Morgunblaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „ÞVÍ að vera á götunni er hægt að lýsa með mörgum orðum en í raun- inni dugir eitt: Hræðilegt. Það er líka ömurlegt, kalt, einmanalegt og von- laust. […] Sem virkur alkóhólisti hef ég þurft að upplifa ýmislegt sem ég hefði heldur viljað vera án. Til dæmis að eiga hvergi heima, vita ekki hvað næsti dagur bæri í skauti sér eða hvort hann myndi yfirleitt koma.“ Þetta sagði Sveinbjörn Bjarkason, sem í mörg ár var heimilislaus vímu- efnanotandi, á málþingi um stöðu heimilislausra sem fram fór í gær. Að þinginu stóðu Reykjavíkurborg, Hjálparstarf kirkjunnar, Samhjálp og Reykjavíkurdeild Rauða kross Ís- lands. Sjötíu einstaklingar óskuðu sjálfir samtals 166 sinnum eftir því að fá að gista í fangaklefum lögreglunnar í Reykjavík á síðasta ári. Mennirnir sem hér um ræðir hafa margir verið heimilislausir í langan tíma. Þeir leita athvarfs í Gistiskýlinu en sé það yfirfullt, sem oft er raunin, leita þeir til lögreglunnar sem skýtur þá yfir þá skjólshúsi í fangaklefum, sé engra annarra úrræða auðið. „Það liggur við að við getum sagt að allir þeir heimilislausu einstak- lingar sem við höfum afskipti af eigi það sameiginlegt að vera í neyslu og flestir eru langt leiddir vímuefna- neytendur,“ sagði Berglind Eyjólfs- dóttir rannsóknarlögreglumaður. „Þeir hafa ekkert fast húsaskjól og fjölskyldan hefur gefist upp á þeim. Þeir eiga hvergi heima og eru í orðs- ins fyllstu merkingu á götunni. […] Þetta eru ekki menn með langan brotaferil. Þetta eru einstaklingar sem hafa það eitt til saka unnið að vera heimilislausir vímuefnaneyt- endur.“ Þjónustan einsdæmi Á málþinginu kom fram að Gisti- skýlið, sem er næturathvarf fyrir heimilislausa karlmenn, er yfirleitt fullt út úr dyrum. Þar „búi“ stór hóp- ur manna mánuðum saman. Þá eru fá pláss eftir fyrir þá sem þurfi gist- ingu í skamman tíma meðan beðið er annarra úrræða. Til stendur að koma upp heimili fyrir sex til átta húsnæð- islausa einstaklinga á vegum borg- arinnar á þessu ári og öðru svipuðu á næstu tveimur til þremur árum. Þótt fangaklefar lögreglu séu allt annað en hlýlegir eru þeir skömm- inni skárri en gatan, að mati heim- ilislausu mannanna sem þar óska gistingar. Þegar Berglind spurði einn fastagestinn hvort hann ætlaði ekki að reyna að finna sér betra hús- næði, t.d. fá inni í Gistiskýlinu, sagði hann að sér liði best í fangageymsl- unum. „Þar fengi hann sérherbergi, þyrfti ekki að hlusta á hroturnar í öðrum og að hann væri öruggur hjá okkur. Þetta er auðvitað sjónarmið út af fyrir sig.“ Hins vegar telur hún það einsdæmi að lögregla bjóði upp á „þjónustu“ sem þessa. Berglind sagði mjög erfitt að vísa mönnunum, sem oft séu fárveikir, út á götu að morgni. „Það hefur komið fyrir að við leyfum þeim að vera lengur, því við höfum ekki brjóst í okkur til að senda þá út á götu í frosti og fárviðri. Þeir eru bara sjúkir á lík- ama og sál. Gjörsamlega búnir. En er það úrræði? Er það úrræði að þurfa að leita til lögreglunnar í fangageymslur til að fá húsaskjól?“ Sagði hún lögregluna líta svo á að fleiri úrræði vantaði sem hægt væri að beina þessum mönnum til. Neyð kvenna mikil „Húsnæðisleysi kvenna er dulið,“ sagði Valgerður Rúnarsdóttir, lækn- ir á Vogi, en síðan Konukot var opn- að árið 2004 gerist það varla að heim- ilislausar konur leiti skjóls í fangaklefum. Það er þó alls ekki þar með sagt að þær hafi það betra en karlar á sama reki, enda er Konukot næturathvarf, ekki heimili í eigin- legri merkingu. Konurnar þiggja oft gistingu hjá körlum úti í bæ, sem notfæra sér neyð þeirra. Kynlíf er notað sem gjaldmiðill fyrir vernd og gistingu. Þessar konur eiga þó ekki, frekar en karlarnir, fastan samastað eða raunverulegt heimili. Ákveðinn hópur húsnæðislausra, sem kemur til meðferðar hjá SÁÁ, kemur beint af götunni, sumir úr fangelsi, aðrir af sjúkrahúsum eða sambýlum þangað sem þeir eiga ekki afturkvæmt. Enn aðrir hafa verið tímabundið hjá vinum og ættingjum en hafa ekkert húsnæði að hverfa til að meðferð lokinni. Heimilislausir glíma í flestum til- fellum við fíknsjúkdóm. Aðrir glíma við geðsjúkdóma og sumir hvort tveggja. Um 300 einstaklingar sem komu til meðferðar á SÁÁ á síðasta ári voru heimilislausir. „Fíknsjúk- dómur er meiriháttar vandamál,“ sagði Valgerður. „Hann er langvinn- ur og einkennist af föllum. […] Hann hefur gríðarlega alvarlegar afleið- ingar og fólk deyr úr honum. Hann hefur afleiðingar á líkamlega sem andlega heilsu og einnig á félagslega stöðu. Þetta hangir allt saman.“ Þarf meiri aðstoð 525 Íslendingar hafa komið tíu sinnum eða oftar til meðferðar á Vogi og eru margir í þeim hópi heim- ilislausir. 25% þessara sjúklinga eru konur. „Þetta fólk hefur ekki verið meðhöndlað of oft,“ sagði Valgerður með áherslu. „Þetta er einfaldlega veikasta fólkið. Málið er að þessi hópur þarf meiri stuðning og aðra þjónustu.“ Nefndi hún í því sambandi hús- næði og aðra félagslega aðstoð, starfsþjálfun og endurmenntun. Sveinbjörn tók undir þetta og sagði að þegar meðferð sleppti vant- aði raunveruleg úrræði fyrir heim- ilislausa. Þak yfir höfuðið væri for- senda þess að öðlast sjálfsvirðinguna á ný. „Eftir að meðferð lýkur eru engin úrræði. Ég var enn á götunni og hafði ekki að neinu að hverfa öðru en sömu lifnaðarháttum og áður.“ Þá vantaði margskonar stuðning. „Eftir að rennur af viðkomandi eru vandamálin enn til staðar,“ sagði Sveinbjörn. „Fjárhagurinn er í rúst, hjónabönd brostin, fjölskyldan og vinirnir eru farnir og ekki síst virð- ingin.“ Líf vímuefnaneytandans á götunni einkennist af biðröðum og biðlistum, sagði Sveinbjörn. „Heimur alkóhól- istans er ekkert flókinn, hann snýst einfaldlega um það að redda sér í dag. Á morgun er önnur saga, það reddast. Mér sýnist heimur ís- lenskra ráðamanna vera ósköp svip- aður. Málum er varpað á milli nefnda og stofnana og erfitt að sjá hver á að sjá um hvað. Það reddast einhvern veginn.“ sunna@mbl.is „Einfaldlega veikasta fólkið“ Í HNOTSKURN »Í Gistiskýlinu eru 18 plássfyrir heimilislausa karl- menn. » Í Konukoti eru átta plássfyrir heimilislausar konur. »Gistiskýlið er iðulega yf-irfullt. Það heyrir til und- antekninga að heimilislausar konur vilji gista fanga- geymslur eftir að Konukot var opnað árið 2004. Að mati lögreglunnar vantar fleiri úrræði fyrir heimilislausa Íslendinga. Frá því Konukot var opnað eru heimilislausar konur fáséðar á lög- reglustöðinni. Það er þó aðeins tímabundin lausn á húsnæðisvanda. Oft er fólk húsnæðislaust að lokinni meðferð og þá liggur leiðin aðeins í eina átt: Aftur á götuna þar sem gamlir lifnaðarhættir eru teknir upp að nýju. Sunna Ósk Logadóttir sat málþing um stöðu heimilislausra. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Óvistlegt Heimilislausir leita athvarfs í opnum bílum, stigagöngum eða yf- irgefnum húsum. Þeir kjósa að gista í fangaklefa frekar en á götunni. „EINA nóttina þegar við gátum hvergi sofið, fullt var í Gistiskýlinu, ákváðum við að ganga niður á BSÍ og athuga hvort það væri opið þar en svo var ekki. Þá datt okkur í hug að fara í glerhúsið [fyrir framan geðdeild Landspítalans] og það var svo hált undir snjónum í brekkunni að ég gat ekki gengið, ég skreið. Þá hugsaði ég: Ásdís, hvar ætlarðu að enda, ætlarðu að deyja í þessum skafli?“ Þannig lýsir Ásdís Sigurðardóttir því þegar hún ákvað að snúa við blaðinu og leita sér hjálpar eftir að hafa verið á götunni í langan tíma. Hún hafði oft farið í meðferð en sumar nætur hvergi haft höfði sínu að að halla. Í kjölfarið hringdi hún á Hlaðgerðarkot og komst þangað inn. Segir hún það hafa verið lífs- björg sína. „Þar fann ég hvernig hlýjan streymdi á móti mér og ég náði áttum. Áður fannst mér ég hafa verið týnd í einhverju leikriti sem ég vissi ekki einu sinni handritið að.“ Nú segist Ásdís hafa öðlast þá náð að vera edrú í tæpa 28 mánuði. „En snjóskaflinn við BSÍ hann hverfur ekki úr huga mér og hann stækkar ef eitthvað er. Þannig að ef ég lendi þar aftur er ekki víst að ég komist í gegnum hann.“ Ætlarðu að deyja í þess- um skafli? SIV Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur til- kynnt að fjölgun verði á dagvistar- og hvíldarrýmum fyrir aldraða á næstu mánuðum. Alls verður varið 370 milljónum í verkefnið sem miðar að því að styðja aldraða í að búa sem lengst heima. Samkvæmt upplýsingum frá heil- brigðisráðuneytinu mun dagvist- arrýmum verða fjölgað um 75, sem er um 11% fjölgun – en dagvist- arrými voru um sjö hundruð á land- inu öllu í lok síðasta árs. Af þeim dagvistarrýmum sem við bætast verða 44 sem sérstaklega er ætluð heilabiluðum, en alls eru 129 dag- vistarrými nú ætluð þeim. Verða þau flest staðsett á höfuðborgarsvæðinu en almennu dagvistarrýmunum verður komið fyrir víða um land og t.a.m. bætast við ellefu staðir þar sem ekki hafa áður verið dagvist- arrými fyrir aldraða. „Með þessu móti verður dagvistun fyrir aldraða að aðgengilegu úrræði um allt land,“ segir m.a. í tilkynningu frá ráðu- neytinu. Hvíldarrýmum verður einnig fjölgað og munu 23 slík bætast við víða um land. Unnið er að gerð áætl- unar um staðsetningu þessara rýma og stefnt að niðurstaða liggi fyrir á næstu dögum. Í tilkynningu ráðuneytisins segir ennfremur að ákvarðanir liggi fyrir um byggingu nýrra hjúkrunarheim- ila og með þeim mun rýmum fjölga um 374 á næstu fjórum árum. Af þeim eru 314 á höfuðborgarsvæðinu, tuttugu í Árborg, þrjátíu í Reykja- nesbæ og tíu á Ísafirði. Fjölgun á dag- vistarrýmum 44 rými sérstaklega fyrir heilabilaða HEIMILISLAUSAR konur verða fyrir miklum fordómum og fá ekki þá þjónustu og stuðning sem þær þarfnast, sagði Eva Lind Björns- dóttir, sem í mörg ár var heim- ilislaus. Sérstaklega vanti þær kon- ur sem hafi verið nauðgað stuðning. Séu börn tekin af konum þurfi þær áfallahjálp. „Þetta eru manneskjur og þær eru með sjúk- dóm og geta ekkert að því gert,“ sagði Eva Lind Benti hún á að Konukot væri að- eins opið frá kl. 19 á kvöldin til 10 á morgnana. „En konur á götunni þurfa húsaskjól og aðhlynningu all- an sólarhringinn,“ sagði Eva Lind. Þarfnast áfallahjálpar Páskasnjórinn er í boði Vina Hlíðarfjalls HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest gæsluvarðhald yfir meintum nauðg- ara sem sætir rannsókn vegna hrottalegrar kynferðisárásar á konu á Hótel Sögu hinn 17. mars sl. Mað- urinn er af erlendu bergi brotinn og segir í forsendum gæsluvarðhalds- úrskurðar héraðsdóms að sam- kvæmt frásögn konunnar hafi mað- urinn elt hana inn á salerni og beitt hana grófu kynferðisofbeldi. Maður- inn var handtekinn daginn eftir og viðurkenndi að hafa haft samræði við konuna en sagði það hafa verið með hennar vilja. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, sem krafðist gæsluvarðhalds yfir manninum, telur hann hins vegar vera undir sterkum grun um að hafa framið kynferðisbrot, sem varði allt að 16 ára fangelsi. Féllust bæði hér- aðsdómur og hæstiréttur á kröfuna og er maðurinn í gæsluvarðhaldi til 28. mars. Fallist á gæsluvarð- haldskröfu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.