Morgunblaðið - 09.01.2007, Síða 15

Morgunblaðið - 09.01.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 15 MENNING MIÐASALA á tónleika Lisu Ekdahl hefst í dag kl. 10 á midi.is, í verslunum Skífunnar og vel völdum BT-verslunum. Lisa heldur tónleika á Nasa í Reykjavík fimmtudaginn 1. mars, föstudaginn 2. mars á Græna hattinum á Akureyri og laugardaginn 3. mars í Vík- urbæ í Bolungarvík. Lisa hefur spilað hér áður ásamt hljómsveit fyrir troð- fullu húsi. Að þessu sinni er hún á ferð með kassa- gítar og undirleikaranum Mattias Blomdahl sem spilar á gítar, hljómborð og önnur hljóðfæri. Miðaverð er 2.900 kr. Tónleikar Miðasala hefst í dag á Lisu Ekdahl Lisa Ekdahl. NORÐURBRYGGJA, sam- norræna menningarmiðstöðin í Kaupmannahöfn, blæs til dansk-íslenskra kvikmynda- daga í febrúar og mars næst- komandi. Dagskráin er óðum að skýrast en þegar hefur verið greint frá því að kvöldið 8. febrúar verður helgað Friðriki Þór Friðrikssyni, leikstjóra og leikara, en hann var um helgina tilnefndur til dönsku leiklistarverðlaunanna, Bodil, fyrir leik sinn í Di- rektøren for det hele. Börn náttúrunnar verður sýnd auk þess sem Birgir Thor Møller heldur tölu um Friðrik Þór. Kvikmyndir Dansk-íslenskir bíódagar í Köben Friðrik Þór Friðriksson. Elísabet II. Bretadrottning að- laði um áramótin slagverks- leikarann skoska, Evelyn Glennie. Dame Evelyn er einn af mestu frumkvöðlum slag- verkstónlistarinnar um okkar daga, og hefur komið nokkrum sinnum til Íslands og spilað með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands við mikinn fögnuð. Eve- lyn hefur sérstakt dálæti á tón- list Áskels Mássonar og hefur leikið slagverksverk hans víða um heim. Dame Evelyn kemur fram á meira en 100 tón- leikum árlega og hefur pantað 133 ný tónverk fyr- ir slagverkið sitt, þar á meðal frá Áskeli. Orðuveiting Íslandsvinkonan Dame Evelyn Evelyn Glennie Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÉG er að fara í þetta blessaða tón- leikaferðalag sem ég var búinn að lofa mér í fyrir hálfu ári síðan,“ segir Magni Ásgeirsson sem býr sig nú undir að hita upp á 28 tónleikum hljómsveitarinnar Supernova víðs vegar um Bandaríkin og í Kanada. Magni kemur fram ásamt félögum sínum úr Rock Star þáttunum, þeim Toby Rand og Dilönu Robichaux, en það er hljómsveit Tobys, Juke Kart- el, sem leikur undir. Þá kemur hljómsveit gítarleikarans Dave Nav- arro, The Panic Channel, einnig fram á tónleikunum. Fyrstu tónleikarnir eru á þriðju- daginn eftir viku, en Magni fer út um helgina. „Þetta verða einhverjar sex til sjö vikur, þetta er ótrúlega þétt dagskrá,“ segir hann. „Við byrjum í Flórída, sem mér lýst mjög vel á, svo held ég að við færum okkur upp austurströndina, verðum með ein- hverja þrenna tónleika í Kanada, og færum okkur svo niður vest- urströndina.“ Sótti um stöðu gítarleikara Magni segist hafa mikinn áhuga á að starfa áfram með sveitinni, og hef- ur því gert sérstakar ráðstafanir til þess að það gangi eftir. „Ég er búinn að sækja um sem gítarleikari í hús- bandinu. Hann Jimmy [Jim McGorman] er hættur, hann er far- inn að spila með Avril Lavigne,“ seg- ir hann. „Þessi hljómsveit spilar náttúrulega svo lítið, og það er ekki víst að það verði önnur þáttaröð. Þannig að ég sótti bara um upp á grínið, bara til að sjá hvað þeir myndu segja,“ segir Magni „Ef þeir spila með Rock Star liðinu þá syng ég náttúrulega bara, það er búið að tala um að gera eitthvað meira eins og við gerðum hérna heima. Síðan eru þeir að spila með mönnum eins og Paul Stanley úr Kiss og þá syngur hann náttúrulega og maður sér bara um bakraddir á meðan,“ segir Magni sem vonar að hann fái formlega inn- göngu í sveitina, en meðlimir hennar hafa allir tekið vel í þá hugmynd. „Þetta eru náttúrulega bestu hljóð- færaleikarar sem ég hef unnið með þannig að þótt ég geti bara fengið að standa við hliðina á þeim og spila þá er mér alveg sama,“ segir Magni, sem er ekkert á þeim buxunum að slá í gegn í Bandaríkjunum. „Þetta er miklu meira bara upp á heiðurinn. Ég er ekki að fara til Bandaríkjanna til þess að meika það,“ segir Magni sem snýr aftur í mars og einbeitir sér þá að sinni gömlu sveit, Á móti sól. „Ég held að Á móti sól sé bara farin að velta því fyrir sér hvar hún ætli að spila um páskana. Það er nátt- úrulega hljómsveitin mín, hún er númer eitt.“ Blæs á kjaftasögur Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum hættu þau Magni og Eyrún Huld Haraldsdóttir saman fyrir stuttu, en fjölmargar gróusögur um ástæður skilnaðarins hafa verið á kreiki. Magni blæs á allt slíkt. „Svo framarlega sem mín nánasta fjölskylda og vinir vita sannleikann þá er mér eiginlega alveg skítsama hvað einhverjar einmana húsmæður úti í bæ eru að slúðra um. Fyrsta reglan ef maður ætlar að verða eitt- hvað þekktur eða frægur, eða hvað sem maður vill kalla það, er að vita að það þýðir ekkert að berjast við kjaftasögur, það gerir hlutina bara helmingi verri,“ segir hann. „Þegar þetta er farið að særa þá sem eru í kringum mann þá fer þetta að verða dálítið pirrandi. Sjálfur er ég með þykkan skráp þannig að mér er slétt sama hvað er sagt um mig,“ segir Magni, og tekur dæmi af nýlegu at- viki. „Ég stóð og spjallaði við konu frænda míns á Sólon í 20 mínútur, hún er eins og litla systir mín. Sökum hávaða þurfti ég að tala alveg upp í eyrað á henni. Á Barnalandi daginn eftir stóð að ég hefði verið með ein- hverri stelpu á Sólon. Þetta er svona einfalt,“ segir Magni að lokum. Magni Ásgeirsson býr sig undir langt tónleikaferðalag um Bandaríkin Með þykkan skráp Ljósmynd/gassi.is Vindasamt Magni segir ekkert hæft í þeim sögusögnum sem fokið hafa milli manna á undanförnum dögum, og lætur þær ekki á sig fá. KVIKMYNDIN Pan’s Labyrinth var valin besta myndin 2006 af Al- þjóðlegum samtökum kvikmynda- gagnrýnenda. Leikstjóri þessa gottneska æv- intýrisins er Gu- illermo del Toro sem hefur áður gert myndir eins og Hellboy og Blade II. Pan’s Labyrinth gerist á Spáni á fjórða áratugi síðustu aldar og er sögð með augum ungrar stúlku, Ofeliu, sem spænska leikkonan Iv- ana Baquero leikur. Ofelia hörfar inn í ímyndaðan heim furðuvera og töfra mitt í stjórnmálaóreið á Spáni og eftir að fjölskyldu henn- ar er sundrað vegna stríðsins. Myndin sló út myndir eins og The Death of Mr. Lazarescu í leik- stjórn Christi Puiu og Clint Eastwood myndina Letters from Iwo Jima. Í öðrum flokkum var besti leik- stjórinn valinn Paul Greengrass fyrir United 93 sem fjallar um 11. september. Verðlaun fyrir aðal- leik fóru til Helen Mirren fyrir The Queen og Forest Whitaker fyrir The Last King of Scotland. Fyrir besta aukaleik unnu Mark Wahlberg fyrir The Departed og Meryl Streep fyrir leik sinn í The Devil Wears Prada og A Prairie Home Companion. Peter Morgan fékk verðlaun fyrir besta kvikmyndahandritið að The Queen. An Inconvenient Truth um Al Gore var valin besta heimildarmynd ársins. Félagið verðlaunaði einni David Lynch fyrir stafræna myndtækni í Inland Empire og Alfonso Guaron fyrir kvikmyndatækni í Children of Men. Þetta var í 41. skipti sem Al- þjóðleg samtök kvikmynda- gagnrýnenda veita þessi verðlaun, en í samtökunum eru 55 gagnrýn- endur frá öllum stærstu fjölmiðl- unum. Verðlaunaafhending samtaka kvikmyndagagnrýnenda þykir oft gefa vísbendingu um hverjir muni hljóta Óskarsverðlaunin ár hvert, en 23. janúar nk. verður tilkynnt um hverjir eru tilnefndir til Ósk- arsins fyrir árið 2006. Gagnrýn- endur verðlauna Pan’s Labyrinth val- in besta kvikmyndin Leikstjórinn Guill- ermo del Toro ÞAÐ ER Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör sem hlýtur hæsta styrkinn frá leiklistarráði til starfsemi sjálfstæðra atvinnu- leikhópa fyrir árið 2007, en styrk- urinn hljóðar upp á 20 milljónir króna. Tíu styrkir voru afhentir í Iðnó í gær til sjálfstæðra atvinnu- leikhópa að heildarupphæð 51,1 milljón króna. Sjóðurinn sem leiklistarráð hef- ur til úthlutunar er sá stærsti sem sjálfstæðir atvinnuleikhópar geta sótt um styrk til en samkvæmt vinnureglu sjóðsins eru ekki veitt- ar lægri upphæðir en sem nemur 50% af uppsetningarkostnaði. Menntamálaráðherra hefur að tillögu leiklistarráðs ákveðið verk- efnastyrki til starfsemi atvinnu- leikhópa árið 2007, sem hér segir: Brilljantín / Halldóra Malin Pét- ursdóttir o.fl., 800 þús. kr. til upp- setningar á leikverkinu Power of Love eftir Halldóru Malin Péturs- dóttur. Kómedíuleikhúsið / Elfar Logi Hannesson o.fl., 900 þús. kr. vegna leiklistarhátíðarinnar Act alone, sem er helguð einleikjum. Möguleikhúsið / Pétur Eggerz o.fl., 4 millj. kr. til uppsetningar á leikritinu Í gær og á morgun eftir Svein Einarsson. Nútímadanshátíð í Reykjavík / Ólöf Ingólfsdóttir o.fl., 4 millj. kr. vegna nútímadanshátíðar í Reykjavík. Vatnadansmeyjafélagið Hrafn- hildur / Halla Margrét Jóhann- esdóttir o.fl., 5,6 millj. kr. vegna verkefnisins Draugaskipið. Draumasmiðjan / Margrét Pét- ursdóttir o.fl., 4,5 millj. kr. til upp- setningar á leikverkinu Óþelló, Desdemóna og Jagó. Sokkabandið / Elma Lísa Gunn- arsdóttir o.fl., 5,2 millj. kr. upp- setningar á nútímasöngleiknum Hér og nú. Stoppleikhópurinn / Eggert Kaaber o.fl., 2,4 millj. kr. til upp- setningar á leikritinu Hvar er tindurinn eftir Þorvald Þor- steinsson. Artbox/Evrópa kvikmyndir / Rakel Garðarsdóttir o.fl., 7 millj. kr. til uppsetningar á leikritinu Faust. Hafnarfjarðarleikhúsið Her- móður og Háðvör, 20 millj. kr. skv. samstarfssamningi. Alls bárust þrjár umsóknir um samstarfssamninga og sóttu 38 að- ilar um styrki til 69 verkefna. Á fjárlögum 2007 er 51,1 milljón króna til atvinnuleikhópa. Til ann- arra atvinnuleikhópa en Hafn- arfjarðarleikhússins komu nú til úthlutunar samtals 34,4 milljónir króna. Það hefur verið mikil gróska í starfsemi sjálfstæðra atvinnu- leikhópa undanfarin ár og sáu um 255.000 áhorfendur sýningar á vegum þeirra á síðasta leikári hér heima og erlendis. Í leiklistarráði eru Björn G. Björnsson, formaður, Hilde Helga- son, tilnefnd af Leiklistarsam- bandi Íslands, og Magnús Þór Þorbergsson, tilnefndur af Banda- lagi sjálfstæðra leikhúsa. Leiklistarráð veitir 51,1 milljón króna í styrki til sjálfstæðra atvinnuleikhópa Hafnarfjarðar- leikhúsið hlýtur hæsta styrkinn Morgunblaðið/ÞÖK Sjálfstæð Fulltrúar atvinnuleikhópanna veittu styrkjum viðtöku í Iðnó .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.