Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 54

Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 54
Það fer óþolandi illa saman, aura- leysi og ferðaþrá. ... 61 » reykjavíkreykjavík ÉG hitti á þá Arnar Guðjónsson (söngur, gítar, hljómborð), Hall Hallsson (bassi) og Nóa Stein Ein- arsson (trommur) í hljóðveri þeirra en Andri Ásgrímsson (hljómborð, gítar) var vant við látinn þennan dag- inn. Spjallið hefst óformlega; við sitj- um innan um allra handa hljóðvers- græjur, tölvur og hljóðfæri og lepjum rjúkandi kaffi. Hvort það er löngu hléi frá viðtölum að þakka eða einhverju öðru eru Leaves-menn æði skrafhreifnir og spilin eru lögð á borðið eitt af öðru í hressilega opnu spjalli um afdrif og örlög sveit- arinnar til þessa. „Það var fúlt … en síðan frábært,“ segir Arnar og er að vísa í það þegar nafni hans Ólafsson, gítarleikari, hætti í hljómsveitinni haustið 2005. Tónleikaferðalag um Bretland til að fylgja eftir annarri plötu sveit- arinnar, The Angela Test, átti þá að hefjast tíu dögum síðar og eðlilega fór allt í uppnám. „Þetta varð geð- veikt gaman því að við þetta neydd- umst við til að bretta upp ermar og bara redda þessu. Þannig að við fór- um út í miklum vígamóð. Bandið varð þéttara og það kom meiri kraftur inn í það. Fyrstu fernir, fimm tónleikarn- ir fóru í að fínpússa, ég þurfti að svissa oftar frá píanói yfir á gítar og Andri fór líka að spila meira á gítar. Við þurftum að spinna nýja kafla inn í þetta gat sem myndaðist þegar ég var að skipta yfir í annað hljóðfæri og sú vinna þétti hópinn mikið. Við vor- um farnir að spinna meira eftir því sem leið á túrinn og það var rosalega gaman og spennandi að fara upp á svið undir þessum kringumstæðum.“ Hallur segir að ýmislegt hafi hreinsast út þegar hljómsveitin breyttist í kvartett. „Við urðum að hugsa lögin upp á nýtt og breyta öll- um útsetningum. Fyrst hugsaði ég „Fokk! Við erum fimm manna hljóm- sveit, hvað eigum við að gera?“. En þetta varð svo til góðs, og við erum t.d. til muna öruggari í hljóðverinu núna og vitum betur hvað það er sem við viljum ná fram.“ Hallur lýsir því að Angela Test hafi bara komið almennilega út í Bretlandi, og hérlendis varð hún svo gott sem ósýnileg. „Þetta var mjög furðulegt, hún var flutt hingað inn eins og hver önnur erlend plata. Það var ekkert gert hérna heima og við sjálfir vorum úti á meðan. Þetta var mjög súrt.“ Ekki brenndir Arnar segir í þessu sambandi að miðpunktur Leaves hafi alltaf verið Bretland. „Við gerðum samninga þar og umboðsmennirnir eru breskir. En auðvitað viljum við sinna Íslandi líka. Og það sem við ætlum að gera núna er að byrja hér og ekki pæla í útlönd- um strax. Okkur langar til að losna við allt þetta fyrirtækishavarí sem er í kringum þetta og gera þetta sjálfir. Platan kemur út hérna fyrst og svo sjáum við til hvernig og hvort það verður sjoppað með hana eitthvað áfram. Við eigum greiða leið í gegn- um einhver óháð fyrirtæki í Bret- landi þar sem hinar tvær plöturnar komu út á stórum merkjum. En það eru engir peningar í þessum bransa lengur, það er allt orðið breytt.“ Strákarnir vilja þó ekki meina að þeir séu brenndir af viðskiptum sín- um við stór útgáfufyrirtæki. Fyrsta platan, Breathe, kom út undir merkj- um B-Unique, sem komst svo í eigu Warner-risans og sú síðari kom út á vegum Island Records. Þá var Breathe gefin út í Bandaríkjunum af Dreamworks. „En þetta er mjög einfalt í þessum stóra bransa,“ segir Arnar. „Þetta er bara „hardcore“. Ef þú selur ekki vissan fjölda af plötum þá er ekkert verið að púkka upp á þig meira. Ég hef aldrei fengið beint á tilfinninguna að það sé verið að ráðskast eitthvað með mann, ég upplifi þetta bara sem svona þungt hlass.“ Hallur bætir því við að honum hafi samt þótt stórfyr- irtækjareynslan ívið betri í fyrsta skiptið. „Þá var nánara samstarf á milli okkar og útgáfunnar. En maður upplifði þetta allt saman sem ein- hvers konar færiband. Það er gerður samningur, og svo er ákveðið mikið og ef það gengur ekki þá er þetta bara búið spil. Það er ekkert verið að taka neina óþarfa áhættu.“ Músík og meik Hallur dæsir og segir kíminn. „Já, þetta er allt svo leiðinlegt … nei, mér finnst bara fyndið að maður lendir alltaf í því að tala um þetta í öllum viðtölum.“ Blaðamaður ákveður því að ljúka leiðindaspurningunum með því að Morgunblaðið/ÞÖK ROKKSVEITIN LEAVES HEFUR VERIÐ HULIN SJÓNUM ALMENNINGS AÐ MESTU UNDANFARIÐ EN ÞAÐ ER AF OG FRÁ AÐ HÚN HAFI LAGT UPP LAUP- ANA. LEAVES, SEM NÚ ER KVARTETT, ER Í ÓÐA ÖNN AÐ TAKA UPP ÞRIÐJU BREIÐSKÍFU SÍNA OG NÚ UM HELGINA TEKUR NÝTT LAG, „KINGDOM COME“ AÐ HLJÓMA Í ÚTVARPI. ARNAR EGGERT THORODDSEN RÆDDI VIÐ ÞRJÁ AF FJÓRUM MEÐLIMUM SVEITARINNAR. LEAVES

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.