Morgunblaðið - 09.01.2007, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
menning
ÍSLENSKA kvikmyndin Köld slóð
var sú mest sótta í bíóhúsum lands-
ins síðastliðna helgi en alls hafa
tæplega 10 þúsund manns séð
myndina frá því hún var frumsýnd
milli jóla og nýars.
Myndin segir frá blaðamanninum
Baldri sem ræður sig í vinnu í
virkjun uppi á hálendi Íslands til að
grafast fyrir um sviplegt dauðsfall
fyrrverandi starfsmanns þar. Þegar
upp á hálendið er komið verður
Baldur að glíma við óblíða veð-
urguði og enn óblíðari samstarfs-
menn til að komast að sannleik-
anum í málinu. En ekki er allt sem
sýnist …
Með aðalhlutverk í myndinni fara
þau Þröstur Leó Gunnarsson, Elva
Ósk Ólafsdóttir, Helgi Björnsson og
Aníta Briem.
Margir nýliðar
Mörgæsirnar fótafimu í Happy
Feet urðu að láta sér annað sætið
duga að þessu sinni, en þær
vermdu toppsætið fyrir viku.
Myndin er sýnd með bæði ensku
og íslensku tali og er ein þeirra 15
teiknimynda sem koma til greina
þegar velja á þær teiknimyndir sem
tilnefndar verða til Óskarsverð-
launanna í ár.
Annars var helmingur myndanna
á topp 6 nýjar myndir, Stranger
than Fiction, Employee of the
Month og Little Miss Sunshine,
sem er fyrsta myndin sem sýnd er
á vegum Græna ljóssins. Fyrirtæk-
ið ætlar á næstunni að standa fyrir
sýningum á ýmsum óháðum kvik-
myndum en ein af reglum fyrirtæk-
isins er að ekkert hlé er á sýn-
ingum þeirra.
Kvikmyndir | Vinsælastar í bíóhúsum landsins
Köld slóð í efsta sætið
! "#
$
%
&'
('
)'
*'
+'
,'
-'
.'
/'
Köld slóð Mest sótta myndin í íslenskum bíóhúsum um helgina.
KVIKMYNDIN Night at the Mu-
seum með Ben Stiller í aðal-
hlutverki var áfram í efsta sæti að-
sóknarlista norður-amerískra
kvikmyndahúsa um helgina. Tekjur
af myndinni námu 24 milljónum
dala og hefur hún nú aflað 164
milljóna dala þær þrjár vikur sem
hún hefur verið sýnd vestanhafs.
Myndin segir frá Larry Daley,
einstæðum föður sem á erfitt með
að haldast í vinnu. Hann ræður sig
sem næturvörð á Náttúrugripa-
safninu í New York en hugsar sér
samstundis til hreyfings þegar
hann kemst að því að yfirnátt-
úrlegir atburðir eiga sér stað á
safninu í skjóli nætur. En getur
vaxmynd af Theodore Roosevelt
haft áhrif á gang mála?
Með önnur hlutverk í myndinni
fara Dick Van Dyke, Ricky Gervais
og Owen Wilson auk Robin Willi-
ams sem ljær Roosevelt rödd sína.
Annar einstæður faðir var í öðru
sæti aðsóknarlistans, myndin The
Pursuit of Happyness með Will
Smith.
Framtíðarspennumyndin Child-
ren of Men, með Clive Owen og
Julianne Moore, fór beint í 3. sæti.
Í fjórða sæti var önnur ný mynd,
Freedom Writers með Hilary
Swank, og teiknimyndin Happily
N’Ever After, sem Sarah Michelle
Gellar, Freddie Prinze Jr. og Sigo-
urney Weaver, ljá raddir sínar, fór
beint í 6. sæti.
Það sem af er ári hefur bíó-
aðsókn farið upp um 10 % í Banda-
ríkjunum, sé miðað við sama tíma í
fyrra.
Safnvörðurinn Stiller
enn vinsælastur
Mest sóttu myndirnar í Bandaríkj-
unum síðastliðna helgi:
1. Night at the Museum
2. The Pursuit of Happyness
3. Children of Men
4. Freedom Writers
5. Dreamgirls
6. Happily N’Ever After
7. Charlotte’s Web
8. The Good Shepherd
9. Rocky Balboa
10. We Are Marshall.
Hjálp! Stiller á fótum sínum fjör að
launa undan einum safngripanna.
Kvikmyndir | Vinsælastar vestanhafs
Greint hefurverið frá
því að söng-
konan Madonna
hafi greitt fyrir
menntun og
uppihald starfs-
manns í því
ráðuneyti sem
fer með ættleið-
ingarmál í
Malaví fjórum
mánuðum áður en hún fékk tíma-
bundið forræði yfir drengnum David
Banda í Malaví og heimild til að fara
með hann úr landi þvert á ættleið-
ingarlög landsins.
Justin Dzodzi lögfræðingur
mannréttindasamtaka sem berjast
gegn því að Madonna fái að ættleiða
drenginn segir í viðtali við breska
blaðið Mail on Sunday að hægt sé að
líta á stuðning hennar við starfs-
manninn Willard Manjolo sem
mútugreiðslu. „Það þarf að endur-
skoða allar aðstæður málsins og við
viljum bera þessar nýjustu upplýs-
ingar fyrir dómstóla,“ segir hann.
Manjolo, sem er fertugur hóf nám
í félagsráðgjöf í Swansea-háskóla í
Wales í september, mánuði áður en
starfsfólk Madonnu fór með David
frá Malaví en samkvæmt lögum þar í
landi verða erlendir fósturforeldrar
þarlendra barna að dvelja fyrsta ár-
ið, sem börnin eru í umsjá þeirra, í
landinu.
Manjolo segist ekki hafa komið að
ættleiðingarmáli Madonnu.
Fólk folk@mbl.is
ÓFAGRA VERÖLD
Fös 12/1 kl. 20 3. sýning Rauð kort
Sun 21/1 kl. 20 4.sýning Græn kort
Fös 26/1 kl. 20 5.sýning Blá kort
Sun 28/1 kl. 20
Lau 13/1 kl. 20
Fös 19/1 kl. 20
Fim 25/1 kl. 20
Fös 2/2 kl. 20
SAN FRANCISCO BALLETTINN
Samstarfsverkefni Listahátíðar í
Reykjavík og Borgarleikhússins.
Mið 16/5 kl. 20 UPPS. Fim 17/5 kl. 20
Fös 18/5 kl. 20 Lau 19/5 kl. 14
Lau 19/5 kl. 20 Sun 20/5 kl. 14
Sun 20/5 kl. 20
Miðaverð 4.800
Sun 14/1 kl.20 AUKAS.
Lau 20/1 kl. 20 AUKAS.
Lau 27/1 kl. 20 AUKAS.
Síðustu sýningar
DAGUR VONAR
Mið 10/1 kl. 20 Forsýning UPPS.
Fim 11/1 Afmælissýning UPPS.
Fös 12/1 kl. 20
Fim 18/1 kl. 20
Sun 21/1 kl. 20
Fös 26/1 kl. 20
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að
sýning er hafin.
Sun 14/1 kl. 20
Lau 20/1 kl. 20
Síðustu sýningar
Fim 11/1 kl. 20
Fim 18/1 kl. 20
Lau 27/1 kl. 20
Síðustu sýningar
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Sun 14/1 kl. 14
Sun 21/1 kl. 14
Sun 28/1 kl. 14
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Lau13/1 kl. 20
Fös 19/1 kl. 20
Fim 25/1 kl. 20
Síðustu sýningar
! "
!" # !$ % &'
"!( )* %
# $ # % & ' $ # % $ #
+
(((
)
, - .// 0&''
1 2
34 56 3 89 &. 1 + 1 .': 1 3;3 *+
+
$
,-. /
0
1
$
2+! ! 3 ! 4
" ! +
Svartur köttur – forsala hafin!
Lau 20. jan kl. 20 Frumsýn UPPSELT
Sun 21. jan kl. 20 2. kortasýn örfá sæti laus
Fim 25.jan kl. 20 3. kortasýn UPPSELT
Fös 26.jan kl. 20 4. kortasýn örfá sæti laus
Lau 27.jan kl. 20 5. kortasýn örfá sæti laus
Sun 28.jan kl. 20 Aukasýn UPPSELT
Næstu sýn: 2., 3., 4., 9., 10., 16., 17. febrúar.
Skoppa og Skrítla – forsala hafin!
Lau 10. feb kl. 11 og 12.15 Sala hafin!
Sun 11. feb kl. 11 Sala hafin!
www.leikfelag.is
4 600 200
Miðasala virka
daga frá kl.11-16
og 2 klst.fyrir sýn.
Sími 5629700
www.idno.is
Sýningar kl. 20
Sýnt í Iðnó
Lau. 13. 1 Fös. 19. 1
Lau. 20. 1
Fös. 26. 1
Sun. 28. 1
Aukasýningar í janúar!
Fréttir í tölvupósti