Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 60
60 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
/ KRINGLUNNI
WILD HOGS kl. 1:30 - 3:50 - 6 - 8:15 - 10:30 B.i. 7 ára
300 kl. 5:30 - 8 - 10:10 - 10:30 B.i. 16 ára DIGITAL
NORBIT kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 LEYFÐ
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 1:30 LEYFÐ
eeee
V.J.V.
LADY CHATTERLEY kl. 9
HORS DE PRIX ísl. texti kl. 4 - 6
TELL NO ONE (NE LE DIS A PERSONE) kl. 3:30 - 10:20
PARIS, JE T'AIME kl. 5:40
ALLIANCE FRANÇAISE, Í SAMVINNU
VIÐ PEUGEOT OG BERNHARD, KYNNA:
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Í HÁSKÓLABÍÓ 3.MARS TIL 1. APRÍL
STÆRSTA MYND ÁRSINS
Í BANDARÍKJUNUM
STÆRSTA OPNUN
ÁRSINS Á ÍSLANDI
FRÁ HÖFUNDI
SIN CITY
eee
VJV, TOPP5.IS
eee
SV, MBL
THE GOOD GERMAN kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
300 kl. 3:30 - 6 - 8:30 - 11 B.i. 16 ára
MUSIC AND LYRICS kl. 8
STÆRSTA GRÍNMYNDIN Í BANDAR
GEORGE CLOONEY, TOBEY MAGUIRE OG CATE
BLANCHETT SÝNA STÓRLEIK Í MAGNAÐRI MYND
LEIKSTJÓRANS STEVEN SODERBERGH
VAR VALINN BESTA MYND
ÁRSINS Í FRAKKLANDI
eee
L.I.B. - TOPP5.IS
á allar sýningar merktar með appelsínugulu
á laugardögum og sunnudögumSPARBÍÓ 450kr
eee
„Meinfyndin!“
- S.V., Mbl
NÆSTSÍÐASTA til-
raunakvöld Músíktilrauna
varð í meira lagi sögulegt.
Sölulegt fyrir tilraunirnar
þetta árið fyrir það að þrjár
sveitir komust áfram og eins
að tvær hljómsveitir voru án
söngs, en sögulegar almennt
fyrir að í miðjum klíðum varð
að gera hlé og reka alla úr
húsinu fyrir klúður Base
Camp, rekstraraðila Loft-
kastalans. Þetta setti eðlilega
nokkurn svip á tilraunirnar,
en kom ekki svo að sök því
áheyrendur tóku öllu með
stakri ró og ekki virtist þetta
koma niður á músíkinni.
Tilraunirnar fóru vel af stað
þetta kvöld með náttfatapartíi
Black Sheep, fyrstu sveit-
arinnar á svið. Sveitin var vel
þétt, en vantaði snerpu, náði
ekki að hrífa mann með og
söngurinn var ekki vel heppn-
aður. Seinna lag þeirra félaga
var miklu betra, en hefði líka
mátt spila talsvert hraðar.
Rolandinn reddaði miklu og
gítarleikur var fínn.
Gítarspil var ekki síður vel
heppnað hjá Eugene, en helsti
ljóður á þeirri sveit var eig-
inlega að hún var ekkert nema
gítarinn, það vantaði í hana
alla stemningu og þegar mað-
ur var búinn að fá nóg af gít-
arsýru var ekkert annað í
boði. Flott spilað þó.
Aftur á móti var nóg að ger-
ast hjá næstu sveit, Artika;
vel þétt sveit með frábæran
trommuleikara og afbragðs
bassaleikara. Gítarspil var
líka gott, en söngurinn ekki
eins vel heppnaður, hádrama-
tískt emó og leiðigjarnt þegar
á leið. Seinna lag sveitarinnar
var hreint fyrirtak og unun að
fylgjast með trommu- og
bassaleik.
Þegar hér var komið sögu
var gert hlé á allri skemmtan
og öllum vísað úr húsinu.
Spurningakeppnin Gettu bet-
ur var að hefjast í hinum enda
hússins og þar sem ekki var
leyfi fyrir því að hafa svo
marga í húsinu varð eitthvað
undan að láta. Segir sitt um
ástandið í henni Reykjavík
anno 2006 að eina athvarf fyr-
ir ungmennamenningarhátíð-
ina Músíktilraunir sé aflóga
leyfislaus hjallur.
Eftir hléið langa hófst
hljóðfærasláttur með Eyr-
arbakkasveitinni Narfa. Ekki
skorti þar fínar hugmyndir,
en sitthvað vantaði upp á að
láta þær ganga upp, til að
mynda það að hljómsveit-
armenn næðu betur saman.
Seinna lagið var klif-
unarkennt, byggt á góðum
gítarfrasa og heppnaðist
bærilega.
Æsismenn voru vel þéttir,
lagið fínt og söngur góður.
Þeir fóru aftur á móti illa út af
sporinu í seinna laginu sem
virkaði stefnu- og tilgangs-
laust.
The Custom spilar blúsað
rokk og gerir það býsna vel.
Það vakti reyndar ekkert at-
hygli í fyrra lagi þeirra félaga
en það síðara var þrælgott,
góður lýrískur gítar og þétt
spilamennska. Spunakaflarnir
hjá þeim félögum sýndu þó að
þeir eiga nokkuð í land með að
skilja blúsinn almennilega –
það var allt of mikið af nótum í
sólóunum. Ókeypis ráðgjöf
strákar: minna er meira.
Hip Razikal mættu til leiks
eftir tveggja ára æfingar og
sýndu gríðarlega framför. Það
kom ekki á óvart að bassa-
leikur var fyrsta flokks, en
gaman að sjá að öll sveitin
hafði tekið stórstígum fram-
förum, ekki síst í lagasmíðum.
Músíkin var nokkuð hefð-
bundin – fyrra lagið emo, það
síðara indískotið, en lögin
grípandi góð og söngur mjög
vel útfærður.
Líkt og Eugene sleppti A
Long Way From Nowhere
söngvaranum og lentu í því
sama – fyrsta lagið vel heppn-
að, hátimbraðir gítarflekar,
heillandi hljóðheimur og vel
útfærður. Seinna lagið var aft-
ur á móti meira af því sama,
vissulega vel spilað, en það
vantaði eitthvað til að lyfta
lögunum aðeins hærra.
Overrated Monday var vel
þétt sveit en slakur söngur
dró sveitina óneitanlega nokk-
uð niður. Fyrra lag hennar
var þó vel heppnað undir það
síðasta og seinna lag sveit-
arinnar var fjári gott.
Þegar síðasta hljómsveitin
þetta tilraunakvöld sté á svið
var kvöldið vissulega orðið
býsna langt. Öll þreyta hrökk
þó af mönnum þegar Shogun
byrjaði að spila, því keyrslan
var hrikalega mögnuð og
sveitin geysiþétt og skemmti-
leg. Þó allt væri í botni var
ekki bara hamagangur í boði,
frábærum riffum rigndi yfir
áheyrendur, flestir ekki nema
nokkrar sekúndur að lengd,
en ógleymanlegir engu að síð-
ur. Söngvarinn stóð sig líka
vel þó hann væri ekki alltaf
verið í toppformi.
Salurinn kaus The Custom,
en dómnefnd var nokkur
vandi á höndum – þurfti að
velja á milli þriggja afbragðs-
sveita; Shogun, Hip Razikal
og Artika. Ekki var pláss fyrir
tvær aukasveitir og því fóru
Shogun og Hip Razikal áfram.
Sögulegt
tilraunakvöld
TÓNLIST
Músíktilraunir, fjórða til-
raunakvöld. Haldið í Loftkast-
alanum 22. mars.
Útaf Æsir
stóðu sig vel
framan af en
enduðu útí
móa.
Eyrbekkingar Narfsmenn
slepptu sér í restina.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Flekar Gítarsöngur A Long Way From Nowhere.
Þétt Artika státaði af besta
hrynpari tilraunanna.
Náttfatapartí Black
Sheep brá á leik.
Gítarsýra Þremenningarnir í
Eugene slepptu söngnum.
Efnilegt Overrated Monday
var lengi í gang. Árni Matthíasson