Morgunblaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 15 Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is EINARI Sveinssyni, formanni bankaráðs Glitnis, varð tíðrætt í ræðu sinni á aðalfundi í gær um þær miklu breytingar sem bankinn hefði gengið í gegnum undanfarið ár. Breytingarnar hefðu í för með sér nýjar áherslur og ný tækifæri. Einn af þeim kostum sem hefðu verið til skoðunar innan bankans væri að skrá Glitni í erlenda kaup- höll. „Slík skráning hefur marga kosti í för með sér fyrir félagið og munu stjórnendur bankans vega þá og meta vandlega á komandi mánuð- um,“ sagði Einar. Þreföldun þóknanatekna Í upphafi ræðunnar sagði hann að fyrir ári, er hann hefði flutt skýrslu stjórnar á aðalfundi, hefði bankinn verið með starfsstöðvar í fimm löndum, þá undir nafni Ís- landsbanka, og tilkynnt hefði verið um 19 milljarða króna metafkomu. Nú á fyrsta aðalfundinum undir merkjum Glitnis væri bankinn kom- inn með starfsstöðvar í tíu löndum, starfsemi um allan heim og metaf- koman eftir síðasta ár væri 38 millj- arðar króna. Einar sagði afkomu síðasta árs einkennast af „afburða- góðum“ vexti þóknanatekna. Þær hefðu þrefaldast milli ára; farið úr 8,8 milljörðum í 26,5 milljarða króna. Á fjórða ársfjórðungi hefðu þóknanatekjur í fyrsta sinn verið hærri en hreinar vaxtatekjur. Eign- ir í stýringu námu um 490 millj- örðum króna og jukust um 42% frá árinu 2005. Einar sagði að með kaupunum á FIM Group í Finn- landi hefðu eignir samstæðunnar í stýringu aukist um 55% og yrðu eftir kaupin um 757 milljarðar. Þrátt fyrir sviptingar á mörk- uðum sagði Einar að alþjóðleg skuldabréfaútgáfa bankans hefði gengið vel og numið 4,8 milljörðum evra á síðasta ári, samanborið við sex milljarða evra árið áður. „Þá hóf Glitnir að taka við inn- lánum í Bretlandi á fjórða ársfjórð- ungi 2006 og er óhætt að segja að sú starfsemi fari vel af stað þar sem slík innlán þar í landi námu 45 milljörðum króna í árslok,“ sagði Einar. Bankaráðsformaðurinn rakti helstu breytingar á vexti bankans erlendis. Starfsemin hefði verið efld í London, Lúxemborg og Dan- mörku og Glitnir náð traustri fót- festu í Noregi. Einnig hefði verið fjárfest í fjármálafyrirtækjum í Sví- þjóð og Finnlandi, skrifstofur opn- aðar í Kanada og Kína og til stæði að gera slíkt hið sama í New York. Sókn bankans erlendis fylgdi skýrri stefnu sem hvíldi á þremur meg- instoðum; sérþekkingu á tilteknum vöruflokkum, þekkingu á staðhátt- um í viðkomandi löndum og þekk- ingu á tilteknum atvinnugreinum. Skráning Glitnis í erlenda kauphöll er til skoðunar Morgunblaðið/Árni Sæberg Aðalfundur Vel fór á með Bjarna Ármannssyni, Hannesi Smárasyni og Einari Sveinssyni á aðalfundi Glitnis en Hannes er nýr í stjórn bankans. Í HNOTSKURN »Samþykkt var á aðalfundiGlitnis í gær að verja 25% af hagnaði bankans í arðgreiðslur til hluthafa, eða alls um 9,4 millj- örðum króna, sem gera 0,66 krónur á hlut. »Sjálfkjörið var í stjórn Glitn-is. Í stað Jóns Snorrasonar og Edwards Allens Holmes komu Hannes Smárason og Þórarinn V. Þórarinsson. »Formaður bankaráðs sagðiGlitni hafa aukið samfélags- lega ábyrgð sína, m.a. með aukn- um styrkjum. Menningarsjóður Glitnis styrkti alls 200 aðila á síð- asta ári um 150 milljónir króna. Framlagið verður hækkað í 200 milljónir króna á þessu ári. Innlán bankans í Bretlandi komin í 45 milljarða króna 1. Skýrsla stjórnar um hag félagsins og starfsemi á hinu liðna starfsári. 2. Ársreikningur félagsins lagður fram til staðfestingar. 3. Tekin ákvörðun um greiðslu arðs. 4. Ákveðin þóknun til stjórnar félagsins. 5. Stjórnarkjör. 6. Kjör endurskoðenda. 7 . Tillaga um starfskjarastefnu. 8. Tillaga um breytingar á samþykktum. Að taka út 2. málslið 4. mgr. 8. gr., sem kveður á um að aðalfund skuli boða með minnst tveggja vikna fyrirvara. Viðbætur við 8. gr. vegna rafrænnar þátttöku í hluthafafundum og rafrænna hluthafafunda. Breyting á 9. gr. um að á dagskrá aðalfundar verði tillögur um starfskjarastefnu. Viðbót við 12. gr. um upplýsingar í framboðstilkynningu þeirra sem gefa kost á sér til stjórnarsetu. 9. Tillaga um kaup á eigin hlutum. 10. Önnur mál. Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur félagsins liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis. Ennfremur er hægt að nálgast þær á vefsíðu félagsins www.flgroup.is. Sérstaklega skal bent á að fundurinn verður haldinn á ensku. Hægt verður að fylgjast með aðalfundinum á www.flgroup.is. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardaginn frá kl. 15.30 á fundar- stað á Kjarvalsstöðum. Reykjavík, 20. febrúar 2006. Stjórn FL Group hf. Aðalfundur FL Group hf. verður haldinn fimmtudaginn 22. febrúar 2007 á Kjarvalsstöðum við Flókagötu, Reykjavík og hefst fundurinn kl. 16.30. AÐALFUNDUR FL GROUP HF. DAGSKRÁ FUNDARINS: a. b. c. d. F í t o n / S Í A VIÐSKIPTA- og hagfræðideild Há- skóla Íslands hefur ákveðið að dr. Friðrik Már Baldursson gegni stöðu prófessors með fulltingi Kaupþings. Þetta er gert í kjölfar samnings sem Háskóli Íslands og Kaupþing gerðu með sér nýverið um ótímabundna kostun á stöðu prófessors í við- skipta- og hagfræðideild skólans. Í samningnum felst m.a. að heiti Kaupþings verður tengt við ákveðna stöðu prófessors eða dósents í fjár- málum, fjármálahagfræði eða hag- fræði. Segir í tilkynningu að slíkt fyrirkomulag sé mjög algengt hjá háskólum í Bandaríkjunum og víðar, en sé nýmæli hér á landi. Samningurinn er einnig sagður marka nokkur tímamót í stuðningi atvinnulífs við Háskóla Íslands. Þótt fyrirtæki hafi áður kostað stöður við háskólann hafi slíkur stuðningur ávallt verið tímabundinn. Stuðning- ur af þessu tagi sé mjög mikilvægur fyrir Háskóla Íslands og gefi svig- rúm til að efla kennslu og rann- sóknir í fjármál- um og tengdum greinum. Friðrik Már hefur starfað sem prófessor við við- skipta- og hag- fræðideild frá árinu 2003. Hann starfaði áður hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og Þjóðhagsstofnun og kenndi við Columbia-háskólann í New York. Rannsóknir Friðriks Más beinast m.a. að fjármálahagfræði, atvinnu- vegahagfræði og hagfræði orku- markaða. Hann hefur birt fjölda rannsóknarritgerða í innlendum og erlendum ritrýndum fagtímaritum. Friðrik Már hefur m.a. kennt nám- skeið í fjármálastærðfræði í meist- aranámi í fjármálahagfræði sem fór af stað sl. haust. Kaupþing styrkir prófessor við HÍ Friðrik Már Baldursson ● AGNAR Már Jónsson, fv. forstjóri Opinna kerfa, hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Titan Invest, sem er nýstofnað fyrirtæki í eigu Símans og félags á vegum Frosta Bergssonar. Markmið þessa nýja félags er að leita uppi fjárfest- ingartækifæri er- lendis á sviði upp- lýsingatækninnar, þar sem veitt er sambærileg þjónusta og Titan ehf. gerir á Íslandi, félag sem Frosti kom á laggirnar á síðasta ári ásamt fleiri fv. yfirmönnum hjá Opnum kerfum. Samhliða þessari ráðningu mun Agnar Már taka sæti í stjórn Titan, en það fyrirtæki einbeitir sér að lausnum fyrir stærri fyriræki hvort sem um er að ræða net- og síma- lausnir frá Cisco, miðlægar lausnir frá HP, Open Source- eða Microsoft- kerfislausnir. Agnar Már til Titan Agnar Már Jónsson                     "&# - .( /0 12 "&# 3&)- "&# 3 '(- )0 3)14 5  0! /0 12 "&# 6 !! .%0 /0 12 "&# 7 /0 12 "&# /3('(0 8 '!( "&# 9&# (4!(2 &:3 ; <3 ' $ 12=('; 8 '!( "&# 7 '8 '!( <3 ' "&#  0)3 "&#   (-  "( ' "&# 0 1410>610? 0@ A@0&#8# "&# B10 "&#         C( "&# 3 ; /0 12 "&# *-)3 ' (0 /0 12 9 3('; "&# *-)3 '(- /0 12 "&# D")0A( "&#  6 )E4( "&# 0E;;('; 4(?%?(' "&# F(''31%?(' "&#       3@10&:3 ; 1?103 ' .&#       96 /0 '( "&# 9 42(?A ' "&#    !                                                                                     9)(3 0> .(?!(2(  ;(' (38 ? G 3 !  ;H $ 12 3  #  ## # # #  ## ## # #  # # # # #  ##  ##  ## # # ## # ##  # # # > ## > > > # # # # > > > >                > >    >  > >                     >  >  F(?!(2( G !0I'14 9# J "1;1' 03(( A%3( .(?!(2     >  > > >  > > > > G?  .(?!#.)0? ● GENGI hlutabréfa 15 af 23 fé- lögum á Aðallista Kauphallarinnar hefur hækkað nú þegar fyrsti fjórð- ungur ársins er rúmlega hálfnaður. Bréf FL Group og Exista hafa hækk- að mest auk hlutabréfa bankanna en bréf 365 hafa lækkað mest frá ára- mótum. Fram kemur í hálffimm- fréttum Kaupþings banka að bréf FL Group hafa hækkað um 27,8% frá áramótum og bréf Exista um 25,3%. Bankarnir fjórir koma á eftir og hafa bréf þeirra hækkað á bilinu 16,7% til 19,6%. Bréf 365 hafa lækkað mest frá áramótum eða um 19,2%, þá bréf Flögu eða um 10,7% og bréf TM sem hafa lækkað um 10,1%. FL Group og Exista hækka mest

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.