Morgunblaðið - 24.03.2007, Side 28
lifun
28 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HeimasætuhundurinnPjakkur tekur á mótigestunum eins og allirhundar og það er eins
og hann vilji ólmur og stoltur sýna
þeim sitt fallega heimili. „Pjakkur
fagnar gestum,“ segja húsráðendur
Sigríður Gunnarsdóttir og Vignir
Ingi Garðarsson. „Gjörið svo vel að
ganga í bæinn.“
Eftir að hafa dustað snjóflyks-
urnar úr hárinu og farið úr skónum
í forstofunni göngum við nánast
beint inn í stofuna. Þar bregða
konunglegri birtu á heimilið tvær
forkunnarfagrar kristalsljósakrón-
ur. „Ég hef oft farið til Prag í
Tékklandi, sem er hálfgerð mekka
kristalsins en það var ekki fyrr en
ég sá þessar að mig langaði að
eignast slíkar kórónur,“ segir hús-
freyjan brosandi. Í arninum snark-
ar eldur, úti snjóar og Sigríður,
sem alltaf er kölluð Didda, hefur
kveikt á kertum í nokkrum fal-
legum gler- og kristalskertastjök-
um. Heimilið er hlýlegt. „Ég hef
alltaf verið með eitthvað í hönd-
unum,“ segir hún og brosir aðspurð
hvort hún nostri við skreytingar og
uppstillingar á heimilinu. „Ég hef
unnið í blómabúð í fimmtán ár og
var einmitt að opna mína eigin
verslun á síðasta ári, 18 Rauðar
rósir, sem er í Hamraborg, Kópa-
vogi svo að þetta er líf mitt, starf
og áhugamál.“
Samofið líf
Vignir Ingi er líka maður með
góða reynslu. ,,Ég er húsgagna-
smiður, segir hann en bætir því við
að nú starfi hann einnig sem leigu-
bílsstjóri. „Auk þess erum við með
fallegan Cadillac Sevilla sem hægt
er að leigja ásamt bílstjóra fyrir
brúðkaup og fleiri tækifæri en
Didda sér að sjálfsögðu um að
skreyta hann,“ segir Vignir. „Já, og
Vignir er auðvitað bílstjórinn og
svo aðstoðar hann mig líka í búð-
inni,“ segir Didda hlæjandi.
Líf þeirra fléttast nú saman á
allan hátt en það gerði það ekki
fyrir þremur árum. „Þetta er okkar
heimili. Við steyptum tveimur
heimilum saman í þetta eina. Það
var svo sem ekki margt sem við
tókum með okkur, við vildum skapa
nýtt en ljósakrónan yfir borðstofu-
borðinu og gardínustangirnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eldhúsverk Eikin, svart granítið og glerviftan ríma vel saman í eldhúsverki skötuhjúanna. Á milli efri og neðri skápanna létu þau sprautulakka hvítt gler.
HeimasætaVignir og Sigríður ásamt Pjakki, heimasætuhundinum, við borðstofuborðið. Húsfreyjan er að sjálfs-
sögðu byrjuð að búa til páskaskreytingarnar en hún segir svart og hvítt vera vinsælt núna með páskalitunum.
Eiginverk Hjónin féllu fyrir kristalskórónunum í Prag en Vignir smíðaði
sófaborðið og bekkinn við arininn sem prýða fallega stofuna.
Heimilið er hjarta hverr-
ar fjölskyldu, höllin sem
er umgjörð hversdags-
lífsins. Unnur H.
Jóhannsdóttir leit inn til
handverksparsins Sigríð-
ar Gunnarsdóttur og
Vignis Inga Garðars-
sonar sem hafa á tveimur
árum breytt fokheldu í
heimilislega höll og lagt
hug og hönd í verkið.
Heimili með hallarbrag
Stíll Borðplatan er úr graníti eins og vaskurinn svo að hann líkist engum
venjulegum eldhúsvaski heldur er hálfgert listaverk!