Morgunblaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 21 SUÐURNES LANDIÐ Eftir Björn Björnsson Hólar | Við Hólaskóla, háskólann á Hólum, er nú risið eitt glæsilegasta hesthús landsins. Verður það væntanlega tekið í notkun á veg- legri opnunarhátíð hinn 23. mars næstkomandi. Það er félagið Hesthólar ehf. sem á og reisir þessa glæsihöll, sem síðan verður leigð skólanum til afnota. Að sögn stjórnarformanns félagsins var gert ráð fyrir að byggingarkostnaður yrði 250 til 300 milljónir króna. Um þessar mundir er fjöldi iðnaðarmanna önnum kafinn við að gera húsið sem best úr garði, og leggja síð- ustu hönd á alla aðstöðu innanhúss, sem verður samkvæmt ýtrustu gæðakröfum. 800 fermetra reiðhöll Að sögn Víkings Gunnarssonar, deildarstjóra hrossaræktardeildar Hólaskóla, hófust byggingarfram- kvæmdir um mitt síðasta sumar. Í húsinu, sem er um þrjú þúsund og tvö hundruð fermetrar að stærð, er aðstaða fyrir tvö hundruð hesta, þar af fimmtíu stóðhesta, og er hver stía um sjö fermetrar. Allar innréttingar eru úr galvaniseruðu stáli og tekki og mjög vandaðar. Þá verður í húsinu afbragðs að- staða fyrir nemendur, vandaðar læstar hnakkageymslur fyrir hvern einstakan, rými þar sem lagt er á og hestarnir undirbúnir fyrir hvern tíma, auk sérstakrar bað- og snyrtiaðstöðu fyrir íbúa hússins. Í öðrum enda hallarinnar er svo átta hundruð fermetra reiðhöll með kennsluaðstöðu, en að sögn Víkings er mjög mikilvægt að að- staða sé, þar sem hestarnir eru meðhöndlaðir í tamningunni, fyrir framan hóp nemenda, sem geta þar fylgst vel með hinni verklegu kennslu. Víkingur sagði ennfremur að með því að taka þetta hús í notk- um væri orðin góð sú framtíðarað- staða sem gert er ráð fyrir að verði að vera til staðar við skólann, varð- andi þennan þátt, þar sem mjög aukin ásókn er nú í nám í hesta- fræðum. Sagði hann að skólinn gerði ráð fyrir að geta tekið á móti eitt hundrað nemendum á þessa braut árið 2010. Hins vegar sagði hann að þrátt fyrir þessa miklu og góðu viðbót við alla aðstöðu á Hólum væri mik- ið verk enn óunnið, því að enn vant- aði aðstöðu til að unnt væri að sinna rannsóknarþættinum varð- andi hesta og hestamennsku eins og þyrfti. Á undanförnum árum hafa farið fram viðamiklar rann- sóknir á fótasjúkdómi hesta, spatti, svo og fóðurrannsóknir, og væri þeim rannsóknum raunar alls ekki lokið. Þá þyrfti aðstöðu til rann- sókna á hreyfingum, byggingu hesta, reiðmennsku og þjálfunar- lífeðlisfræði, svo eitthvað væri nefnt. Glæsilegt hesthús og reiðhöll gjörbreytir aðstöðu nemenda á Hólum Stefnt að hundrað nemend- um í hestafræðum árið 2010 Morgunblaðið/Björn Björnsson Hestahöll rís Víkingur Gunnarsson, deildarstjóri Hrossaræktardeildar Hólaskóla, stendur við stóðhestastíurnar í nýju hestahöllinni á Hólum. Í HNOTSKURN »Hesthólar ehf. byggja stórthesthús og reiðhöll á Hól- um og leigja Hólaskóla. »Aðstaða er fyrir tvö hundr-uð hesta, þar af fimmtíu stóðhesta, og er hver stía sjö fermetrar að stærð. » Í öðrum hluta hússins er800 fermetra reiðhöll með kennsluaðstöðu. »Höllin verður væntanlegatekin formlega í notkun í seinni hluta marsmánaðar. »Kostnaður er áætlaður 250til 300 milljónir kr. Þorlákshöfn | Fyrstu tónleikar þessa árs í tónleikaröðinni „Tónar við hafið“, sem menningarfulltrúi Ölfuss stendur fyrir, verða í Versölum í Ráðhúsinu í Þorláks- höfn í kvöld, miðvikudagskvöld, klukkan 20. Þá mun Lovísa Elíasabet Sigrún- ardóttir, Lay Low, flytja tónlist sína ásamt þeim Magnúsi Árna Öder Kristinssyni á kjöltugítar og hljómborð, Sigurbirni Má Valdimarssyni á hljómborð og banjó og Birni Sigmundi Ólafssyni á trommur. Lay Low í Ölfusi Mývatnssveit | Þau viðhalda gamalli hefð og vaka undir ísinn nokkrum netum systk- inin á Grímsstöðum, Elín og Jóhannes. Fyrir fótum þeirra liggur kafarinn sem léttir þeim að koma netum á milli vaka. Jó- hannes hefur smíðað slíka kafara í tuga- tali. Fleiri sveitungar eru á ísnum nú þessa dagana að koma sér fyrir á hefðbundinni lagnaslóð sinna heimila. Þeim er tilhlökk- unarefni að eiga von á nýjum Mývatnssil- ungi í pottinn. Viðhalda gamalli hefð Mývetninga Morgunblaðið/BFH Reykjanes | Aðgengi að Gunnuhver á Reykjanesi verður bætt á næst- unni. Ferðamálasamtök Suðurnesja og Hitaveita Suðurnesja hf. munu standa að því í sameiningu, að því er fram kemur á vef Ferðamála- samtakanna, reykjanes.is. Þá verð- ur opnuð hreinlætisaðstaða fyrir ferðafólk í Reykjanesvirkjun. Mikið líf hljóp í hverasvæðið á Reykjanesi á sama tíma og Reykja- nesvirkjun hóf orkuframleiðslu sína. Þannig er gufuvirkni í Gunnu- hver meiri en hún hefur verið síð- ustu fjóra áratugi, nýir hverir hafa opnast og gamlir hresst sig við. Hverinn er meðal vinsælustu ferða- mannastaða á Reykjanesi. Vegna þess þarf að laga til og færa göngubrýr á svæðinu og end- urbæta bílastæði og setja upp skýr- ari upplýsingar um hættuna. Í sumar má búast við aukinni um- ferð um Reykjanes þar sem veg- urinn frá Höfnum til Grindavíkur verður allur lagður bundnu slitlagi. Þá mun sýningin „Orkuverið Jörð“, sem sett verður upp í Reykjanes- virkjun, draga að sér ferðafólk. Morgunblaðið/ÞÖK Aðgengi bætt að Gunnuhver Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Reykjanesbraut | Vegagerðin hefur ákveðið að bæta við fjórðu mislægu gatnamótunum á þeim kafla Reykja- nesbrautar sem nú er verið að tvö- falda. Gatnamótin þjóna væntanlegu Stapahverfi í Reykjanesbæ sem er norðan Reykjanesbrautar og nýju akstursíþróttasvæði sem verður sunnan brautarinnar. Verktakinn hefur þegar hafist handa við fram- kvæmdina. Við útboð þessa áfanga tvöföldun- ar Reykjanesbrautar var gert ráð fyrir mislægum gatnamótum við Vogaveg, Grindavíkurveg og við Tjarnahverfi í Reykjanesbæ þar sem tvöföldunin endar. Íbúðabyggðin í Reykjanesbæ hefur byggst hraðar með ströndinni og í áttina að Voga- stapa en gert var ráð fyrir við hönn- un brautarinnar og stefnir hraðfara upp á Stapann. Þá hefur bærinn út- hlutað stóru svæði sunnan Reykja- nesbrautarinnar til fyrirtækis sem hyggst koma þar upp miklu aksturs- íþróttasvæði, meðal annars kapp- akstursbraut og körtubraut, Iceland MotoPark, auk hótela og íbúðarhús- næðis. Þess vegna hafa bæjaryfir- völd í Reykjanesbæ lagt mikla áherslu á að bæta þarna við fjórðu mislægu gatnamótunum. Opnað að hluta í haust Jónas Snæbjörnsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar, segir að hag- kvæmara sé að framkvæma þetta nú, á meðan á heildarframkvæmd- inni stendur, en að þurfa að rífa allt upp eftir nokkur ár til að byggja þessi gatnamót. Gatnamótin verði nákvæmlega eins og gatnamótin við Tjarnahverfi og hafi náðst sam- komulag við verktakann að bæta þeim við. Verktaki Reykjanesbraut- arinnar, Jarðvélar ehf., er þegar bú- inn að grafa í sundur nýju akreinina til að undirbúa brúargerð. Jónas segir að gatnamótin kosti um það bil 200 milljónir kr. Framkvæmdir við tvöföldun þessa áfanga hófust í byrjun síðasta árs og á að ljúka í júlí á næsta ári. Jarðvélar miðuðu þó verkáætlun sína við það að ljúka verkinu í haust til að njóta flýtipeninga sem í samningnum fól- ust. Jónas segir að viðbótar gatna- mótin raski aðeins þessum áformum. Þó vonast hann til að hægt verði að opna meginhluta vegarins fyrir um- ferð á tveimur akreinum í báðar áttir frá enda núverandi tvöfalda kafla, framhjá Voga- og Grindavíkurveg- um og yfir nýju gatnamótin á Stap- anum. Hins vegar verði vestasti kafl- inn að bíða þar til í júlí á næsta ári. Bæta við fjórðu mis- lægu gatnamótunum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Gatnamót Vinnuvélar á vegum Jarðvéla hafa rofið skarð í nýju akgreinina til að bæta við mislægum gatnamótum við Stapahverfi í Reykjanesbæ. Í HNOTSKURN »Gerð verða mislæg gatna-mót við væntanlegt Stapa- hverfi og akstursíþróttasvæð- ið sunnan við brautina. »Umferð verður hleypt átvöfaldaða Reykjanes- braut í haust, nema vestasta kaflann sem bíður fram á næsta sumar. ÁKVEÐIÐ hefur verið að sameina Félag iðn- og tæknigreina og Iðn- sveinafélag Suðurnesja. Í allsherjaratkvæðagreiðslu hjá Iðnsveinafélagi Suðurnesja (ISFS) var samþykkt með tæpum 80% greiddra atkvæða að sameinast Fé- lagi iðn- og tæknigreina (FIT). Hjá Félagi iðn- og tæknigreina var sam- einingin samþykkt einróma á tveimur félagsfundum. Jafnframt voru gerðar nauðsynlegar laga- breytingar. Með sameiningunni verður til rúmlega 3.300 manna félag iðn- og tæknigreina með sterka og góða fjárhagsstöðu, segir í fréttatilkynn- ingu. Aðalmarkmið sameining- arinnar er að búa til heildstætt fé- lag sem getur mætt væntingum félagsmanna til framtíðar hvað varðar kjör, aðbúnað og menntun. Þjónustuþátturinn er meginávinn- ingurinn en sameinað félag býður upp á þjónustu á sviðum orlofs-, sjúkra- og fræðslumála auk hefð- bundinnar þjónustu við kjara- og réttindamál. Áfram verður starf- rækt skrifstofa á Suðurnesjum en auk hennar er FIT með skrifstofur á Akranesi, Selfossi og að- alskrifstofu í Reykjavík. Sameinast Félagi iðn- og tæknigreina Keflavík | Febrúarfundur Krabba- meinsfélags Suðurnesja og stuðn- ingshópsins Sunnan 5 verður hald- inn í kvöld í húsi Rauða krossins á Smiðjuvöllum 8 í Keflavík. Á fundinum mun Marta Guð- mundsdóttir ræða við gesti um reynslu sína og segja frá vænt- anlegri göngu yfir Grænlandsjökul. Segir frá reynslu sinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.