Morgunblaðið - 04.01.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 37
✝ Áslaug Stef-ánsdóttir frá
Mörk fæddist 13.
maí 1922. Hún lést á
hjúkrunardeildinni í
Hlíð sunnudaginn
24. desember síðast-
liðinn. Áslaug var
elst af sjö börnum
hjónanna Stefáns
Tryggvasonar og
Hólmfríðar Sigurð-
ardóttur á Hallgils-
stöðum.
Árið 1941 giftist
Áslaug Arnþóri
Guðnasyni frá Lundi, f. 25. apríl
1908, d. 25. maí 1978. Bjuggu þau
í Mörk þar til Arnþór lést. Börn
þeirra eru fimm, þau eru: 1) Stef-
án, fyrri kona Rebekka Jóhann-
esdóttir, þau eiga
tvær dætur. Seinni
kona Kristjana
Kristjánsdóttir. 2)
Guðríður Herdís,
gift Kristjáni Jóns-
syni, þau eiga fjög-
ur börn. 3) Guðni
Þorsteinn, kvæntur
Guðrúnu Jóns-
dóttur, þau eiga
fimm börn. 4) Gunn-
hildur, gift Davíð
Herbertssyni, þau
eiga sex börn. 5)
Fríða.
Langömmubörn Áslaugar eru
27.
Útför Áslaugar verður gerð frá
Hálsi í Fnjóskadal í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Því aðeins færð þú heiðrað og metið þína
móður,
að minning hennar verði þér alltaf hrein
og skír,
og veki hjá þér löngun til að vera öðrum
góður
og vaxa inn í himin – þar sem kærleik-
urinn býr.
(Davíð Stefánsson)
Margs er að minnast við fráfall
Ásu frá Mörk, og á þessum tíma-
mótum vil ég þakka gæsku hennar
við mig og dætur mínar. Í mínum
huga var hún mikil og góð amma,
alltaf gott að koma í Mörk og njóta
hlýju og ómældrar gestrisni hennar.
Ekkert var of gott fyrir barna-
börnin og rúsínu-, sveskju- eða
súkkulaðibirgðir heimilisins hurfu
fljótt ofan í stelpurnar ásamt íseign
ömmu. Eldri stelpan vaknaði eitt
sinn upp kl. 12 að kvöldi og bað
ömmu sína um ís, næstum heill ís-
pakki hvarf ofan í stelpuna áður en
hún datt út af – sjaldan sagði amma
nei við barnabörnin. Það rifjast líka
upp þegar nafna hennar litaði hárið
á ömmu, ekki tókst betur til en svo
að síða fallega hárið hennar varð
bleikt, og þannig varð amma að
koma í skírnarveislurnar það árið,
mikið var hlegið að þessu uppátæki
en mest hló þó amma sjálf.
Fjörugt var í Markareldhúsinu
þegar Ása var að rifja upp einhver
prakkarastrik barna eða barna-
barna. Þá minnist ég þess þegar
stofuklukkan endaði frammi í skúr,
því Hellustelpa gat ekki sofið fyrir
klukkuslætti.
Áslaug var líka einstök handa-
vinnukona og eitt árið saumaði hún
upphluti á átta barnabörn og mikið
var gaman að sjá stelpurnar í þess-
um skartklæðum. En hláturinn í
eldhúsinu er þagnaður fyrir mörg-
um árum og ættmóðirin, sem átti
börn, systkini og venslafólk á öðrum
hverjum bæ, flutti burt úr dalnum
sem hún unni svo mjög, en allir voru
búnir að gera sitt besta, ein þó
mest, til að hún gæti verið í sveitinni
sem lengst, en allt tekur að lokum
enda.
Ása í Mörk var vinur vina sinna
og ég var svo heppin að vera í þeim
hópi, en hún var ekki allra og hafði
sterkar skoðanir um menn og mál-
efni, þannig sópaði að henni eins og
hennar frændgarður er þekktur fyr-
ir.
Alltaf verð ég þakklát Ásu þegar
ég flaug norður eftir uppskurð þar
sem stelpurnar voru komnar til
hennar, þá sá ég best hvað hún var
hjartastór og mikið var notalegt að
leggjast í rúmið og njóta aðhlynn-
ingar hennar. Kannski sá ég í henni
þá móður sem mig vantaði í upp-
vexti mínum og alltaf mun ég blessa
minningu hennar.
Góð kona er gengin, guð blessi
hana.
Sendi börnum, barnabörnum og
ættingjum samúðarkveðjur.
Af eilífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Benediktsson)
Rebekka Jóhannesdóttir.
Kæra amma, ég vaknaði við það á
aðfangadagsmorgun að mamma
hringdi til að segja mér að þú hefðir
verið að deyja. Það er svo skrítið að
hugsa til þess að ég eigi ekki eftir að
sjá þig aftur, drekka með þér sterkt
kaffi og spjalla um lífið og tilveruna
eins og við gerðum stundum við eld-
húsborðið í Mörk. Það var alltaf
mikill gestagangur hjá þér en alltaf
hafðir þú samt tíma til að spjalla við
okkur ömmubörnin. Á eldhúsborð-
inu voru oftast prjónar eða önnur
handavinna sem þú greipst í þegar
þú tylltir þér niður og alltaf var til
eitthvert góðgæti með kaffinu. Við
vorum oft mörg barnabörnin í einu
hjá þér og þú lánaðir okkur nauð-
synlegustu áhöld sem við þurftum
til sílaveiða, þar á meðal stóra plast-
sigtið, þrátt fyrir mótmæli mæðra
okkar, sem reyndist afar happa-
drjúgt í þeim efnum.
Elsku amma, ég á sennilega eftir
að hugsa oft til þín þegar ég sé
bóndarós, sykruð jarðarber eða
drekk sterkt kaffi. Takk fyrir allar
stundirnar sem við áttum saman.
Áslaug.
Áslaug Stefánsdóttir
✝ Jóhanna MaríaJóhannsdóttir
fæddist í Holtum á
Mýrum á Hornafirði
16. september 1920.
Hún lést á sjúkra-
húsinu í Neskaup-
stað 22. desember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Jóhann Árna-
son búfræðingur, f.
4.11. 1897, d. 12.9.
1950, og Jónína
Kristín Benedikts-
dóttir, f. 31.1. 1888,
d. 19.8. l981. María ólst upp á
Kirkjubóli á Fáskrúðsfirði elst
fimm systkina. Hin eru Sigríður, f.
8.3. l923, Álfheiður, f. 31.1. 1926, d.
24.1. 1996, Ármann, f. 1.8. 1928, og
Ásdís, f.10.1. 1933, d. 21.10. 1959.
Hinn 28. maí 1950 giftist María
Óskari Valdórssyni, f. 10.10. 1915,
d. 5.12. 1981. Allan sinn búskap
bjuggu þau á Ósi á
Reyðarfirði. Eftir
andlát Óskars
byggði María sér
parhús við Árgötu 3
og átti þar heima til
æviloka en síðasta
æviárið dvaldi hún
að mestu á hjúkr-
unarheimilinu Upp-
sölum á Fáskrúðs-
firði.
María lærði kjóla-
saum í Reykjavík og
vann við saumaskap
mikinn hluta ævinn-
ar. Auk þess vann hún við fisk-
vinnslu.
Hún hafði mjög góða söngrödd
og söng með kirkjukórum fyrst á
Fáskrúðsfirði og síðan á Reyð-
arfirði.
Útför Maríu verður gerð frá
Reyðarfjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Elsku Maja, þú sem varst okkur
svo kær ert nú farin frá okkur eftir
langa og farsæla ævi. Við systur-
dætur þínar vorum svo heppnar að
fá að njóta samvista við þig oft á ári
jafnvel þó þú byggir hinum megin á
landinu. Við heimsóttum þig á sumr-
in og alltaf tókstu jafn vel á móti
okkur. Í minningunni var alltaf gott
veður hjá þér á Reyðarfirði og ynd-
islegt að ganga um blómum skrýdda
garðinn þinn og rölta upp með ánni.
Hvert vor í kringum afmæli mömmu
og alltaf í sláturtíðinni á haustin
komstu til okkar. Það var gaman hjá
okkur. Sérstaklega var gaman þegar
þær systur Maja og Sigga sungu
fyrir okkur, fóru með gamlar þulur
og sögðu sögur.
Það var alveg sama hvort þú varst
að vinna við sláturgerðina eða í
saumaskap alltaf varst þú jafn fín og
vel til höfð.
Það var ómetanlegt fyrir okkur að
eiga þig að og geta leitað til þín.
Elsku Maja, takk fyrir samfylgd-
ina. Við minnumst þín með þakklæti
í hjörtum.
Þínar
Jóhanna og María.
Sveitungarnir heima kveðja einn
af öðrum, gjöfulir góðvinir og kærir
kunningjar bernsku, æsku og full-
orðinsára hverfa í tímans hyl og
skilja eftir sig ákveðið tóm í hug-
anum en jafnframt munabjartar
minningar.
Hún er ljúf í huganum minningin
um hana Maju á Ósi eins og okkur
var svo tamt að kalla hana. Þar fór
mannkostakona, hógvær og hæv-
ersk með hlýtt bros á vörum þegar
fundum bar saman, enda átti gleðin
góð þar gott athvarf. Hún var fríð
kona, lágvaxin og nettvaxin og bauð
af sér hinn bezta þokka. Hún lét
ekki mikið fyrir sér fara, en hún var
ákveðin í skoðunum, prýðisgreind
eins og þau önnur Kirkjubólssystkin
og henni lágu orð létt á tungu. Hún
var með afbrigðum myndvirk enda
léku saumnálin og saumavélin í
höndum hennar og fjölmarga flíkina
fullgerði hún með fáguðu hand-
bragði, listahög kona sem hafði af
saumaskap sínum, atvinnu, og eng-
inn svikinn af hennar handverki.
Hún Maja var lengi einn næsti ná-
granni okkar og hún var granni eins
og þeir gerast beztir. Það má alveg
segja frá því að garðurinn okkar í
Sandhólum blasti við neðan frá Ósi
og ef Maja sá óboðna ferfætlinga í
garðinum árla morguns eða í annan
tíma hringdi hún til að láta vita, svo
ekki yrðu frekari spjöll af þeirra
völdum.
Svona var hjálpsemi hennar í öllu
þar sem hún kom að málum.
Hún átti sannarlega góðan eigin-
mann, þar fóru samhent og samvalin
hjón, eignuðust kyrrlátt og elskulegt
heimili, hann Óskar fór aðeins alltof
fljótt héðan af heimi, henni sannur
harmdauði.
Það var gott að líta inn hjá þeim
hjónum á sínum tíma, Óskari og
Maju, alltof sjaldan þó, þar var
hjartahlýjan í öndvegi og heimilið
fallegt og smekklegt. Það var gaman
að spjalla við þau hjónin, Óskar með
sína hárfínu kímni og hún með sínar
yndislegu athugasemdir um lífið og
tilveruna, smástríðin og glettin, ekki
sízt þegar talið barst að stjórnmál-
um.
Við minnumst hennar Maju með
miklu þakklæti fyrir gengnar, góðar
stundir og biðjum henni allrar bless-
unar á ókunnum leiðum eilífðarinn-
ar. Systkinum hennar eru sendar
einlægar samúðarkveðjur.
Jóhanna Þóroddsdóttir,
Helgi Seljan.
Jóhanna María
Jóhannsdóttir
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
FJÓLA STEINGRÍMSDÓTTIR,
Hjallaseli 55,
Seljahlíð,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn
5. janúar kl. 13.00.
Edvard K. Kristensen,
Kristín Kristensen, Guðmundur H. Jónsson,
Ingibjörg Árný Kristensen,
Steinunn Kristensen, Tómas Stefánsson,
Jón Valgeir Kristensen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur,
GUÐMUNDU SJAFNAR SÖLVADÓTTUR,
Einigrund 4,
Akranesi.
Jakob Sigtryggsson,
Sölvi F. Jóhannsson, Sólveig Hólm,
Anna S. Ólafsdóttir, Úlfur Úlfarsson,
Trausti Ægir Ólafsson,
Silja Sjöfn Sölvadóttir,
Sara Mist Sölvadóttir,
Telma Sif Sölvadóttir,
Kristján Jakobsson,
Guðbjörg Jakobsdóttir,
Steindór Jakobsson,
Guðlaug M. Jónsdóttir,
Ásgeir Sölvason,
Ingibjörg Sölvadóttir,
Lilja Sölvadóttir,
Guðbjörn Sölvason.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
BJÖRG JÓHANNESDÓTTIR,
Tjarnargötu 25,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
5. janúar kl. 14.00.
Vilmar Guðmundsson,
Margrét Vilmarsdóttir, Reynir Guðjónsson,
Alexander Vilmarsson, Lilja Friðriksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
GÍSLA AUÐUNSSONAR
skipstjóra og skipaskráningarmanns,
verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtu-
daginn 4. janúar kl. 15.00.
Blóm afþökkuð, en þeir sem vilja minnast hins látna,
láti Slysavarnafélagið Landsbjörg eða Umönnun,
félag langveikra barna, njóta þess.
Gunnfríður Ása Ólafsdóttir,
Ólafía Ingbjörg Gísladóttir, Ari Jónsson,
Auðun Pétur Gíslason,
Viggó Kristinn Gíslason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
MAGNÚS E. BALDVINSSON
úrsmíðameistari,
Hvassaleiti 58,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 30. desember, verður
jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn
5. janúar kl. 11.00.
Unnur H. Benediktsdóttir,
Erla Magnúsdóttir, Örn Þórhallsson,
Guðrún Magnúsdóttir, Jón Sveinsson,
Þuríður Magnúsdóttir, Björn Á. Ágústsson,
barnabörn og barnabarnabörn.