Morgunblaðið - 04.01.2007, Page 24
neytendur
24 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Frá og með áramótum þarf enginn
að greiða fyrir ferðir með strætis-
vögnum bæjarins og verður einkar
fróðlegt að sjá hvort notkunin eykst.
Nú geta þeir sem eiga lögheimili í
Hrísey einnig farið án endurgjalds
með ferjunni á milli lands og eyja.
Benedikt Sigurðarson, fyrrverandi
skólastjóri, skrifar pistil á heima-
síðu sína vegna flóðanna sem urðu
syðst á Brekkunni á dögunum.
Hann vitnar í verkfræðing „sem
þekkir vel til hér á Akureyri og hef-
ur unnið að ýmsum verkefnum
Akureyrarbæjar“, og segir hann
meta málið þannig að ekki sé mögu-
legt að ræsa yfirborðsvatn í leys-
ingum með öruggum hætti af svæð-
inu sunnan og ofan byggðar með því
að setja það í lokað ræsi. „Þessi fag-
maður bendir hins vegar á að það
væri auðvelt að nota Dalsbrautina
og lögn hennar til að leysa málið
með endanlegum hætti. Til þess
þarf hins vegar að leggja götuna og
grafa hana niður um a.m.k. 3 m og
hafa nokkuð vítt svæði sem getur
tekið við flóðrennsli meðfram göt-
unni.“
Benedikt segir jafnframt um Dals-
brautina: „Í allra verstu aðstæðum
getur þá gatan sjálf orðið yfirfall –
einhverja klukkutíma á meðan æst-
asta leysingin rennur fram. Með því
að grafa götuna niður og girða af
væri jafnframt komið til móts við
eðlilegar kröfur um að koma í veg
fyrir slysagildrur í hverfinu …“
Margt gesta mætti á opnunarhátíð
heilsuræktarinnar Átaks á föstu-
daginn var, m.a. Björgólfur Guð-
mundsson, stjórnarformaður
Landsbankans og eigandi West
Ham, en viðskiptafélagi Björgólfs til
margra ára, Magnús Þorsteinsson,
er eiginmaður Fanneyjar Særúnar
Benediktsdóttur, eins eigenda
stöðvarinnar.
Björgólfur er þekktur fyrir að vera
fínn í tauinu og á hátíðinni fór ekki á
milli mála að Ragnar Sverrisson,
kaupmaður í JMJ, hafði selt honum
fatnað, enda var Björgólfur ekkert
að fela forláta poka frá versluninni
sem í voru skyrtur og bindi …
Að kvöldi þrettánda dags jóla,
næsta laugardag, verður haldinn
nýársdansleikur Tónlistarfélags Ak-
ureyrar í Ketilhúsinu. Boðið verður
upp á hátíðarkvöldverð, kamm-
ersveit félagsins leikur Vínarvalsa
og aðra sígilda dansa til klukkan ell-
efu undir stjórn Michaels Jóns Clar-
kes en svo tekur við danshljómsveit
Stefáns Ingólfssonar fram á nótt
með frjálslegri danstónlist.
Nýársdansleikurinn er orðinn árleg-
ur viðburður og sérlega vel þykir
hafa tekist til. Í fyrra komust færri
að en vildu og sögðu gárungarnir að
brosið hefði ekki farið af fólki fyrr
en mörgum dögum eftir ballið – og
það sé jafnvel enn á sumum!
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Átak Magnús Þorsteinsson og
Björgólfur Guðmundsson brostu
breitt á opnunarhátíð Átaks.
úr bæjarlífinu
Krónan
Gildir 4. jan.–7. jan. verð nú verð
áður
mælie. verð
Móa kjúklingur, ferskur, 1/1 ....... 449 749 449 kr. kg
Danpo-kjúklingabringur.............. 1.399 1.998 1.554 kr. kg
Goða kindakæfa........................ 199 305 829 kr. kg
Goða medisterpylsa, reykt .......... 561 748 561 kr. kg
Freschetta XL pítsa, 3 tegundir.... 398 449 398 kr. pk.
Gouda, 17% ............................. 812 955 812 kr. kg
Lýsi heilsutvenna, 32 dagsk........ 719 899 719 kr. pk.
Power bar PRIA strawb. jógúrt...... 95 119 95 kr. stk.
Heilsa kvennablómi, 60 stk. ....... 1.334 1569 1.334 kr. pk.
Grand. It farfalle/fusilli ............... 81 115 162 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 4. jan.–6. jan, verð nú verð
áður
mælie. verð
FK jurtakryddað lambalæri.......... 1.198 1.855 1.198 kr. kg
Roast beef í neti ........................ 1.798 2.198 1.798 kr. kg
FK bayonneskinka...................... 1.098 1.498 1.098 kr. kg
Reyktar svínalundir .................... 1.298 1.755 1.298 kr. kg
Nauta Rib-eye ........................... 1.998 2.998 1.998 kr. kg
Appelsínur ................................ 98 129 98 kr. kg
Klementínur, kassi, 2,3 kg .......... 298 398 130 kr. kg
Dole vínber, 500 g box ............... 229 398 458 kr. kg
Ferskt rauðkál ........................... 95 198 95 kr. kg
Hagkaup
Gildir 4. jan.–7. jan. verð nú verð
áður
mælie. verð
Svínalundir úr kjötborði .............. 1.998 2.549 1.998 kr. kg
Svínalæri úr kjötborði ................. 598 779 598 kr. kg
Plokkfiskur úr kjötborði............... 899 1.089 899 kr. kg
Pottagaldralæri .......................... 1.599 1.998 1.599 kr. kg
Pottagaldra helgarsteik .............. 2.079 2.598 2.079 kr. kg
Holta kjúklingur, ferskur .............. 485 745 485 kr. kg
Myllu heilsubrauð, bakarí ........... 249 319 249 kr. stk.
Ben and Jerry’s ís, 443 ml .......... 459 759 459 kr. pk.
Nóatún
Gildir 4. jan.–7. jan. verð nú verð
áður
mælie. verð
Lambalæri ................................ 899 1.498 899 kr. kg
Lambalærissneiðar .................... 1.498 1.998 1.498 kr. kg
Laxaflök, beinhreinsuð ............... 998 1.498 998 kr. kg
Móa kjúklingabringur, magnp...... 1.898 2.679 1.898 kr. kg
Hreindýrafilet ............................ 2.998 4.998 2.998 kr. kg
Heilsa liðaktín, 500 mg, 60 stk. .. 2.119 2.649 2.119 kr. pk.
Rustichella pastas. carbonara .... 415 519 1.537 kr. kg
HM lífrænt spelthveiti ................. 331 389 365 kr. kg
Power BarFuelup energy drink ..... 231 289 462 kr. ltr
Egils Kristall, sítrónu, 1 ltr ........... 99 185 99 kr. ltr
Samkaup/Úrval
Gildir 04. jan - 07. jan verð nú verð
áður
mælie. verð
Nautahakk pakkað .................... 942 1.449 942 kr. kg
KEA Skyr 200 g 6 bragðteg......... 84 105 420 kr. ltr
Skyr.is Drykkur 330 ml 5 bragð-
teg. ..........................................
91 114 276 kr. ltr
Brazzi 1ltr 4 bragðteg. ................ 99 149 99 kr. ltr
Appelsínur 2 kg í neti ................. 199 299 99 kr. kg
Burger hrökkbr. 250g. 4 teg........ 99 139 99 kr. stk.
helgartilboðin
Ávextir og önnur
hollusta á nýju ári
Morgunblaðið/Ásdís
Lágt vöruverð heillar alltafsamkvæmt hagfræði-kenningum en lækkun áupprunalegu verði heillar
jafnvel ennþá meira. Þá fyrst fær nú
fólk á tilfinninguna að það sé virki-
lega að græða. Og í janúar lýsir enn
eitt ljósið í myrkrinu á Íslandi: útsöl-
urnar. Þær draga landsmenn auð-
veldlega enn á ný í miðstöðvar og göt-
ur verslunar, jafnvel þótt svo skammt
sé frá því að síðustu verslunarvertíð
lauk.
En er skynsamlegt að valsa um út-
sölurnar og hamstra vörur bara af
því að þær eru á svo góðu verði? Vita-
skuld ekki. Kæruleysi í innkaupum á
ekki við á útsölum frekar en endra-
nær. Flestir eyða mörgum vinnu-
stundum í að afla peninganna sem
eytt er í útsöluvörur, jafnvel þótt þær
séu á lægra verði en venjulega. Fólk
ætti því að ráðstafa fé sínu skyn-
samlega. Það þarf að vera sér meðvit-
andi um þarfir sínar og forgangsraða
þeim svo það viti hvernig forgangs-
raða eigi peningunum svo sem mest
verði úr þeim. Tökum dæmi. Þú sérð
ægilega fínt fondúsett sem með 30%
afslætti kostar 5.000 kr. „Það væri nú
gaman að eiga svona fondúsett,“ gæt-
irðu hugsað með þér. „Við Jonni/Jóna
gætum átt rómantískt kvöld við
kertaljós, skrafað saman og hjúpað
um leið ferska ávexti með bræddu
súkkulaði.“ En þú verður að vega og
meta líkurnar á hve miklar líkur eru
á að þú munir nota fondúsettið og
hversu oft. Það er góð fjárfesting ef
þú notar það en ef líkurnar eru meiri
á að það endi niðri í kompu, lítið eða
ekkert notað, er skynsamlegra að
eyða 5.000 krónunum í rómantíska
kvöldstund með Jonna/Jónu á nota-
legu veitinga- eða kaffihúsi.
Hugsaðu í hvert skipti sem þú ætl-
ar að kaupa eitthvað á útsölunum (og
reyndar alltaf) hvort svo og svo
margir þúsundkallar fari hugsanlega
beint inn í skáp eða kompu og liggi
þar óhreyfðir og ónotaðir í áraraðir
og sennilega um alla eilífð. Hefurðu
virkilega efni á því? Eða viltu nýta
peningana í eitthvað þarfara?
Afsláttur á húsgögnum og
raftækjum
Það er hins vegar bráðsniðugt að
festa kaup á því sem þörf er á fyrir
þig eða heimilið á janúarútsölunum
enda afslátturinn oft verulegur, 20–
70%, auk þess sem margar verslanir
veita 10% afslátt af nýjum vörum á
meðan útsalan stendur yfir. Fyrir ut-
an fatnað ætti að líta til tækifæris-
gjafa og húsgagna á afslætti og raf-
tækja á tilboðsverði. Tækifærisgjafir,
eins og afmælis-, innflutnings- og
fermingargjafir, vega lúmskt mikið í
heimilisbókhaldinu. Þeir hagsýnustu
nota útsölurnar grimmt til þess að
spara á þessu sviði í heimilisrekstr-
inum og birgja sig upp fyrir gjafa-
vertíðir. Gjafa- og húsbúnaðarversl-
anir rýma iðulega fyrir nýjum vörum
á þessum árstíma og þar sem tísku-
bylgjurnar eru ekki eins miklar eða
áberandi þar og í fatnaði má fá þar
margar sígildar og frambærilegar
gjafir sem henta vel við ýmis tæki-
færi, bæði nytjahluti og skrautmuni.
Barnaafmælin eru iðulega mörg, ekki
síst þegar tíðkast að bjóða heilu leik-
skóladeildunum eða skólabekkj-
unum. Leikfangaverslanir eru oft
með tilboð á ákveðnum vörum eða af-
slætti í janúar sem og bókaverslanir
og það er tilvalið að nýta sér það.
Það borgar sig sem sagt oft að láta
til skarar skríða á útsölunum ef heim-
ilið vantar húsgögn eins og sófa og
stóla. Oft má spara tugþúsundir við
kaup á slíkum vörum á jan-
úarútsölunum ef slíkt vantar á heim-
ilið. Þau hlaupa oft á tugum þúsunda
og jafnvel hundruðum og þá getur
munað mikið um 10–30% afslátt. Raf-
tæki eins og sjónvarpstæki, tölvur og
örbylgjuofnar eru einnig oft á góðum
tilboðum.
Málning, flísar og annað sem þarf
til nýbyggingar eða endurbóta á
heimilinu fer oft einnig á útsölu á
þessum árstíma og um að gera að
hafa augun opin og kanna hvort eitt-
hvað af því fellur að smekk og stíl
heimilisins. Dansið hægt um gleðinn-
ar dyr en takið sveiflu ef ástæða er
til.
Ballið er byrjað: Janúarútsölur
Það bregst ekki, Íslend-
ingar eru alltaf til í að
stíga dans í búðunum
þegar verðið er gott.
Unnur H. Jóhannsdóttir
valsaði um útsölurnar.
Til þess að gera góð,
markviss kaup á út-
sölu þarf að fylgja
þremur reglum:
» Í fyrsta lagi þarf aðgera sér grein fyrir
hver þörfin er.
» Í öðru lagi hverjuleitað er eftir.
» Þriðja reglan er aðgera ekki miklar
málamiðlanir á hinum
reglunum tveimur þeg-
ar á útsölurnar er
komið. Það er nefni-
lega líklegra en hitt að
málamiðlanir lendi
inni í skáp eða í komp-
unni – með hinum
þúsundköllunum.
uhj@mbl.is
Útsölukaup Það borgar sig oft að láta til skarar skríða á útsölunum ef heimilið vantar raftæki eða húsgögn. Af-
sláttur er oft þokkalegur á húsgögnum og getur skipt tugum þúsunda í verði og tilboðin góð á raftækjum.