni í Reykjavík
AÐ VENJU mun söngur Páls Ósk-
ars og hörpuleikur Móniku gleðja
Fríkirkjufólk í miðnæturguðs-
þjónustunni kl 23.30 á aðfangadag.
Anna Sigríður Helgadóttir og Carl
Möller verða einnig með okkur í
þessari hugljúfu stund. Hjörtur
Magni Jóhannsson þjónar fyrir alt-
ari og flytur hugleiðingu. Vegna
mikils fjölmennis síðustu ára, hvetj-
um við kirkjugesti til að mæta
snemma í þessa guðsþjónustu.
Kvennakirkjan
í Háteigskirkju
JÓLAMESSA Kvennakirkjunnar
verður í Háteigskirkju fimmtudag-
inn 28. desember kl. 20.30. Séra
Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédik-
ar. Freydís Dögg Steindórsdóttir
og Hallfríður Ólafsdóttir leika á
flautu. Kór Kvennakirkjunnar leið-
ir söng á jólalögum.
Á eftir verður kaffi í safnaðar-
heimilinu. Kvennakirkjan er sjálf-
stæður hópur innan þjóðkirkjunnar
sem iðkar kvennaguðfræði og hef-
ur mótað frjálslega messuhefð. Allt
fólk er velkomið.
Dönsk jólaguðsþjón-
usta í Dómkirkjunni
Á AÐFANGADAG verður að venju
haldin dönsk jólaguðsþjónusta í
Dómkirkjunni í Reykjavík. Prestur
er sr. Þórhallur Heimisson en hann
hefur annast þessar guðsþjónustur
undanfarin 10 ár. Organisti er Mar-
teinn Hunger Friðriksson og Berg-
þór Pálsson leiðir safnaðarsöng.
Guðsþjónustan er öllum opin.
Margir sækja þessa guðsþjón-
ustu, bæði Danir sem hér búa en
einnig aðrir Norðurlandabúar. Eins
hafa Íslendingar verið duglegir að
sækja guðsþjónustuna sem áður
hafa átt heima á Norðurlöndunum.
Hjá mörgum þeirra er danska guðs-
þjónustan í Dómkirkjunni á að-
fangadag orðin að upphafi jólahá-
tíðarinnar. Guðsþjónustan er öllum
opin og hefst hún kl.15.
Barnamessa í Landa-
koti á aðfangadag
ÁÐUR en „það verður heilagt“ kl.
18 og jóla- og fjölskylduhátíðin
hefst er barnamessa kl. 16.30. Þessi
messa ætluð öllum börnum, sér-
staklega þeim sem taka reglulega
þátt í trúfræðslu á laugardögum.
Messan tekur u.þ.b. þrjú korter og
er með sama sniði og barnamessa á
laugardögum að trúfræðslu lok-
inni. Börnin fara m.a. í helgigöngu
með logandi kertum að jötunni þar
sem jólaguðspjallið verður lesið.
Atvinnuauglýsingar
Aðstoðarmaður
tannlæknis
í Grafarvogi óskast í fullt starf. Reynsla æskileg
en ekki skilyrði. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf í byrjun janúar. Umsóknir berist til
auglýsingadeildar Mbl. eða á box@mbl.is
merktar: ,,T - 19380 ’’ fyrir 31. desember nk.
Skjalastjóri
Vinnumálastofnun leitar eftir sérfræðingi
í skjalavistun og skjalastjórn.
Starfssvið
Leiðbeinir og mótar verklagsreglur um
meðferð og vörslu almennra skjala.
Leiðbeinir og mótar verklagsreglur um
meðferð, notkun og öryggisvistun
trúnaðargagna og annarra mikilvægra
gagna.
Ber ábyrgð á skráningu erinda, almenns
pósts og annarra skjala sem berast stofnun-
inni.
Hefur umsjón með gagnageymslu, skjala-
rými og bókasafni.
Stýrir og fylgir eftir afgreiðslu erinda/mála.
Menntunar- og hæfniskröfur
Æskilegt er að viðkomandi hafi háskólanám
á sviði bókasafns- og upplýsingafræða eða
annarra skyldra fræðigreina eða búi yfir
góðri starfsreynslu á þessu sviði.
Hafi góða tölvuþekkingu.
Hafi góða þekkingu og kunnáttu í fram-
kvæmd stjórnsýslulaga, persónuverndar-
laga, upplýsingalaga og öðrum lögum er
opinberan rekstur varða.
Sýni framtakssemi, sjálfstæði og skipulags-
hæfni.
Hafi gott vald á íslensku.
Æskileg er tungumálakunnátta í ensku og
einu Norðurlandamáli.
Skjalastjóri heyrir undir forstöðumann rekstr-
arsviðs og hans bíður að sinna krefjandi verk-
efnum með jákvæðum og uppbyggilegum
samstarfshópi.
Um er að ræða fullt starf en hlutastarf kemur
einnig til greina. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf í janúar 2007.
Laun eru greidd samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkisins. Áhugasamir geta kynnt sér
starfsemi stofnunarinnar á heimasíðu hennar
www.vinnumalastofnun.is
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og starfsferil sendist Vinnumálastofnun,
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík
fyrir 6. janúar nk.
Frekari upplýsingar fást hjá Sigurði P. Sig-
mundssyni forstöðumanni rekstrarsviðs og
Hugrúnu B. Hafliðadóttur starfsmannastjóra í
síma 515 4800 eða á netfanginu
hugrun.haflidadottir@vmst.is
Raðauglýsingar 569 1100
Af hverju að bíða og bíða eftir stóra vinningnum þegar þú
getur unnið fyrir öllu sem þig langar að eignast? Það eina sem
þú þarft að gera er að bera út blöð í 1-3 tíma á dag.
Besta aukavinna sem þú getur fundið
og góð hreyfing í þokkabót!
Hringdu núna og sæktu um
í síma 569 1440 eða á mbl.is!
Sæktu um blaðberastarf
– alvörupeningar í boði!
FRÉTTIR
NÚ Á dögunum afhenti Jón Sigurðsson
iðnaðar-og viðskiptaráðherra forsvars-
mönnum Einstakra barna peningagjöf
að andvirði 300.000 kr. Líkt og undan-
farin ár var ákveðið fyrir jólin í ár að í
stað þess að senda út jólakort til fjöl-
margra aðila með kveðjum ráðherra og
starfsfólks ráðuneytisins skyldi andvirð-
inu varið til góðgerðarmála. Að þessu
sinni urðu Einstök börn fyrir valinu.
Í fréttatilkynningu er haft eftir Hönnu
S. Ásmundsdóttur formanni Einstakra
barna að styrkur sem þessi komi sér vel
til að viðhalda getu félagsins til að veita
félagsmönnum sínum styrki til heilsuefl-
ingar.
Einstök börn fá styrk
Þá segir í ályktuninni að enginn efist
um náttúruverndargildi Brennisteins-
fjalla. Svæðið sé eina óspillta víðerni höf-
uðborgarsvæðisins og búi yfir miklum
jarðfræðiminjum og landslagsfegurð í
samspili við menningarminjar.
Þá vill bæjarstjórnin hvetja stjórnir
Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjun-
ar til að fylgja fordæmi Hitaveitu Suð-
urnesja. Með því gætu fyrirtækin sýnt
samfélagslega ábyrgð sína í verki. Einnig
að í framtíðinni verði sóst eftir rannsókn-
arleyfum á svæðum sem þegar hefur verið
raskað en hinum hlíft.
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar fagnar
því að Hitaveita Suðurnesja hf. hafi riðið á
vaðið með yfirlýsingu um að draga til baka
sameiginlega umsókn sína með Orkuveitu
Reykjavíkur hf. um rannsóknarleyfi í
Brennisteinsfjöllum, að því er segir í
ályktun sem samþykkt var á bæjarstjórn-
arfundi 19. desember s.l. Í ályktun bæjar-
stjórnar segir einnig:
„Á þennan hátt hefur Hitaveita Suður-
nesja hf. sýnt hófsemd í verkum sínum og
forðast að sækjast eftir rannsóknar- og
virkjanaleyfum á svæðum sem hafa óum-
deilt náttúruverndargildi.“
Fagna afturköllun
rannsóknaleyfisumsóknar
NEMENDUR og starfsfólk Áslandsskóla
styrkja árlega Mæðrastyrksnefnd
Hafnarfjarðar skömmu fyrir jólahátíðina.
Elísabet Valgeirsdóttir frá Mæðra-
styrksnefnd Hafnarfjarðar mætti í Ás-
landsskóla við lok jólaskemmtunar nem-
enda í 6. bekk og veitti peningunum
viðtöku úr hendi Leifs S. Garðarssonar
skólastjóra.
Styrkurinn í ár var tæpar 150.000 krón-
ur. Nemendur skólans sleppa árlega pak-
kaleik en veita þess í stað fé þeim sem
minna mega sín í samfélaginu.
Þetta er fjórða árið í röð sem þessi
háttur er hafður á í Áslandsskóla og á
þessum fjórum árum hafa nemendur og
starfsfólk skólans safnað alls 559.767
krónum til Mæðrastyrksnefndar.
Í góðar þarfir Elísabet Valgeirsdóttir frá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar og
Leifur S. Garðarsson skólastjóri Áslandsskóla við afhendingu styrksins nýverið.
Áslandsskóli styrkir Mæðra-
styrksnefnd Hafnarfjarðar
HÁSKÓLI Íslands braut gegn jafnrétt-
islögum þegar karl var ráðinn í starf sér-
fræðings við stærðfræðistofu Raunvís-
indastofnunar Háskóla Íslands, sam-
kvæmt áliti kærunefndar jafnréttismála.
Nefndin segir konu hafa verið jafnhæfa
karlinum og því hafi átt að ráða hana.
Háskólinn rökstuddi ráðningu karl-
mannsins með því að hann hefði verið
virkari í rannsóknum að loknu doktors-
námi. Kærunefndin féllst ekki á þessi rök,
og bendir á að ekki verði séð að sérstakur
samanburður hafi legið fyrir við ákvarð-
anatökuna.
Í ákvörðun kærunefndarinnar segir að
ágreiningur sé um það meðal þeirra sem
um ráðninguna fjölluðu hvernig meta hafi
átt rannsóknarvirkni. Því sé ljóst að sá
munur geti ekki talist á umsækjandanum
sem fékk stöðuna og konunni sem kærði
að málefnalegt hafi verið að láta það ráða
úrslitum við endanlegt mat.
Því verði að telja að Háskóli Íslands
hafi ekki sýnt fram á það að aðrar ástæður
en kynferði hafi legið til grundvallar
þeirri ákvörðun að ráða karlinn. Þar með
hafi verið brotið gegn lögum um jafna
stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
„Við erum ósammála því sem kemur
fram í álitinu. Við höldum þeirri afstöðu
sem Háskóli Íslands hélt fram í þessu
ferli, að kynferði hafi ekki ráðið úrslitum
heldur hæfni,“ segir Bryndís Brandsdótt-
ir, stjórnarformaður Raunvísindastofnun-
ar Háskóla Íslands. Hún segir að faglegar
forsendur hafi ráðið.
Rannsóknir réðu úrslitum
„Við störfum eftir jafnréttislögum sem
kveða á um það að ef aðilar sem sækja um
stöðu eru jafn hæfir og eru hvor af sínu
kyninu þá ber að ráða konuna,“ segir
Bryndís, sem bendir á að um sérfræði-
stöðu sé að ræða þar sem rannsóknar-
vinna sé stærstur hluti starfsins. „Þó bæði
væru hæf var það rannsóknarvirkni eftir
doktorspróf sem réð úrslitum í varðandi
þessa ráðningu.“
Konan sem kærði ráðninguna hefur
gegnt starfinu um þriggja ára skeið.
Bryndís segir stöðuna tímabundna, og því
ráðið í hana til 3–4 ára í senn.
Háskóli braut gegn
jafnréttislögum