Morgunblaðið - 21.02.2007, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 11
FRÉTTIR
LÖGREGLAN í
Rangárvallasýslu
var í síðustu viku
kölluð til vegna
heimilisófriðar
sem endaði með
því að ölvaður
gestur í húsinu
var handtekinn.
Þegar færa átti
manninn í fangageymslur á Selfossi
réðst hann að lögreglumönnum og
náði að bíta tvo þeirra auk þess sem
hann eyðilagði gleraugu annars
lögreglumannsins. Maðurinn gisti
fangageymslur þar til rann af hon-
um ölvíman.
Tvær líkamsárásir voru kærðar
til lögreglunnar á Hvolsvelli um
helgina. Önnur átti sér stað á
þorrablóti, hin í heimahúsi.
Beit tvo lög-
reglumenn
EIRÍKUR Bergmann Einarsson,
dósent og forstöðumaður Evr-
ópufræðaseturs Háskólans á Bif-
röst, ritar kafla í fræðibók sem há-
skólinn í Lundi í Svíþjóð gefur út. Í
kaflanum skrifar Eiríkur um stöðu
Íslands í Evrópusamvinnunni. Nið-
urstaða hans er að í gegnum EES-
samninginn og Schengen sé Ísland
komið á kaf í Evrópusamrunann,
segir í frétt frá Bifröst.
Evrópusamruni
Á SAFNANÓTT á vetrarhátíð verð-
ur boðið upp á fræðslugöngu frá
Hlemmi að Þvottalaugunum í
Laugadal og þaðan inn í Grasagarð
Reykjavíkur. Gangan hefst föstu-
daginn 23. febrúar kl. 20 og í henni
segja leiðsögumenn frá lífi og starfi
reykvískra kvenna við Þvottalaug-
arnar.
Morgunblaðið/Þorkell
Þvottalaugar
Í SÍÐUSTU viku afhenti Jón Helgi
Guðmundsson, forstjóri Kaupáss,
formanni Björgunarsveitarinnar
Kyndils í Mosfellsbæ ávísun að upp-
hæð 1.200.000 kr. Um var að ræða
afrakstur söfnunarátaks sem sett
var af stað við opnun nýrrar Krónu-
verslunar í Mosfellsbæ 10. nóv-
ember síðastliðinn.
Styrkur Jón Helgi Guðmundsson,
forstjóri Kaupáss, og Ingvar Þór,
formaður Björgunarsveitarinnar
Kyndils í Mosfellsbæ.
Krónan
styrkir Kyndil
MERKISDAGUR verður á Strönd-
um á föstudag, en þá fer í fyrsta
skipti fram kennsla á háskólastigi á
Hólmavík þar sem heimamenn sjá
um kennslu, að því er segir á
strandir.is. Von er á 15–20 nemum í
hagnýtri menningarmiðlun. Þeir
sækja námskeið um menntatengda
ferðaþjónustu sem byrjar á Hólma-
vík.
Strandaháskóli
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Fréttir á SMS
DIONYSOS
Á VETRARHÁTÍÐ
í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi
laugardaginn 24. febrúar kl. 22:00
Aðgangur ókeypis
www.vetrarhatid.is
Franska rokksveitin