Morgunblaðið - 24.03.2007, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Unnar Rafn Jó-hannsson fædd-
ist á Ísafirði 20.
apríl 1974. Hann
lést í sjóslysi 13.
mars sl.
Foreldrar hans
eru Margrét Þór-
dís Jónsdóttir, f. 3.
júlí 1954, og Jó-
hann Björn Arn-
grímsson, f. 23.
maí 1954. For-
eldrar Margrétar
Þórdísar: Jón Jak-
obsson, f. 11. októ-
ber 1913, d. 12. júlí 1986, og
kona hans Ásdís Sigrún Finn-
bogadóttir, f. 6. apríl 1921, d. 3.
júlí 1994.
Foreldrar Jóhann Björns:
Arngrímur Jóhann Ingimund-
arson, f. 25. júlí 1920, d. 9. mars
1985, og kona hans Þórdís
Loftsdóttir, f. 8. ágúst 1926.
Eiginmaður Margrétar Þórdísar
er Kristinn Pétur Njálsson, f.
17. júlí 1955, og eiginkona Jó-
hanns Björns er Sólveig Hildur
Halldórsdóttir, f. 5. júlí 1959.
Systkini Unnars Rafns sam-
mæðra eru Jón Halldór Pálma-
son, f. 24. mars 1973, og Ás-
gerður Inga Kristinsdóttir, f. 8.
mars 1991.
Sambýliskona Jóns Halldórs
er María Berglind Kristófers-
dóttir, f. 26. janúar 1980. Synir
þeirra eru Daníel Stefán, f. 30.
desember 1998, Jakob Jón, f. 7.
júlí 2002, og Emil Ágúst, f. 3.
október 2005.
Systkini Unnars
Rafns samfeðra
eru Jóhann, f. 25.
nóvember 1981,
Halldór Páll, f. 7.
ágúst 1984, og
Nína Matthildur, f.
21. apríl 1987.
Sambýliskona
Halldórs Páls er
Linda Hrönn Þór-
arinsdóttir, f. 2.
mars 1986, barn
hans með Hrafnd-
ísi Báru Ein-
arsdóttur, f. 18. júlí 1983, Gísli
Mar, f. 13. júlí 2004.
Sambýlismaður Nínu Matt-
hildar er Jónas Þór Ingólfsson,
f. 9. júní 1987. Fóstursynir Jó-
hann Björns, synir Sólveigar
Hildar, eru Valgeir Örn Krist-
jánsson, f. 29. september 1977,
og Hlynur Þór Ragnarsson, f.
31. júlí 1980. Sambýliskona
Valgeirs er Aðalbjörg Guð-
brandsdóttir, f. 2. ágúst 1982.
Börn þeirra eru Sigurður Kári,
f. 29. apríl 2003, og Sólveig
María, f. 20. júlí 2005. Kona
Hlyns er Íris María Mortensen,
f. 22. október 1979. Börn
þeirra eru Arnar Már, f. 21.
júlí 1999, og Katrín Sunna, f.
21. desember 2003.
Unnar Rafn starfaði við
beitningu og sjómennsku.
Útför Unnars Rafns fer fram
frá Ísafjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Takk fyrir allt Unni minn.
Þín
mamma.
Í dag kveð ég Unnar son minn
hinstu kveðju.
Þær samverustundir sem við átt-
um saman í lífinu voru mjög góðar.
Sérstaklega mun ég minnast þess
þegar við hittumst síðast, um miðjan
nóvember. Þá borðuðum við saman á
hótelinu á Ísafirði, röltum síðan á
Langa Manga og Unnar sagði mér
ýmsar skondnar ferðasögur og líka
frá þeirri löngun sinni að komast í
nám í tölvuviðgerðum en þær voru
mikið áhugamál hjá honum.
Unnar var afskaplega rólegur og
hógvær maður og lét ekki mikið hafa
fyrir sér en það var gaman að fá
hann í heimsókn því hann hafði alltaf
frá einhverju skemmtilegu að segja.
T.d. hafði hann eitt sinn lagt inn öku-
skírteinið sitt í einhvern tíma. En
hann sótti það aldrei aftur, sagðist
bara geta labbað heiman frá sér og
niður að höfn, og ef hann þyrfti
lengra þá tæki hann bara rútuna!
Unnar kom með mér á nokkur
ættarmót og var ákveðinn í að koma í
sumar til að hitta systkini sín í föð-
urættina enda svolítið síðan hann
hafði hitt þau þar sem þau eru nú bú-
sett víðsvegar um landið. En af því
verður því miður ekki.
Þegar við hittumst síðast, 14. nóv-
ember sl., kom ég við hjá honum í
beitningarskúrnum áður en ég lagði
af stað heim. Þá sagðist ég ætla að
koma fljótlega eftir áramót vestur.
Sú ferð varð ekki fyrr en 14. mars, til
að líta hann augum en þá var lífs-
ljósið hans slokknað. En þar sem ég
trúi á framhaldslíf þá hittumst við
aftur.
Svæfillinn minn og sængin mín
sé önnur mjúka höndin þín,
en aðra breið þú ofan á mig,
er mér þá værðin rósamlig.
Blessa þú, Drottinn, bæ og lýð,
blessa oss nú og alla tíð,
blessun þína oss breið þú á,
blessuð verður oss hvíldin þá.
(Sig. Jónsson, frá Presthólum.)
Pabbi.
Til eru fræ, sem fengu þennan dóm:
Að falla í jörð, en verða aldrei blóm.
Eins eru skip, sem aldrei landi ná,
og iðgræn lönd, er sökkva í djúpin blá,
og von sem hefir vængi sína misst,
og varir, sem að aldrei geta kysst,
og elskendur, sem aldrei geta mæst
og aldrei geta sumir draumar ræst.
Til eru ljóð, sem lifna og deyja í senn,
og lítil börn, sem aldrei verða menn.
(Davíð Stefánsson)
Þín systkini,
Nína Matthildur, Halldór
Páll, Jóhann, Hlynur Þór
og Valgeir Örn.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Bless elsku bróðir.
Þín
Ásgerður Inga.
Í dag kveðjum við góðan dreng.
Unni var ekki allra. Hann var
þeirra sem hann vildi.
Við vorum svo heppin að fá að
njóta samvista við hann alla tíð.
Hann var traustur, ljúfur og hjálp-
samur.
Hann vissi svo margt og það var
gaman að spjalla við hann.
Hann var mjög rólegur en stutt
var í kímnina hjá honum.
Einatt féllu frá honum gullkorn og
þeim fylgdi góðlegt bros.
Við þökkum góða samfylgd og
kveðjum með söknuði.
Jakob, Ingibjörg, Ingvar
og Ástrún.
Elsku Unnar,
Ekki grunaði okkur þegar við
vöknuðum þennan miðvikudags-
morgun að fyrstu fréttirnar væru að
þú hefðir farist með bátnum þínum.
Enn og aftur minnti sjórinn okkur á
hvað hann er miskunnarlaus og ung-
ur maður í blóma lífsins er horfinn á
brott. Eftir sitjum við og spyrjum
spurninga en fáum engin svör. Það
er sárt að sakna, en það er gott að
gráta. Tárin eru dýrmætar daggir,
perlur úr lind minninganna. Tárin
mýkja og tárin styrkja. Minningarn-
ar um góðan dreng mun lifa með
okkur. Við kveðjum þig með þessum
fallegu orðum.
Þegar ungur ég var
og alls óhræddur við
hætturnar, sem lífið faldi mér.
Ég braust einn, gegnum her
sem að lagði að mér
ég var sár, þú komst og reistir mig.
Ég fann leiðina á ný
og fékk styrk minn á því
er þú stóðst, við hliðina á mér.
Núna stend ég á því
sem að lagðir þú í gjöfina,
sem að okkur færðir
mér og öllum sem á eftir
komu og lærðu það hjá þér
nú sé ég dag á ný.
Hvert sem ég fer – ertu hér
þú ert með mér þó að ég
sé einn á ferð
gegnum dimma dali fer.
Hvar sem ég er – ertu mér
viti sem að merkir land í ólgusjó
þú stýrir mér í var
og ég finn þig aftur þar.
(Einar Bárðarson)
Við kveðjum Unnar frænda með
söknuði og sendum fjölskyldu hans
innilegar samúðarkveðjur.
Kveðja,
Jón, Ína, Halla, Siggi, Hel-
ena, Arnþór og Þórhalla.
Eiríkur Þórðarson
og Unnar Rafn Jónsson
Þær voru sárar fréttirnar sem
bárust til mín frá Kristjáni Andra
syni mínum um miðnætti þann 13.
mars sl. um að báturinn hans, Björg
Hauks ÍS, væri án sambands. Veður
var vont og ástæða til að óttast að
slys hefði orðið. Það var staðfest
skömmu síðar að illa hefði farið og
óttast væri um þá Eirík og Unnar
sem voru í þessari sjóferð. Við Kol-
beinn sonur minn lögðum þá strax af
stað vestur. Við fengum svo þær
fréttir næstu klukkustundir um nótt-
ina á leiðinni vestur að Eiríkur og
Unnar væru fundnir en báðir látnir.
Það voru hörmulegar fréttir. Tveir
menn á besta aldri látnir í sjóslysi.
Ég þekkti Eirík vel enda samstarfs-
maður okkar feðga til margra ára.
Eiríkur var einn af okkar reyndustu
mönnum á Vestfjörðum við skip-
stjórn á smærri bátum. Marga ferð-
ina hafði hann farið á Björginni við
misjafnar aðstæður enda verið á
bátnum frá því hann komst á flot um
mitt ár 1999. En þrátt fyrir kunnáttu
hans og reynslu fór það svo að brot-
sjór hvolfdi bátnum á landleið austan
við Deildarhorn þar sem víðsjárverð
Jökulfjarðarbáran úr austri ýfir upp
norðaustan hafölduna. Við verstu
brotsjói í mynni Ísafjarðardjúps hef-
ur margur góður drengur látið líf sitt
á undanförnum áratugum þótt sem
betur fer væru slysin fátíð nú seinni
ár. Sex tíma keyrsla á Ísafjörð þessa
nótt var erfið og döpur ferð. Ég bið
fyrir minningu Eiríks M. Þórðarson-
ar skipstjóra og skipverja hans
Unnari Rafni Jóhannssyni. Pálínu,
börnum, fósturbörnum og öðrum
ættingjum og vinum færi ég dýpstu
samúðarkveðjur. Margréti, móður
Unnars, föður hans Jóhanni, systk-
inum og ættingjum og vinum votta
ég dýpstu samúð. Guð blessi minn-
ingu góðra drengja.
Guðjón Arnar
Kristjánsson
Unnar Rafn
Jóhannsson
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
útför ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SIGURVEIGAR STELLU KONRÁÐSDÓTTUR,
Þangbakka 8.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 4B,
Landspítalanum í Fossvogi.
Guðmundur Þ. Björnsson,
Sigríður Kristinsdóttir, Torfi Þorsteinsson,
Kolbrún Jónsdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir, Ásmundur Karlsson,
Birna Guðmundsdóttir, Eyjólfur Ó. Eyjólfsson,
Konráð Guðmundsson, Rósa Björg Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
HÓLMFRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
(Lillu Lúthers)
frá Fosshóli.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Hlíð og Lyflækningadeildar FSA fyrir góða umönnun.
Svava Sigurðardóttir, Hilmar Sæmundsson,
Sif Sigurðardóttir, Rúnar Jóhannesson,
Sigurður Lúther Gestsson, Valgerður Kr. Guðbjörnsdóttir,
Guðbjörg Birgisdóttir, Guðmundur G. Norðdahl
og ömmubörn.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og
frænka,
KRISTÍN BALDURSDÓTTIR,
(Diddín),
Melasíðu 4e,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnu-
daginn 11. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug.
Guðmundur Svavarsson, Líney Arnardóttir,
Elvar Guðmundsson,
Laufey Kristjánsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
EINAR GUÐMUNDSSON
verkfræðingur,
Hrauntungu 37,
Kópavogi,
sem lést á heimili sínu aðfaranótt föstudagsins
16. mars, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju
mánudaginn 26. mars kl. 13.00.
Sólveig Kristinsdóttir,
Guðmundur Konráð Einarsson,
Helga Einarsdóttir,
Kristín Andrea Einarsdóttir, Jóhann Ingibergsson,
Berghildur Ýr Einarsdóttir, Haukur Einarsson,
Ásdís Erla, Sigrún Björk, Einar Aron og Hilmir Nói.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SKÚLI MAGNÚSSON ÖFJÖRÐ
frá Skógsnesi, Gaulverjabæjarhreppi,
síðast til heimilis
í Reykjamörk 1,
Hveragerði,
varð bráðkvaddur á heimili sínu að kvöldi
þriðjudagsins 20. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jón Ingi Skúlason Öfjörð, Gerður Helgadóttir,
Þórdís Kr. Skúladóttir Öfjörð, Ingólfur Einarsson,
Sveinn Skúlason Öfjörð, Helga Hjartardóttir,
Þóra Skúladóttir Öfjörð, Ríkharður Jónsson,
Ingigerður Skúladóttir Öfjörð, Hrafn Sigurðsson,
Magnús Þ. Skúlason Öfjörð, Þórunn R. Sigurðardóttir,
afabörn og langafabörn.