Morgunblaðið - 05.04.2007, Side 15
Fljótsdalshéra› - Lyngási 12 - 700 Egilsstöðum - sími 4 700 700 - www.fljotsdalsherad.is
fl
jo
ts
d
a
ls
h
er
a
d
.i
s
Nýr miðbær á Egilsstöðum
Vaxandi sveitarfélag
Mikill uppgangur á sér nú stað á Egilsstöðum og
nágrenni. Íbúum fjölgar hratt og í dag eru um 200
íbúðir í byggingu og fyrirhugað að byggja aðrar
200 á næstu 2–3 árum.
Umsóknir
Umsóknir skulu berast til Hugrúnar Hjálmarsdóttur,
Verkfræðistofu Austurlands, Kaupvangi 5,
700 Egilsstöðum, eigi síðar en 15. maí 2007.
Fyrirspurnum svarar Hugrún Hjálmarsdóttir
verkefnisstjóri, hugrun@verkaust.is,
sími 471 1551. Deiliskipulag miðbæjarins á
Egilsstöðum ásamt greinargerð má finna á
www.egilsstadir.is.
Einstakt tækifæri til uppbyggingar
Deiliskipulag fyrir nýjan miðbæ á Egilsstöðum var samþykkt í febrúar 2006 í kjölfar hugmyndasam-
keppni sem Fljótsdalshérað efndi til um skipulag á miðbæjarsvæðinu. Í gegnum hinn nýja miðbæ
liggur göngugata, „Strikið“, sem verður aðalslagæð fjölbreyttrar verslunar og þjónustu þar sem
mannlíf getur blómstrað á góðvirðisdögum. Markmiðið er að á Egilsstöðum rísi öflugur og
samkeppnishæfur miðbær sem þjóni landsfjórðungnum öllum.
Byggingaraðilar, fjárfestar og fyrirtæki
Fljótsdalshérað auglýsir eftir byggingaraðilum, fjárfestum og fyrirtækjum sem vilja taka þátt í
uppbyggingu hins nýja miðbæjar. Skipulögð eru svæði fyrir íbúabyggð, verslun og þjónustu. Óskað
er eftir umsóknum um lóðir til uppbyggingar innan ramma skipulagsins. Við mat á umsóknum vegur
fjárhagslegur og faglegur styrkur til að ljúka framkvæmdum á skömmum tíma þungt. Einnig verður
haft að leiðarljósi hve vel uppbyggingin fellur að skipulaginu og hversu jákvæð áhrif fyrirhuguð
starfsemi er líkleg til að hafa á umhverfi og mannlíf í miðbænum.
Landshlutamiðstöðin Egilsstaðir
Í greinargerð sem Land-ráð sf. hefur unnið fyrir samgönguyfirvöld, „Áhrifasvæði höfuðborgar-
svæðisins og helstu þéttbýlisstaða“, kemur í ljós að Egilsstaðir eru sannkallaðar krossgötur
verslunar og þjónustu á Austurlandi. Niðurstöðurnar sýna að þjónustusvið Egilsstaða er mjög
víðfeðmt og nær allt frá Hornafirði til Öxarfjarðar. Þannig segjast 92% Austfirðinga helst sækja
þjónustu til Egilsstaða, 36% íbúa Austur-Skaftafellssýslu og 31% íbúa Norður-Þings. Það er
því ljóst að mikil tækifæri liggja í uppbyggingu á fjölbreyttri þjónustu á Egilsstöðum.