Morgunblaðið - 24.03.2007, Side 6
!
" "
# "
15,1% svarenda í nýrri könnun
Capacent-Gallup telur frekar lík-
legt eða mjög líklegt að það muni
kjósa nýtt framboð sem ber vinnu-
heitið Íslandsflokkurinn og styður
velferðar- og umhverfismál. Nán-
ast sama hlutfall (14,9%) telur
frekar eða mjög líklegt að það
kjósi framboð eldri borgara og ör-
yrkja. Liðlega 60% telja frekar eða
mjög ólíklegt að þau kjósi slík
framboð.
Könnunin var gerð 14.–20. mars
en þá var Íslandshreyfingin ekki
búin að kynna stefnu sína eða nafn
og því er flokkurinn nefndur Ís-
landsflokkurinn í spurningu Capa-
cent. Könnunin náði til 1.230
manna og var svarhlutfall 61,5%.
Aðeins hærra hlutfall kvenna
segir koma til greina að kjósa
þessi tvö framboð. Sömuleiðis er
ungt fólk opnara fyrir því að kjósa
þessi framboð. 32% fólks á aldr-
inum 18–29 ára segja líklegt að
þau kjósi framboð eldri borgar og
öryrkja, en 16,9% fólks á aldrinum
60–75 ára. 37,4% fólks á aldrinum
18–29 ára telja líklegt að þau kjósi
Íslandsflokkinn. Kjósendur stjórn-
arflokkanna virðast hafa einna
minnstan áhuga á að kjósa Ís-
landsflokkinn. 7–8% kjósenda
stjórnarflokkanna töldu frekar eða
mjög líklegt að þau myndu kjósa
Íslandsflokkinn.
Kjósendur VG virtust einna lík-
legastir til að styðja Íslandsflokk-
inn, en 36,7% sögðust telja allt
eins líklegt að þau myndu kjósa
flokkinn. 31,3% óákveðinna nefndu
Íslandsflokkinn og 20,8% kjósenda
Samfylkingar töldu allt eins líklegt
að þau myndu kjósa Íslandsflokk-
inn.
Framboð aldraðra og öryrkja
virðist sömuleiðis sækja minnst
fylgi inn í stjórnarflokkanna, en þó
er hlutfallið hærra en hjá Íslands-
flokknum, en 10–13% telja allt eins
líklegt að þau kjósi flokkinn. Hæst
er hlutfall kjósenda Frjálslyndra,
um 32%, óákveðinna 29%, VG 23%
og Samfylkingar 20%.
Hafa ber í huga að þegar búið er
að brjóta úrtakið svona mikið nið-
ur verða vikmörk hærri, þ.e.
óvissa verður meiri.
15% sýna nýjum
framboðum áhuga
6 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SAMGÖNGUMÁL, atvinnumál,
málefni aldraðra og öryrkja og um-
hverfismál eru þau mál sem svarend-
ur í könnun Capacent – Gallup
nefndu oftast þegar kjósendur voru
spurðir hvaða mál þeir teldu vera
mikilvægustu mál á næsta kjörtíma-
bili í kjördæmi þeirra.
Karlar höfðu meiri áhuga á sam-
göngumálum en konur, 38,5% á móti
21,2%. Konur höfðu hins vegar mun
meiri áhuga á málefnum aldraðra og
öryrkja en karlar, 15,1% á móti 6,6%.
Áhersla á atvinnumál var hins vegar
svipuð hjá kynjunum.
Greinilegur munur er á afstöðu
fólks eftir kjördæmum. Þannig
nefndu 36–41% kjósenda í NA- og
NV-kjördæmi atvinnumál sem mik-
ilvægasta kosningamálið en á höfuð-
borgarsvæðinu nefndu 1–4% þennan
málaflokk. Áhugi á samgöngumálum
er svipaður í öllum kjördæmum en
þó mestur í Suðurkjördæmi (41%).
Ungt fólk leggur
áherslu á umhverfismál
Kjósendur á höfuðborgarsvæðinu
hafa mun meiri áhuga á málefnum
aldraðra og öryrkja en kjósendur í
landsbyggðarkjördæmunum eða 11–
23% á móti 2–7% Sömuleiðis er áhugi
á umhverfismálum mun meiri á höf-
uðborgarsvæðinu en á landsbyggð-
inni eða hjá 10–12% á móti 2–7%.
Ungt fólk hefur áberandi mestan
áhuga á umhverfismálum eða um
18%. Kjósendur VG nefna umhverf-
ismálin sömuleiðis mun oftar en
kjósendur annarra flokka. Kjósend-
ur Sjálfstæðisflokksins nefna lang-
oftast samgöngumál (44%) en miklu
síður atvinnumál en kjósendur ann-
arra flokka (8,5%). Capacent spurði
einnig um hvað væri mikilvægasta
mál næsta kjörtímabils. Flestir
nefndu samgöngumál, atvinnumál,
umhverfismál og málefni aldraðra og
öryrkja. Mun færri nefndu t.d. sjáv-
arútvegsmál, Evrópumál og mennta-
mál.
Könnunin var gerð 14.–20. mars.
1.230 manns voru í úrtakinu og var
svarhlutfall 61,5%.
Samgöngu- og atvinnumál
eru talin mikilvægust
Áherslur kjósenda í einstökum kjördæmum á málefni eru talsvert ólíkar
"
$
"
" " $
$
!
"# $
% &
$
'
#
$
(
)$
*
ÁKVEÐIÐ hefur verið að stofna starfshóp sem fari yfir
hugmyndir forsvarsmanna Faxaflóahafna um að Faxa-
flóahafnir taki að sér að leggja Sundabraut í einum
áfanga. Geir H. Haarde forsætisráðherra átti fund með
fulltrúum Faxaflóahafna í gær þar sem ræddar voru
hugmyndir um að þær leggi Sundabraut. Á fundinum
voru einnig Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra.
„Það er búið að leggja mikla vinnu í þetta mál nú
þegar. Nú á að fara að bora rannsóknarborholur til að
athuga með jarðgöng. Það er enn verið að meta hvaða
kostir eru hagkvæmastir,“ sagði Geir.
„ Þetta er auðvitað lofsvert framtak hjá Faxaflóa-
höfnum að vilja koma inn í þetta. Við þurfum svo að
skoða allar hliðar þessa máls, m.a. hvort það sé hugs-
anleg útboðsskylda þarna. Ég geri nú frekar ráð fyrir
því. Síðan þarf að skoða kostnað, fjármögnun og margt
fleira sem fylgir svona stórum verkefnum. Þetta er
auðvitað alveg heilmiklir peningar. Það má spyrja, höf-
um við efni á þessu og svarið er já. Við höfum efni á
þessu.“
Geir líst best á að farin verði sú leið í lagningu
Sundabrautar, sem styttir vegalengdina mest upp í
Kollafjörð, þar sem best þjóðhagsleg áhrif verði af því.
Morgunblaðið/Sverrir
Starfshópi falið að skoða
hugmyndir Faxaflóahafna
Viðræður Niðurstaða fundarins í gær var að setja á fót starfshóp til að fara yfir hugmyndir Faxaflóahafnar. Á
myndinni eru Bolli Þór Bollason ráðuneytisstjóri (lengst til vinstri), Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra, Geir H.
Haarde forsætisráðherra, Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, Björn Ingi Hrafnsson, formaður stjórnar Faxa-
flóahafna, og Gísli Gíslason, framkvæmdastjóri Faxaflóahafna.
TÆPLEGA þriðjungur fólks telur
að lækkun virðisaukaskatts á mat-
væli hafi skilað sér að öllu eða
miklu leyti í lækkuðu matarverði í
verslunum. 45% telja að lækkunin
hafi skilað sér að nokkru leyti. Um
23% telja að lækkunin hafi að litlu
eða engu leyti skilað sér.
Aðeins um 4% telja að lækkunin
hafi skilað sér í lægra matarverði á
veitingahúsum. 47,4% telja að
lækkunin hafi að nokkru leyti skil-
að sér í lægra verði matar á veit-
ingahúsum. 73,6% telja að lækkun
virðisaukaskatts hafi að litlu eða
engu leyti skilað sér í lægra mat-
arverði á veitingahúsum.
Þetta kemur fram í könnun sem
Capacent – Gallup gerði 14.–20.
mars. Í úrtakinu voru 1.230 manns.
Svarhlutfall var 61,5%.
Nokkru fleiri karlar en konur
telja að lækkunin hafi skilað sér í
lægra matarverði í verslunum og
veitingahúsum.
4% telja lækk-
un skattsins
hafa skilað sér
ÞRÁINN Skagfjörð
Guðmundsson, fyrr-
verandi skólastjóri við
Laugalækjarskóla,
andaðist á Kanaríeyj-
um 20. mars síðastlið-
inn, 73 ára að aldri.
Þráinn var fæddur
24. apríl 1933 á Siglu-
firði, sonur hjónanna
Guðmundar Þorleifs-
sonar verkamanns og
Ingibjargar Jónsdótt-
ur húsmóður. Hann
ólst upp á Siglufirði og
fór síðan til náms í
Menntaskólanum á Akureyri og varð
stúdent þaðan 1953. Hann lauk
kennaraprófi frá Kennaraskóla Ís-
lands árið eftir og fyrrihlutaprófi í ís-
lenskum fræðum við Háskóla Ís-
lands 1956. Þráinn nam
skólastjórnun við Oregon-háskóla í
Bandaríkjunum, fór í námsferðir til
Svíþjóðar og Banda-
ríkjanna auk nám-
skeiða hér innanlands.
Hann var kennari við
Miðbæjarskólann og
síðan yfirkennari og
skólastjóri við Lauga-
lækjarskóla og fræðslu-
stjóri í Reykjavík 1985–
86.
Þráinn var í forystu
Skáksambands Íslands
um árabil og forseti
þess 1986–89, formaður
stjórnar Skákskóla Ís-
lands frá 1990 og al-
þjóðlegur skákdómari FIDE 1990.
Hann var í mótsnefndum alþjóðlegra
skákmóta hér á landi, þ.á m. heims-
meistaraeinvígis Fischers og Spass-
kys 1972.
Eftirlifandi eiginkona Þráins er
Margrét Guðmundsdóttir. Þau eign-
uðust fimm börn.
Þráinn Guðmundsson
Andlát
Smáralind, sími 5288800, www.drangey.is
Fermingargjöf
til framtíðar
Mikið úrval
FLUTNINGUR rekstrar fram-
haldsskóla frá ríki til sveitarfélaga
hefur margvíslega kosti í för með
sér, t.d. sveigjanleg skil skólastiga,
að því er fram kemur í ályktun sem
samþykkt var á 21. landsþingi Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga í gær.
„Landsþingið hvetur mennta-
málaráðherra til þess að taka já-
kvætt í hugmyndir sveitarfélaga
um að taka yfir rekstur framhalds-
skóla í tilraunaskyni og hefja sem
fyrst undirbúning þess verkefnis í
samvinnu við sveitarfélögin.“
„Tilfinning mín er sú að þetta
verkefni sé rétt við dyrnar og mörg
sveitarfélög tilbúin að takast á við
það. Sveitarfélögin hafa stórbætt
grunnskólann og ég trúi að það
sama gerist með framhaldsskól-
ann,“ sagði Júlíus Vífill Ingvarsson
sem flutti tillöguna ásamt Gunnari
Einarssyni og Soffíu Lárusdóttur.
Vilja flutn-
ing fram-
haldsskóla