Morgunblaðið - 09.01.2007, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 09.01.2007, Qupperneq 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 9. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Norðlæg átt, víða 3–8 m/s. Dá- lítil él norð- anlands, stöku él sunnan- og suðaustanlands, skýjað með köflum. » 8 Heitast Kaldast -4°C -18°C MAGNI Ásgeirsson býr sig nú undir langt tónleika- ferðalag sem hefst í Flór- ída eftir viku, en þar mun Magni hita upp fyrir hljóm- sveitina Supernova ásamt félögum sínum úr Rock Star-þáttunum. Alls er um 28 tónleika að ræða, víðs vegar um Bandaríkin og í Kanada. Þá hefur Magni sótt um stöðu gítarleikara í húsbandinu svo- kallaða sem lék undir hjá keppendum í Rock Star. Eru góðar líkur taldar á að hann fái stöðuna. Einkalíf Magna hefur verið í sviðsljósinu á undanförnum dögum í kjölfar sambandsslita hans og Eyrúnar Huldar Haraldsdóttur. Magni segir þær sögusagnir sem farið hafa á kreik ekki eiga við nein rök að styðjast og að hann láti þær ekki á sig fá. | 15 Magni sækir um í Rock Star-bandinu Ljósmynd/Gassi.is BÆJARSTJÓRAR Sveitarfélagsins Garðs og Reykjanesbæjar hafa gert með sér sam- komulag um legu lóðar fyrirhugaðs álvers Norðuráls við Helguvík og að sveitarfélögin skipti jafnt á milli sín tekjum af fasteignagjöld- um. Samkvæmt samkomulaginu verða ker- og steypuskálar álversins innan lóðarmarka Garðs og súrálsgeymar og ýmis önnur mann- virki verða innan bæjarmarka Reykjanes- bæjar. Norðurál hefur uppi áform um að reisa allt að 250 þúsund tonna álver þarna. | 17 Skipta tekjum af álveri í Helguvík Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is SIGURLÍN Margrét Sigurð- ardóttir, táknmálsþula og vara- þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur gert róttækar breytingar á lífi sínu undanfarið og er m.a. 25 kílóum léttari en áður. Á matvælasýningunni Matur 2006, hinn 1. apríl, komst hún að því að hún væri með sykursýki. Hún hafði farið í blóðprufu hálfum mánuði áður vegna slappleika en ekkert fengið að vita hvað kom út úr þeim mælingum. Það var svo bróðir hennar, Guð- ráður, sem dreif hana á bás á sýn- ingunni sem Samtök sykursjúkra voru með og þar komst hún að því að fólk með jafnhá blóðsykurgildi og hún væri venjulega í dái. Sig- urlín Margrét þurfti að gera ýms- ar breytingar á lífi sínu í kjölfar greiningarinnar, bæði varðandi mataræði og hreyfingu. Breytingarnar hafa skilað sér til baka í aukinni vellíðan, bæði andlegri og líkamlegri; hún er bú- in að missa 25 kíló frá því hún greindist og hefur aldrei verið í betra formi. Hún segir að hægt sé að láta sér líða vel með sykursýki og lifa með henni geri maður allt rétt og hún segist afar þakklát bróður sínum sem sennilega bjargaði lífi hennar. Neitað um mælingu Sem fyrr segir hafði Sigurlín ekki verið látin vita af nið- urstöðum úr blóðprufu, sem hún hafði farið í á bráðamóttöku Land- spítalans hálfum mánuði fyrr. Þar áður hafði henni verið neitað um blóðsykursmælingu á Heilsu- gæslustöðinni í Garðabæ á þeirri forsendu að læknir yrði að fyr- irskipa slíka mælingu. Þurfti hún að bíða í 12 daga eftir tíma hjá lækni. | 20 Róttækar breytingar Sykursýki upp- götvaðist á mat- vælasýningu Morgunblaðið/Ásdís Sykursýki Sigurlín Margrét hefur gert róttækar breytingar á lífi sínu og misst í kjölfarið 25 kíló. SLÖKKVILIÐ Húsavíkur var kallað að fjölbýlishúsi um kvöld- matarleytið í gær. Kviknað hafði í eldhúsinnrétt- ingu út frá potti og var talsverð- ur reykur. Lítill eldur reyndist vera í íbúðinni, en nokkrar skemmdir urðu vegna reyks. Einn maður var í íbúðinni, beið hann slökkviliðs fyrir utan íbúðina þegar að var komið og er ekki tal- inn hafa orðið fyrir reykeitrun, hann var þó fluttur á Heilbrigð- isstofnun Þingeyinga til eftirlits. Þá var slökkviliðið á Selfossi kallað út í gærkvöldi vegna elds í ruslagámi á gámasvæði Sorp- stöðvar Suðurlands á Eyrar- bakka. Logaði í timbri sem lá í gámi á svæðinu og gekk vel að slökkva eldinn, ekkert tjón varð. Slökkviliðsmenn að störfum við fjölbýlishúsið á Húsavík. Eldsvoðar á Húsavík og Eyrarbakka Eftir Ómar Friðriksson og Örlyg Stein Sigurjónsson SPILAFÍKN verður sífellt al- gengari meðal yngra fólks og kvenna að sögn Þórarins Tyrf- ingssonar, yfirlæknis á Sjúkra- húsinu Vogi. Sjúklingar með spila- fíkn sem sinn aðalvanda hafa fengið úrræði á göngudeildum en algengast er að fíkniefna- og/eða áfengissjúklingar með spilavanda að auki leggist inn á Vog. „Við höfum skimað þennan hóp og reynt að gera okkur grein fyrir hversu margir eiga í vanda vegna spilaáráttu. Það hefur komið í ljós að ríflega tíundi hver sjúklingur sem leggst hér inn á í verulegum vanda vegna spilafíknar,“ segir Þórarinn, sem bendir á að tæki- færum til að spila hafi fjölgað verulega á Vesturlöndum. Með betri aðgangi aukist vandinn um leið. 970 spilakassar Alls eru um 970 spilakassar starfræktir um allt land í dag, en auk Happdrættis Háskóla Íslands og Háspennu annast Íslandsspil, sem eru í eigu Rauða kross Ís- lands, Slysavarnafélagsins Lands- bjargar og SÁÁ, rekstur spila- kassa. Íslandsspil reka 580 spilakassa á 230 stöðum um allt land og Háspenna og HHÍ reka 390 kassa. Hreinar tekjur Íslandsspila, þ.e. að frádregnum vinningum og kostnaði, eru um 900 milljónir króna á ári. Happdrætti Háskóla Íslands rekur þrjú happdrættis- form, þ.e. flokkahappdrætti og skafmiðahappdrætti auk spila- kassanna. Ekki fengust upplýs- ingar í gær um hlut spilakassanna í tekjum HHÍ en samkvæmt svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn á Alþingi árið 2005 um söfnunar- kassa og happdrættisvélar voru tekjur HHÍ að frádregnum vinn- ingum og kostnaði um 528 millj- ónir á árinu 2004. Morgunblaðið/Árni Sæberg Spilafíkn Að sögn yfirlæknis SÁÁ verður það æ algengara, að ungt fólk þurfi að leita sér aðstoðar vegna spilafíknar. Spilafíkn sífellt algeng- ari meðal yngra fólks Árlegar tekjur af spilakössum eru áætlaðar um einn og hálfur milljarður Í HNOTSKURN » Allt að 60 ný tilvik spila-fíknar koma til kasta SÁÁ árlega. » Ágóða af rekstri Happ-drættis HÍ skal varið til þess að reisa byggingar á vegum háskólans. » Í fjárlögum í ár er gertráð fyrir að hagnaður af öllum happdrættisformum HÍ verði 870 milljónir kr. sem er tæpum 400 milljónum kr. meira en í fjárlögum 2006. ÞÓRA Björg Helgadóttir, landsliðs- markvörður í knattspyrnu, er á förum frá Breiðabliki þrátt fyrir að hafa skrifað undir þriggja ára samning við félagið í haust. Hún er að flytjast til Belgíu þar sem hún tekur við starfi verkefnisstjóra hjá Deutsche Post í Brussel. Þóra Björg hyggst leika knattspyrnu í Belgíu og hefur mestan áhuga á að spila með Anderlecht. | Íþróttir Þóra Björg á leiðinni til Belgíu STARFSMENN Reykjavíkurborgar voru í óðaönn í miðbænum í gærkvöldi að taka nið- ur jólaskreytingar á ljósastaurum og víðar. Í sömu önnum hafa landsmenn verið frá þrett- ándanum og híbýlin orðin hversdagsleg á ný. Morgunblaðið/Golli Skreytingar hverfa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.