Morgunblaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 34
HINN 22. febrúar sl. birtist í Morgunblaðinu grein eftir heil- brigðisráðherra, Siv Friðleifs- dóttur, undir yfirskriftinni „Þjón- usta við aldraða stórbætt“. Þar bendir ráðherrann á nauðsyn þess að allir geri sér grein fyrir hinu mikla Grettistaki í málefnum aldraðra sem ráðherrann telur sig hafa lyft. Eitt þeirra sem tíundað er í greininni er að fleiri aldraðir vistast á stofnunum hér á landi en í nágrannaríkj- unum og búið sé að stórefla heima- hjúkrun, hækka lífeyr- isgreiðslur og í grein- inni kemur einnig fram að ellilífeyrisgreiðslur séu hæstar á Íslandi af Norðurlöndunum. Ráðherrann vitnar einnig í áherslur sínar í málefnum aldraðra sem birtust í bæklingi sem hún lét Framkvæmdasjóð aldraðra fjár- magna á sl. ári og frægt er orðið. Sérstaklega er tekið fram að þessu hafi verið vel tekið af Lands- sambandi eldri borgara. Í tilefni þessarar greinar ráðherrans telur Landssamband eldri borgara (LEB) rétt að leiðrétta þær fullyrð- ingar sem þar koma fram. Lands- sambandið hefur ekki vitneskju um þann fögnuð sem eldri borgarar eiga að hafa sýnt. Hinsvegar mótmælti LEB með ályktun 5. febrúar að heilbrigð- isráðherra skuli nota 1.334 458 kr. úr Fram- kvæmdasjóði aldraðra vegna útgáfu og dreif- ingu fyrrnefnds bækl- ings. En vinnubrögðin vöktu einnig furðu því að á sama tíma og ráð- herrann lét semja fyr- ir sig bæklinginn var Ásmundarnefndin svo- kallaða að störfum þar sem fulltrúar LEB ströggluðu mánuðum saman um stefnu í mála- flokki aldraðra við fulltrúa rík- isvaldsins þar á meðal fulltrúa heil- brigðisráðherra án þess að hafa hugmynd um að ráðherrann væri að láta vinna „sérstefnu“ fyrir sig. Varðandi Grettistakið sem tíund- uð er í grein Sivjar heilbrigð- isráðherra þá hafa eldri borgarar ekki orðið varir við þau ennþá. Eitt af því sem LEB hafa lagt mikla áherslu á mörg undanfarin ár, er samþætting á heimaþjónustu og heimahjúkrun sem ætti að vera undir stjórn sveitarfélaga, eins og reyndar allur málaflokkur aldraðra. Ekki hefur enn tekist að ná árangri hvað það varðar. Eitt af því sem Siv virðast flokka undir Grettistak er að hlutfallslega fleiri aldraðir eru á stofnunum/elliheimilum hér landi en í nokkru öðru nágranna- ríki. Flestar þjóðir hafa fyrir mörg- um áratugum lagt niður slíkar stofnanir og byggt upp nútímalegri búsetuúrræði þar sem mannrétt- indi og fjárforræði íbúa eru virt. Hér á landi eru aldraðir ennþá vistaðir á yfirfull gamaldags elli- heimili þar sem þeir verða oft og tíðum að deila herbergi með ókunnugum árum saman. Við vist- un á stofnun missa þeir bæði fjár- forræði sitt og sjálfstæði. Nokkuð sem þekkist ekki í öðrum löndum. Félög eldri borgara hafa árum saman barist fyrir breytingum á þessu greiðslufyrirkomulagi við heilbrigðisráðuneytið sem og breyt- ingum á stofnunum þannig að hver íbúi hafi sitt einkarými. En þar á bæ eru menn greinilega lítið fyrir breytingar. Varðandi hjúkrunarrými er stað- an þannig að um 400 manns munu vera á biðlista, enda hafa engin ný hjúkrunarheimili verið byggð á stór-Reykjavíkursvæðinu síðan 2002 þegar Sóltún tók til starfa. Loforð um byggingu hjúkr- unarheimilis sem átti að vera tilbú- ið 2005 var svikið. Yfirlýsingar Sivjar um 374 ný hjúkrunarrými á næstu 4 árum eru haldlausar, því að fráfarandi ráðherra getur ekki bundið Alþingi með slíkum yfirlýs- ingum mörg ár fram í tímann. Þjónustu við Alzheimersjúklinga er gríðarlega ábótavant eins og komið hefur fram í fjölmiðlum að und- anförnu. Þar skortir ráðgjöf við að- standendur, hjúkrunarheimili, dag- vistarheimili og hvíldarheimili fyrir aldraða með heilabilun. Þá eru kjaramál aldraðra tíund- uð í grein Sivjar og ekki gert lítið úr því Grettistaki sem þar hefur verið lyft og sennilega trúir hún því sjálf að svo sé. En LEB er hins- vegar á annarri skoðun og hefur ekki sýnt neinn fögnuð yfir því hænufeti sem náðist um sl. áramót hvað það varðar. Þvert á móti er mikil óánægja meðal eldri borgara um land allt vegna ákvæða um skerðingar og lág skattleysismörk. Eftir sem áður býr stór hópur aldr- aðra við fátæktarmörk þrátt fyrir margra ára þrotlausa baráttu Landssambands eldri borgara fyrir mannsæmandi lífeyri. Landssamband eldri borgara hefur í nokkur ár samþykkt áskor- anir til stjórnvalda að endurskoða frá grunni lög um aldraða en án ár- angurs. Ennfremur hefur LEB samþykkt áskorun til stjórnvalda um að endurskoða lög um almanna- tryggingar með sérstakri áherslu á kaflann um lífeyrismál, en án ár- angurs. Að lokum: Það sæmir ekki heil- brigðisráðherra að áfellast sveit- arfélögin fyrir takmarkaða þjón- ustu við aldraða, það er eins og að kasta steinum úr glerhúsi, einkum þegar heilbrigðisráðuneytið hefur yfir að ráða fjármagninu í þennan málaflokk. Ráðuneytið ætti að losa um kverkatak á málaflokki aldr- aðra og vinna að flutningi hans til sveitarfélaga ásamt þeim fjár- munum sem honum er ætlað, þar á meðal Framkvæmdasjóði aldraðra. Grettistak Sivjar Helgi K. Hjálmsson skrifar um kjör eldri borgara og öryrkja » Landsamband eldriborgara hefur í nokkur ár samþykkt áskoranir til stjórnvalda að endurskoða frá grunni lög um aldraða en án árangurs. Helgi K. Hjálmarsson Höfundur er varaformaður LEB. UMRÆÐAN um nýjar virkj- anir í Þjórsá fer ekki framhjá neinum. Hún hefur sem betur fer aukist mikið eftir svokallaðan Ár- nesfund en þar kom fjöldi fólks saman til að mótmæla virkj- ununum. Menn eru að vakna og gera sér æ betur grein fyrir hve mikil náttúruspjöll yrðu unnin ef af verður. Heldur seint er fólk að gera sér grein fyrir eyðilegging- unni sem virkjanirnar valda. Lítill tími er til stefnu. Al- menningur getur haft áhrif á það að koma í veg fyrir þessi áform. Fyrstu útfærslu virkjananna lagði Landsvirkjun fram 2001. Síðan þá hefur markvisst verið unnið að undirbúningi þeirra. Oft hefur ver- ið bent á að þetta hafi allt farið fram hljóð- lega, íbúar á svæðinu hafi ekki risið upp og mótmælt. Það virðist þó vera að gerast nú. Við eigum Ísland öll Klifað er á að semja verði við landeigendur og að Landsvirkjun og landeigendur verði að komast að samkomulagi um það í hvaða formi eigi að bæta land sem fer undir vatn og annað rask. Auðvit- að þarf að semja við landeigendur en málið er stærra en svo. Það er að sjálfsögðu ekki bara einkamál Landsvirkjunar og landeigenda. Þegar breyta á ásýnd landsins kemur það hverjum Íslendingi við. Við eigum Ísland saman og eigum að láta það okkur varða ef það kemur til álita að hrófla stór- lega við náttúrunni og umhverfinu sem okkur var falið að varðveita fyrir komandi kynslóðir. Hvernig geta einhverjir fáir tekið sér það vald að ákveða hvernig Ísland á að líta út? Ég segi nei. Það er ekki sanngjarnt og ég vona að ykkur hinum þyki það líka. Ekki er mörgum ljóst að ásýnd sveitanna gjörbreytist við komu þessara þriggja virkjana í Þjórsá. Eins og kom fram í Sunnlenska 22.2.07 verður landslagi í og við Þjórsá umturnað frá Þjórsárdal til sjávar. Anddyri Þjórsárdals verður sökkt. Náttúruperlur ár- innar, Hagaey, Minna-Núps- hólmur, Ölmóðsey, Árnes og foss- arnir Búði, Hestafoss og Urriðafoss, verða eyðilagðar. Slíkt er óafturkallanlegt. Fegurð á við Þingvelli og Mývatn Þeir sem þekkja til við Þjórsá vita hver fegurðin er þar. Þar eru fjöll, eldfjall, fossar og flúðir, á sem liðast um umhverfið, sýn jökla, eyjar, skógur, gróður og ein- stakar göngu- og reið- leiðir og einstæðar hamramyndanir. Birt- an og ljósaspilið þar er oft engu líkt. Blám- inn og litbrigðin í kringum Heklu og skýjafarið er aldrei eins. Þeir sem þekkja þetta umhverfi ekki vel ættu að leggja þangað leið sína. Oft kemur upp í hugann að Guð sé í Þjórsárdal eins og hann er á ótal- mörgum öðrum stöð- um á Íslandi, eins og t.d. á Þing- völlum og við Mývatn. Ekki kemur til greina að eyði- leggja þessa náttúru, ekki aðeins sjálfra okkar vegna, ekki bara vegna komandi kynslóða, en ekki síst vegna þess atvinnuvegar sem er verið að byggja upp í landinu, ferðamennskunnar. Eins og kemur líka fram í blaðinu Sunnlenska er náttúran takmörkuð auðlind sem okkur ber að virða, varðveita á sjálfbæran hátt, þannig að ekki sé gengið á höfuðstól náttúrunnar. Þegar er búið að eyðileggja mikið í okkar fagra landi. Nú þarf að stoppa. Við þurfum ekki þessa stóriðjustefnu. Við þurfum að vernda náttúruna og friðlýsa fleiri svæði eins og Þjórsársvæði sem einstaka náttúruperlu, sem þjóð- garð. Innganga á hálendi Íslands Umhverfi sem á að spilla er að- alinnkeyrslan á hálendi Íslands. Þegar fara á Sprengisand er ekin leiðin upp Gnúpverjahrepp og að Hrauneyjarfossvirkjun. Þarna eru bæir og bæjarstæði sem gjör- breytast. Einn af þessum bæjum er Hagi sem er fremsti bær í Þjórsárdal. Þar býr enn fyrrum bóndi í Haga, merkiskonan Jó- hanna Jóhannsdóttir, á tíræð- isaldri. Árið 2001 ritaði hún grein í Morgunblaðið sem tekið var eft- ir. Þar sagði hún: „Í Haga er sér- staklega fallegt bæjarstæði og út- sýnið þaðan stórfenglegt. Hekla, Tindafjallajökull og Eyjafjallajök- ull blasa við í austri og Þjórsá rennur fyrir neðan túnið. Í Þjórsá eru ótal sker, stakur klettur skógivaxinn og tveir ílangir klett- ar nærri landi og rennur áin á milli þeirra. Ekki er þeirra saga þekkt en Gálgaklettar eru þeir kallaðir og flest hafa þessi sker nöfn. Fyrir landi Haga er stór eyja, Hagaey, er hún um 24 hekt- arar að stærð, grasi gróin og mjög fjölbreytilegur gróður í henni. Fuglalíf er mikið og verpir gæsin þar mikið ásamt fleiri fuglum. Fyrir rúmri hálfri öld var heyjað í eyjunni og 50-60 lömb höfð þar yf- ir veturinn. Nú er búið að planta þar þúsundum plantna af ýmsum skógartegundum. Þessi eyja væri eflaust talin náttúruperla ef hún væri undir Arnarfelli. En nátt- úruperla er hún í okkar augum sem hér búum en þessari eyju ætlar Landsvirkjun nánast að sökkva“. Ásýnd Heklu breytist Hekla er einstök og kynngi- mögnuð. Það vita þeir sem hafa séð. Einhver dulúð, óbeislaður kraftur og andleg uppspretta ein- kennir hana. Horfa má á hana endalaust og velta fyrir sér hvað hún ætlist fyrir. Þjórsárdalur, efri hluti Gnúpverjahrepps, Hekla og Þjórsá mynda heild sem má ekki raska. Leiðin frá Minna-Núpi upp í Þjórsárdal er einstök, og til van- sæmdar að raska henni. Þetta breytist mikið við tilkomu Hvammsvirkjunar. Það væri skömm, einnig á alþjóðavettvangi. Verndum náttúruperluna Þjórsá. Verndum Þjórsá – hlífum náttúruperlu Guðfinna Eydal skrifar um umhverfisvernd » Þegar breyta áásýnd landsins kemur það hverjum Íslendingi við. Við eigum Ísland saman Guðfinna Eydal Höfundur er sálfræðingur. 34 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN AÐHALD í fjármálum ríkissjóðs og staðfest stjórn efnahagsmála á þessu kjörtímabili hefur leitt til þess að ríkissjóður hefur verið rek- inn með afgangi á hverju ári síðan 2004. Um leið og afgangur er á rík- issjóði er unnt að greiða niður skuldir ríkisins og nota fjármuni, sem áður fóru í greiðslu vaxta af skuldum, í mikilsverð verkefni á borð við heilbrigðisþjónustu eða menntun. „Hrein staða“ ríkissjóðs er mælieining þar sem fjárkröfur og handbært fé ríkissjóðs er dregið frá skuldum. Í upphafi þessa kjör- tímabils voru skuldir ríflega 142 milljörðum hærri en áðurnefndar eignir. Á þremur árum hefur þessi tala fengið annað formerki og nú eru þessar eignir ríkissjóðs um 13 milljörðum hærri en skuldir. Um leið hefur vaxtakostnaður ríkisins lækkað og á árinu 2007 er áætlað að vaxtatekjur ríkisins verði tveimur milljörðum hærri en vaxtagjöldin. Þetta er ánægjuleg þróun og mikilsverð og gefur okk- ur um leið tækifæri til þess að bæta og efla þjónustu ríkisins á ýmsum sviðum. Árni M. Mathiesen Afgangur af ríkissjóði – uppgreiðsla skulda Höfundur er fjármálaráðherra. ÁFORM um lagningu nýs einka- vegar um Kjöl eru mikið áhyggju- efni. Þeir sem hæst láta um gildi stóriðju og nýtingu fallvatna og annarra auðlinda Íslands virð- ast ekki skilja nauðsyn þess að varðveita há- lendi landsins. Ósnort- in náttúra, tært loft og hreint vatn eru verð- mæti sem fáar þjóðir geta státað af. Það virðist einnig gleymast í öllu æðinu sem tröllr- íður íslensku efna- hagslífi um þessar mundir að ferðaiðn- aðurinn er sennilega verðmætasta útflutn- ingsgrein okkar. Það er ólíðandi að horfa upp á það að sú efna- hagslega firra sem hvalveiðum og lagn- ingu hraðbrauta um hálendið fylgir eyði- leggi þau verðmæti sem komandi kyn- slóðir munu erfa. Hálendið er ómetanlegur fjár- sjóður. Honum þarf ekki að breyta í hlutabréf eða skuldabréf til þess að fá „ásættanlega“ ávöxtun. Þessi fjár- sjóður er einstæður og hann ávaxtar sig sjálfur ef hann bara fær að vera í friði. Réttast væri að gera allt há- lendið að friðuðum þjóðgarði og gera heildarskipulag um nýtingu þess til langs tíma. Rökin fyrir nauðsyn þess að leggja nýjan veg um Kjöl eru létt- væg. Bent hefur verið á það að stytt- ing leiðarinnar á milli Reykjavíkur og Ak- ureyrar er möguleg með tilfærslum á nú- verandi vegi. Það eru engin efnahagsleg rök fyrir því að tengja Suð- urland og Norðurland með hálendisvegi. Það er áskorun til allra þeirra sem vilja varðveita náttúru Ís- lands að skerast í leik- inn nú þegar. Lög um mat á umhverfisáhrif- um og aðrar lagasetn- ingar eins og t.d. nýju stjórnsýslulögin sem sett voru vegna samn- inga um Evrópska efnahagssvæðið eru ekki tæki stjórnvalda til þess að knýja fram vilja sinn. Þvert á móti gefa þau öllum Íslend- ingum möguleika á því að koma skoðunum sín- um og mótmælum á framfæri um framkvæmdir sem fela í sér óaft- urkallanleg umhverfisáhrif. Mál er að linni. Einkavegur yfir Kjöl? Jón Kjartansson skrifar um hugmyndir um hálendisveg Jón Kjartansson » Það eru eng-in efnahags- leg rök fyrir því að tengja Suð- urland og Norð- urland með há- lendisvegi. Höfundur er bóndi og áhugamaður um ferðaiðnað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.