Morgunblaðið - 04.01.2007, Qupperneq 22
|fimmtudagur|4. 1. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Víða eru útsölur að hefjast
þessa dagana og hægt að gera
góð kaup. En hvað er það sem
borgar sig að kaupa? » 24
útsölur
Sól, sandur og sjór í Marsa
Alam gáfu Brynju Tomer aftur
orkuna í kulda og vetrar-
skammdegi. » 25
Egyptaland
Margt gesta mætti á opn-
unarhátíð heilsuræktarinnar
Átaks sem nýlega var opnuð á
Akureyri. » 24
bæjarlífið
Lax, ýsuflök, kjúklingur, heilsu-
brauð, lýsi og vínber er meðal
þess varnings sem er á tilboði
þessa dagana. » 24
neytendur
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
„GÓÐAN dag og gleðilegt ár. Nú
ætla ég að fá þrjú kíló af ýsuflök-
um. Ég ætla að gefa strákunum
ýsu í raspi í hádeginu,“ sagði
Ágústa Einarsdóttir, sem rekur
jarðvinnufyrirtæki og þarf að elda
hádegismatinn fyrir starfsmennina
á vinnudögum. Það er fiskur tvisv-
ar í viku. „Þótt ég búi efst í Sala-
hverfinu keyri ég eftir fiskinum
alla leið hingað því hér fæ ég bæði
ódýrasta fiskinn og bestu þjón-
ustuna,“ sagði Ágústa í samtali við
Daglegt líf, sem brá sér í heim-
sókn til feðganna í Fiskbúðinni í
Hófgerði í Kópavogi í gærmorgun.
Þeir Finnbogi Hannesson og syn-
irnir Hannes og Helgi Mar voru í
óða önn að undirbúa annasama
daga, sem framundan eru, enda er
janúar alltaf góður fiskneyslumán-
uður.
Siginn fiskur og grásleppa
„Fiskur er allra meina bót og
aldrei of oft dásamaður. Við í fjöl-
skyldunni erum mikið fisk-
neyslufólk. Það var hins vegar al-
veg bölvað að koma fiski ofan í
strákana á unglingsárunum, en nú
eru þeir sólgnir í fiskinn. Það er
auðvitað persónubundið hvaða
fiskur fólki finnst bestur, en per-
sónulega er ég hrifinn af lúðunni
og Klausturbleikjan finnst mér
líka algjört sælgæti. Hér fæst líka
siginn fiskur og grásleppa og svo
er ég kominn með hrogn og lifur,“
segir Finnbogi, sem er vélvirki að
mennt og starfaði sem slíkur til
ársins 1986 að hann fór út í fisk-
bransann. Sonurinn Hannes, sem
er lærður trésmiður, er kominn á
fullt með föður sínum í reksturinn,
en Helgi Mar, sem er í Iðnskól-
anum í Hafnarfirði að læra að
verða pípari, kemur af og til í
íhlaupastörf.
„Kúnnarnir koma alls staðar að
og hér ræðir fólk um landsins
gagn og nauðsynjar. Það ríkir oft
hálfgerð félagsheimilisstemning
hjá okkur seinnipartinn enda þarf
aldrei að bíða eftir kaffi- og mat-
artímum.“
Fiskur engin lúxusvara
Fiskkaupmennirnir kaupa allan
sinn fisk hjá Íslandsmarkaði þar
sem þeir setjast niður við tölvu í
fiskbúðinni kl. 13.00 á daginn og
bjóða í óséðan fisk vítt og breitt
um landið. Í fiskborðinu má t.d.
sjá heila ýsu á 480 kr. kg, roð-
lausa og beinlausa ýsu á 1.080 kr.
kg, nætursaltaða ýsu á 950 kr. kg
og ýsu í raspi á 1.150 kr. kg.
„Fiskur er engin lúxusvara. Hann
er í raun mjög ódýr þegar á það
er litið að roðlausa og beinlausa
ýsan, sem er ekkert nema „filet“,
kostar rétt yfir þúsund krónurnar
á meðan filet af kjöti er aldrei
undir þrjú þúsund krónunum.“
Auk heilla fiska og flaka prýða
fiskboðið alls konar tilbúnir réttir,
sem þeir feðgar búa til frá grunni,
til að létta viðskiptavinunum mat-
seldina í erli dagsins.
Sérstakt orðspor hefur farið af
fiskbollum þeirra feðga sem eru
fullsteiktar og tilbúnar til upphit-
unar, ýmist á pönnu eða í ofni.
Þeir neita þó algjörlega að láta
uppskriftina af hendi þar sem þeir
segja að hún sé fjölskylduleynd-
armál. Í sárabætur fær blaðamað-
ur uppskrift að plokkfiski, sem er
sívinsæll og ávallt til í borðinu
ásamt öðrum girnilegum „til-
búnum“ fiskréttum, sem runnu út
eins og heitar lummur í fiskbúð-
inni í gær.
„Fiskbollurnar eru
fjölskylduleyndarmál“
Morgunblaðið/Ásdís
Línuýsan Fisksalinn Hannes Finnbogason flakar hér glænýja ýsu af línu-
bátnum Gunnari afa sem er frá Ólafsvík.
Sérstakt orðspor hefur
farið af fiskbollum þeirra
feðga sem eru full-
steiktar og tilbúnar til
upphitunar, ýmist á
pönnu eða í ofni. Þeir
neita þó algjörlega að
láta uppskriftina af
hendi þar sem þeir segja
að hún sé fjölskyldu-
leyndarmál. Í sárabætur
fær blaðamaður uppskrift
að plokkfiski sem þeir
segja að sé sívinsæll og
ávallt til í fiskborðinu hjá
þeim.
500 g ýsa eða þorskur
2 dl mjólk
1 laukur
hveiti
50 g smjörlíki
½ dl fisksoð
salt og pipar eftir smekk og annað
krydd, til dæmis karrí eða sí-
trónupipar
Fiskurinn soðinn og soðið tekið
frá. Laukurinn fínsaxaður og settur í
pott með mjólk, soði, pipar og kryddi
eftir þörfum. Þá er búin til smjör-
bolla úr hveitinu og smjörlíkinu og
bætt út í eftir að suðan er komin upp
í pottinum. Að endingu er fiskurinn
settur saman við og soðnar kartöflur
brytjaðar niður og settar líka saman
við. Sumir kjósa þó að hafa kartöfl-
urnar sér.
Feðgaplokk-
fiskurinn
Jóna Guðmundsdóttir hefur settsér að yrkja limru á dag á
bloggi sínu www.jona-g.blog.is. Og
fyrsta limran var ort 30. desember
um dauðadóm Husseins:
Hann hefur vart hugsað til enda
er til Helvítis ætlar að senda
grályndan Huss
– einn galvaskur Bush
að þar sjálfur mun líklegast lenda
Og Jóna orti daginn eftir þegar
geisladiskur barst frá Alcan inn á
heimili Hafnfirðinga:
Ég veit að ég mikils hef misst
af menningarauka og list
að fá ekki Bó
sem um bréflúgur fló
á kostnað Rannveigar Rist.
Og á nýársdag orti hún meðal
annars um hækkun á aðgangseyri í
sund:
Vilhjálmur léttur í lund
loforðin efndi um stund.
En góðverkum fækkar
því fljótlega hækkar
um fjórðung gjaldið í sund.
Svo heyrði hún af því að
umræðuþátturinn Kryddsíldin
hefði verið styrktur af Alcan þetta
árið. Jafnframt að stjórnmálamenn
í þættinum hefðu hneykslast á því.
Hún veltir því upp hvort þeir hafi
aldrei heyrt hið orðkveðna: „There
is no such thing as a free lunch“ og
yrkir:
Síst er það sannleikur nýr
og setningin um það er skýr,
(þótt sumir því gleymi):
„Í gjörvöllum heimi
fæst enginn málsverður frír“
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Limra á dag
HEIMÞRÁ á háu stigi getur orðið að virkilegum veik-
indum. Margt ungt fólk þjáist svo ákaflega af heimþrá
að það hefur heilmikil áhrif á daglegt líf þeirra og
gjörðir. Þeir sem verða helteknir af heimþrá eiga það
til að hætta að borða eðlilega og svefninn vill líka rask-
ast verulega. Eins einangrast þessir einstaklingar fé-
lagslega og lærdómurinn fer oft fyrir ofan garð og neð-
an hjá þeim sem eru í skóla fjarri heimili sínu og
fyrirmyndar nemendur hrapa niður í einkunnum. Svo
segir á vefmiðli MSNBC þar sem skýrt er frá nið-
urstöðum nýlegrar rannsóknar sem gerð var í Banda-
ríkjunum.
Í niðurstöðum rannsóknarinnar er bent á nokkur at-
riði fyrir lækna og foreldra til að þekkja þá þætti sem
geta valdið sjúklegri heimþrá, en ungt fólk sem er að
fara að heiman í fyrsta sinn er þar í mestri áhættu.
Hvort sem heimþráin gæti gripið um sig í sum-
arbúðum, á skólaheimavist eða á sjúkrahúsi, þá er full
ástæða til að vera með fyrirbyggjandi aðgerðir. Þau
börn sem hafa aldrei gist annarsstaðar en heima hjá
sér eru í mikilli hættu með að verða haldin sjúklegri
heimþrá og sama er að segja um þau börn sem hafa litl-
ar væntingar til þess staðar sem þau eru að fara á og
ráða litlu um aðstæðurnar sem þau eru sett í.
Til að auðvelda langtíma aðskilnað og draga úr
hættu á heimþrá, er best að undirbúa barnið vel. Gott
er að æfa barnið í því að dvelja fjarri heimili sínu og
leyfa því að vera með í öllum ákvörðunartökum í
tengslum við fjarveruna.
Sjúkleg heimþrá
Morgunblaðið/Ásdís
Vanlíðan Margir hafa sig vart undan sænginni vegna
mikillar heimþrár.