Morgunblaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 31
úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 31 Þrátt fyrir að sólin hafi hækkað á lofti hefur Vetur konungur ekki ennþá sagt sitt síðasta en töluverðir umhleypingar hafa verið á síðustu vikum á Djúpavogi. Smærri bátar hafa m.a. átt erfitt með sjósókn að undanförnu en þó hefur fiskast með ágætum þegar gefið hefur á sjó- inn.    Ákveðin óvissa hefur ríkt í kringum Laxeld- isfyrirtækið Salar Iclandia á Djúpavogi um töluvert skeið og fyrir skemmstu ákváðu eig- endur þess Grandi hf. að hætta með öllu frek- ara tilraunaeldi á laxi í Berufirði og segja upp í framhaldi af því 6 stöðugildum. Í stað laxeldis ætlar fyrirtækið hins vegar að einbeita sér að tilraunaeldi á þorski sem fyrirtækið bindur vonir við að geti orðið töluvert umfangsmikið til framtíðar litið. Ljóst er þó að heimamenn eru ósáttir við ákvörðun þessa þar sem hvert stöðugildi er dýrmætt í litlu sveitarfélagi. Þá finnst mörgum skjóta skökku við að fyrirtæki geti haldið 8 þúsund tonna framleiðsluleyfi fyrir eldi án þess að nýta þau svo nokkru nemi.    Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að í vik- unni fannst heitt vatn í næsta nágrenni við Djúpavog sem gefur góðar vísbendingar um að hægt verði að virkja fyrir hluta, eða öllu leyti fyrir bæinn á Djúpavogi. Nú þegar bendir flest til að það magn sem fundið er geti m.a. verið nægjanlegt til að kynda allar stofnanir sveitarfélagsins að sund- lauginni meðtalinni. Vonast er til að málið skýrist frekar á næstu vikum og þá geti aðilar gert sér betur grein fyrir þeim möguleikum sem uppi eru.    Hinni árlegu spurningakeppni milli fyrirtækja á Djúpavogi lauk með hörkukeppni síðastliðið laugardagskvöld. Það er UMF Neisti sem staðið hefur fyrir keppni þessari í mörg herrans ár og þau tvö síðustu hefur sveitarstjórinn Björn Hafþór Guðmundsson verið spyrill og hefur hann þótt fara á kostum. Mjög góð þátttaka hefur verið í þessum keppnum og hafa heimamenn mætt vel og tekið virkan þátt í að gera þessa keppni að föstum lið í tilverunni. Að þessu sinni var það starfsfólk Dvalar- heimilisins Helgafells sem sigraði starfsmenn Salar Islandica í úrslitum með minnsta mögu- lega mun. Umhleypingatímar Töluverðar umhleyping- ar hafa verið á Djúpavogi undanfarnar vikur. DJÚPIVOGUR Andrés Skúlason fréttaritari Rúnari Kristjánssyni þykir ofterfitt að henda reiður á því fyrir hvað menn standa í stjórnmálum, því virðist talað út og suður um málefni: Að tengja sig frjálslyndi í væntingu um völd en varast að bera þar markaðan skjöld, það segir víst margt um þann mislita flokk sem minnir á íbúa í reykvískri blokk! Hagyrðingakvöld verður haldið á vegum karlakórsins Jökuls í Mánagarði í kvöld. Stjórnandi verður Ómar Ragnarsson og hagyrðingarnir sem mæta til leiks eru Torfhildur Hólm Torfadóttir frá Gerði, Hrönn Jónsdóttir frá Djúpavogi, Guðbjartur Össurarson frá Höfn og Þorsteinn Bergsson, Unaósi. Karlakórinn Jökull syngur fáein lög í upphafi samkomunnar, sem hefst kl. 20. Og smáforskot er tekið á kveðskapinn: Glóir veig í glösum hér, gamanmálin streyma. Fullur gleði fagna ber, fá sér mat og breima. Á degi sólar í þorra var stofnaður hópur kvæðamanna innan ásatrúarfélagsins og er fyrirhugað að hafa tvær æfingar í hverjum mánuði í Síðumúla 15, fyrsta og þriðja mánudag hvers mánaðar. Æfingarnar eru opnar öllum og verður sú næsta kl. 20, mánudaginn 3. apríl. pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Af völdum og frjálslyndi EINMANA fólk er allt að tvisvar sinnum líklegra til að þróa með sér Alzheimer-sjúkdóminn en aðrir, að því er nýleg bandarísk rannsókn bendir til og frá var greint í netmiðli BBC fyrir skömmu. Fylgst var með 800 öldruðum sjúklingum yfir fjög- urra ára tímabil og krufning gerð á þeim 90 sem létust á tímabilinu. Frekari rannsókna er þörf til að skilja til hlítar sambandið milli ein- semdar og einkenna elliglapa. „Við þurfum hins vegar að hafa hugfast að einsemd hefur ekki aðeins tilfinninga- legar afleiðingar, heldur líka líkamleg áhrif,“ segir Róbert Wilson, prófess- or og sálfræðingur við sjúkrastofnun Rush University. Langt er síðan farið var að rekja sk. elliglöp til félagslegrar einangr- unar, en þetta mun vera í fyrsta sinn sem sérfræðingar skoða það í alvöru hvers konar áhrif einsemdin getur haft á raunverulega líðan fólks. Sér- fræðingateymið reyndi að meta ein- semd þátttakenda með því að fá þá til að svara spurningum um eigin líðan. Einsemdin tengd Alzheimer heilsa X S T R E A M D E S IG N IX 0 7 03 0 12 Innréttingar Faxafen 8 • 108 Reykjavík Sími 577 1170 • Fax 577 1172 • www.innx.is Þinn draumur Opið alla virka daga frá 9 - 18 og á laugardögum frá 11 - 16 Innrétting á mynd er Provenzale ...okkar veruleiki Okkur hjá Inn X finnst að allir eigi skilið fullkomið eldhús. Við bjóðum upp á stílhreinar og sérlega notendavænar ítalskar innréttingar. Þarlendir sérfræðingar, með eldheita ást á matargerð hafa náð fullkomnun í aðlögun eldhúsumhverfis að þörfum þeirra sem njóta þess að elda - og borða góðan mat. Innréttingarnar frá Inn X, sem eru unnar í gæðavottuðum verksmiðjum, vinna á útliti, gæðum, stíl og nýtingu. Þó er það verðið sem kemur mest á óvart. Fjölbreytnin í gerðum, litum og lögun er ótrúleg. Ekki er ólíklegt að nú þegar sé búið að hugsa fyrir þínum sérstöku óskum og eldhúsið þitt bíði eftir þér. Komdu til okkar í Inn X og leyfðu hönnuðum okkar að aðstoða þig við að setja saman draumaeldhúsið þitt. Þín veröld - veldu Inn X
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.