Morgunblaðið - 04.01.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 3. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
ELLISMELLIR
INDIANA JONES, ROCKY BALBOA
OG JOHN RAMBO Á NÝ >> 43
NÚ BYRJAR BALLIÐ
Í BÚÐUNUM
AÐ GRÆÐA
JANÚARÚTSÖLUR >> 24
London. AFP. | Þúsundir Breta koma til með
að horfast í augu við gjaldþrot á nýhöfnu ári
vegna of mikillar eyðslu í kringum nýliðna
jólahátíð, samkvæmt spá breska ráðgjafar-
fyrirtækisins Grant Thornton.
Nær 30.000 manns verða gjaldþrota
fyrstu þrjá mánuði ársins og segja sérfræð-
ingar Grant Thornton að þriðjungur gjald-
þrotanna verði vegna óhóflegar eyðslu í jóla-
innkaupin.
Gjaldþrot voru fleiri í fyrra en áður og í
fyrsta sinn urðu meira en 100.000 Bretar
gjaldþrota á einu ári. Mike Gerrard, yfir-
maður deildar sem hefur með persónuleg
gjaldþrot að gera hjá Grant Thornton, segir
að talan geti hækkað í ár. Staðan hafi verið
slæm á þessum tíma í fyrra og aldrei verri
en útlitið sé jafnvel enn verra nú. Ýmis atriði
hafi þessi áhrif, meðal annars vaxtahækkun,
háir reikningar þjónustufyrirtækja og at-
vinnuleysi, fyrir utan eyðslu um jólin.
Reuters
Eyðsla Margir Bretar féllu fyrir freist-
ingum og eyddu um efni fram fyrir jólin.
Gjaldþrot
blasir við
Margir Bretar fóru flatt
á eyðslunni um jólin
FLUGSTOÐIR ohf. og Félag ís-
lenskra flugumferðarstjóra (FÍF)
undirrituðu um kl. 19 í gærkvöldi
samkomulagið sem lá fyrir þegar
slitnaði upp úr viðræðum þeirra í
fyrrakvöld. Þrír stjórnarmenn úr
stjórnum hvors félags undirrituðu.
Reiknað er með að flugumferðar-
stjórar ráði sig hjá Flugstoðum ohf.
í dag. Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra kvaðst ánægður
með að samkomulag milli deiluaðila
hefði náðst.
Báðir sáttir
Ólafur Sveinsson, formaður
stjórnar Flugstoða, sagði að báðir
aðilar væru sáttir við samkomulagið
og að full þjónusta á flugstjórnar-
svæðinu yrði veitt þegar liði á dag-
inn í dag. Hann reiknaði einnig með
að öll starfsemi á Reykjavíkurflug-
velli yrði með eðlilegum hætti þegar
liði á daginn. Að sögn Ólafs fjallaði
samkomulagið einungis um lífeyris-
réttindi flugumferðarstjóra. Hann
sagði að aðilar væru sammála um að
einbeita sér nú af krafti að rekstri
félagsins.
Ráða sig í dag til starfa
Loftur Jóhannsson, formaður
FÍF, taldi líklegt að þeir flugum-
ferðarstjórar sem ekki höfðu ráðið
sig til starfa hjá Flugstoðum ohf.,
58–60 talsins, gerðu það nú. Þeir
gætu farið á starfsmannaskrifstofu
Flugstoða um leið og hún yrði opn-
uð og skrifað undir ráðningarsamn-
ing. Loftur sagði að væntanlega
myndu þeir sem ættu að vera á vakt
fara beint til starfa. Loftur sagði að
nú myndu menn einbeita sér að því
að græða þau sár sem urðu til í
hörðum átökum. Nú ætluðu menn
að vinna saman að framtíð fyrirtæk-
isins og flugumferðar á Íslandi.
Ánægður með niðurstöðuna
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra kvaðst vera þakklátur stjórn
og stjórnarformanni Flugstoða fyr-
ir að hafa unnið vel og skynsamlega
að málinu. Sömuleiðis væri hann
þakklátur forsvarsmönnum Félags
íslenskra flugumferðarstjóra fyrir
að hafa leitt sitt fólk til skynsam-
legrar niðurstöðu.
Sturla kvaðst ekki telja að deilan
hefði neikvæð áhrif á framtíð ís-
lenska flugstjórnarsvæðisins. Það
hvernig samgönguyfirvöld og for-
svarsmenn Flugstoða tóku á málinu
í góðu samstarfi við menn hjá Al-
þjóðaflugmálastofnuninni sýndi í
hve góðum höndum þetta verkefni
væri hjá okkur Íslendingum. | 6
Samkomulagið var
undirritað í gærkvöldi
Ljósmynd/jt
Heimsótti Flugstoðir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra heimsótti starfsmenn Flugstoða í gær.
Full þjónusta verður veitt á flugstjórnarsvæðinu þegar líður á daginn
Í HNOTSKURN
» Flugstoðir ohf. tóku tilstarfa 1. janúar og sjá
um flugvallarekstur og flug-
leiðsöguþjónustu fyrir inn-
anlandsflug og alþjóðlegt
flug yfir N-Atlantshafi.
» Flugumferðarstjórarvildu njóta sömu kjara
og réttinda og þeir höfðu hjá
Flugmálastjórn Íslands.
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
ÁKVEÐIÐ hefur verið að brjósta-
krabbameinsmiðstöð fái stað inni á
nýju Landspítala – háskólasjúkra-
húsi (LSH). Í miðstöðinni verði
m.a. sinnt skimun, rannsókn,
greiningu, meðferð og endurhæf-
ingu sjúklinga sem fengið hafa
brjóstakrabbamein sem og annarri
þjónustu, s.s. stuðningi við sjúk-
linga og aðstandendur. Í dag eru
þessir þættir þjónustunnar dreifð-
ir sem veldur töfum og óþægindum
fyrir sjúklinga sem og heilbrigðis-
starfsfólk.
Greining auðvelduð
Skimun, m.a. myndataka, fer
fram hjá Leitarstöð Krabbameins-
félagsins í Skógarhlíð en meðferð á
LSH. Þurfa skurðlæknar m.a. að
fara vikulega til Leitarstöðvarinn-
ar að skoða röntgenmyndir. Sjúk-
lingar geta á aðgerðardegi þurft að
fara bæði á sjúkrahúsið og í Leit-
arstöðina. Þá fara frumugreining-
arrannsóknir fram í Glæsibæ. Að-
gengi fagfólks að öllum gögnum á
sama stað mun að mati LSH auð-
velda alla greiningu og stytta bið-
tíma sjúklinga. Mikilvægt sé að
samræma betur en nú er gert
myndatöku, sýnatöku og úrvinnslu
úr slíkum rannsóknarniðurstöðum
svo og meðferð.
Náið samstarf meðferðaraðila
Brjóstamiðstöðvar hafa rutt sér
til rúms víða í Evrópu og einnig í
Bandaríkjunum á undanförnum
árum sem svar við óskum sjúklinga
um heildræna meðferð og að allir
meðferðaraðilar starfi náið saman,
að sögn Jóhannesar M. Gunnars-
sonar, lækningaforstjóra LSH.
Skimun | 12
Brjóstakrabbameinsmiðstöð
verði á nýja sjúkrahúsinu
Skimun, leit og meðferð við brjósta-
krabbameini verði öll á sama stað
Brjóstamiðstöð Með miðstöðinni
styttist biðtími sjúklinga.
Bagdad. AFP. | Haider Majeed, talsmaður
upplýsingaskrifstofu forsætisráðherra
Íraks, staðfesti í gær að vörður við aftöku
Saddams Husseins, fyrrverandi forseta
Íraks, hefði verið handtekinn vegna mynd-
skeiðs sem birtist síðar af hengingunni á
Netinu.
Saddam var tekinn af lífi skömmu fyrir
dögun á laugardag og skömmu síðar birt-
ist myndskeið frá atburðinum á Netinu.
Myndskeiðið var tekið á farsíma og á því
sést m.a. að gerð voru hróp að Saddam
rétt fyrir aftökuna.
Myndskeiðið féll í grýttan jarðveg hjá
súnnítum í Írak og í gær hóf ríkisstjórnin
rannsókn á töku og dreifingu myndskeiðs-
ins með fyrrgreindum árangri.
Mínútur og ár
Aftakan hefur víða verið gagnrýnd en
síðustu daga hefur athyglin beinst að um-
ræddu myndbandi og þó nokkur umræða
verið um það. Tony Snow, talsmaður
Hvíta hússins í Washington, sagði í gær að
svo virtist sem margir hefðu áhyggjur af
síðustu tveimur mínútunum í lífi Saddams
Husseins en ekki eins miklar áhyggjur af
fyrstu 69 árum lífs hans, þegar hann myrti
hundruð þúsunda manna. „Þess vegna var
hann tekinn af lífi,“ sagði hann.
Vörður handtekinn
vegna mynda frá
aftöku Saddams
♦♦♦