Morgunblaðið - 21.02.2007, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 13
FRÉTTIR
Í DRÖGUM að ályktun landsfundar Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs er lagt til
að bundið verði í stjórnarskrá jafnt hlutfall
kvenna og karla á Alþingi og í sveitarstjórnum,
lögbundið verði jafnt hlutfall kvenna og karla í
stjórnum fyrirtækja og komið verði á kynjaðri
fjárlagagerð.
Landsfundur VG verður haldinn um næstu
helgi. Drög að ályktunum hafa verið kynnt á
heimasíðu flokksins, en þær verða síðan af-
greiddar á fundinum að lokinni umræðu.
Lögð er til breyting á lögum flokksins á
þann veg að við val í trúnaðarstöður flokksins
verði gætt jafnaðar milli kynja, þar með talið
við val á framboðslista vegna kosninga til Al-
þingis og í sveitarstjórnir.
Vilja afnema launaleynd
Þessi áhersla er síðan áréttuð í róttækri
ályktun um aðgerðir til kvenfrelsis. Þar segir
að allar einingar samfélagsins einkennist af
kynjakerfinu. „Kynbundinn launamunur, tak-
markað aðgengi kvenna að völdum og fjár-
magni, kynbundið ofbeldi, staðalmyndir
kynjanna, hlutgerving kvenna í auglýsingum,
klámvæðing og vændi eru afleiðingar af kynja-
kerfinu, félagslegu yfirráðakerfi þar sem karl-
ar njóta góðs af kerfisbundinni undirskipan
kvenna.“
Til að bregðast við þessu er lagt til að sam-
þætt verði kynjasjónarmið við alla ákvarðana-
töku í samfélaginu. Þetta verði m.a. gert með
því að binda í stjórnarskrá jafnt hlutfall
kvenna og karla á Alþingi og í sveitarstjórnum
og skylda stjórnmálaflokka til að leiðrétta hlut
kvenna á framboðslistum. Lögbinda skuli jafnt
hlutfall kvenna og karla í stjórnum fyrirtækja.
Koma þurfi á kynjaðri fjárlagagerð og skylda
stofnanir til að kyngreina upplýsingar um fjár-
framlög.
Þá eru lagðar til aðgerðir til að styrkja stöðu
kvenna á vinnumarkaði, sem felist í því að af-
nema launaleynd og hækka laun hefðbundinna
kvennastétta.
Fyrir landsfundinum liggur einnig ítarleg
stefna um innflytjendamál. Í henni er lögð
áhersla á að allir sem búa á Íslandi eigi að vera
með sömu réttindi og skyldur og innflytjendur
verði að taka þátt í uppbyggingu íslensks sam-
félags að öllu leyti. Staðfesta þurfi viðurlög við
brotum sem byggjast á rasisma og fordómum.
Tryggja þurfi réttindi innflytjenda frá löndum
utan EES-svæðisins, sem hafi mun síðri rétt-
indi í íslensku samfélagi en einstaklingar innan
EES.
Í drögum að ályktun um utanríkismál er
lögð áhersla á að efla þurfi þátttöku Íslendinga
í starfi Sameinuðu þjóðanna, svo og Evrópu-
ráðsins, Öryggis- og samvinnustofnunar Evr-
ópu, Norðurlandaráði og öðrum lýðræðislega
uppbyggðum svæðis- og alþjóðastofnunum.
Ekki er hins vegar minnst í utanríkismála-
ályktuninni á EES-samninginn eða Evrópu-
samstarf almennt.
Í drögum að ályktunum flokksins er lögð
áhersla á að bæta stöðu þeirra sem þurfa að
reiða sig á almannatryggingar. Gerð er tillaga
um að lengja fæðingarorlof og að leikskólinn
verði gjaldfrjáls.
Í drögum að ályktun um landbúnaðarmál er
lýst áhyggjum af þeirri þróun að fyrirtæki og
kaupsýslumenn séu að kaupa upp bújarðir.
Lagt er til að sett verði ákvæði í jarðalög sem
takmarki fjölda jarða í eigu sömu eða tengdra
aðila. Sömuleiðis að sett verði ákvæði í búvöru-
lög sem takmarki hámarkshlut sama eða
tengdra aðila af heildargreiðslumarki í mjólk
og dilkakjöti. Einnig að komið verði í veg fyrir
verslun kaupsýslumanna með greiðslumark,
t.d. með því að tengja framleiðsluréttinn við
fasta búsetu en ekki aðeins eignarhald á lög-
býlum.
Róttæk stefna í kvenfrelsismálum
Tillaga lögð fram á landsfundi VG um að lögbinda jafnt kynjahlutfall í stjórnum fyrirtækja
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Landsfundur Kolbrún Halldórsdóttir og Álf-
heiður Ingadóttir sátu síðasta landsfund VG.
Í HNOTSKURN
»Á síðasta ári voru fram-leiddar um 117 milljónir
lítra af mjólk en það er þriðja
mesta mjólkurframleiðsla frá
upphafi. Mest var framleiðslan
árið 1978 þegar hún var 120,2
milljónir lítra.
»Framleiðsla á mjólk er 7%meiri síðustu 12 mánuði en
sömu mánuði á undan. Sala á
mjólkurafurðum hefur einnig
aukist.
MJÓLKURSAMSALAN hefur
ákveðið að greiða bændum fullt verð
fyrir alla mjólk á þessu verðlagsári
sem lýkur 31. ágúst nk. Mikil fram-
leiðsla hefur verið á mjólk undanfar-
in misseri og samhliða því hefur ver-
ið góð sala á mjólkurvörum.
Kvótakerfi er í mjólkurfram-
leiðslu, sem í meginatriðum þýðir að
þegar bændur hafa fyllt kvótann
skerðast greiðslur til þeirra fyrir
mjólk sem framleidd er umfram
kvóta. Oftast nær hefur eitthvað ver-
ið greitt fyrir umframmjólk. Nú hef-
ur stjórn MS ákveðið að greiða fullt
verð fyrir umframmjólk á þessu
verðlagsári. Ríkið greiðir hins vegar
ekki beingreiðslur fyrir umfram-
mjólk. Í fréttatilkynningu segir að
ástæður þessarar ákvörðunar séu,
að miðað við þær áætlanir sem fyrir
liggja, muni mjólkuriðnaðurinn með
þessu ná því jafnvægi í birgðastöðu
mjólkur sem stefnt hefur verið að.
Jafnframt sé jákvæð þróun í sölu
mjólkurvara um þessar mundir auk
þess sem tilraunaverkefni í útflutn-
ingi lofi góðu; því sé nauðsynlegt að
hafa svigrúm til að fylgja því verk-
efni eftir.
MS ætlar að greiða fullt
verð fyrir alla mjólk
FYRSTA úthlutun úr nýstofn-
uðum Afrekskvennasjóði Glitnis
og ÍSÍ fór fram fyrir aðalfund
Glitnis á Nordica hóteli í gær. Út-
hlutað var styrkjum að upphæð
samtals 2,5 milljónum króna sem
runnu til þriggja aðila. Kvenna-
landslið Íslands í knattspyrnu
hlaut eina milljón króna. Skylm-
ingasamband Íslands hlaut sömu
upphæð vegna verkefna tveggja
afrekskvenna, Guðrúnar Jóhanns-
dóttur og Þorbjargar Ágústs-
dóttur. Þá hlaut sundkonan Ragn-
heiður Ragnarsdóttir 500 þúsund
króna styrk.
Svafa Grönfeldt, rektor Háskól-
ans í Reykjavík og formaður sjóð-
stjórnar, kynnti styrkhafana en
Bjarni Ármannsson, forstjóri
Glitnis, afhenti styrkina ásamt
Völu Flosadóttur stangarstökkv-
ara sem á sæti í stjórn sjóðsins.
Afrekskvennasjóður Glitnis og
ÍSÍ var stofnaður í upphafi þessa
árs með 20 milljóna stofnframlagi
Menningarsjóðs Glitnis. Tilgangur
sjóðsins er að styðja við bakið á
afrekskonum í íþróttum og gera
þeim betur kleift að stunda íþrótt
sína og ná árangri. Úthlutað verð-
ur úr sjóðnum tvisvar á ári. Sjóð-
stjórn skipa Svafa Grönfeldt,
rektor Háskólans í Reykjavík,
Vanda Sigurgeirsdóttir þjálfari
og lektor við KHÍ, og Vala Flosa-
dóttir stangarstökkvari.
Kvennalandsliðið í knattspyrnu
hefur um árabil verið framarlega
í Evrópu og nálægt því að komast
í úrslitakeppni. Nú er stefnan sett
á úrslitakeppni EM í Finnlandi
2009 en keppt er um 11 laus sæti.
Skylmingakonurnar Guðrún Jó-
hannsdóttir og Þorbjörg Ágústs-
dóttir úr Skylmingafélagi Reykja-
víkur stefna á keppnisrétt á
Ólympíuleikunum í Peking 2008.
Ragnheiður Ragnarsdóttir,
sundkona úr KR, var útnefnd
sundkona ársins 2006 en hún setti
fjögur Íslandsmet á árinu og var
eina íslenska konan sem náði lág-
markstíma fyrir EM í 50 m sundi
í Búdapest. Þar tryggði hún sér
keppnisrétt á HM í Ástralíu í
mars.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Glitnir styrkir afrekskonur
FORSETI Alþingis, Sólveig Péturs-
dóttir, afhenti fyrir hönd Alþingis
Jónshúsi í Kaupmannahöfn sl. laug-
ardag veglega bókagjöf til nota við
íslenskukennslu sem fram fer í hús-
inu, en sú kennsla stendur öllum
grunnskólabörnum í Kaupmanna-
höfn til boða sem hafa íslensku að
móðurmáli. Auk bókanna voru
einnig afhentir ýmsir aðrir hlutir
sem koma að góðu gagni við ís-
lenskukennslu. Kennslan fer fram á
laugardögum og er tvískipt, þau
yngri koma fyrir hádegi en þau
eldri eftir hádegi.
Gjafaafhendingin var í tengslum
við heimsókn forsætisnefndar Al-
þingis til Kaupmannahafnar en
megintilgangur ferðarinnar var að
kynna sér þá starfsemi sem fram
fer í Húsi Jóns Sigurðssonar, sem
er í eigu Alþingis og stendur við Øs-
tervoldgade 12. Skoðaðar voru þær
miklu endurbætur sem gerðar hafa
verið á húsinu á síðastliðnum árum,
en auk þess hefur sú fasta sýning
sem er í húsinu um Jón Sigurðsson
og Ingibjörgu Einarsdóttur konu
hans verið endurgerð nýlega.
Jafnframt skoðaði forsætisnefnd
þær endurbætur sem gerðar hafa
verið á íbúð í eigu Alþingis sem er
til afnota fyrir íslenska fræðimenn
og kennd við Jón Sigurðsson og
stendur við Skt. Paulsgade 70, ör-
skammt frá Jónshúsi. Í ferðinni
kynnti forsætisnefnd sér einnig þá
aðstöðu, sem er fyrir skólaþing í
danska þinghúsinu, en slíkt þing
verður opnað í húsakynnum Al-
þingis á næstu mánuðum.
Fjölbreytt félagsstarfsemi
Á samkomu sem haldin var í
Jónshúsi sl. laugardag var forsæt-
isnefnd kynnt sú viðamikla starf-
semi sem Íslendingar búsettir í
Kaupmannahöfn standa fyrir í hús-
inu. Við það tækifæri komu fram
tveir þeirra kóra sem æfa í húsinu
en það voru kvennakórinn og
blandaður kór sem nefnist Staka.
Þá var sagt frá starfi bókmennta-
klúbbsins Thors, starfsemi bóka-
safns, konukvöldum, starfsemi ís-
lenskuskólans og greint frá
undirbúningi ýmissa viðburða sem
helgaðir verða Jónasi Hallgríms-
syni næsta haust en 16. nóv. verða
liðin 200 ár frá fæðingu Jónasar.
Gjöf til íslensku-
skólans í Jónshúsi
Gjöfin afhent Á myndinni eru Helga Kristín Friðjónssdóttir kennari við ís-
lenskuskólann, Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, og Jón Rögnvalds-
son, forstöðumaður Jónshúss.