Morgunblaðið - 04.01.2007, Qupperneq 34
34 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sigrún Aradótt-ir fæddist í
Reykjavík 12. mars
1937. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 23. des-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
eru hjónin Ari Guð-
jónsson rak-
arameistari, f. 7.
apríl 1914, d. 1996,
og Salvör Vet-
urliðadóttir, f. 24.
september 1914.
Bræður Sigrúnar
eru Halldór Sverrir, f. 10. sept-
ember 1938, kvæntur Ingibjörgu
Magnúsdóttur, f. 1938, og Helgi, f.
13. janúar 1943, kvæntur Maj-
Rebekka, f. og d. 25. nóvember
1996, Rakel, f. og d. 25. nóvember
1996, og Daði Sigursveinn, f. 3.
desember 1997. 2) Íris, f. 8. janúar
1966, sambýlismaður Jón Guð-
mundsson, f. 13. janúar 1966. Dæt-
ur Írisar eru Natalie Kristín, f. 28.
september 1993, og Helena, f. 10.
september 1995.
Sigrún ólst upp í Reykjavík til
níu ára aldurs, en fluttist þá með
fjölskyldu sinni til Akraness. Sig-
rún lauk landsprófi frá Reykholts-
skóla í Borgarfirði vorið 1954.
Hún vann við ýmis verslunarstörf
á Akranesi og síðar í Reykjavík,
en lengstan hluta starfsævi sinnar
vann hún við umönnun á Klepps-
spítala og sem meðferðarfulltrúi
og læknaritari á barna- og ung-
lingageðdeild Landspítalans.
Sigrún verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Britt Krogsvold, f.
1956.
Sigrún giftist 31.
mars 1956 Sveini
Árnasyni hár-
skerameistara, f. 15.
maí 1931. Foreldrar
Sveins voru Árni
Magnússon, f. 29.
september 1897, d.
1988, og Auðbjörg
Jónsdóttir, f. 9. októ-
ber 1897, d. 1982.
Dætur Sigrúnar og
Sveins eru: 1) Bryn-
hildur, f. 17. nóv-
ember 1961, gift Herði Guðjóns-
syni, f. 9. ágúst 1956. Börn þeirra
eru Eva Björg, f. 16. desember
1983, Sigrún, f. 5. febrúar 1990,
Að áliðnum degi á Þorláksmessu
kvaddi móðir okkar þessa jarðvist.
Hún var þreytt eftir langt og erfitt
stríð. Stríð sem hún ætlaði að vinna,
en varð að lokum að láta undan.
Síðustu vikurnar sem hún lifði
dvaldi hún á Landspítalanum. Þar
var í raun orðið annað heimili allrar
fjölskyldunnar því að barnabörnin
vildu helst hvergi annars staðar vera
en hjá ömmu. Þó hún væri lasin
mátti samt halla sér við hliðina á
henni, eða bara leggja sig í hæginda-
stólnum í herberginu og horfa á
sjónvarpið. Þar undum við okkur við
að hlusta á góða tónlist og ræða sam-
an meðan þrek var til og síðan nut-
um við nærverunnar saman í hljóði.
Hún mætti örlögum sínum af miklu
hugrekki og æðruleysi, mun sterkari
en við hin sem í vanmætti reyndum
að líkna henni eins og hægt var. Ein-
stakt starfsfólk á deildinni hennar
gerði allt sem það gat fyrir hana og
okkur hin í fjölskyldunni. Það góða
fólk á allar okkar þakkir.
Mamma var einstaklega skemmti-
leg kona. Hún hafði svo stórkostlega
kímnigáfu og frásagnargáfa hennar
var slík að einföldustu sögur urðu að
hreinum ævintýrum þegar hún sagði
þær. Ég, Brynhildur, naut þeirra
forréttinda að fá að taka við hana
mörg viðtöl sem tengdust námi
mínu. Þar ræddum við um bernsku
hennar og uppvaxtarár á Akranesi,
þar sem hún ólst upp í hópi fjörugra
krakka á ýmsum aldri. Þessar frá-
sagnir eru ómetanlegur fjársjóður
sem barnabörnin hennar eiga eftir
að geta leitað í til að fræðast um
ömmu sína og það hvernig það var að
vera barn á Íslandi á fyrri hluta síð-
ustu aldar.
Þegar við systur vorum að alast
upp var oft glatt á hjalla í litla húsinu
á Nesveginum, sérstaklega þegar
vinkonur mömmu komu í heimsókn
– hvað þær gátu hlegið mikið og ekki
ráku þær okkur í burtu þegar við
sátum, allar ein eyru og hlustuðum á
„fullorðinstal“. Enda reyndum við að
láta sem minnst fyrir okkur fara því
ekki vildum við missa af einu orði.
Við eigum ótal dýrmætar minn-
ingar frá bernskuárunum, til dæmis
þegar mamma saumaði alveg eins
kjóla á sig og okkur systurnar, þá
fannst okkur við aldeilis vera fínar.
Eða allar útilegurnar sem við fórum
í með pabba og mömmu og hversu
mikið yndi mamma hafði af því að
syngja með okkur á þeim ferðum.
Þegar sorgin nístir hjartað er gott
að eiga slíkan brunn góðra minninga
til að orna sér við og þá er stutt í að
brosið læðist aftur fram á varirnar.
Ég var lítið barn
og ég spurði móður mína
hver munur væri á gleði og sorg.
Móðir mín strauk yfir hár mitt og svaraði:
Sá maður sem aldrei kennir sorgar í hjarta
sínu
getur ekki glaðst
því hann þekkir ekki sorgina.
(Þórunn Magnea)
Kæra mamma. Hafðu þökk fyrir
allt það sem þú kenndir okkur systr-
um. Algóður Guð gæti þín.
Þínar dætur,
Brynhildur og Íris.
Í dag kveðjum við ástkæra ömmu
okkar, Sigrúnu Aradóttur.
Amma var ákaflega skemmtileg
kona og hafði góða kímnigáfu. Hún
var sannur vinur okkar og fylgdist
alltaf vel með öllu því sem við tókum
okkur fyrir hendur og við fundum
vel hversu mjög hún bar hag okkar
allra fyrir brjósti. Hún var stór per-
sóna í lífi okkar og við söknum henn-
ar afar sárt. Það er því gott að geta
leitað í sjóð yndislegra minninga
þegar sorgin steðjar að.
Amma átti stóran faðm og sparaði
aldrei knúsin. Hún var brosmild og
sæt og elskaði að syngja. Ein fyrsta
minning okkar allra er þegar við sát-
um inni í stofu og sungum með
ömmu meðan hún spilaði á gítarinn.
Elsku amma, takk fyrir að hafa
verið hluti af lífi okkar, takk fyrir allt
sem þú hefur gefið okkur, það er
okkur dýrmætt að hafa átt svona
góðan vin eins og þig.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei, það er minning þín.
(Guðmundur G. Halldórsson.)
Guð geymi þig, elsku amma. Þín
ömmubörn,
Eva Björg, Sigrún, Daði Sig-
ursveinn, Natalie Kristín og
Helena.
Mig langar í fáum orðum að minn-
ast frænku minnar, Sigrúnar Ara-
dóttur. Ég hitti Sigrúnu á Ísafirði á
heimili ömmu og afa á Lækjarmót-
um eins og hús þeirra var ætíð kall-
að. Í minningunni sé ég Sigrúnu þar
sem hún situr á dívaninum í stofunni
og spilar á gítar. Það fór vel á með
okkur frænkunum og ég var bæði
glöð og stolt af þessari góðu frænku
minni.
Mörgum árum seinna hittumst við
aftur á heimili hennar á Nesvegi 65,
þar sem hún og maður hennar höfðu
búið sér fallegt heimili. Ég minnist
þess er ég hringdi til hennar og
sagði henni að ég ætlaði á vefnaðar-
námskeið þá um haustið og bauð hún
mér að búa á heimili sínu á meðan.
Það var alltaf gaman að hitta Sig-
rúnu, hún var glaðlynd og hafði mjög
góðan húmor, góða frásagnargáfu og
góða söngrödd. Sigrún söng í kór í
nokkur ár með Vorboðanum í Mos-
fellsbæ og sagði hún mér hvað hún
væri ánægð að syngja í kór. Við Sig-
rún vorum systradætur og var ætíð
kært á milli allra þeirra systkina en
þau voru 13 sem komust upp en eru
sex þeirra á lífi í dag. Ég minnist
með gleði þeirra stunda er ég bjó á
heimili þeirra Sigrúnar, Sveins og
dætranna Brynhildar og Írisar, sem
eru söngelskar systur, og ég man
líka eftir stóru prjónavélinni sem
Sigrún sat við og prjónaði fallegar
flíkur sem hún svo seldi. Einnig
prjónaði hún fallegan kjól handa
mér. Sigrún vann líka ýmis önnur
störf utan heimilis og sinnti þeim af
samviskusemi og alúð.
Fyrir 15 árum komum við saman
afkomendur ömmu og afa okkar eina
helgi í góðu veðri uppi í Borgarfirði,
borðuðum saman og buðum upp á
skemmtiatriði, söng og gamanmál
og flutti Sigrún minningabrot um
ömmu og afa sem hún gerði vel og
fallega. Við hittumst svo aftur á
heimili hennar í Mosfellsbæ, það var
gaman að hittast og rifja upp það
sem á daga okkar hafði drifið og
sýndi Sigrún mér fallega garðinn
þeirra hjóna. Við sátum þar úti og
drukkum kaffi. Þetta var góður dag-
ur fyrir okkur báðar. Sigrún var
mikillar gæfu njótandi í lífinu, hún
átti það sem er okkur öllum dýrmæt-
ast í lífinu, góðan mann og dætur og
barnabörn sem hún var svo stolt af.
Ég þakka góðum Guði fyrir þessa
frænku mína og sendi aldraðri móð-
ur hennar, bræðrum og fjölskyld-
unni allri samúðarkveðjur. Að lokum
vil ég kveðja með erindi eftir móð-
urömmu okkar, Guðrúnu Halldórs-
dóttur frá Hóli.
Þegar húmar og hallar degi
heimur hverfur og eilífðin rís
sjáumst aftur á sólfögrum degi
þar sem sælan er ástvinum vís.
Salóme Guðmundsdóttir.
Lítill drengur lófa strýkur
létt um vota móðurkinn,
– augun spyrja eins og myrkvuð
ótta og grun í fyrsta sinn:
Hvar er amma, hvar er amma,
hún sem gaf mér brosið sitt
yndislega og alltaf skildi
ófullkomna hjalið mitt?
Lítill sveinn á leyndardómum
lífs og dauða kann ei skil:
hann vill bara eins og áður
ömmu sinnar komast til,
hann vill fá að hjúfra sig að
hennar brjósti sætt og rótt.
Amma er dáin – amma finnur
augasteininn sinn í nótt.
Lítill drengur leggst á koddann
– lokar sinni þreyttu brá
uns í draumi er hann staddur
ömmu sinni góðu hjá.
Amma brosir – amma kyssir
undurblítt á kollinn hans.
breiðist ást af öðrum heimi
yfir beð hins litla manns.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Þinn ömmustrákur
Daði Sigursveinn.
Nú held ég að Síminn missi spón
úr aski sínum þegar við hættum að
geta hringst á, nema það sé hægt að
nota gsm-samband til himna.
Mikið varst þú alltaf góð og gjöful
við mig. Komst alltaf með bleðla og
fínar blússur og gafst mér þegar þú
komst frá útlöndum.
Þú varst alin upp á Kirkjuhvoli á
Akranesi ásamt Kirkjuhvolssystkin-
unum og voru miklir kærleikar á
milli ykkar sem þú minntist ávallt
með gleði. Þú hafðir góða söngrödd
og spilaðir vel á gítar og naust þess
að syngja með Vorboðunum í Mos-
fellsbæ, ekki síst fyrir félagsskap-
inn.
Þú varst með sterkan gálgahúmor
sem fleytti þér yfir erfiða tíma og
ekki glataðir þú honum á banaleg-
unni.
Oft spiluðum við heilu hljóm-
diskana hvor fyrir aðra. Ég spilaði
Örvar en þú varst alltaf skrefi ofar
og spilaðir Kaldalóns og Álftagerð-
isbræður en Rósin var okkar lag.
Margs er að minnast af 53ja ára
kynnum. Gestrisni ykkar hjóna var
mikil og gott að þiggja veitingar hjá
ykkur.
Fjölskyldan umvafði þig svo sann-
arlega í veikindum þínum og end-
urguldu þér elsku þína við þau.
Guð geymi þig og ég kveð þig með
þessum erindum.
Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum
í líknarmildum föðurörmum þínum
og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta,
ég halla mér að þínu föðurhjarta.
Ó, sólarfaðir, signdu nú hvert auga,
en sér í lagi þau, sem tárin lauga,
og sýndu miskunn öllu því, sem andar,
en einkum því, sem böl og voði grandar.
(Matthías Joch.)
Elsku Sveinn og fjölskylda, vott-
um ykkur innilega samúð.
Indiana Sigfúsdóttir (Inda).
Á jóladag var mér tilkynnt lát Sig-
rúnar vinkonu minnar. Hún lést á
Þorláksmessukvöld, eftir harða bar-
áttu við hinn vægðarlausa vágest,
krabbameinið. Alla jólaföstuna sátu
eiginmaður hennar og dætur hjá
henni á sjúkrahúsinu. Þegar ég
heimsótti hana nokkrum dögum fyr-
ir andlátið var ró og friður yfir
henni. Prestur hafði nýlokið heim-
sókn til hennar og dótturdóttir
hennar og nafna hafði leikið fyrir
hana á fiðluna sína. Hún brosti til
okkar og gerði að gamni sínu eins og
hennar var háttur á milli þess sem
deyfilyfin hrifu hana inn í óminnið
stund og stund.
Kynni okkar hafa staðið í meira en
hálfa öld. Við vorum ungar og rétt að
hleypa heimdraganum þegar við
kynntumst í Reykholtsskóla, báðar
að þreyta þar landspróf.
Sigrún var hress og kát stelpa,
ljóshærð og bjartleit. Ég minnist
ýmissa uppátækja okkar þar.
Eitt var þegar við komum okkur í
kynni við unga ráðskonu á nálægum
bæ. Það varð til þess að þangað var
okkur oft boðið í kaffi og ýmiss kon-
ar fínt bakkelsi, sem ekki var mikið
um í mötuneytinu. Við fylgdumst
spenntar með rómantískum draum-
um ráðskonunnar, þótt ég muni nú
ekki lengur hvort það var bóndinn
ungi eða einhver annar í sveitinni
sem var draumaprinsinn.
Fáum árum síðar vorum við Sig-
rún báðar orðnar húsmæður í
Reykjavík. Ég í vesturbænum en
hún í Vogahverfi. Við heimsóttum
hvor aðra oft og iðulega og eigin-
menn okkar urðu brátt góðir kunn-
ingjar. Og símtölin voru mörg og
stundum löng. Á árunum þegar
börnin voru ung og við báðar heima-
vinnandi eins og þá var algengast
fundum við upp á því að skapa okkur
heimavinnu með vélprjóni. Keyptum
við þá rafdrifnar prjónavélar, og
framleiddum barnafatnað í gríð og
erg en höfðum sameiginlegan mark-
að hjá heildsölum í bænum. Á þessu
gekk í nokkur ár.
Ég minnist þess líka að löngu
seinna, í byrjun níunda áratugarins,
eyddum við Sigrún nokkrum falleg-
um vordögum saman í Frakklandi.
Þá skemmtum við okkur við að aka á
milli forngripaverslana í smábæjun-
um fyrir vestan París til að virða þar
fyrir okkur fínheitin en á kvöldin
voru síðan leitaðir uppi skrítnir veit-
ingastaðir með ekta frönskum mat-
seðlum sem við og fjölskyldur okkar
beggja gerðum okkur gott af.
Sigrún, Sveinn og dætur þeirra
bjuggu á nokkrum stöðum í Reykja-
vík. Lengi bjuggu þau í litlu húsi við
Nesveginn og einnig á tveim stöðum
í Skerjafirði. Alls staðar komu þau
upp gróskumiklum trjá- og blóma-
görðum við híbýli sín. Síðustu árin
hafa þau búið í þægilegu húsi í Mos-
fellsbæ. Þar sem annars staðar þutu
upp tré og runnar auk þess sem fjöl-
skyldan hafði komið sér upp sum-
arbústað í Grímsnesi þar sem njóta
skyldi tómstundanna. En því miður
kom vaxandi heilsuleysi Sigrúnar í
veg fyrir að það yrði sem skyldi.
Það var gott að eiga Sigrúnu að
vini. Hún kunni að hlusta, var hley-
pidómalaus og ráðagóð. Ég á eftir að
sakna símtalanna okkar. Við hjónin
sendum Sveini og fjölskyldu hans
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Edda.
Enn ein stjarnan hefur yfirgefið
okkur jarðarbörnin, Sigrún Ara,
dóttir Ara rakara Guðjónssonar og
Salvarar Veturliðadóttur. Kynni
okkar hófust 1948, er fjölskyldan
flutti á Akranes. Pabbi og Ari voru
góðir vinir frá fornu fari, þótt nokk-
ur aldursmunur væri á þeim. Má
þess minnast í gamni að Ari tók að
sér sérstakt hlutverk, „afar mikil-
vægt“, er þeir voru samtímis í Hafn-
arfirði, fyrr á síðustu öld. Var hann
útnefndur bréfberi sérstakra bréfa
til Reykjavíkur. Þar vann mamma á
netaverkstæði og þótti þetta fljót-
legasta leiðin til að bera boð á milli
staða. Gæti ég trúað að Ari hafi
hlaupið báðar leiðir, svo kvikur var
hann á fæti. Þetta þótti honum mikil
upphefð og minntist hann þess oft.
Ekki hafði reksturinn gengið svo
sem skyldi hjá Ara í Reykjavík. Varð
það því að ráði, að hann reyndi fyrir
sér á Akranesi. Á Kirkjuhvoli höfðu
verið heyhlöður í kjallara hússins frá
fyrri dögum, svo að varð það að ráði
að moka öllu út og gera snotra íbúð.
Inn í þessa íbúð flutti svo þessi fá-
menna fjölskylda, miðað við barna-
skarann á efri hæðinni. Strax í upp-
hafi var mikill og náinn samgangur
milli fjölskyldnanna.
Sigrún var afskaplega skemmti-
leg, heilsteypt og vinur vina sinna,
sem voru ófáir. Urðu hún og bræður
hennar eins og hluti af okkur hinum.
Mörg voru þau uppátækin hjá unga
fólkinu, sem enn eru í minnum höfð.
T.d. hafði háaloftið, sem var þá einn
stór geimur, mörg skúmaskot, er
voru forvitnileg fyrir yngra fólkið.
Tilvalinn leikvöllur innandyra.
Margar gersemar leyndust þar, t.d.
söðlar og hrosshúð. Var tilvalið að
útbúa einhvers konar „hest“. Sest
var í söðla í kjólum af mæðrunum og
farnar ferðir um ókunn lönd með
hirðsveinum og -meyjum. Sigrún var
oft aðalforsprakkinn í þessum uppá-
komum. Hún smitaði svo sannarlega
út frá sér, hafði áhuga á öllu sem
skemmtilegt var. Eiginlega man ég
bara Sigrúnu í góðu skapi. Svolítill
prakkari, sem laumaði út úr sér ein-
um og einum brandara. Ari rakari
var sögupersóna út af fyrir sig.
Stjáklandi fram og aftur segjandi
sögur eða vitnandi í Laxness. Þau
feðginin voru engum öðrum lík.
Á Akranesi bjó fjölskyldan í 10 ár
og flutti þá á Njálsgötuna í Reykja-
vík. Þar var Ari með rakarastofu í
sama húsi. Eftir að fjölskyldan flutti
varð vík milli vina, en alltaf haft sam-
band. Sigrún eignaðist sinn góða
mann Svein, sem við urðum svo lán-
söm að kynnast. Hann var á sömu
nótum og hún. Til í einhverjar heim-
sóknir, uppákomur þegar tækifæri
gafst. Sigrún var mjög trygg vinum
sínum og til marks um það var hún
kosin til að flytja ávarp 50 ára ferm-
ingarbarna í sinni gömlu sóknar-
kirkju. Þar tókst henni, eins og allt-
af, vel upp, enda vel máli farin.
Sigrún átti við vanheilsu að stríða
mörg ár, m.a. sykursýki. En hún lét
ekkert aftra sér og þótt sjónin dapr-
aðist sá hún alltaf björtu hliðarnar á
lífinu. Gerði hún mest grín að sjálfri
sér, vildi enga vorkunn. Margan
gladdi hún með sinni eðlislægu góð-
vild og manngæsku. Síðustu mánuð-
ir hafa verið mjög erfiðir hjá okkar
góðu Sigrúnu og fjölskyldu hennar.
Við sem eftir stöndum sjáum hana
með hinum stjörnum okkar er
kvöddu á vetrarmánuðum 2006.
Birta frá stjörnunni í Betlehem
færðist yfir hana á Þorláksmessu, er
hún steig inn í jólafriðinn.
Sjöfn Jónsdóttir.
Sigrún Aradóttir
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram eða
grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi.
Lengd | Minningargreinar séu
ekki lengri en 3.000 slög (stafir
með bilum - mælt í Tools/Word Co-
unt). Ekki er unnt að senda lengri
grein.
Minningargreinar