Morgunblaðið - 04.01.2007, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Innritun virka daga frá kl. 16.00 - 20.00 í síma 551 3129 og allan sólarhringinn á heidarast@visir.is
Reykjavík Mosfellsbæ
Halló! Halló!
Kennum í félagsheimili Þróttar, Laugardal.
14 vikna námskeið hefst
þriðjudaginn 9. janúar.
Salsanámskeið í 6 vikur: Verðum með gestakennara frá Kúbu.
Fyrir börn yngst 4 ára: Barna og samkvæmisdansar
Unglingar: Það nýjasta í Hip Hop og öðrum unglingadönsum.
Hjón og pör: Allir venjulegir samkvæmisdansar. Skýrum út tónlist og takt og
kennum nemendum að þekkja hvað á að dansa eftir hinum ýmsu lögum.
Kennarar: Heiðar, Svanhildur, Ingibjörg, Harpa og Erla.
Fín fjárfesting á lágu verði.
Bagdad. AFP, AP. | Nouri al-Maliki,
forsætisráðherra Íraks, sagði í við-
tali sem birt var í gær að sér líkaði
ekki embættið og kvaðst helst vilja
láta af störfum áður en kjörtíma-
bilinu lyki.
Maliki hefur verið gagnrýndur í
Bandaríkjunum fyrir að grípa ekki
til harðra aðgerða gegn vopnuðum
hópum sjíta í Írak. Í viðtali við Wall
Street Journal sagði hann að það
væri „óhugsandi“ að hann gegndi
embættinu annað kjörtímabil. „Ég
óska þess að ég gæti jafnvel losnað
úr því áður en þessu kjörtímabil lýk-
ur. Ég vildi ekki taka við þessu emb-
ætti. Ég samþykkti það aðeins vegna
þess að ég taldi að það myndi þjóna
hagsmunum þjóðarinnar.“
Maliki tók formlega við embætt-
inu til fjögurra ára í maí eftir að
flokkar súnní-araba og Kúrda neit-
uðu að fallast á annan mann sem
flokkar sjíta höfðu tilnefnt í embætt-
ið. Súnní-arabar hafa gagnrýnt Mal-
iki harðlega fyrir að hafa ekki gert
nóg til að leysa upp vopnaða hópa
sjíta og umdeild aftaka Saddams
Husseins á laugardag hefur einnig
grafið undan stjórn Malikis.
Tvær aftökur í dag
Írösk stjórnvöld tilkynntu í gær,
að Barzan al-Tikriti, hálfbróðir
Saddams og fyrrverandi yfirmaður
írösku leyniþjónustunnar, og Awad
Ahmed al-Bandar, æðsti dómari
byltingarréttarins í valdatíð Sadd-
ams, yrðu teknir af lífi í dag. Voru
þeir dæmdir til dauða fyrir sömu
sakir og Saddam, morð á 148 sjítum í
þorpinu Dujail árið 1982.
Maliki segist vilja losna úr
embætti forsætisráðherra
Í HNOTSKURN
» Talsverð togstreita hefurverið milli Malikis og
Bandaríkjastjórnar.
» ÞjóðaröryggisráðgjafiBandaríkjaforseta sagði í
minnisblaði, sem upplýsingar
úr láku í fjölmiðla í fyrra, að
Maliki vildi verða sterkur leið-
togi en vissi ekki hvernig hann
ætti að fara að því. Bush hefur
þó lýst yfir stuðningi við hann.
MILLJÓNIR hindúa böðuðu sig í helgum fljótum Ind-
lands þegar ein af fjölmennustu reglulegu hátíðum
heims, Kumbh Mela, hófst þar í gær. Nokkrir þeirra
baða sig hér í Ganges-fljóti við borgina Allahabad.
Engin trúarhátíð í heiminum á sér jafnlanga samfellda
sögu og Kumbh Mela sem er a.m.k. 5.500 ára gömul.
Reuters
Milljónir hindúa baða sig í Ganges
HUGVEITAN Migrationwatch UK
fullyrðir í nýrri rannsókn að hagur
bresks almennings af vinnuframlagi
hundraða þúsunda innflytjenda, sem
hafi flust til landsins á síðustu árum,
sé miklu minni en stjórnvöld áætli.
Breska dagblaðið Daily Telegraph
gerði niðurstöðurnar að umfjöllunar-
efni í gær en þar sagði að efnahags-
legt framlag innflytjenda jafngilti
2,10 pundum, eða um 274 krónum, á
hvern af um 60 milljón Bretum, eða
alls um 17,3 milljörðum ísl. króna.
Stjórn Tonys Blairs forsætisráð-
herra er hins vegar sögð hafa fullyrt
að hagurinn af innflytjendum væri
sem næmi um 550 milljörðum króna.
„Mesta ávinninginn hljóta innflytj-
endurnir sjálfir sem geta sent um tíu
milljónir punda [1,37 milljarða króna]
til heimalands síns á dag,“ hafði blaðið
eftir Sir Andrew Green, formanni
Migrationwatch UK.
Þá er mikill straumur innflytjenda
til Bretlands sagður valda þrýstingi á
húsnæðismarkaðnum og í mennta- og
heilbrigðiskerfinu, auk þess sem hann
hafi áhrif á vinnumarkaði, með því að
auka samkeppni um störf.
Efast um
hag af inn-
flytjendum
ÞÓTT enn sé
langt til næstu
forsetakosninga í
Bandaríkjunum,
í nóvember 2008,
er undirbún-
ingur hugs-
anlegra fram-
bjóðenda
repúblíkana og
demókrata kom-
inn í fullan gang.
Sérfræðingum
er falið að meta
möguleika hugs-
anlegra fram-
bjóðenda, styrk-
leika þeirra og
veikleika og getu
til að safna fé í
kosningasjóði.
Það vakti því at-
hygli þegar
fregnir bárust af því að hlutar úr
140 blaðsíðna könnunarskýrslu á
möguleikum repúblíkanans
Rudolphs Giulianis, fyrrverandi
borgarstjóra New York og líklegs
frambjóðanda í forkosningum
repúblíkana, birtust í dagblaðinu
New York Daily News í vikunni.
Að sögn blaðsins er þar meðal
annars að finna ítarlega áætlun um
það hvernig Giuliani hyggist safna
jafnvirði 7,9 milljarða króna í kosn-
ingasjóð á árinu og er birting áætl-
unarinnar, sem er sögð stolin, talin
stórslys sem kunni að spilla mögu-
leikum hans á að hljóta útnefningu.
Þá kunni gamlir viðskiptafélagar
að verða honum til trafala.
Fortíð annars hugsanlegs fram-
bjóðanda, demókratans Baracks
Obama, er einnig til umræðu vest-
anhafs eftir að fjölmiðlar rifjuðu
upp fikt hans með kókaín á yngri
árum, sem lýst var í sjálfsævisögu
hans sem kom út skömmu eftir að
hann lauk laganámi. Obama, sem
mun ef til vill keppa við Hillary
Clinton um útnefningu flokks síns,
hefur haft vindinn í seglin og kann
málið setja blett á ímynd einnar
helstu vonarstjörnu demókrata.
Forseta-
efni í
vanda
Rudy Giuliani
Barack Obama
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
London. AFP. | Sameinuðu þjóðirnar
segjast ætla að rannsaka ásakanir
um að her- og lögreglumenn í frið-
argæsluliði samtakanna og aðrir
starfsmenn þeirra í Suður-Súdan
hafi nauðgað börnum.
Breska dagblaðið The Daily Tele-
graph sagði í gær að nauðganirnir
hefðu hafist skömmu eftir að friðar-
gæsluliðarnir voru sendir til Súdans
í mars 2005.
Blaðið vitnaði í óbirta vinnu-
skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna, UNICEF. Fréttin byggð-
ist einnig á viðtölum blaðamanns við
tuttugu börn sem segja að þau hafi
verið neydd til að hafa kynmök við
friðargæsluliða og aðra starfsmenn
samtakanna.
Sameinuðu þjóðirnar hafa sent yf-
ir 10.000 lögreglu- og friðargæsluliða
frá meira en 70 löndum til Suður-
Súdans. Verkefni þeirra er að fram-
fylgja friðarsamningi sem batt enda
á rúmlega tveggja áratuga borgara-
styrjöld á svæðinu.
Aðeins tólf ára
The Daily Telegraph sagði að sum
barnanna væru aðeins tólf ára og að í
skýrslu UNICEF kæmi fram að
embættismenn Sameinuðu þjóðanna
hefðu vitað af vandamálinu í rúmt ár.
Að sögn blaðsins er málið mjög
vandræðalegt fyrir Sameinuðu þjóð-
irnar nú þegar þær reyna að knýja
stjórnina í Súdan til að heimila þeim
að hefja friðargæslu í Darfur-héraði.
Blaðið sagði að stjórnvöld í Súdan
hefðu einnig safnað upplýsingum um
málið, meðal annars myndum af frið-
argæsluliðum hafa kynmök við ung-
ar stúlkur.
Jane Holl Lute, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
sagði að ásakanirnar yrðu rannsak-
aðar. „Ég tel ekki að þetta séu nýjar
ásakanir,“ sagði hún. „Við tökum
þær þó jafn alvarlega og allar aðrar
ásakanir.“
Lute bætti við að Sameinuðu þjóð-
irnar bönnuðu starfsmönnum sínum
að hafa kynmök við börn og hefðu
gert ýmsar ráðstafanir til að koma í
veg fyrir að þeir misþyrmdu börnum
kynferðislega. Sameinuðu þjóðirnar
þyrftu alltaf að vera á varðbergi í
þessum efnum vegna þess að um
200.000 hermenn tækju þátt í frið-
argæslu samtakanna við mjög mis-
jafnar aðstæður.
Komið hafa fram ásakanir um að
friðargæsluliðar á vegum Samein-
uðu þjóðanna hafi nauðgað börnum í
löndum á borð við Kongó, Haítí og
Líberíu.
Sagðir nauðga
börnum í Súdan
Starfsmenn SÞ sakaðir um nauðganir