Morgunblaðið - 04.01.2007, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2007 45
dægradvöl
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem
lauk fyrir skömmu í Pamplona á Spáni.
Sigurvegari mótsins, rússneski ofurst-
órmeistarinn Alexander Morozevich
(2.747), hafði hvítt gegn landa sínum
Dmitri Jakovenko (2.671). Morozevich
hafði reynt í 40 leiki að tryggja sér sig-
ur með drottningu gegn hrók og hafði
hann því tíu leiki til viðbótar áður en
skákin yrði jafntefli vegna 50 leikja
reglunnar. Það gat hann gert með því
að leika 111. 111. De5! Kg1 (svartur
lendir í leikþröng eftir 111. … Kg2 112.
De1) 112. Kg3 Hg2+ 113. Kh3 og hvít-
ur vinnur. Í stað þessa lék ofurst-
órmeistarinn 111. Kf3?? og því var
svarað með 111. … Hf2+! og nú er
staðan jafntefli þar sem annaðhvort
verður svartur patt eða þráskákar.
112. Ke3 He2+ 113. Kd3 Hd2+ 114.
Kxd2 patt.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Þú átt út.
Norður
♠K4
♥G1095
♦D7
♣KDG43
Vestur Austur
♠ÁG986 ♠1072
♥43 ♥6
♦64 ♦KG832
♣Á765 ♣10982
Suður
♠D52
♥ÁKD872
♦Á1095
♣–
Suður spilar 6♥.
Það er góð tilfinning að eiga út gegn
slemmu með tvo ása, en í þessu spili
má hvorugum lyfta í upphafi. Lauf-
ásinn snargefur slemmuna og spaðaás-
inn reyndar líka, því sagnhafi getur
hent tígli í spaðadrottningu og tromp-
að þrjá tígla. Treysti maður andstæð-
ingunum til að vita sínu viti er rétt að
vera á varðbergi í svona stöðum. Hér
vakti suður á einu hjarta, vestur stakk
inn spaðasögn og norður sýndi sterka
hækkun í hjarta með því að melda ofan
í spaðann. Suður taldi slemmu góðan
kost ef norður ætti fyrirstöðu í spaða
og kom þeim skilaboðum á framfæri
með stökki í fimm hjörtu, sem norður
lyfti hlýðinn í sex. Heljarstökkið í fimm
hjörtu er eins og auglýsing á laufeyð-
unni og vestur ætti að spila hlutlaust út
trompi og bíða átekta með ásana tvo.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 dramb, 8 hrá-
slagaveður, 9 stjórnar, 10
söngflokkur, 11 bágindi,
13 fífl, 15 gljái, 18 blæja,
21 litla tunnu, 22 kaka,
23 heldur vel áfram, 24
hryssingsleg orð.
Lóðrétt | 2 eyja, 3 karl-
fugls, 4 gabba, 5 grjót-
skriðan, 6 lof, 7 vex, 12
gyðja, 14 andi, 15 opi, 16
frægðarverk, 17 skraut,
18 stíf, 19 fæðunni, 20
kvenmannsnafn.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 tálkn, 4 benda, 7 lýgur, 8 ræman, 9 tek, 11 iðni,
13 frír, 14 loppa, 15 full, 17 rugl, 20 orf, 22 getur, 23 or-
lof, 24 nunna, 25 kenna.
Lóðrétt: 1 tálmi, 2 lögun, 3 nart, 4 bark, 5 nemur, 6 ann-
ir, 10 espir, 12 ill, 13 far, 15 fegin, 16 látin, 18 ullin, 19
lyfta, 20 orga, 21 fork.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1 Sendiherra Íslands í París var ámeðal farþega í Flugleiðavélinni
sem lenti í ókyrrð og féll tugi metra.
Hvað heitir hann?
2 Nýr framkvæmdastjóri Samein-uðu þjóðanna tók við embætti
um áramótin. Hvað heitir hann?
3 Aftaka Saddams Husseins, fyrr-verandi einræðisherra í Írak, olli
mikilli reiði hjá súnní-aröbum, ekki
sízt af því að hún fór fram nóttina fyr-
ir eina mestu trúarhátíð múslíma.
Hvað heitir hún?
4 Rússneskt ríkisfyrirtæki, semframleiðir og selur olíu og gas,
hefur komið mikið við sögu í deilum
við nágrannalönd Rússa. Hvað heitir
það?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Kaupþing banki auglýsir í tilefni af nafn-
breytingu sinni og hefur fengið frægan
breskan gamanleikara til liðs við sig. Hver
er hann? Svar: John Cleese. 2. Veitt voru
verðlaun, alls 600 þúsund kr., úr Rithöf-
undasjóði Ríkisútvarpsins á gamlársdag.
Hver hlaut þau að þessu sinni? Svar: Jón
Kalman Stefánsson. 3. Reading rótburst-
aði West Ham um helgina. Íslendingur
sem leikur með Reading skoraði fyrsta
markið. Hver var það? 4. Svar: Brynjar
Björn Sigurðsson. 4. Hvar fæddist fyrsta
barn nýja ársins hér á landi? Svar: Á fæð-
ingardeild Landspítalans í Reykjavík.
Spurt er …
ritstjorn@mbl.is
STRAX í upphafi tónleika Hrafn-
hildar Björnsdóttur sóprans og
Martyns Parkes píanóleikara í
Hjallakirkju á laugardaginn var
ljóst að söngkonan er með fallega
rödd. Hún er í senn tær og breið og
naut sín ákaflega vel í ríkulegum
hljómburði kirkjunnar. Auðheyrt
var líka að fagmaður sat við píanóið;
leikur Parkes var mjúkur og
áreynslulaus og rann fullkomlega
saman við sönginn.
Eftir áhrifamikið upphafsatriði
tónleikanna, sem var Bist du bei mir
eftir Bach, tilkynnti Hrafnhildur að
efnisskráin væri einskonar ferðalag
umhverfis jörðina á 45 mínútum. Ég
er ekki viss um að það hafi verið
heppileg líking; jú, þarna var tónlist
eftir frönsk, þýsk, amerísk, íslensk
og ítölsk tónskáld – en ekkert meira
en það. Rússneskur ljóðasöngur er
ekki síður merkilegur en sá þýski og
til eru undurfagrar spænskar aríur
sem maður heyrir aldrei á tón-
leikum hér á landi. Svo ekki sé
minnst á tónlist frá ýmsum löndum
Suður-Ameríku og Asíu.
Það sem boðið var upp á hér stóð
þó ágætlega fyrir sínu og ég er ekki
frá því að franska tónlistin hafi kom-
ið hvað best út. Hrafnhildur söng
tvö lög eftir Fauré, Apres un reve
og Notre amour, og gerði það með
eindæmum vel. Einleiksatriði pían-
istans, Clair de lune eftir Debussy,
var líka frábært; áslátturinn var
þokukenndur en samt ávallt með
skýrt mótaðri laglínu sem olli því að
rauði þráðurinn slitnaði aldrei. Í
heild var flutningurinn skemmtilega
hömlulaus og hápunkturinn var sér-
lega glæsilegur. Vissulega er Clair
de lune með útjaskaðri tónsmíðum,
en samt virkaði lagið merkilega
ferskt í þessari óvenjulega mús-
íkölsku túlkun.
Eins og áður sagði var framlag
Parkes sem meðleikara líka af-
burðagott og var það ekki síst hon-
um að þakka hve lög eftir Richard
Strauss voru seiðandi, sérstaklega
Die Nacht og Morgen. Hér saknaði
ég reyndar litanna í rödd söngkon-
unnar, sem var kannski í barnslegra
lagi fyrir þessa tónlist. En píanóleik-
urinn var fullkominn; hver einasti
tónn var hárrétt mótaður og þrung-
inn merkingu. Varla er hægt að
gera betur.
Almennt talað er Hrafnhildur
ekki með sérlega öfluga rödd, en
það er auðvitað allt í lagi. Söngvarar
þurfa ekki alltaf að vera einhverjir
gettóblasterar. Verra er að söng-
urinn var stundum dálítið einsleitur,
auk þess sem neðra sviðið hefði á
köflum mátt vera hljómmeira.
Margt var þó prýðilega gert; Caro
Nome úr Rigoletto eftir Verdi var
t.d. verulega vel sungið, og gaman
var að I Could Have Danced All
Night úr My Fair Lady eftir Loewe.
Þrátt fyrir smávegis annmarka
verður því ekki annað sagt en að
Hrafnhildur sé efnileg listakona sem
spennandi verður að fylgjast með í
framtíðinni.
Syngjandi umhverfis jörðina
Jónas Sen
TÓNLIST
Hjallakirkja
Tónlist eftir Bach, Fauré, Verdi, Strauss
og fleiri í flutningi Hrafnhildar Björns-
dóttur sópran og Martyn Parkes píanó-
leikara. Laugardagur 30. desember.
Söngtónleikar
Hrafnhildur Björnsdóttir
Hin 44 áraDemi
Moore segist vilja
eignast börn með
eiginmanni sínum
Ashton Kutcher
sem er 28 ára.
Fyrir á Moore
þrjár unglings-
dætur með fyrr-
verandi eiginmanni sínum Bruce
Willis, það eru Rumer 18 ára, Scout
15 ára og Tallulah 12 ára.
Það hefur komið mörgum á óvart
að Moore skuli vilja fleiri börn enda
hefur hún nóg að gera í kvikmynda-
leik auk þess sem aldurinn færist yf-
ir.
„Þar sem ég er þegar komin með
þrjú börn skiptir ekki máli þótt ég
bæti einu eða tveimur við í viðbót.
Það sem skiptir máli er að ég hugsi
vel um börnin mín,“ sagði Moore.
En auðvitað er ekki auðvelt fyrir
Moore að vera móðir þriggja ung-
lingsstúlkna, sérstaklega þar sem sú
elsta er farin að hanga með Lindsay
Lohan.
Fólk folk@mbl.is