Morgunblaðið - 21.02.2007, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 17
ERLENT
Passat 100% lán
VWPassat 1,6 Basicline
Beinsk. árg. 04 ek. 72.000
Verð áður 1.350.000 kr. Verð 1.190.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 16.678 kr. Í 84 mán.
VW Passat 2,0 Trendline
Sjálfsk. árg. 03 ek. 62.000
Verð áður 1.490.000 kr. Verð 1.320.000 kr.
Afborgun pr. mán. 21.164 kr. Í 72 mán.
VW Passat 1,6 Basicline
Beinsk. árg. 00 ek. 92.000
Verð áður 950.000 kr. Verð 840.000 kr.
Afborgun pr. mán. 19.365 kr. Í 48 mán.
VW Passat 2,0 Trendline
Sjálfsk. árg. 03 ek. 70.000
Verð áður 1.390.000 kr. Verð 1.220.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 19.565 kr. Í 72 mán.
Klettháls Klettháls KletthálsKlettháls
VW Passat 4x4 2,0 Trendline
Beinsk. árg. 04 ek. 20.000
Verð áður 2.190.000 kr. Verð 1.890.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 26.454 kr. Í 84 mán.
VW Passat 2,0 Trendline
Beinsk. árg. 03 ek. 61.000
Verð áður 1.390.000 kr. Verð 1.220.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 19.565 kr. Í 72 mán.
VW Passat 2,0 Trendline
Sjálfsk. árg. 04 ek. 25.000
Verð áður 1.990.000 kr. Verð 1.750.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 28.036 kr. Í 84 mán.
VW Passat 2,0 Comfortline
Sjálfsk. árg. 01 ek. 102.000
Verð áður 1.090.000 kr. Verð 890.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 16.819 kr. Í 60 mán.
KletthálsKlettháls Klettháls Klettháls
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
TENGSL valdamanna við einka-
heri og dauðasveitir hafa löngum
eitrað stjórnmálalífið í Kólumbíu og
hefur Alvaro Uribe forseti sjálfur
verið borinn þungum sökum í þeim
efnum. Nú hefur Uribe neyðst til að
fallast á afsögn vinsæls ráðherra
sem galt á þennan veg fyrir meintar
syndir bróður síns.
María Consuelo Araújo utanríkis-
ráðherra greindi frá því á mánudag
að hún hefði ákveðið að segja af sér
embætti þar eð hún teldi að þannig
fengi hún best varið hagsmuni þjóð-
ar sinnar. Bróðir hennar, Alvaro
Araújo öldungadeildarþingmaður,
var á fimmtudag í liðinni viku hand-
tekinn ásamt fimm þingmönnum
öðrum sakaður um að hafa fjár-
magnað starfsemi vígaflokka hægri
manna í landinu. Þingmennirnir
styðja allir stjórn Uribe forseta.
Aldrei áður hafa svo hátt settir
stjórnmálamenn verið handteknir
fyrir viðlíka sakir. Faðir þeirra Mar-
íu Consuelo og Alvaro Araújo sætir
einnig rannsókn sökum grunsemda
um að hann tengist dauðasveitum
hægri manna er nefnast Sameinaðar
sjálfsvarnarsveitir Kólumbíu (sp.
„Autodefensas Unidas de Col-
ombia“,AUC). Samtök þessi voru
stofnuð árið 1997 en leysa átti þau
upp 2003 í samræmi við samkomulag
leiðtoga þeirra og stjórnvalda. Ekki
reyndust þó allir félagar hreyfing-
arinnar tilbúnir til að leggja niður
vopn. Frændi Araújo-systkinanna,
Carlos Holguin, héraðsstjóri í Cesar,
liggur einnig undir grun um að
tengjast ólöglegum vígaflokkum.
María Consuelo Araújo kvaðst
sannfærð um að faðir hennar og
bróðir væru saklausir. Hún teldi
nauðsynlegt að segja af sér ráð-
herraembættinu til að geta sýnt
þeim stuðning „sem dóttir og systir“.
Áhrifamikil fjölskylda
María Consuelo Araújo Castro
fæddist árið 1971 í Valledupar í Ces-
ar-héraði. Araújo-fjölskyldan hefur
löngum verið áhrifamikil í stjórnmál-
unum þar. Hún var menningarráð-
herra á fyrsta kjörtímabili Uribe for-
seta, 2002–2006, en var heldur óvænt
skipuð utanríkisráðherra í ágúst í
fyrra. Við embætti hennar tekur nú
Fernando Araújo (þau eru ekki
skyld), reyndur stjórnmálamaður
sem slapp úr haldi vinstri sinnaðra
skæruliða í janúarmánuði eftir að
hafa verið heil sex ár á valdi þeirra.
Alvaro Uribe forseti nýtur mikilla
vinsælda og hneyksli þetta verður
stjórn hans ekki að falli. Á hinn bóg-
inn hafa viðbrögð forsetans vakið
nokkra undrun, ekki síst þar sem
hann lýsti yfir því á laugardag að
ekki kæmi til álita að María Araújo
segði af sér embætti. Hann hygðist
ekki „fórna saklausri konu“.
Sterka stöðu Uribe forseta má
rekja til þeirrar afdráttarlausu
stefnu er hann hefur rekið gagnvart
vinstri sinnuðum skæruliðum sem
haldið hafa uppi blóðugri baráttu í
nafni byltingar og þjóðfrelsis í 40 ár.
Forsetinn náði samkomulagi við leið-
toga vígaflokka hægri manna um að
þeir legðu niður vopn en hefur sætt
gagnrýni mannréttindasamtaka sem
telja að sáttmálinn feli í sér óhóflega
eftirgjöf af hálfu ríkisins. Vígaflokk-
ar þessir voru flestir myndaðir á ní-
unda áratugnum sem einkaherir eit-
urlyfjasmyglara. Þeir gerðust
oftlega sekir um hroðaleg fjölda-
morð á smábændum sem grunaðir
voru um að styðja sveitir skæruliða.
Þykir mörgum ótækt að leiðtogar
samtakanna hafi getað samið við
stjórnvöld um væga fangelsisdóma
gegn því að afvopnast.
Uribe forseti hefur löngum verið
vændur um að hafa tengst AUC-
sveitunum er hann var héraðsstjóri í
Antioquia á tíunda áratugnum. Leið-
togar stjórnarandstöðunnar fullyrða
að hið sama gildi um bróður hans,
Santiago, og hafa boðað að gögn í þá
veru verði lögð fyrir þingheim.
Syndir
bróðurins
„Saklaus kona“ segir af sér embætti
utanríkisráðherra Kólumbíu
Reuters
Afsögn María Consuleo Araújo greinir frá afsögn sinni á fundi með fréttamönnum í forsetahöllinni í Bogota.
Reuters
Frelsi Fernando Araujo, nýr utan-
ríkisráðherra, eftir að hafa sloppið
úr höndum vinstriskæruliða sem
höfðu hann á valdi sínu í sex ár.