Morgunblaðið - 04.01.2007, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LANDSSAMBAND lögreglumanna (LL) er afar
óánægt með ákvörðun aðalfundar Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) að hækka ið-
gjöld aðildarfélaga til reksturs bandalagsins úr
0,30% af grunnlaunum félagsmanna í 0,32% og
segir formaður LL að þessi aðgerð geti orðið til
þess að lögreglumenn segi sig úr BSRB.
Í samtali við Morgunblaðið sagði Sveinn Ingi-
berg Magnússon, formaður LL, að forsaga máls-
ins væri sú að aðildarfélög BSRB hefðu greitt í
vinnudeilusjóð BSRB og þá hefði framlag félag-
anna numið 0,35% af grunnlaunum félagsmanna.
Lögreglumenn, sem ekki hafa verkfallsrétt, hefðu
lagt það til á síðasta þingi BSBR að ekki yrði leng-
ur skylda að borga í sjóðinn heldur myndi aðild-
arfélögunum vera í sjálfsvald sett hvort þau söfn-
uðu í slíkan sjóð. Þessi tillaga hefði verið
samþykkt á þinginu og því hefðu hann og fleiri tal-
ið sjálfgefið að iðgjald félaganna til BSRB myndi
lækka sem næmi framlögum í vinnudeilusjóðinn
eða úr 0,35% í 0,30%.
Tekist á um aðild LL að BSRB
Ákvörðun um upphæð iðgjalds er ekki á valdi
þings BSRB heldur aðalfundar sem haldinn var í
desember.
„Á aðalfundinum var svolítið komið í bakið á
mönnum því þá kom í ljós að formaður BSRB vildi
að hluti þess sem áður hafði runnið inn í vinnu-
deilusjóð myndi renna til reksturs BSRB,“ sagði
Sveinn. Um þetta hefðu orðið töluverð átök á fund-
inum en niðurstaðan orðið sú að 33% af því sem
hefði áður runnið í vinnudeilusjóðinn færi nú til
reksturs BSRB.
Meðal lögreglumanna hefur töluvert verið tek-
ist á um hvort LL ætti að vera aðili að BSRB og
fyrir um tveimur árum var naumlega felld tillaga
um að lögreglumenn segðu sig úr sambandinu.
Sveinn sagði að eitt þeirra atriða sem menn væru
mjög ósáttir við væri hversu mikið fé rynni úr vös-
um lögreglumanna og í sjóði BSRB en um 30% af
félagsgjöldum LL fara til BSRB. Sveinn sagði al-
veg ljóst að þessi ákvörðun BSRB myndi styrkja
þá sem teldu að LL væri best borgið utan banda-
lagsins. Lögreglumenn hefðu þegar lagt til að hjá
BSRB færu menn í naflaskoðun og skilgreindu
betur hvaða þjónustu bandalaginu væri ætlað að
veita. Hún væri illa skilgreind nú.
Lögreglumenn ósáttir
við gjaldtöku BSRB ERLENT par hugðist takast áhendur allóvenjulegt ferðalag ábílaleigubíl snemma í gærmorgun
þegar parið lagði af stað norður
Kjöl en festi lítinn jeppa sinn rétt
norðan Bláfellsháls. Kjalvegur er
merktur sem ófær vegur með skilti
en það mun ekki hafa náð athygli
ferðafólksins. Eftir að jeppinn fest-
ist lögðu þau af stað gangandi til
baka og gengu þá fram á vel búinn
jeppa á leið á Langjökul sem tók
þau upp í. Þá þegar höfðu björg-
unarmenn frá Reykholti í Bisk-
upstungum verið kallaðar út en
sneru við þegar fólkið var komið í
annan bíl.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
var hér um að ræða furðulegt
ferðalag fólks á erfiðum slóðum um
hávetur. Bíll þeirra er ennþá uppi á
Kili og mun bílaleigan annast flutn-
ing hans til byggða.
Ætluðu
yfir Kjöl
á smájeppa
SEXTÁN ára ísfirsk stúlka liggur
alvarlega slösuð á sjúkrahúsi í Nor-
egi eftir að hafa lent þar í slysi á
skíðum daginn fyrir gamlársdag.
Stúlkan var í skíðaferð í Noregi
með Skíðafélagi Ísfirðinga þegar
slysið varð. Hún fór út úr brautinni,
lenti á tré og slasaðist illa, hrygg-
brotnaði, auk þess sem, bringubein
og rifbein brotnuðu og hún fékk
innvortis blæðingar. Hún var flutt á
sjúkrahús í Osló og liggur þar, en
vonast er til þess að stúlkan komi
heim til Íslands á morgun og leggist
inn á sjúkrahús í Reykjavík.
Slasaðist
illa á skíðum
JEPPLINGUR valt út af þjóðveg-
inum í Öxnadal í gær og slösuðust
þrír farþegar en meiðsli þeirra
þóttu þó ekki alvarleg, að sögn lög-
reglunnar á Akureyri.
Tilkynning um slysið barst lög-
reglu rétt upp úr klukkan 18 en til-
drög þess voru þau að jeppling-
urinn mætti vörubifreið á veginum
og rákust bílarnir saman með þeim
afleiðingum að jeppinn fór út af
veginum og valt.
Farþegarnir slösuðust ekki al-
varlega við veltuna en voru þó
fluttir á slysadeild á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri til að-
hlynningar.
Ökumaður vörubifreiðarinnar
slasaðist ekki en vörubifreiðin var
óökuhæf eftir áreksturinn og
þurfti að gera við hana á staðnum.
Jepplingurinn var hins vegar
gjörónýtur.
Að sögn lögreglu var mikil hálka
á veginum þar sem óhappið varð.
Þrír slösuðust
í bílveltu
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
„GOLFARAR taka alltaf vel við sér
eftir hátíðirnar, sérstaklega ef
veðrið er gott, eins og það var í
[gær],“ segir Garðar Eyland, fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbs Reykja-
víkur, en vel var mætt á golfvöllinn
við Bása í gær og eins og mynd-
irnar bera með sér voru vallar-
gestir duglegir við að æfa sveifluna
í góða veðrinu.
Garðar segir að golfarar séu oft
þyrstir í að komast undir bert loft
eftir allar matarveislurnar um há-
tíðirnar.
Mjög vinsælt yfir vetrartímann
„En þetta hefur verið mjög vin-
sælt yfir vetrartímann þegar veðrið
er þannig,“ segir Garðar en tekur
fram að það sé töluvert færra fólk
sem mæti á veturna en yfir sum-
armánuðina.
„Fólk kemur mikið í hádeginu á
veturna en svo minnkar þetta yfir
miðjan daginn en eykst aftur eftir
klukkan fjögur, það er svona kúrf-
an í þessu,“ segir Garðar.
Aðspurður hvernig sveiflan og
getan hafi verið hjá golfurum eftir
hátíðirnar segir hann að það hafi
verið mesta furða, menn hafi verið
furðu lunknir við höggin.
Slæm tíð í haust
Haustið hefur ekki verið golf-
urum hagstætt og segir Garðar að
ekki hafi verið mikil ásókn það sem
af er vetri.
Þó sé einn karlahópur sem mæti
alla morgna á völlinn, sama hvernig
viðrar og spili níu holur.
„Svo koma þeir inn rétt fyrir há-
degi og fá sér kaffi og kex. Þetta
eru menn sem eru hættir að vinna
og þeir eru nánast að spila í öllum
veðrum. Þeir láta sig hafa það að
slá sama hvernig veðrið er, þannig
að þó það sé svartasta skammdegi
er líf á vellinum,“ segir hann.
Venjulega fer að verða full að-
sókn á vellina í maímánuði, að sögn
Garðars en í góðu ári getur það
verið í lok apríl.
„Þannig að það styttist í vertíð-
ina með hverjum deginum,“ segir
hann og bætir við að nú sé allt á
fullu hjá Golfklúbbi Reykjavíkur
við að undirbúa sumarið.
Morgunblaðið/Kristinn
Sveiflan Guðbjörn Gunnarsson gerir sig kláran fyrir upphafshöggið við Bása en Sigurvin Ármannsson fylgist með.
Golf í góða
veðrinu
í gær
Og … Eftir góða sveifluna fylgdust þeir afar spenntir með.
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu leitar nú þriggja manna vegna
mjög alvarlegrar líkamsárásar í
Garðastræti á nýársnótt.
Þremenningarnar eru grunaðir
um að hafa ráðist á tvo menn á móts
við kínverska viðskiptasendiráðið og
hefur lögregla sent fjölmiðlum
myndir sem teknar voru af árásar-
mönnunum við vettvanginn. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglu í
gærkvöldi hafði talsvert af vísbend-
ingum borist og var einn maður í við-
tali við lögreglu en hann hafði ekki
verið handtekinn, að sögn lögreglu.
Árásin virðist hafa verið algerlega
tilefnislaus og eru árásarmennirnir
sagðir hafa sparkað ítrekað í fórn-
arlömb sín. Þeir sem hafa upplýsing-
ar eða vitneskju um árásarmennina
eru beðnir að hafa samband við lög-
reglu í síma 444 1000.
Lögreglan leitar þriggja manna