Morgunblaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 31 HINN 17. febrúar sl. svaraði Árni Finnsson, formaður Náttúruvernd- arsamtaka Íslands, grein minni frá 15. febrúar þar sem ég leyfði mér að líta á umhverfismál frá óhefðbundnu sjón- arhorni. Líta á hitnun jarðar sem vanda alls mannkyns en ekki sem þröngt vandamál okkar Íslendinga. Ýmislegt misskildi Árni í grein minni. Las í hana hugsun sem þar er ekki að finna og mis- skildi annað sem þar er þó greinilega sagt. Hvort um óvandvirkni er að ræða eða ásetning skal ég ekki segja en málefnalegt er það ekki. Skulu hér nefnd nokkur dæmi. Árni segir. „Nú hefur Pétur þó áttað sig á því að vísindamenn telja ótvírætt að loftslag jarðar breytist ört vegna gróðurhúsaáhrifa af manna völdum.“ Þetta sagði ég að sjálf- sögðu ekki enda er þessi kenning alls ekki ótvíræð heldur segir skýrslan að miklar líkur (90%) séu á að kenningin gildi. Eina sem ég sagði um þetta í grein minni var: „Dökk nýleg skýrsla um að hitn- un jarðar sé enn líklegri en áður var talið…“ Áfram heldur formaður Nátt- úruverndarsamtaka Íslands: „Virðist jafnvel halda að ekkert þurfi að gera vegna útstreymis gróðurhúsaloftteg- unda frá þessum uppsprettum.“ Hvar í ósköpunum sagði ég þetta í greininni? Ég tel einmitt að við þurf- um að gera allt sem við getum til að minnka losun gróðurhúsaloftegunda hjá okkur og koma í veg fyrir aðra mengun. Hverju þjónar svona mál- flutningur, Árni? Svo talar hann um að mér hefi yf- irsést annar útblástur í tengslum við álframleiðslu og nefnir perflúorkol- efni (PFC). Það eru mörg mengandi efni sem fylgja álframleiðslu hvar í heiminum sem hún er stunduð. Greininni minni var ætlað að benda á að rafmagnið, sem álframleiðsla krefst, veldur lítilli losun gróð- urhúsalofttegunda hér á landi en gífurlega mikilli losun þar sem það er framleitt með ol- íu, gasi eða kolum ann- ars staðar í heiminum. Enn fremur: „Sam- kvæmt röksemda- færslu Péturs munu virkjanir hér á landi best duga til að fram- leiða ál á Íslandi.“ Þetta er ekki satt, Árni! Ég skrifaði einmitt: „Hér hefur útflutningur orku verið metinn með tilliti til framleiðslu á áli. Það er samt alls ekki eini möguleiki okkar til út- flutnings á orku og má jafnvel segja að nægi- lega mörg egg séu komin í þá körfu.“ Enn segir Árni: „Það fer alveg fram hjá Pétri að endurnýting áls er besta nýtingin og fyrir því hafa erlend umhverfisvernd- arsamtök barist.“ Hvernig skyldi Árni hafa lesið eftirfarandi í grein minni: „Hins vegar getur fólk með réttu spurt hvort yfirleitt eigi að framleiða ál sem veldur svona mikilli CO2- losun. Því hefur verið svarað þannig að ál sé mjög auðvelt og ódýrt að endurvinna öndvert við önnur efni.“? Árni segist eftirláta mér að sann- færa Indverja og Kínverja um að þeir hafi minni rétt til að menga and- rúmsloftið en Íslendingar. Ég ætla ekki að sannfæra einn eða neinn. Bendi bara á að þegar mokað er heilu fjöllunum af kolum á ofnana til að framleiða rafmagn til álframleiðslu í t.d. Kína (með dapurlegri slysatíðni) veldur framleiðsla rafmagnsins ein og sér losun upp á nærri 15 tonn af CO2 á hvert tonn áls en engri hér. Skyldi Árni trúa á þessa kenningu um hitnun jarðar eða er Kína á öðr- um hnetti? Þetta var um missagnir og mi- stúlkanir Árna Finnssonar formanns Náttúrverndarsamtaka Íslands í svari sínu við grein minni. Ónot eins og „Fylgist Pétur ekki með?“ eða „STEFNA eða stefnuleysi Sjálf- stæðisflokksins í umhverfismálum sést best á því að Pétur Blöndal þingmaður hefur verið einn helsti talsmaður flokksins í umhverf- ismálum“ ætla ég ekki að ræða. Árni lýkur grein sinni með því að segja: „Hæpið er að viðkomandi um- hverfisverndarsamtök geri kröfur um meiri eyðileggingu á nátt- úrugæðum til að fá nokkra dropa til viðbótar í orkuhít heimsins?“ Und- arlegt. Þegar það hentar í um- ræðunni er Ísland mælt í dropatali en þegar talað er um mengun okkar og losun þá skiptir Ísland (með réttu) heilmiklu máli. Gæti formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands haft sömu skoðun báðum megin? Þá kem ég að kjarna þessa máls. Við höfum kynnst óbilgirni al- þjóðlegra umhverfissamtaka bæði hér á landi gagnvart hvalveiðum og á Grænlandi gagnvart selveiðum og jafnvel eru ræddar aðgerðir gegn fiskveiðum. Ef þessi kenning um uggvænlega hlýnun jarðar vegna losunar gróðurhúsalofttegunda er rétt, eru milljónir manna í hættu í Bangladesh og Rússlandi vegna hækkun sjávar og vegna þess að eyðimerkur Afríku, Asíu og víðar þenjast út. Óveður munu magnast og jafnvel hætta á að Golfstraumurinn leggist af. Þá verður leitað í örvænt- ingu að tækni til að minnka losun og að orku sem veldur minni losun. Heldur einhver í alvöru að þessi voldugu alþjóðasamtök, sem margt gott hafa látið af sér leiða, muni ekki krefjast þess að mengunarlaus orka verði beisluð hvar sem hún finnst? Að við virkjum hvern foss? Munu þeir hlusta á tilfinningar okkar gagn- vart Gullfossi eða Dettifossi frekar en á mjóróma raddir Grænlendinga sem vildu fá að veiða lífsbjörgina, selinn? Fallegur hvað, munu þeir spyrja. Er ekki nóg að skrúfað verði frá Gullfossi um helgar? Milli 9 og 5? Nei. Árni þarf að standa með okk- ur í þeirri baráttu. Eru umhverfismál bara fyrir suma? Pétur H. Blöndal fjallar um um- hverfismál og svarar grein Árna Finnssonar »Heldur ein-hver í alvöru að þessi voldugu alþjóðasamtök … muni ekki krefjast þess að mengunarlaus orka verði beisl- uð hvar sem hún finnst? Pétur H. Blöndal Höfundur er þingmaður. Í MORGUNBLAÐINU 10. febr- úar sl. er vitnað í ávarp formanns bankaráðs Landsbankans á aðal- fundi bankans, þar sem hann sagði það mikið „heillaspor fyrir íslenzkt atvinnulíf og samfélagið allt að losa um tök stjórnmálamanna á fjár- málafyrirtækjum landsins og fela þau í hendur einstaklingum.“ Þarna er réttilega að orði komizt: Valdamennirnir fólu fyrirtækin í hendur einkavinunum, því sala gat það varla talizt. Og einkavinurinn í bankanum fór í ræðu sinni orðum um andstöðu við einkavæðingu bankanna og hugs- anlega sölu þeirra til erlendra aðila. Sannleikurinn er sá, að það var engin teljandi andstaða við einka- væðingu bankanna. Og engum datt í hug að selja þá erlendis nema bankamálaráðherra Framsókn- arflokksins frá Lómatjörn. Andstaðan við hina svokölluðu „sölu“ bankanna var nær eingöngu sprottin af því hvernig sú „sala“ fór fram. Það á raunar við um alla einkavæðingu íslenzku ríkisstjórn- arinnar. Það var frá upphafi ljóst, og hefir komið æ því betur á daginn, að eign- ir ríkisins (les: almennings) voru seldar langt undir sannvirði. Upp- hafið að allri þeirri þrælmennsku má auðvitað rekja til stórþjófnaðar sjávarauðlindarinnar. Þar komust ráðamenn á bragðið, til handa sjálf- um sér og valdablokkum sínum. Sá dagur mun upp renna, að opinber rannsókn verður gerð á allri starf- semi Einkavæðingarnefndar. Þá munu staðreyndirnar birtast mönn- um í hrikaleik sínum. Auðvitað reynir formaðurinn að leiða al- menning á villigötur, þegar hann talar um óstöðugleika og verð- þenslu sem óvini bankanna. Í þeim hildarleik, sem Íslendingar hafa lif- að í efnahagsmálum síðustu miss- erin, hafa bankarnir makað krókinn ótæpilega og vextir og verðtrygg- ingar með þeim ókjörum, að sliga mun skuldara, sér í lagi ungt fólk, sem er að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Og undir verðþensluna hafa bankar kynt af miklum móð. Mætti kannski allra mildilegast biðja um álit bankaráðsformanns- ins á sölu Landsbankaráðsmann- anna Helga S. Guðmundssonar og Kjartans Gunnarssonar á hluta- bréfum bankans í Vátrygginga- félagi Íslands? Honum er fullkunn- ugt um þau viðskipti, enda missti hann áreiðanlega stóran spón úr aski sínum við þá „sölu“. Helgi og Kjartan seldu S-hópnum, þar sem Finnur Ingólfsson og Helgi sjálfur voru höfuðpaurar, og Halldóri Ás- grímssyni bréfin fyrir kr. 6,8 millj- arða. Seldu þau síðan tæpum þrem- ur árum síðar fyrir kr. 32 milljarða – þrjátíuogtvöþúsundmillj- ónirkróna. Mismunur 25 milljarðar rúmir. Ölgerðarmenn fíkjast kannski ekki í slíkar fjárhæðir, en við hin verðum að gjalti. Og aðferðirnar lærdómsríkar. Kannski eft- irbreytniverðar einnig? Eða hræða heillasporin? Sverrir Hermannsson Heillasporin Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. ÞAÐ er misskilningur að hægt sé að setja lög sem hamla komu útlendinga til landsins án þess að það bitni á íslenskum ríkisborgurum. Ég vona að mín saga sýni að ströng inn- flytjendalöggjöf bitni á Íslendingum, ekki síður en á þeim sem hingað vilja flytja. Ég bý nú í Banda- ríkjunum ásamt Sonju, konu minni, sem er Ameríkani. Sumarið 2004 fluttum við til Íslands og ætl- uðum að búa hér á landi. Við vissum ekki um vorið að lög höfðu verið sett sem bönnuðu að veitt væru dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar fyrir hjón yngri en 25 ára að aldri (svo- kölluð 24 ára regla). Ég var 23ja og hún 22ja þetta sumar. Við fengum engar upp- lýsingar um þessar reglur frá Útlend- ingastofnun. Ég hafði misst af setningu þessara laga því á þessum tíma stóð umræðan um fjölmiðlafrumvarpið sem hæst og voru það einu fréttirnar sem mér bárust að heiman. Konan mín frétti af þessu á undan mér frá Alþjóðahúsinu. Ég hringdi í Útlendingastofnun þar sem fullyrt var við mig að þetta yrði ekki vandamál. Í trausti þeirra orða þá giftum við okkur seinna um sumarið og sóttum upp úr því um dvalarleyfi fyrir konu mína. Svar átti að berast innan sex til átta vikna. Þegar átta vik- ur voru liðnar og ekkert hafði borist frá Útlendingastofnun hringdi ég þangað til að forvitnast um stöðu umsóknarinnar og var sagt að allt væri í réttum farvegi og við myndum fá svar fljótlega. Þremur mánuðum eftir að við höfðum lagt inn um- sóknina fékk hún bréf þar sem henni var tjáð að umsókn henn- ar væri hafnað á for- sendum 24ra ára regl- unnar og hún hefði þrjár vikur til að koma sér úr landi. Þetta var áfall. Með því að fara bakleiðir í kerfinu, hringja í fólk sem þekkti fólk, tókst okkur að redda þessu fyrir horn. Hún fékk tímabundið dval- arleyfi. En þar sem við treystum ekki lengur Útlend- ingastofnun ákváðum við að flytja til Bandaríkjanna, og gerðum það strax næsta sumar, nokkr- um mánuðum áður en tímabundna dval- arleyfið rann út. Það var einfalt og greið- legt að sækja um og fá dvalarleyfi fyrir mig í Bandaríkjunum. Sex vikum eftir að hafa sótt um, var ég kom- inn með „grænt kort“ og gat því búið og starfað þar eins og ég vildi. Ég vona að þessi saga svari spurningunni um á hverjum ströng innflytjendalöggjöf bitnar. Það eru íslenskir ríkisborgarar. Síðan er annað mál hverjir græða. Hvern skaðar ströng innflytjendalöggjöf? Kári Tulinius skrifar um afleið- ingar svokallaðrar 24 ára reglu fyrir sig og bandaríska eig- inkonu sína Kári Tulinius »Ég vona aðsaga mín- sýni að ströng innflytjendalög- gjöf bitni á Ís- lendingum, ekki síður en á þeim sem hingað vilja flytja. Höfundur er starfsmaður fé- lagsþjónustu Providence, Rhode Island. EFTIRSPURN eftir orku fer hratt vaxandi og ef fram heldur sem horfir mun orkuþörf mannkyns aukast um 50% næsta aldarfjórðunginn. Jafnframt stefnir í að brennsla á jarð- efnaeldsneyti – kolum, olíu og gasi – verði æ stærri hluti af þessari vaxandi orkuköku, með þeirri auknu los- un gróðurhúsaloftteg- unda sem slíkri brennslu fylgir. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Þor- kels Helgasonar orku- málastjóra á dög- unum, á hádegisverðarfundi Samorku, samtaka orku- og veitu- fyrirtækja. Hrein orka á Íslandi Sama dag var haldinn aðalfundur Samorku þar sem samþykkt var ályktun um loftslagsmálin, Ísland og endurnýjanlega orkugjafa. Þar er baráttunni gegn vaxandi losun gróðurhúsalofttegunda lýst sem einni mikilvægustu áskorun ver- aldar nú um stundir. Jafnframt er í ályktun fundarins lýst sérstökum fögnuði yfir því að íslenskir fjár- festar séu nú að hefja aukna útrás í krafti íslenskrar þekkingar á nýt- ingu endurnýjanlegra orkulinda. Þar eiga Íslendingar langa sögu og hafa til dæmis lengi verið í far- arbroddi þekkingar á nýtingu jarð- hita, auk þess sem hér er nú unnið mikið starf við rannsóknir og þróun á nýjum vistvænum orkugjöfum. Loftslagsvandinn sem við er að etja er fyrst og fremst til kominn vegna brennslu á jarð- efnaeldsneyti. Um all- an heim er því lögð áhersla á mikilvægi þess að auka hlut end- urnýjanlegra orku- gjafa og stuðla að orkusparnaði. Evrópu- sambandið hefur til dæmis sett sér það metnaðarfulla mark- mið að árið 2020 verði 20% heildarorkunotk- unar innan þess fengin frá endurnýjanlegum orkugjöfum, en þar er þetta hlutfall nú um 7%. Á Íslandi er þetta hlutfall hins vegar um 72%, og nær 100% ef horft er til raforkuframleiðslu og húshitunar. Ísland er þess vegna í einstakri stöðu í þessu samhengi og út- streymi gróðurhúsalofttegunda vegna nýtingar okkar endurnýj- anlegu orkulinda er hverfandi sam- anborið við brennslu jarðefnaelds- neytis. Þetta hefur alþjóðasamfélagið viðurkennt og með sérstakri samþykkt við svo- nefnda Kyoto-bókun við loftslags- samning Sameinuðu þjóðanna var Íslandi heimilað að auka útstreymi vegna einstakra iðjuvera, enda yrðu loftslagsáhrif af starfsemi þessara iðjuvera annars staðar mun meiri en hér á landi. Loftslagsmálin eru jú í eðli sínu hnattrænt viðfangs- efni. Nýlega var nefnt dæmi um sjöfalda losun gróðurhúsaloftteg- unda vegna álvers sem byggist á orku frá kolum, miðað við álver sem nú er verið að reisa hér á landi. Okkar framlag Einstakar virkjunarfram- kvæmdir verða ávallt tilefni skoð- anaskipta út frá sjónarmiðum nátt- úruverndar. Hlýnun lofthjúps jarðar kallar hins vegar á aukinn hlut endurnýjanlegra orkugjafa, sem er allt önnur umræða. Því er ljóst að auk nýtingar á endurnýj- anlegum orkulindum hérlendis, og með frumkvöðlastarfsemi við þróun nýrra vistvænna orkugjafa, munu Íslendingar með útrás þekkingar hins íslenska orkugeira leggja sitt af mörkum í einu mikilvægasta verkefni samtímans – baráttunni gegn hlýnun lofthjúps jarðar. Hrein orka og hlýnun loftslags Gústaf Adolf Skúlason fjallar um orkumál »Um allan heim erlögð áhersla á mik- ilvægi þess að auka hlut endurnýjanlegra orku- gjafa en þar er Ísland í einstakri stöðu Gústaf Adolf Skúlason Höfundur er aðstoðarfram- kvæmdastjóri Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.