Morgunblaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 58
58 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Sími - 564 0000Sími - 462 3500 The Hitcher kl. 2, 4, 6, 8 og 10 B.i. 16 ára The Hitcher LÚXUS kl. 2, 4, 6, 8 og 10 Epic Movie kl. 2, 4, 6, 8 og 10 B.i. 7 ára The Number 23 kl. 8 og 10.15 B.i. 16 ára Ghost Rider kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára Anna og Skapsveiflurnar STUTTMYND kl. 2 Night at the Museum kl. 3:20 og 5.40 The Hitcher kl. 8 og 10 B.i. 16 ára Epic Movie kl. 4 (450 kr.), 6 og 10 B.i. 7 ára Norbit kl. 4 (450 kr.), 6 og 8 - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir JIM CARREY eeee K.H.H. - FBL HÚN ER STÓR... VIÐ MÆLDUM UPPLIFÐU MYNDINA SEM FÉKK ENGIN ÓSKARSVERÐLAUN! 700 kr fyrir fullorðna og 500 kr fyrir börn Frá framleiðendum Texas Chainsaw Massacre og The Amityville Horror Magnaður spennutryllir um ferðalag tveggja háskólanema á ónefndum þjóðvegi í USA og hremmingum þeirra! Stranglega bönnun innan 16 ára Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ÞAÐ var í fyrra sem færeyska tónlistarhá- tíðin Atlantic Music Event var haldin í fyrsta skipti hérlendis, en þá léku Högni Lisberg, Gestir, Deja Vu, Makrel, Marius og Lena. Framhald verður á tiltækinu eftir tæpar tvær vikur, en laugardaginn 31. mars munu Eivör Pálsdóttir, Teitur, Högni Lisberg, Brandur Enni og Gestir sækja landið heim og troða upp á NASA. Atlantic Music Event, eða AME, er tónlist- arhátíð sem hefur verið haldin í Færeyjum síðan 2005 og tengdist inn á Prix Föroyar (hljómsveitakeppni svipuð Músíktilraunum) en sú keppni hefur nú verið lögð niður. Á AME er nú lögð áhersla á að styðja við fær- eyskar sveitir og gera þær sýnilegri, jafnt innanlands sem utan, og í því skyni hafa tón- leikarnir verið fluttir út, til Danmerkur og nú til Íslands. Margt er líkt með samfélags- háttum Íslendinga og Færeyinga en á heild- ina litið er tiltölulega lítill samgangur milli landanna, og á það við um tónlistina sem annað. Undarlegt ástand í raun en kynning á færeyskri tónlist hérlendis hefur þó verið að færast í aukana á undanförnum árum og er AME einkar mikilvægur þáttur í þeirri starf- semi. Brandur ekki barn lengur Teitur er sá færeyski listamaður sem hef- ur, þrátt fyrir ungan aldur, náð hvað lengst á erlendum vettvangi. Hann á nú að baki tvær sólóplötur og innihalda þær melankólíska söngvaskáldatónlist, en ljúfsár angist er eitt- hvað sem liggur afskaplega vel fyrir Fær- eyingunum, enda er súld og þoka yfir um og allt í kring þarna úti, svona oftast nær. Fyrsta plata hans gerði það gott á Amerík- umarkaði og hann hefur túrað um heiminn þveran og endilangan. Eivöru „okkar“ er óþarfi að kynna í löngu máli. Hún er að ljúka við nýja plötu um þess- ar mundir, og kemur hún út í maí í tveimur útgáfum, annars vegar með færeyskum text- um en hins vegar með enskum. Brandur Enni er þekktur hérlendis sem barnastjarna, en það var árið 2002 sem þessi Suðureyingur sló rækilega í gegn sem slíkur og einhverjir muna kannski eftir allsvaðalegu myndbandi þar sem hann var að syngja í fjörunni með fríðan flokk dansmeyja sér til halds og trausts. Brandur er hins vegar ekki barn lengur, og hefur verið að vinna í Sví- þjóð að undanförnu að sólóplötu en þar stundar hann nám við tónlistarskóla. Röddin nú orðin dýpri og sömuleiðis tónlistin Gestir eru bestir Högni Lisberg er fjölhæfur tónlistarmaður og á að baki tvær sólóplötur. Hann hóf fer- ilinn sem trommari í Clickhaze, einni áhrifa- ríkustu rokksveit sem Færeyjar hafa alið en þar söng Eivör Pálsdóttir. Plötur Högna eru Most Beautiful Things (2003) og Morning Dew (2005) en lög af síðari plötunni rötuðu í íslenskt útvarp og var titillag plötunnar spil- að linnulítið á Rás 2 þá um vorið. Hann hefur heimsótt Ísland áður, lék á Íslands-AME eins og getið er en einnig kom hann fram á síðustu Airwaves-hátíð. Gestir eru ein allra frambærilegasta rokk- sveit Færeyja í dag, spilar melódískt en á stundum torrætt rokk sem er bæði kraftmik- ið og dramatískt. Gestir syngja á færeysku og hafa meðlimir verið meðal helstu framá- manna í sjálfstæðisbaráttu eyjaskeggja. Fyrsta plata Gesta, Burtur frá Tóftunum, kom út í fyrra og er mikill kjörgripur þar á ferð. Eivör og Högni koma með hljómsveit með sér en Gestir og Teitur munu njóta stuðnings frá strengjasveitum. Ekki er loku fyrir það skotið að einhverjir listamannanna setji upp aukatónleika á völdum tónleikastöðum í bæn- um. Færeysk tónlist á NASA, 31. mars næstkomandi Atlantic Music Event 2007 Morgunblaðið/Golli Vinsæl Eivør Pálsdóttir mun ekki láta sig vanta á hátíðinni enda sá tónlistarmaður þeirra Fær- eyinga sem hefur náð hvað lengst á tónlistarsviðinu, m.a notið mikilla vinsælda hérlendis. Ljósmynd/Matthias Ingimarsson Einyrkinn Teitur er á meðal þeirra sem kemur fram á tónleikunum eftir viku. Miðaverð á hátíðina er 2.200 kr. og forsala aðgöngumiða hefst um helgina í verslunum Skífunnar og á midi.is myspace.com/teitur myspace.com/eivorpalsdottir myspace.com/brandurenni myspace.com/hognilisberg myspace.com/gestir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.