Morgunblaðið - 24.03.2007, Side 26
Charles Atlas
Karl-
mennskan er
talin reynast
mönnum vel
þegar þeir
eru að ná sér
eftir slys.
Skemmtilegir skór
|laugardagur|24. 3. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Sól, sól skín á mig … þegar
sumarið nálgast er ekki seinna
vænna að fara að kynna sér sól-
gleraugnatískuna. » 30
tíska
Handverkshjónin Sigríður
Gunnarsdóttir og Vignir Ingi
Garðarsson hafa breytt fok-
heldu í heimilislega höll. » 28
innlit
Ég kem í bæinn þegar tímigefst til,“ segir BaldurOrri Rafnsson. Hann hef-ur vanið sig á að mæta á
leiki Vals með trommur miklar og
ber þær af miklum móð til að hvetja
sína menn áfram. Hann býr í Grund-
arfirði og þarf þess vegna að leggja á
sig þó nokkurt ferðalag til að geta
sinnt áhugamálinu. „Ég ólst upp á
höfuðborgarsvæðinu,“ segir hann
þegar hann er spurður af hverju
hann styðji Val svo ákaft, „og faðir
minn ól mig upp sem Valsara þannig
að Valshjartað er sterkt í fjölskyld-
unni,“ heldur hann áfram og hlær
við.
Baldur fer á kvennaleiki jafnt sem
karlaleiki, það er þannig jafnræði
með kynjunum í hans huga. Í
Grundarfirði hefur Baldur þann
starfa að kenna grunnskólanemum
tónlist, nánar til tekið á trommur.
„Þetta áhugamál fer þess vegna
mjög vel með starfi mínu,“ segir
Baldur léttur. Hann segir nemend-
urna hafa gaman af þessu og þeir
séu mjög áhugasamir um áhugamál
kennarans.
Svona líka rosalega gaman
Baldur er ekki einn um að berja
bumbur á leikjum Vals heldur er
annar maður í sama hlutverki. „Já,
við erum í þessu tveir félagar,“ segir
Baldur, „við mættum fyrst á fót-
boltaleiki sumarið 2003, fyrst bara
hjá körlum. Undir lok sumars feng-
um við svo beiðni um að mæta á leik í
kvennaboltanum og við gerðum það.
Það var svo bara svona rosalega
gaman, alls ekki síðri skemmtun en
karlaleikur, og sumarið 2004 mætt-
um við á alla leiki.“ Smám saman
bættist við leikjafjöldann hjá köpp-
unum og veturinn 2004 tóku þeir
upp á því að mæta á allflesta leiki
Vals í handbolta. „Við reynum sem
sagt að styðja allt félagið og hvort
kynið sem er.“ Félagarnir tveir ólust
upp á sama tíma í Mosfellsbænum
og feður beggja eru harðir Valsarar.
Leiðir þeirra lágu saman að nýju á
fyrsta leiknum árið 2003.
Stemning á kappleik, þar sem
bumbur eru barðar markvisst af
kraftmiklum köppum allan tímann,
hlýtur að verða umtalsvert magn-
aðri en ef eingöngu hvatningarorð
eru hrópuð, þó að slíkt geti að sjálf-
sögðu líka verið til bóta. „Ég fæ alla-
vega að heyra það en ég kemst nátt-
úrlega ekki á alla leiki og mér er
sagt að það muni miklu þegar við er-
um ekki.“ HSÍ og KSÍ hafa leitað
eftir kröftum Baldurs og hann hefur
mætt á landsleiki með trommurnar
til að hvetja landsliðsfólk allra Ís-
lendinga.
Hann segir þetta mjög skemmti-
legt áhugamál og að hann fái mikið
út úr þessu.
Hljómsveitir líka
Baldur lætur þó ekki staðar num-
ið við að berja bumbur á kapp-
leikjum heldur er hann í tveimur
hljómsveitum. „Ég er í einni ball-
hljómsveit sem er að ryðja sér til
rúms, spilar á árshátíðum og þorra-
blótum, og annarri sem leikur djass-
og fönktónlist.“ Sú síðarnefnda er í
Grundarfirði, eða Snæfellsnesinu,
því eins og Baldur segir: „Það er
góður hópur af mjög færum tónlist-
armönnum á Snæfellsnesinu. Við er-
um nýbyrjaðir að spila en það kemur
að því að sveitin fari almennilega af
stað og við förum í höfuðborgina til
að spila,“ segir hann kíminn. Ball-
hljómsveitin er hins vegar á höf-
uðborgarsvæðinu þannig að Baldur
leggur líka á sig smáferðalag til að
æfa sig með þeirri sveit. Ferðin frá
Grundarfirði tekur um það bil tvo
tíma, að því gefnu að færð og veður
sé skaplegt.
Baldur er bjartsýnn fyrir hönd
sinna manna [kven- og karlmanna]
fyrir sumarið. „Það eru spennandi
tímar framundan hjá Val, mikil upp-
bygging í gangi og uppgangur, nýtt
hús og allt að gerast. Sumarið leggst
mjög vel í mig. Stráka- og kvennalið-
in eru að verða svo sterk og lofa
mjög góðu fyrir sumarið.“
Í lokin vill Baldur taka fram að
næsta sunnudag mætir Valur
Stjörnunni í karlaboltanum. „Það
var haft samband við mig frá stjórn-
inni í handboltanum og ég hringdi í
nokkra félaga mína sem spila líka á
trommur og við ætlum að setja sam-
an „smá-risa“-sambasveit. Þetta er
síðasti heimaleikurinn okkar í Laug-
ardalshöllinni og við ætlum að gera
flotta umgjörð um þennan leik. Þar
verður ósvikin sambastemning,
meiri en sést hefur hjá okkur áður.
Nú á að tjalda öllu sem til
er.“
Morgunblaðið/Sverrir
Stuðningsmaðurinn Baldur Orri Rafnsson
mætir með trommurnar á flestalla leiki hjá Val
– hvort sem er í kvenna- eða karlaflokki.
Valshjartað sterkt í fjölskyldunni
SKÓR eru ekki bara skór og að mati sannra skófíkla getur mað-
ur aldrei átt of mörg pör. Það er þó ólíklegt að skórnir sem hér
sjást nýtist sem hversdagsskór, en þá er að finna á sýningunni
„Skórinn endurhannaður“ sem haldin er í La Capella dels Angels í
miðborg Barcelona.
Sérstakir Strigaskórinn er verk Royo Comunicacion,
„niðursuðudósin“ var hönnuð af Isidro Ferrer og
ökklastígvélið er eftir Juli Capella.
KARLMENNSKAN er víst ekki alveg gagnslaus eftir allt saman. Banda-
rískir vísindamenn hafa nefnilega komist að því að dæmigerðir töffarar
ná sér fyrr sér eftir alvarleg slys en karlmenn sem hafa mýkra yfirbragð.
Könnunina gerðu vísindamenn við Háskólann í Missouri-Columbia í
Bandaríkjunum að því er forskning.no greinir frá. Hingað til hafa þeir
sem eru sterkir, harðir af sér og fámæltir þótt dæmigerðir töffarar og slíkar
manngerðir hafa oft á tíðum verið tengdar hermennsku og öðrum hættustörfum í
samfélaginu.
Ekki í verri stöðu en aðrir
„Í mörg ár hafa sérfræðingar staðhæft að sterka, þögla týpan veigri sér við því að
biðja um hjálp þegar á þarf að halda og því sé hún í verri aðstöðu en aðrir að ná sér eft-
ir slys og áföll,“ segir í greinargerð með könnuninni. „Rannsókn okkar bendir hins
vegar til að svo sé ekki.“ Þetta mun vera fyrsta könnunin sem er nægilega stór til að
staðfesta sambandið milli karlmannlegra einkenna og möguleika til bata.
Mikilvægt atriði í niðurstöðunum er að töffararnir náðu meiri bata en
aðrir eftir að þeir voru lagðir inn á sjúkrahús og þar til ári eftir að þeir út-
skrifuðust. „Grundvallaratriði í karlmennskunni er enda hæfileikinn til að
þola mótgang og viljinn til að ná árangri,“ segja vísindamennirnir. „Jafnvel þótt frek-
ari rannsókna sé þörf hefur rannsóknin leitt ýmislegt óvænt í ljós.“
Töffararnir fljótari að ná bata