Morgunblaðið - 09.01.2007, Síða 33

Morgunblaðið - 09.01.2007, Síða 33
|þriðjudagur|9. 1. 2007| mbl.is staðurstund Þorgeir Tryggvason fjallar um samstarf þeirra KK og Einars Kárasonar í Landnámssetrinu í Borgarnesi. »35 af listum Kosning er hafin á heimasíðu FM 95,7 til hlustendaverðlauna stöðvarinnar. Tilnefningarnar eru birtar í dag. »37 tónlist Flestir fóru að sjá Kalda slóð í bíói um helgina á meðan Ben Stiller dró flesta í kvikmynda- hús vestanhafs. »34 bíó Heiða Jóhannsdóttir gefur Little Miss Sunshine fjórar stjörnur og segir leikarahóp myndarinnar frábæran. »35 dómur Söngkonan Kylie Minogue er best klædda kona heims að mati álitsgjafa tímaritsins Glamour. »41 fólk Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is ÞAÐ hvín í vel raddaðri norðlensku viðmælanda míns og hvergi að heyra að hún hafi eytt meira en helmingi sinnar liðlega tvítugu ævi meðal þjóðarinnar sem notar „nef- kveðin ófráblásin lokhljóð en ekki fráblásin í innstöðu á eftir löngu sér- hljóði“, ef manni leyfist að leita í fróðleik orðabókarinnar um það nef- mælta linmælgi sem prýðir mæli margra Bandaríkjamanna. „Þetta var rosalega fínt,“ segir hún þegar hún rifjar upp skólann sinn í Iowa City, Preucil-skólann. „Það er merkilegt hvað það koma rosalega margir strengjaleikarar úr þessum skóla. Þetta er nú engin stórborg. Preucil-hjónin stofnuðu skólann fyr- ir börnin sín, en svo fór vini þeirra líka að langa til að læra og svo fleiri.“ Er þetta þá útskýringin á vel- gengni Sæunnar Þorsteinsdóttur sellóleikara í skóla? Varla er skólanum einum að þakka að þessi unga kona sem Ís- lendingar vart þekkja skuli sópa að sér verðlaunum í hverri keppninni á fætur annarri og hirði námsárang- ursverðlaun að auki. Eitthvað hlýtur hún að hafa til brunns að bera stelp- an sjálf, þótt blaðamanni þyki hún fullhógvær. Hún hefur verið að „undirbúa sig fyrir lífið“ með þátt- töku í keppnum, eins og hún orðar það sjálf, „maður æfist til dæmis í því að koma fram. Ég hef núna ný- lega verið að fara í þessar alþjóðlegu keppnir og það hefur verið rosalega gaman. Keppnin í Póllandi í vor var fyrsta stóra keppnin sem ég fór í og það er merkilegt að þar keppa bara einleiksselló. Það er líka gaman að maður hittir fólk alls staðar að úr heiminum – og gaman að sjá hvað aðrir eru að gera. Svo var það æv- intýri að fara til Japans í haust; ég hafði aldrei komið til Asíu áður. Keppnin þar heitir eftir Cassado sem var mikill sellóleikari.“ „Erfitt“ og „mikill undirbún- ingur“ eru orðin sem Sæunn notar um keppnispilamennskuna, „ … en maður lærir alveg rosalega mikið um sjálfan sig. Ég held að þetta sé eitthvað sem maður þarf að ganga í gegnum.“ Sellistar meðfærilegri Sæunn segist hafa verið heppin að í keppnunum sem hún hefur tekið þátt í hafi keppnisrígurinn ekki ver- ið neitt yfirþyrmandi – þetta hafi verið þægilegt og aðrir keppendur stórskemmtilegir og gaman að heyra í þeim. Þetta er nú svolítið önnur mynd ef oft er dregin upp af dramatískri samkeppni í spila- mennsku. En eru það kannski sel- listarnir sem eru svona spes – svona miklu meðfærilegri en píanó- og fiðluleikarar – að ekki sé talað um söngvara? Hún hlær að þessari vit- leysu og segir: „Jú.“ „Jú, það er dá- lítið öðru vísi,“ og jánkar því selló- bardagarnir séu mun vinsamlegri en hinir. „Annars ætlaði ég alltaf að læra á hörpu. Það var bara enginn Suzuki- kennari á hörpu hér þá. Mamma er fiðluleikari og fiðlukennari, og hún vildi ekki að ég spilaði á fiðlu eins og hún – eða kannski var það ég sem vildi ekki spila á fiðlu eins og hún. Ég fékk inni hjá Hauki Hannessyni á sellóið og það var mjög fínt. Svo var það einhvern tíma þegar ég var átta ára, og úti í Bandaríkjunum, að ég fór á sinfóníutónleika. Þar var sellóleikari að spila konsert eftir Dvorák og þetta var algjör snilld- arkona. Enn þann dag í dag, þegar ég hugsa um hver mér finnst topp- urinn meðal sellóleikara, þá hugsa ég um hana. Ég held að það sé henn- ar vegna sem ég er enn að spila. Hún heitir Zara Nelsova þessi kona, er nýdáin núna, en kenndi lengi við Juilliard. Hún var í gulum kjól, eins og drottning og þetta hafði rosaleg áhrif á mig átta ára gamla.“ Nú er Sæunn sjálf komin í Juilli- ard – í mastersnám sem lýkur eftir hálft annað ár. „Og eftir það … ? Ég veit það bara ekki. Þá er bara að reyna að nota tækifærin og sjá hvað gerist.“ Sæunn segir velgengni í keppnum geta gefið af sér tækifæri og stund- um sé það nóg. Það veki alla vega at- hygli, og stundum fylgist fólk með keppnunum til að heyra í efnilegum ungmennum. En í New York þarf maður að fá sér umboðsmann og spila á eins mörgum tónleikum og maður getur til að halda nafni sínu á lofti og koma fram. „Ég er bara ekki alveg viss um hvort ég vil það. Draumur minn er að geta spilað kammermúsík. Það væri alveg æð- islegt að geta verið í strengjakvar- tett. En það er líka erfitt og margir kvartettar að reyna að gera það sama. Og svo er auðvitað hægt að prufuspila fyrir hljómsveitir, og það er sjálfsagt öruggasta starfið.“ Hef gaman af að spila með fólki Ég spyr Sæunni hvort það þyki eitthvað síðra eða ófínna í dag að vera kammermúsíkant en einleikari – en þannig var nú andrúmsloftið einhvern tíma í den. „Nei, veistu, mér finnst það flóknara ef eitthvað er að spila kammermúsík. Það ert ekki bara þú í sviðsljósinu. Þarna eru þrír aðrir einstaklingar sem líf þitt snýst í kringum. Ég hef gaman af að spila með fólki og tónlistin er mjög skemmtileg og það er oft mjög skapandi andi með fjórum strengja- leikurunum. Þá er komið að erfiðu spurning- unni, hvort Sæunn upplifi sig ennþá sem Íslending eftir alla útiveruna. „Ja … jú, mér finnst það. Að sjá afa og ömmu eftir að hafa farið og kom- ið aftur er að koma heim. Ég hef verið úti um allan heim. Það er frá- bært úti að kunna íslensku og geta talað hana. Og svo er það auðvitað líka frábært að fá tækifæri til að koma heim og spila hér.“ Tónleik- arnir í kvöld hefjast kl. 20. Sellistarnir svolítið meðfærilegri Sellóleikarinn „Annars ætlaði ég alltaf að læra á hörpu. Það var bara enginn suzuki-kennari á hörpu hér þá.“ Morgunblaðið/Ómar Juilliard Skólinn víðfrægi í New York borg sem þykir einn sá albesti. Þar hóf Sæunn meistaranám í haust. Þónokkrir Íslendingar hafa numið þar. Sæunn Þorsteinsdóttir, verðlaunanemandi í sellóleik og verðlaunahafi í alþjóðlegum tónlistarkeppn- um, spilar Bachsvítu nr. 3, „Slava“ eftir Penderecki og Koldaly-sónötu í Salnum í kvöld kl. 20 SÆUNN Þorsteinsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1984. Hún byrjaði 5 ára gömul að læra á selló hjá Hauki Hannessyni við Tónlistarskóla Ís- lenska Suzuki-sambandsins. Sjö ára gömul fluttist hún með for- eldrum sínum Ólöfu Jónsdóttur fiðluleikara og Þorsteini Skúlasyni lækni til Iowa í Bandaríkjunum. Í Iowa City fór Sæunn í Preucil- tónlistarskólann sem kennir eftir Suzuki-aðferðinni, en stofnendur hans voru William og Doris Preucil sem bæði eru mikils metnir fiðlu- leikarar. Þau stofnuðu skólann árið 1963 svo börnin þeirra gætu stund- að hljóðfæranám, en sonur þeirra William Preucil er konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitarinnar í Clevel- and. Margir góðir strengjaleikarar hafa orðið til í þessum litla skóla. Tólf ára kom Sæunn aftur heim til Íslands og bjó á Akureyri í eitt og hálft ár, eða þar til fjölskyldan fluttist aftur út, í janúar 1999. Á Akureyri var Sæunn í Tónlistar- skólanum og lék með Sinfón- íuhljómsveit Norðurlands. Með Nelsovu og Kirschbaum Þegar fjölskyldan fluttist út öðru sinni fór Sæunn í tónlistarskóla í Chicago og þaðan í Cleveland Insti- tute of Music. Í vor útskrifaðist Sæ- unn með bachelor-próf þaðan og hlaut verðlaun fyrir að vera fram- úrskarandi nemandi bæði í selló- leik og kammertónlist. Í haust hóf Sæunn svo nám hjá Noel Kosnick í Juilliard-skólanum í New York. Sæunn hefur hlotið ýmis verð- laun fyrir leik sinn, meðal annars í keppni Society of American Musici- ans í Chicago og Des Moines Young Artist-keppninni þar sem hún fékk fátíð heiðursverðlaun og kom fram sem einleikari með Sinfón- íuhljómsveitinni í Des Moines. Ný- lega hlaut Sæunn fyrstu verðlaun í einleikarakeppni Cleveland Cello Society og önnur verðlaun í Al- þjóðlegri keppni fyrir einleiksselló í Katowice, Póllandi. Sæunn hefur komið fram á fjölda meistaranámskeiða; hjá Ralph Kirshbaum, Zöru Nelsovu, Lynn Harrell og fleirum, og á tónlist- arhátíðum og námskeiðum í Bandaríkjunum og Frakklandi, m.a. með Itzhak Perlman á Perl- man Chamber Music Workshop í New York og verið kynnt meðal efnilegustu tónlistarmanna í Bandaríkjunum í þættinum From the Top í Bandaríska ríkisútvarp- inu, NPR. Fær verð- laun á verð- laun ofan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.