Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 57
Aðgangseyrir: 1500 kr. (750 kr. fyrir listvini og 500 kr. fyrir nemendur)
Sálmar á afmælisári
L I S T V I N A F É L A G H A L L G R Í M S K I R K J U
25. starfsár • 2006-2007
25. mars 2007, sunnudagur kl. 17.00 í Hallgrímskirkju
Sálmar V ... Faðmur „sorgin og lífið“
Kirstín Erna Blöndal, sópran
Örn Arnarson, gítar • Gunnar Gunnarsson, píanó
Jón Rafnsson, bassi
Einstakur flutningur sálma um huggun og von
fös. 23/3 kl. 20 fim. 29/3 kl. 20
HOLLYWOODPARIÐ Angelina
Jolie og Brad Pitt virðist ekki
ætla að láta deigan síga í hjálp-
arstarfinu. Nú hafa þau ánafnað
heilsugæslustöð í Súdan 100.000
bandaríkjadollurum.
Stöðin ber heitið Duk Lost Bo-
ys Clinic og verður sú fyrsta
sinnar tegundar í Duk-sýslu í
Suður-Súdan. Hún verður opnuð í
vor og mun þjóna yfir 150 þús-
und manns.
Stöðin er hugmynd Johns Daus,
sem er einn af „týndu strákun-
um“ í heimildamyndinni God
Grew Tired of Us, sem Pitt fram-
leiddi og vann m.a. til dómnefnd-
arverðlauna á Sundance-
kvikmyndahátíðinni í fyrra.
Í myndinni segir frá 25 þúsund
strákum sem flúðu stríðið í Súdan
og ferðuðust í fimm ár til að
komast í flóttamannabúðir í Ken-
ýa. Um fjögur þúsund þeirra, þar
á meðal Dau, komust síðan þaðan
til Bandaríkjanna.
Heilsugæslustöðin er í bænum
sem Dau flúði upphaflega frá.
„Jolie og Pitt standa fyrir am-
erískt göfuglyndi,“ sagði Dau um
parið. „Vonandi mun framlag
þeirra hvetja aðra til að vera
með okkur í að byggja upp Suð-
ur-Súdan.“
Framlag þeirra til heilsugæsl-
unnar kemur úr Jolie-Pitt-
sjóðnum, sem þau stofnuðu til að
aðstoða við mannúðarmál víðs-
vegar um heim.
Jolie og Pitt aðstoða í Súdan
Reuters
Örlát Brad Pitt og Angelina Jolie koma á frumsýningu God Grew Tired of
Us í Los Angeles fyrr á þessu ári.
ÞAU Leonardo DiCaprio og Kate
Winslet ætla að leiða saman hesta
sína á nýjan leik í mynd sem fjallar
um brostnar vonir eftirstríðsáranna
í Bretlandi. Þetta verður í fyrsta
sinn sem leikararnir sjást saman á
skjánum frá því þeir léku einhverja
frægustu elskendur kvikmyndasög-
unnar, Rose og Jack í Titanic.
Myndin nýja, sem ber heitið Re-
volutionary Road, er gerð eftir sögu
Richards Yates. Það er kvikmynda-
gerðarmaðurinn Sam Mendes sem
ræðst í gerð myndarinnar en hann
er eiginmaður Winslet.
Winslet
og DiCaprio
saman á ný
Sameinuð DiCaprio og Winslet kela um borð í Titanic.
KASTLJÓSMAÐURINN Helgi Selj-
an bloggaði ansi skemmtilega í lok
vikunnar þegar hann sagði frá
uppákomu í Kastljósinu sem tengd-
ist Ómari Ragnarssyni. Látum
Helga hafa orðið:
„Ómar og félagar kynntu Íslands-
hreyfinguna í dag. Talaði stuttlega
við Ómar í Kastljósinu áðan og ég
hef sjaldan haft hjá mér viðmælanda
sem var eins stressaður.
Stressið kom þó viðtalinu lítið við.
Ómar átti nefnilega að vera mættur á svið í Borg-
arleikhúsinu rúmum fimm mínútum eftir að viðtalinu
lauk. Þar leikur hann að mig minnir alzheimers-
sjúkan mann á elliheimili sem segir fátt. Góð hvíld fyr-
ir Ómar eftir að hafa talað í allan dag. Fáheyrt að
menn taki sér hvíld frá amstri dagsins í söngleik í
Borgarleikhúsinu.
Þegar viðtalinu lauk stóð Ómar snöggt upp losaði af
sér litla míkrafóninn í brjósti jakka síns og hugðist
skutla honum á borðið. Míkrafónninn lenti í vatnsglas-
inu mínu og Ómar tók bakfall af hlátri – hafði ekki
tíma fyrir fleirtölu bakfall – meðan míkrafónninn
dinglaði í vatnsglasinu eins og ormur á öngli.
Stuttu áður en viðtalið hófst og Ómar var að koma
sér fyrir tók ég eftir einhverju sem gægðist undan
skyrtunni hans. Ómar var eins og menn hafa eflaust
tekið eftir með bindi hnýtt um hálsinn en það sem
menn vissu ekki var að undir þeirri skyrtu og því bindi
var önnur skyrta, annað bindi. Ómar var þannig í leik-
búningi sínum undir búningi stjórnmálaforingjans.
Fyrst eftir að ég kynntist Ómari tók ég eftir því að
hann gekk alltaf með tvö úr á handleggnum. Vissi ekki
að búningarnir væru líka tveir.
Hljóðmaður sem var á staðnum sagði við mig þegar
ég furðaði mig á búningnum undir búningnum: „Bless-
aður, þakkaðu bara fyrir að hann skuli ekki vera í
jólasveinabúningnum undir öllu saman.““
Meira: 730.blog.is
„… og Ómar tók bakfall af hlátri“
Helgi Seljan.
Með hundinn
upp að altarinu
ÞAÐ ER ekki óalgengt í íslenskum
brúðkaupum að sjá börn brúð-
hjónanna uppi við altarið með for-
eldrum sínum. Hundar eru aftur á
móti yfirleitt ekki gestir í hérlendum
kirkjum.
Hin íðilfagra og aðþrengda Eva
Longoria mun hins vegar hafa afráð-
ið að Jinxie, hvítur möltuhundur
hennar, muni fylgja henni inn
kirkjugólfið þegar hún gengur í það
heilaga með körfuboltastjörnunni
Tony Parker hinn 7. júlí nk. Verður
Jinxie brúðhjónunum við hlið þegar
þau strengja heit sín.
Samkvæmt heimildarmanni Nat-
ional Enquirer-tímaritsins mun
Jinxie bera sérstaka demantsól við
tilefnið með áletraðri dagsetningunni
7/7/07. Það er ljóst að Eva hefur
hundinn sinn í hávegum og mun hún
eyða rúmum 30.000 krónum í alls
kyns lúxusdekur og tannhreinsun
fyrir Jinxie í hverjum mánuði.