Morgunblaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 49 / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI HANNIBAL RISING kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i.16 .ára. HANNIBAL RISING VIP kl. 5:40 - 8 - 10:30 ALPHA DOG kl. 8 - 10:30 B.i.16 .ára. PERFUME kl. 5 - 8 - 10:40 B.i.12 .ára. MAN OF THE YEAR kl. 10:30 B.i. 7 .ára. BLOOD DIAMOND kl. 5 - 8 - 10:40 B.i.16 .ára. BABEL kl. 8 B.i.16 .ára. FORELDRAR kl. 6 VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ GHOST RIDER kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára HANNIBAL RISING kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára ALPHA DOG kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára CHARLOTTE´S WEB m/ensku tali kl. 5:50 LEYFÐ DIGITAL VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 2:30 LEYFÐ DIGITAL FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 2:30 LEYFÐ DIGITAL SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 2:30 LEYFÐ DIGITAL ÓSKARSTILNEFNINGAR m.a. fyrir aðalhlutverk karla/ Leonardo dicaprio5 FRÁ LEIKSTJÓRA “THE LAST SAMURAI” SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI ÓSKARS- TILNEFNINGAR 8 SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI HLAUT GAGNRÝNENDA VERÐLAUNIN SEM BESTA MYNDIN ÓSKARSTILNEFNING m.a. besta myndin4 GOLDEN GLOBE VERÐLAUN BESTA ERLENDA MYNDIN ATH! BÓKIN HEFUR VERIÐ ENDURÚTGEFIN Í TENGSLUM VIÐ FRUMSÝNINGU MYNDARINNAR BYGGÐ Á METSÖLU SKÁLDSÖGU PATRICK SÜSKIND eee VJV, TOPP5.IS eeeee S.V. - MBL MYNDIN BRÉF FRÁ IWO JIMA ER STÓRVIRKI CLINT EASTWOOD LEIKSTÝRIR MEISTARAVERKINU LETTERS FROM IWO JIMA SEM VAR M.A. TEKINN UPP Á ÍSLANDI. HVERSU LANGT ERTU TILBÚINN AÐ GANGA TIL AÐ HYLJA GLÆP eee L.I.B. - TOPP5.IS eeee L.I.B. - TOPP5.IS eeee S.V. MBL. SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is ÓSKARS- TILNEFNING1 ÓSKARS- TILNEFNINGAR7 eeeee- B.S. FRÉTTABLAÐIÐGOLDEN GLOBE BESTA MYND ÁRSINS ÖSKUDAGSBÍÓ ÖSKUDAGSBÍÓ ÖSKUDAGSBÍÓ Leit var gerð í gær á hótelher-bergi sem leikarinn Sylvester Stallone dvaldi í, í Sydney í Ástralíu, einkaþotu hans og í glæsivagni. Ástæðan fyrir leitinni er sú að ólög- legir hlutir fundust í farangri hans síðastliðinn föstudag. Ástralskir fjöl- miðlar greindu frá þessu en ekki er vitað hvaða hlutir þetta eru. Dagblaðið Daily Telegraph hefur það eftir Stallone að þetta sé ekki al- varlegt, þó svo tollverðir líti svo á. Stallone fór til Ástralíu til að kynna nýjustu myndina um hnefaleika- kappann Rocky Balboa, sem heitir einmitt Rocky Balboa. Stallone hélt aftur heim í gær- kvöld og hefjast nú brátt tökur á kvikmynd um annan kappa sem harður er í horn að taka, Rambo. Rambo-myndin heitir Pearl of the Cobra, eða Perla kóbraslöngunnar. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Samband líður fyrir það að endalausar skyldur einkenna það. Leystu ein- hvern undan áþjáninni, og sá hinn sami mun gera það sama fyrir þig. Saman munið þið létta á stemning- unni. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það er engin tilviljun að þú hittir gaml- an vin úti í búð eða að manneskjan sem þú hefur verið að hugsa um hringir í þig. Svona atburðir eru gjöf og merki um að þú sért á réttri leið. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Ef einhver spyr þig hvað þig dreymdi, taktu hann þá alvarlega. Fólk sem hef- ur áhuga á þér getur líka hjálpað þér. Í kvöld sigrast þú á óreiðunni, eina skúffu í einu. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú ert alltaf að tala um að þú hafir engan tíma til gera neitt skemmtlegt, en það er ekki satt. Hafðu í huga að þetta gæti verið gömul sannfæring sem stjórnar sannleikanum. Í kvöld fær krakki þig til að leika þér smá. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það eru litlu hlutirnar sem fá þig til að brosa - fyndin orðaruna af munni lítils barns eða nýtt tæki sem sparar þér tíma í eldhúsinu. Húrra fyrir litlum hlutum! Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Skiptimyntin sem þú hendir ofan á kommóðuna, er lýsandi fyrir það hvernig þú nálgast fjármál. Taktu þér tak í peningamálunum. Og hvaða að- ferð sem þú velur, byrjaðu a því að borga sjálfum þér - ekki spurning. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Bjartsýni er smitandi, svo þú verður ekki að predika yfir neinum að lýta á björtu hliðarnar. Fyrir liðsheildina væri ekkert betra en að þú létir flakka nokkra góða brandara. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Enginn er þú. Þú gætir óskað þess að það væri ekki svo. Af því að ef það væru fleiri „þú“, gæturðu framkvæmt öll atriðin á listanum þínum sem aðeins "þú" getur gert. En þar sem enginn er þú, neyðist þú til að leika af fingrum fram með „þeim“. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) You’re open-minded and threatened by no one. Listen to the oddball. You won’t be sorry. Tonight, you draw people in like a magnet, but paradox- ically, alone time is what you need most. Steingeit (22. des. - 19. janúar) You make it better. Not because it’s your job, but because it’s your nature. Tonight, a Virgo person you trust can help you minimize stress and maximize your earnings. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) You’re given a second chance. Take advantage because you won’t get anot- her as easy as this one. Tonight, a slight adjustment could make a huge difference in your finances. Fiskar (19. feb. - 20. mars) What’s interesting to you is perhaps not so interesting to those around you. So don’t be surprised if you’re the only one wide awake in a room full of people who are nodding off. stjörnuspá Holiday Mathis Hin yndislega Venus kveik- ir eld í hjörtum okkur þeg- ar hún færir sig inn á svæði hrútsins. Við föllum fyrir yfirgengilega aðlað- andi fólki, verkefnum og aðstæðum. Er sú ást viðeigandi? Er hún djúp, viðkvæm og sönn? Er hún holl? Vera má að svarið sé "nei" í öll- um tilfellum, en það aftrar okkur ekki í að dempa okkur beint út í. KIRIKOU litli og þorpið hans, ein- hvers staðar lengst inni í svörtustu Afríku, einhvers staðar hafði ég séð það áður, það kom líka á daginn að Kirikou og villidýrin er framhalds- mynd, sú fyrri, Kirikou og galdra- kerlingin, var jólamynd í Sambíó- unum fyrir fáeinum árum. Framhaldinu er að vísu ekki sami sómi sýndur, en það er engu að síð- ur lítill sem enginn eftirbátur for- verans. Titilpersónan er nánast brjóst- mylkingur en hefur vit og framtaks- semi á við afganginn af þorpsbúun- um. Hann hefur fæðst með þessum ósköpum og Kirikou er sannarlega þörf því líkt og í fyrri myndinni á ættbálkurinn hans í stríði við norn- ina Karaba, sem vill sölsa héraðið undir ríki sitt. Það skiptir engu hvað kerlu kem- ur í hug til að ná sér niðri á Ki- rikou, hann finnur jafnan krók á móti bragði. Karaba eyðileggur uppskeruna og hungursneyð blasir við, Kirikou gerist leirkerasmiður og kennir sínu fólki listina, heldur til stóra þorpsins með smíðagripina og kemur til baka klyfjaður af mat. Karaba sendir á hann illvígan tin- dátaher en brókarlallinn bregður sér á bak gíraffa og fer með sigur af hólmi. Þorpskonurnar hyggjast gera sér glaðan dag og leggja í gör- óttan drykk, en mjöðinn eitrar sú hin svarta Karaba og kvenfólkið liggur fyrir dauðanum. Allt kemur fyrir ekki, brókarlallinn Kirikou á ekki í vandræðum með að finna mó- teitrið. Kirikou-myndirnar fylla aðeins upp í stórt gat, sem er til komið vegna skorts á bíómyndum fyrir yngstu áhorfendurna. Sjálfsagt er markhópur þeirra í kringum fimm ára aldurinn. Teikningarnar eru því einfaldar og sagan útúrdúralaus en þess gætt að hafa hana spennandi fyrir smáfólkið. Myndirnar læða í leiðinni hollum og góðum boðskap að áhorfand- anum og umhverfið er óvenjulegt og framandi fyrir lítil augu. Vél- menni, villidýr, skrýtinn gróður, klæðnaður og vopn, barátta góðs og ills í algleymingi og auðvelt fyrir börnin að samsamast hetjunni og bleyjubossanum Kirikou. Kirikou í nýjum ævintýrum Hollt Hollan og góðan boðskap er að finna í myndinni, að mati gagn- rýnanda. KVIKMYNDIR Laugarásbíó Teiknimynd með íslenskri talsetningu. Leikstjóri: Michel Ocelot, Benedicte Ga- lup. 74 mín. Frakkland 2005. Kirikou og villidýrin/Kirikou et les bêtes sauvages  Sæbjörn Valdimarsson Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is HALLA Vilhjálmsdóttir, leikkona og kynnir X-Factor-þáttanna, hefur vakið töluverða athygli erlendra fjölmiðla í kjölfar þess að til hennar sást með breska leikaranum Jude Law í miðbæ Reykjavíkur um síð- ustu helgi. Í frétt á heimasíðu breska dag- blaðsins The Sun segir að Halla hafi boðið leikaranum út að borða á veitingastaðinn Domo og þau hafi síðan farið út á lífið, en eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær sást til þeirra á skemmtistaðnum Sirkus. Í greininni er vitnað í mann sem staddur var á staðnum: „Jude varð fljótt umkringdur stúlkum á dansgólfinu. Hann hafði hins vegar eingöngu áhuga á Höllu, sem fékk þó heilmikla athygli sjálf enda stórt nafn á Íslandi.“ Stöðugt símasamband Þá segir á fréttavef Daily India að þau hafi látið mjög vel hvort að öðru á Sirkus. „Þau létu sig svo hverfa stuttu síðar, og það gerðu þau ekki til þess að fá sér frískt loft,“ er haft eftir heimildarmanni vefjarins. Á fréttavef The Sun segir að Halla og Law hafi verið í stöðugu símasambandi síðan hann fór af landi brott á laugardaginn. Þegar haft var samband við Höllu í gær sagðist hún ekki ræða einkalíf sitt opinberlega. Jude Law hætti með bresku leik- konunni Siennu Miller í fyrra, en þau höfðu átt í stormasömu sam- bandi í þrjú ár. Hann hefur að und- anförnu verið orðaður við breska stúlku að nafni Kate Hopewell. Law kom hingað til lands ásamt þremur börnum sínum og fór meðal annars með þeim á skauta, á hest- bak og í sund. Töluvert var um það í gær að er- lendir fjölmiðlar hefðu samband við Morgunblaðið og óskuðu eftir ljós- myndum af Höllu. Athygli Fjallað var um samband Höllu Vilhjálmsdóttur og Jude Law á heimasíðu dagblaðsins The Sun í gær. Halla í heimspressunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.