Morgunblaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 22
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Þ að var líf og fjör í Voga- skóla í gær þegar efnt var til Vinadags í skól- anum. Vinadagar eru orðnir hluti af skóla- starfi Vogaskóla því haldnir eru tveir slíkir dagar á ári nú orðið. Skólastarfið er þá brotið upp með því að tveimur árgöngum er bland- að saman í leik og starfi. Úr þess- um jarðvegi hafa sprottið upp vina- bekkir auk þess sem einstaklingar innan bekkjanna eru tengdir vina- böndum. „Reynslan af þessu starfi er al- veg frábær í alla staði og fá ung- lingarnir ekkert síður mikið út úr þessu en litlu krakkarnir,“ segir Guðbjörg Halldórsdóttir, skólastjóri Vogaskóla. Fyrsti bekkur er til dæmis vinabekkur tíunda bekkjar og fjórði bekkur er vinabekkur 8. bekkjar. Svo eru einstaklingar inn- an þessara bekkja vinir og passa auðvitað hver upp á annan. Í lagi að sýna tilfinningar „Tilurð þessa fyrirkomulags má rekja til þess að einu sinni fyrir jól- in kom kennari tíunda bekkjar inn á kennarastofuna og dæsti yfir því að ekkert væri hægt að gera skemmtilegt með unglingunum því þeir væru svo töff og þætti allt svo hallærislegt. Kennari fyrsta bekkj- ar, sem var mikil músíkkona, greip þetta á lofti og bauð barasta kenn- aranum í heimsókn með unglingana sína til sín. Kennari sex ára barnanna bað litlu krakkana um að setjast upp á borðin sín og bauð unglingunum svo sæti á litlu stól- unum. Þannig var hver unglingur með eitt sex ára barn fyrir framan sig og þegar litlir og stórir fóru að syngja saman, fannst unglingunum allt í lagi að vera dálítið tilfinn- ingasöm úr því að hægt var að syngja í gegnum lítið barn. Við sáum fljótt að þarna áttum við ónýtt tækifæri sem við höfum byggt á síðan. Þó segja megi að vinadagar hafi orðið til fyrir til- viljun, eftir að kennararnir sáu hvað þessi samskipti og samvera virkaði vel á stóra sem smáa, var ákveðið að halda þessu áfram,“ seg- ir Guðbjörg. Á vinadegi í gær var m.a. farið í styttri ferðir saman eða skemmtileg verkefnavinna unnin saman í skól- anum. Vinabekkir fara svo saman til kirkju fyrir jólin og vorferðir eru sömuleiðis orðnar að venju. Þá leiða unglingarnir gjarnan litlu vinina sína og taka hlutverk sitt um að bera ábyrgð á barni mjög alvarlega. Stóru krakkarnir hafa líka komið inn í yngri bekkina og aðstoðað við lærdóminn og þessi nærvera við unglinga dregur úr því að litlu börnin séu smeyk við þá. Hver passar hvern? „Það eru allir mjög jákvæðir gagnvart þessu starfi og allir taka hlutverk sitt alvarlega. Ungling- arnir hafa hinsvegar látið okkur vita að þeir sjái svo sem alveg í gegnum okkur, sem komum þessum vinadögum á. Þau hafa nefnilega verið að velta því fyrir sér hver sé að passa hvern. Við lögðum þetta náttúrulega þannig upp að ungling- arnir yrðu að passa litlu börnin en auðvitað vorum við að hemja ung- lingana með því að tengja þau litlu barni. Og það hefur virkað mjög vel,“ segir skólastjórinn að lokum. Innileikir Það er allt í lagi að sýna tilfinningasemi með litlum krökkum í leik. Morgunblaðið/Ásdís Útileikir Á skólalóðinni leika litlir og stórir sér saman á vinadögum. Vinadagar tengja litla og stóra... Drekkutími Að aflokinni samveru er gott að fá heitar vöfflur. daglegtlíf Útivera Eldri börnin taka ábyrgð sína alvarlega gagnvart þeim sem yngri eru. Gaman saman Allir eru jákvæðir gagn- vart verkefninu. Stóru krakkarnir hafa líka komið inn í yngri bekkina og að- stoðað við lærdóm- inn og þessi nærvera við unglinga dregur úr því að litlu börnin séu smeyk við þá. Járn er það næringarefni sem helst er af skornum skammti í fæði kvenna og barna víða um heim. » 24 járnskortur Hætta á húðkrabbameini vegna ljósabekkjanotkunar hefur auk- ist í Bretlandi þar sem sífellt sterkari perur eru notaðar. » 24 ljósabekkir Er miki› álag í vinnunni? LGG+ er fyrirbyggjandi vörn! Oft koma fyrstu einkenni streitu fram sem stöðug þreyta og óþægindi í maganum og ónæmis- kerfið starfar af minni krafti en áður. Rannsóknir sýna að LGG+ vinnur gegn þessum neikvæðu áhrifum og dagleg neysla þess tryggir fulla virkni. |miðvikudagur|21. 2. 2007| mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.