Morgunblaðið - 09.01.2007, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 09.01.2007, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 23 UMRÆÐUR um veiðarfæri, kjörhæfni þeirra, skaðsemi og hvar skynsamlegast sé að beita þeim hefur orðið fyrirferð- armeiri á síðustu misserum. Á vissan hátt er þetta til marks um breytta umræðu um fiskveiðistjórn- armál og í raun fagn- aðarefni. Oftar en ekki taka þátt í um- ræðunni þeir sem gleggst mega vita, svo sem sjómenn og útgerðarmenn. Vax- andi athygli er líka beint að þessari um- ræðu af hálfu stjórn- valda og leitast hefur verið við að varpa betra og skýrara ljósi á þessi mál með vax- andi áherslu á veið- arfærarannsóknir á sviði Hafrann- sóknastofnunar. Það er ekki nýtt að ágreiningur sé um áhrif einstakra veið- arfæra á lífríkið og hafsbotninn og verð- ur svo örugglega um ókomin ár. Steinar Skarphéð- insson vélstjóri skrifar til dæm- is grein um þessi mál í Morg- unblaðið 29. desember sl., þar sem hann finnur að dragnóta- veiðum í Skagafirði. Beinir hann þessum skrifum til mín og er mér ljúft að leggja orð í þennan belg. Ekki á fiskifræðilegum forsendum Dragnótaveiðar í Skagafirði hafa lengi verið umdeildar. Hef- ur áskorunum verið beint til sjávarútvegsráðuneytisins og hvatt til þess að þær veiðar yrðu takmarkaðar frá því sem nú er. Þessar áskoranir hafa verið með ýmsum hætti, en grunntónninn sá sami; að tak- marka dragnótaveiðarnar, eink- um dragnótaveiðar stærri skipa. Eftir að ég kom í sjáv- arútvegsráðuneytið bárust mér slíkar áskoranir og gagnstætt því sem Steinar segir, tók ég þær fyrir, reyndi að skýra þá mynd sem best fyrir mér og brást síðan við. Svo sem eðlilegt var sendi ég beiðni þessa til umsagnar Hafrannsóknastofn- unar. Svar stofnunarinnar var afskaplega skýrt. Það var að niðurstaðan í þessu máli yrði að byggjast á öðrum forsendum en fiskifræðilegum. Þrátt fyrir þetta taldi ég ástæðu til þess að fara betur of- an í þessi mál. Ég ræddi þessi mál við fjölda manna; ekki síst í Skagafirði, eins og Steinari er væntanlega kunnugt um. Á grundvelli þeirra upplýsinga sem ég aflaði mér með þeim hætti tók ég síðan ákvörðun um að banna dragnótaveiðar á Málmeyjarsundi frá og með 7. ágúst sl. Um þessa ákvörðun mína var ágreiningur og mótmæltu drag- nótarmenn henni með bréfi til mín. Reglur um skráningu báta Ljóst er að sú gagnrýni sem einkum er uppi varðandi drag- nótaveiðar í Skagafirði er ekki síst tilkomin vegna vaxandi ásóknar stærri skipa sem fiska með dragnót í firðinum. Í upp- hafi gildandi fiskveiðiárs tóku útgerðarmenn nokkurra skipa ákvörðun um að „flagga“ skip- um sínum norður og hófu drag- nótaveiðar fyrir Norðurlandi, meðal annars í Skagafirði og á Húnaflóa. Þannig er mál með vexti að í gildi eru reglur sem girða fyrir að menn geti „flagg- að“ skipum sínum á milli svæða nema einu sinni á fiskiveiðiári. Var sú regla tekin upp í kjölfar deilna sem upp komu fyrir nokkrum árum og var mark- miðið að koma í veg fyrir árekstra og deilur sem upp komu. Það er því ljóst að ef gripið yrði til lokana nú á miðju fiskveiðiári væri komið aftan að þessum útgerðum og í raun settar mjög strangar skorður við því að þær gætu beitt skipum sínum til veiða annars stað- ar við landið. Unnið að lausn Þrátt fyrir það hef ég lýst þeirri skoðun minni að vel komi til greina að endurskoða þessi mál. Í viðtali við blaðið Feyki (45. tbl. 2006) segi ég til dæmis: „Ég hef góðan skilning á sjónarmiðum heimamanna og einkanlega tek ég undir að tilkoma stóru bátanna set- ur málið í nýja stöðu. Það erindi sem nú liggur fyrir frá sveitarstjórn Skaga- fjarðar – og hefur að mínu viti góðan skilning almennt – er mjög góð og skynsamleg nálgun að málinu. Þess vegna er nú unnið að því máli hér í ráðu- neytinu með það að markmiði að finna á því lausn, sem ég vona að heimamenn geti sætt sig við.“ Skiptar skoðanir Sannleikurinn er sá að um hólfaskiptingar og stýringu veiðarfæra eru skiptar skoðanir. Þetta birtist til dæmis í því að í sjávarútvegsráðuneytið berast óskir um breytingar á hólfum þar sem fram koma mjög gagn- stæð sjónarmið. Ganga þær ósk- ir meðal annars út á að rýmka reglur fyrir togveiðarfæri og svo um að takmarka enn frekar þau svæði þar sem slíkar veiðar eru heimilaðar. Þessar óskir eru teknar alvarlega af minni hálfu. En jafnframt er sjálfsagt að reyna að freista þess að yfir þau mál sé farið á vettvangi þar sem fulltrúar sem flestra aðila eiga aðkomu. Af þeim ástæðum óskaði ég fyrir nokkru eftir því að nefnd um bætta umgengni um auð- lindir sjávar færi yfir þær óskir sem borist hafa. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar útgerð- armanna, sjómanna, smábáta- eigenda, Hafrannsóknastofn- unar, Fiskistofu og sjávarútvegsráðuneytisins. Þannig má vænta þess að fram komi mismunandi viðhorf, en markmiðið er vitaskuld að reyna að ná fram skynsamlegri nið- urstöðu í viðkvæmu máli. Brugðist við óskum um takmörkun dragnótaveiða Það er því ekki rétt sem Steinar Skarphéðinsson segir í máli sínu að óskir manna um takmörkun við dragnótaveiðum í Skagafirði hafi verið hundsaðar. Þvert á móti. Þegar hefur verið brugðist við með reglugerðinni frá 7. ágúst jafnframt því sem málin eru nú til meðferðar í nefnd þar sem sæti eiga fulltrú- ar hagsmunaaðila, auk þess sem ég hef greint frá því op- inberlega að unnið sé að málinu í ráðuneytinu með það að mark- miði að finna á því lausn sem ég voni að heimamenn geti sætt sig við. Dragnótaveið- ar í Skagafirði Eftir Einar K. Guðfinnsson »… að nið-urstaðan í þessu máli yrði að byggj- ast á öðrum forsendum en fiskifræði- legum. Einar K. Guðfinnsson Höfundur er sjávarútvegsráðherra. Yfirinn- mál alls Það er r fleiri rými er nefnt að m“.) – sjúklingar þarf að “ Svona laboðin ða svo neyð. ans ram við- s með því rgerðir. la, há- 2005: – ðu starfs- ð nýbygg- á lakar aðstæður, m.a. hjá rannsóknastof- um, blóðbanka og starfsfólki við Hringbraut.“ Framkvæmdastjórn spítalans tók í sama streng þegar hún fjallaði um ráðstöfun húsnæðis í gamla spítalanum við Hringbraut: – „Þar hefur ekki tekist að koma fyrir svo vel sé þeirri starfsemi sem fyrirhugað var að þangað flytti inn þrátt fyrir margítrekaðar til- raunir. Augljóst er að heild- arfermetrafjöldi húsnæðisins dugir ekki. „Sviðsstjórar lækninga á LSH halda fundi reglulega og sam- an eiga þeir að hafa góða yfirsýn yfir starfsemi spítalans í heild. Eft- irfarandi setningar eru úr fund- argerðum frá árunum 2002–2006. – „Sömuleiðis er bent á að bráður húsnæðisvandi spítalans geti alls ekki í öllum tilvikum beðið eftir byggingu nýs spítala þannig að umtalsverðar framkvæmdir þurfa að eiga sér stað til lausnar bráðs vanda hér og hvar í starfsemi sjúkrahússins.“ – „Kom fram að spítalinn hefur óskað formlega eftir því að fá afnot af Heilsuvernd- arstöðvarhúsinu eftir að það hefur verið selt.“ – „Mestar umræður urðu um aðalhúsnæði spítalans á Hringbraut og í Fossvogi. Von er á viðbótarhúsnæði, gámum (leturbr. mín), til að létta á þrengslum á Hringbraut.“ Augljóst er af þess- um tilvitnunum að stjórn og starfs- menn spítalans er samstiga í áliti sínu um vandann. Ályktanir læknaráðs Allir læknar LSH eiga aðild að læknaráði spítalans. Stjórn þess er skipuð læknum af öllum lækn- ingasviðum spítalans, þannig að yf- irsýn og þekking stjórnar lækna- ráðs á starfseminni er mjög víðtæk. Auk reglulegra stjórn- arfunda eru haldnir almennir læknaráðsfundir um mikilvæg mál- efni hvers tíma. Látið skal nægja að tilgreina þrjár setningar úr fundargerðum og eina almenna ályktun frá árunum 2005–2006: – „Byggingar LSH rúma nú engan veginn starfsemi sjúkrahússins.“ – „Sérstaklega er þörf á bættu hús- næði við Hringbrautina.“ – [For- maður] „taldi slæmt að LSH hefði ekki fengið afnot af Heilsuvernd- arstöðinni, sem nú hefur verið seld. Þá væri óheppilegt að selja skrif- stofuhúsnæðið [við Rauðarárstíg] meðan húsnæðisskortur væri svo mikill sem raun ber vitni.“ Álit lækna LSH á húsnæðisvandanum kemur vel fram í eftirfarandi álykt- un: „Aðalfundur læknaráðs LSH haldinn 26. maí 2006 minnir á að húsnæðisvandi sjúkrahússins er al- varlegur og háir starfsemi þess og möguleikum á frekari þróun þjón- ustu. Þessi vandi getur ekki beðið óleystur þar til nýtt sjúkrahús hef- ur verið reist. Því er nauðsynlegt að finna úrlausn til bráðabirgða, annaðhvort með nýbyggingum eða nýtingu húsnæðis í námunda við sjúkrahúsið. Sérstaklega er brýnt að bæta aðstöðu fyrir sjúklinga. Þá verður að finna lausnir varðandi húsnæðisvanda rannsóknadeilda.“ Ályktun sama efnis var samþykkt á aðalfundi læknaráðs vorið 2005 og eftir umræður um hana í stjórn- arnefnd spítalans var eftirfarandi bókað: „Forstjóri gerði ályktunina að umtalsefni og sagði ábendingar ráðsins um úrbætur í húsnæðis- málum LSH á tilteknum sviðum réttmætar. Ekki væri mögulegt að hætta öllum framkvæmdum á sviði byggingamála þar til nýjar bygg- ingar hefðu verið teknar í notkun.“ Lokaorð Fleiri dæmi mætti tína til um húsnæðisvanda LSH, en skilaboðin ættu að vera orðin nokkuð skýr. Hér með er skorað á heilbrigð- isráðuneytið að hlusta á raddir stjórnar og starfsmanna spítalans og taka það til vandlegrar athug- unar hvernig hægt er að leysa þetta alvarlega vandmál. Heilsu- verndarstöðin gamla hentar vel og ætti alls ekki að láta hana ganga okkur úr greipum. Alþingismenn ættu sömuleiðis að hlusta á raddir þeirra 3.500 kjósenda sem starfa á Landspítalanum, svo ekki sé talað um þá rúmlega 90 þúsund ein- staklinga sem þangað leita árlega. korað á ðu- á radd- rfs- og legrar ig þetta ál. Höfundur er læknir á LSH. á Landspítala um að því saman á verða at- hygli fjölmiðla í Bremen og ekki síst sú staðreynd að útlendingur skyldi gefa Þjóðverja nýra. „Prófessorinn sem framkvæmdi aðgerðina, Kurt Dreikorn, sagði við það tækifæri að vonandi yrði þetta hvatning fyrir aðra til að gefa líffæri því mikill skortur væri á þeim. Ég tek undir þau orð. Vissulega finn ég fyrir að- gerðinni en ég á að geta lifað alveg eðlilegu lífi. Reyndar benda þýskar rannsóknir til þess að nýrnagjafar lifi lengur en aðrir. Í fyrsta lagi seg- ir Dreikorn það vera vegna þess að ekki séu samþykkt nýru nema úr hraustu og heilbrigðu fólki sem er með öll líffæri í lagi. Í öðru lagi fari nýrnagjafar í skoðun einu sinni til tvisvar á ári.“ Guðjón er 54 ára, kvæntur og þriggja barna faðir. Hann segir að fjölskyldan hafi í fyrstu óttast að- gerðina en samþykkt hana að lok- um. „Ég gat ekki annað en bjargað lífi vinar míns og það myndi bjarga mörgum mannslífum ef fólk bæri á sér staðfestingu þess efnis að að því látnu mætti nota líffæri þess í aðra. Það ætla ég að gera og ef ég stæði frammi fyrir sömu ákvörðun og ég tók varðandi nýrnagjöfina yrði nið- urstaðan sú sama. Þess má geta að Carl Eden hefur ákveðið að breyta nafni sínu og aðlaga það íslenskum venjum. Faðir hans hét Erik og ætl- ar hann í framtíðinni að vísa til þess og nota nafnið Carl Eriksson.“ agjöf og lífsbjörg istinsson, framkvæmdastjóri Íslensks textíliðnaðar hf. í Mosfellsbæ, er búinn að ná sér og kominn á fullt í vinnunni. efur komið til Íslands í veiðiferð á hverju ári afnið Carl Eriksson í framtíðinni. Í HNOTSKURN » Dr. Runólfur Pálsson seg-ir að það hafi aukist að lif- andi einstaklingar gefi úr sér annað nýrað. Miðað við fólks- fjölda sé tíðnin hérlendis hærri en víðast annars staðar. » Í langflestum tilvikumhafa lifandi nýrnagjafar verið líffræðilega skyldir nýrnaþega eða makar þeirra. » Árið 2006 gáfu níu lifandiÍslendingar annað nýra sitt og ellefu árið þar á undan. » Sex Íslendingar fengunýra úr látnum ein- staklingum á liðnu ári. steinthor@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Ljósmynd/Guðjón Kristinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.