Morgunblaðið - 24.03.2007, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 35
Við leitum eftir samstarfi við félagasamtök, sveitarfélög og stofnanir sem ætla að
vinna að verkefnum á sviði umhverfis- eða ferðamála í sumar.
Við bjóðum fram krafta vinnuhópa ungmenna á aldrinum 16 til 20 ára sem starfa hjá okkur
á sumrin. Hóparnir sinna viðhaldi og snyrtingu í nágrenni mannvirkja okkar en um árabil
hafa þeir sinnt umhverfismálum og bætt aðstöðu til útivistar og ferðamennsku víða um
land. Við viljum eiga samstarf um verkefni sem lúta að ræktun, hreinsun og öðrum
umhverfisbótum ásamt t.d. stígagerð og stikun gönguleiða.
Við bjóðum fram vinnuframlag unglinganna og flokkstjórn yfir þeim.
Við óskum eftir að samstarfsaðilar leggi fram vel skilgreind verkefni,
samkvæmt nánari lýsingu á umsóknareyðublaði sem er að finna á vefsíðu
Landsvirkjunar, www.lv.is.
Nánari upplýsingar veita: Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi og Ragnheiður Ólafsdóttir
umhverfisstjóri í síma 515 9000 – thorsteinn@lv.is og ragnheidur@lv.is.
Umsóknum skal skila í síðasta lagi
18. apríl með vefumsókn á lv.is eða
bréflega til Landsvirkjunar, merkt
Margar hendur vinna létt verk,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
0
56
3
Margar hendur vinna létt verk
Samstarfsaðilar óskast!
EINHVERN TÍMANN var sagt
að pólitíkin væri versta tík á Íslandi.
Nú er pólitíkin allavega að fá á sig
þá mynd að hún sé margbrotin og að
loft sé lævi blandið.
Frá vinstri kemur rautt tungl sem
felur sig í grænum
skrúða og er tilbúið að
segja stórt stopp á öll-
um sviðum.
Vinstri grænir eru
alls ekki grænir í
venjulegum pólitískum
skilningi. Þeir minna
meir á græningja sem
eru afar róttækt fólk
um allan heim. Græn-
ingjar eru stjórnleys-
ingjar sem hafa hátt og
brúka stór orð og fara
víða mikinn. Eins og
Vinstri grænir eru
græningjar fyrst og fremst á móti en
gera lítið af því að leggja fram gagn-
legar lausnir á vanda samtímans.
Ef Vinstri grænir næðu völdum
hér 12. maí, væru það tíðindi sem
yrði sagt frá um víða veröld. Í út-
löndum yrðu þeir ekki skilgreindir
sem grænir, heldur afsprengi sósíal-
ista, að stofni til brot úr komm-
únískum flokki.
Persónulega þykir mér vænt um
margt þetta fólk, það er skrafhreifið
og skemmtilegt, heldur langar ræð-
ur og er haldið baráttuanda gegn
ríkjandi þróun í þeim löndum sem
best gengur í dag.
Það er sagt að unga fólkið flykki
sér undir merki Vinstri grænna.
Unga fólkið á Íslandi segir í dag að
það vilji verða efnað og þrái tæki-
færi hins opna samfélags. Unga fólk-
ið verður hins vegar að fara yfir það
í sínum huga, vill það stopp og aft-
urhvarf til fortíðar. Sú verður afleið-
ingin af því að leiða Vinstri græna til
öndvegis.
Vinstri grænir verða að svara
mörgum spurningum
vegna stefnu sinnar um
framtíðina.
Treysta Íslendingar
sér til að styðja það að
eftirfarandi hlutir ger-
ist:
1. EES-samningi verði
sagt upp. EES er
viðskiptabrú okkar
til Evrópu, henni
fylgja miklir pen-
ingar heim og at-
vinna í hálaunastörf-
um.
2. Að Íslendingar segi
sig frá NATO-samstarfi.
3. Að útrás bankakerfisins verði
stöðvuð.
4. Að með hækkuðum sköttum á fólk
og fyrirtæki sjái undir iljarnar á
atvinnulífinu úr landi.
5. Höfnun á virkjanir og alla stóriðju
þýðir ásamt hinu sem upp var tal-
ið, atvinnuleysi og landflótta.
Treystir þjóðin sér til að hafna og
refsa stjórnmálaflokkum sem hafa á
12 árum umbreytt Íslandi í land
tækifæranna. Hvað er það sem veld-
ur því að öfgaflokkar til hægri og
vinstri blása nú til sóknar og boða
samstarf um eitt stórt stopp á lífs-
kjör og framsækni atvinnulífsins.
Ég ætlast til að stjórnmálafræð-
ingar með hlutlaust mat skilgreini
íslensku flokkana og greini frá hvar
þeir liggja í litrófinu.
Framtíðarlandið er eina aflið sem
stillir fólki upp við vegg og segir: ef
þú svarar okkur ekki með því að
krossa við já, þá ert þú grár en ekki
grænn.
Ég held að við þurfum nú að þvo
framan úr okkur þessar öfgar, þær
eru ekki boðlegar.
Hér stendur ekki til og er ekki á
dagskrá að sökkva landinu eða
byggja stóriðju í hverjum firði eins
og áróðurinn gengur út á. Hins veg-
ar hefur hinn græni málmur, sem ál-
ið er nefnt, aukið þjóðartekjur og
hagsæld Íslendinga.
Látum ekki flokka, sem klæðast
grænum klæðum, blekkja okkur. Við
framsóknarmenn höfum haldið utan
um grænan flokk í 90 ár. Við eigum
systurflokka um alla Evrópu sem
eru án öfga og teljast til miðjunnar.
Ég óttast að ef þróunin verður þessi,
færist íslensk pólitík í illdeilur og
átök og lífsgæðin á Íslandi bíði
hnekki.
Munu Vinstri grænir
stöðva Ísland?
Guðni Ágústsson skrifar um
stefnu stjórnmálaflokkanna »Unga fólkið verðurhins vegar að fara
yfir það í sínum huga,
vill það stopp og aft-
urhvarf til fortíðar. Sú
verður afleiðingin af því
að leiða Vinstri græna
til öndvegis.
Guðni Ágústsson
Höfundur er landbúnaðarráðherra.
Í MORGUNBLAÐINU 22.
mars skrifar Hjörleifur Gutt-
ormsson um upphafið að ákvæði
um þjóðareign á auðlindum.
Hjörleifur eignar sér ásamt
Steingrími Sigfússyni og Geir
Gunnarssyni allan heiður að
fyrstu tillögu um það mál þegar
þeir félagar fluttu tillögu um það í
desember 1983.
Fullyrðing Hjörleifs er sögu-
fölsun, vonandi vegna misminnis
og óskhyggju.
Þann 22. nóvember 1976 lögðu
þingmenn Alþýðuflokksins fram
frumvarp til laga um þjóðareign á
landi. Fyrstu flutningsmenn þess
voru Bragi Sigurjónsson og Jón
Ármann Héðinsson.
Fyrsta grein frumvarpsins
hljóðar svo: „Landið allt með
gögnum þess og gæðum og miðin
umhverfis það, svo sem viðtekin
efnahags- og fiskveiðilögsaga
hverju sinni greinir er sameign
þjóðarinnar allrar, að svo miklu
leyti sem ekki er öðruvísi ákveðið
í lögum þessum.“
Í greinargerð með frumvarpinu
kom fram að nokkur undanfarin
þing hefðu þingmenn Alþýðu-
flokksins flutt þingsályktun-
artillögur um sama efni.
Í greinargerð með frumvarpinu
segir í lið 5: „Eignarréttarformi
liðins tíma ber að breyta til sam-
ræmis við síbreytilegar þarfir
þjóðfélagsins, svo það sé hag-
stætt þjóðfélagsheildinni.“ Ýmsir,
sem tala nú í nafni jafn-
aðarmanna um þjóðlendulögin,
ættu að kynna sér þetta laga-
frumvarp gömlu kratanna.
Birgir Dýrfjörð
Valminni Hjörleifs
leiðrétt
Höfundur er fyrrverandi þinglóðs
Alþýðuflokksins.
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 577 2000