Morgunblaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
BRAGI Guðbrandsson, forstjóri
Barnahúss, segir kynferðisbrotamál
það sem dæmt var í héraðsdómi á
þriðjudag, þar sem þrír piltar voru
sýknaðir af brotum gegn 16 ára
stúlku, vera allt hið óvenjulegasta.
Þar vísar hann aðallega til þess að
svonefnt könnunarviðtal við stúlk-
una hjá Barnahúsi hafi verið lagt til
grundvallar í málinu. Slíkt könn-
unarviðtal sé ekki skýrslutaka fyrir
réttarvörslukerfið, heldur gegni það
því hlutverki að vera gagn fyrir
barnaverndaryfirvöld til að geta
sinnt sínu hlutverki og veitt barninu
meðferð. „Þessari skýrslutöku var
því aldrei ætlað að vera gagn í dóms-
máli,“ segir Bragi. Aðspurður hví
skýrslan hafi orðið gagn í málinu,
segist Bragi telja að lögreglan hafi
óskað eftir því að
leggja skýrsluna fram
sem málsgagn. „En
dómstóllinn á við sitt
mat að leggja til grund-
vallar framburð-
arskýrslu barnsins fyr-
ir dómi. Ég hefði talið
eðlilegt að dómstóllinn
byggði sína álitsgerð á
því sem stúlkan segir
fyrir dómi en ekki ein-
hverju sem kann að
koma fram í öðru við-
tali sem þjónar öðrum
tilgangi.“
Þegar Bragi er spurður hvort það
hafi verið með vitund og samþykki
Barnahúss að umrædd skýrsla hafi
orðið að gagni í dómsmáli, segist
Bragi ekki kannast við að það hafi
verið borið undir Barnahús. „Þetta
er skýrsla sem Barnahús lætur
barnaverndarnefnd í té
vegna þess hlutverks
sem nefndin hefur
samkvæmt barna-
verndarlögum,“ segir
hann.
Útilokar ekki
mistök
Bragi segir á hinn
bóginn að í könn-
unarviðtölum hjá
Barnahúsi sé leitast
við að nota sömu að-
ferð og við venjulegar
skýrslutökur. Því segir hann að
Barnahús þurfi að fara yfir málið til
þess að kanna hvort mistök hafi átt
sér stað eins og héraðsdómur hefur
gefið til kynna. „Það er ekki hægt að
útiloka að mistök hafi átt sér stað og
þá verðum við að læra af því. En það
er ástæða til að nefna að í Barnahúsi
eru tekin um 200 viðtöl árlega, þar af
50 könnunarviðtöl og eru þau ekki
notuð við málsmeðferð fyrir dóm-
stólum.“ Segir Bragi að í ljósi þessa
fjölda viðtala geti átt sér stað mis-
tök. „Mistök eiga ekki að koma svo
mikið að sök í þessum könn-
unarviðtölum því tilgangurinn með
þeim er ekki sá að leiða í ljós sekt
eða sýknu manna, heldur að meta
ástand barnsins og líðan þess.“
Aðspurður hvort lögregla eða
ákæruvald hafi heimild til að seilast í
könnunarviðtöl Barnahúss og nota
þau eins og þeim þóknast segist
Bragi „í rauninni ekki“ telja að svo
sé. „En það hefur verið regla hjá
okkur að kappkosta að eiga gott
samstarf við lögregluna við rann-
sókn mála þannig að það hefur aldr-
ei verið fyrirstaða af okkar hálfu að
veita þeim aðgang að þessum könn-
unarviðtölum ef þurfa þykir.“
Segir könnunarviðtöl vegna kynferðisbrota ætluð barnaverndaryfirvöldum
Skýrslan ekki ætluð dómi
Bragi Guðbrandsson
SKEMMDARVARGAR unnu millj-
ónatjón á vinnuvélum verktakans
Magna í Helgafellshverfi í fyrrinótt
og hefur verktakafyrirtækið kært
spjöllin til lögreglunnar.
Að sögn Harðar Gauta Gunnars-
sonar framkvæmdastjóra liggur
ekki fyrir hverjir voru þarna að verki
en rannsókn er hafin á málinu.
Átt var við sjö vinnuvélar, þar af
fjórar skemmdar verulega. Á hinar
vélarnar var málað. „Rúður voru
brotnar og stjórnbúnaður skemmd-
ur í einni vélanna,“ segir Hörður.
„Vélarnar verða fluttar á verkstæði.
Þó svo að við séum tryggðir fyrir
skemmdunum erum við ekki tryggð-
ir fyrir því versta sem er vinnutafir.
Okkar stærsta tjón felst í að geta
ekki látið vélarnar vinna áfram.
Þetta felur í sér nokkurra daga töf
við að fá vélarnar aftur.“
Hörður segir að tjónið verði end-
anlega metið þegar viðgerðarkostn-
aður liggur fyrir. Giskað er á að gler-
ið sem var brotið ásamt stjórnbúnaði
sem var skemmdur megi meta á
margar milljónir króna.
Fordæma skemmdarverkin
Varmársamtökin sem mótmælt
hafa framkvæmdum við tengibraut
sem fyrirhuguð er milli Helgafells-
hverfisins og Vesturlandsvegar, for-
dæma skemmdarverkin. Sömuleiðis
fordæma Helgafellsbyggingar
skemmdarverkin og ítreka þann
ásetning sinn að vinna áfram að upp-
byggingu Helgafellshverfis í sam-
ræmi við þau leyfi sem fyrirtækið
hefur til framkvæmda á svæðinu.
Til að auka líkur á að sátt náist um
málið í heild sinni er skorað á þá sem
unnu skemmdirnar í nótt að gefa sig
fram og axla ábyrgð gjörða sinna.
Vonast fyrirtækið til þess að lög-
regla upplýsi málið sem fyrst og að
þeir seku verði dregnir til ábyrgðar.
Alvar-
leg eyði-
legging
Morgunblaðið/RAX
Skemmdir Málað, brotið og bramlað á vettvangi og þarf að setja vinnuvélarnar í viðgerð sem tefur verkið. Millj-
ónatjón var unnið en Varmársamtökin fordæma verknaðinn þótt þau séu á hinn bóginn mótfallin framkvæmdum.
Skemmdarvargar
í Helgafellshverfi
GEIR H. Haarde forsætisráðherra
mun í dag, 17. maí, á þjóðhátíðardegi
Norðmanna, afhenda fyrsta eintakið
af nýrri útgáfu Sverris sögu sem er
fyrsta bókin af
fjórum í þjóðar-
gjöf Íslendinga til
Norðmanna í til-
efni af 100 ára af-
mæli endurreists
konungsveldis í
Noregi árið 2005.
Afhendingin á sér
stað við hátíðlega
athöfn í Norræna
húsinu kl. 18.
Fyrir tveimur árum afhenti fyrr-
verandi forsætisráðherra, Halldór
Ásgrímsson, gjafabréf frá íslensku
þjóðinni þar sem kveðið var á um
sérstaka útgáfu fjögurra Noregs-
konungasagna í fimm hundruð ein-
tökum handa norskum lesendum.
Þessar sögur eru Sverris saga,
Morkinskinna, Böglunga saga og
Hákonar saga Hákonarsonar.
Sverris saga er eitt af stórvirkjum
fornbókmennta Íslendinga og elsta
veraldlega konungasagan sem varð-
veist hefur. Sagan er gleggsta heim-
ild sem varðveist hefur um valdabar-
áttuna í Noregi á síðari hluta 12.
aldar. Í formálanum er nefnt nafn
höfundar, Karls Jónssonar, ábóta á
Þingeyrum, sem ritaði upphaf sög-
unnar eftir fyrirsögn Sverris sjálfs.
Geir af-
hendir
Sverris
sögu
Geir H. Haarde
LJÓST er að bæði
Árni Johnsen og
Björn Bjarnason
munu færast nið-
ur um eitt sæti á
framboðslistum
Sjálfstæðisflokks-
ins þegar lands-
kjörstjórn úthlut-
ar þingsætum um
helgina. 18,1%
kjósenda flokksins í syðra Reykja-
víkurkjördæminu strikuðu yfir nafn
Björns og 21,4% nafn Árna.
Gestur Jónsson, formaður lands-
kjörstjórnar, segir að landskjör-
stjórn muni koma saman á sunnu-
daginn og er gert ráð fyrir að gefin
verði út kjörbréf þá. Gestur segir
enga þörf vera á því að hann víki sæti
vegna starfa sinna í tengslum við
svokallað Baugsmál enda séu út-
strikanirnar sem slíkar ekki í verka-
hring landskjörstjórnar. „Lands-
kjörstjórn mun ekki taka neitt
sérstaklega á neinum útstrikunum.
Við fáum einfaldlega atkvæðatölur
frá yfirkjörstjórnum og þá er búið að
vinna úr öllum útstrikunum.“
Eitthvað var um útstrikanir á öðr-
um frambjóðendum allra flokka í
flestum kjördæmum en fátt bendir
til að þær hafi verið fleiri en venju-
lega.
Falla niður
um eitt sæti
Gestur Jónsson
♦♦♦
♦♦♦
LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
hefur synjað Aðföngum og Fersk-
um kjötvörum um innflutning á
fersku lambakjöti frá Nýja-Sjá-
landi. Fyrirtækin létu senda sér
um 80 kíló af sýnishornum í lok
febrúar og í kjölfarið sendu þau inn
umsókn um innflutning til ráðu-
neytisins. Svar frá ráðuneytinu
barst sl. þriðjudag. Í synjun sinni á
umsókn fyrirtækjanna vísar ráðu-
neytið til þess að samkvæmt lögum
og reglugerðum um dýrasjúkdóma
og varnir gegn þeim þurfi sá sem
sækir um innflutning á hrárri kjöt-
vöru að láta landbúnaðarráðuneyt-
inu í té nauðsynlegar upplýsingar
um vöruna til athugunar og sam-
þykkis áður en varan er send frá
útflutningslandi. Þar sem varan
hafi þegar verið send af stað og
komin til landsins þegar umsóknin
barst, skorti lagaskilyrði til þess að
heimila innflutninginn.
Synjunin reist á
öryggissjónarmiðum
Í synjun ráðuneytisins er jafn-
framt tekið fram að ákveðið hafi
verið að fela Landbúnaðarstofnun
að vinna ítarlegt áhættumat vegna
hugsanlegs innflutnings á kinda-
kjöti og gera úttekt á framleiðslu-
aðstöðu og ferlum í Nýja-Sjálandi
til að hindra að dýrasjúkdómar
berist til landsins og til að tryggja
að framleiðslan uppfylli þau skil-
yrði sem gerð eru samkvæmt
landslögum.
„Það kom mér fyrir það fyrsta á
óvart að inn í okkar miklu lamba-
kjötsauðlind hafi einhver viljað
fara að flytja inn nýsjálenskt
lambakjöt, sem að vísu hefur farið
víða um heiminn,“ segir Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra.
Að hans sögn er synjunin fyrst og
fremst reist á öryggissjónarmið-
um; honum beri skylda til þess sem
landbúnaðarráðherra að gæta ýtr-
ustu varúðar og láta taka það út
hvernig framleiðslumálum sé hátt-
að í þeim löndum sem landbún-
aðarvaran er flutt frá. „Það liggur
fyrir að hingað hafa borist sjúk-
dómar sem við glímum enn við af-
leiðingarnar af, eins og garnaveiki
og riðuveiki. Það liggur líka fyrir
að í Nýja-Sjálandi eru sjúkdómar
sem ekki eru til hér og lömbin þar
eru sprautuð allt sitt vaxtarskeið
með ormalyfjum,“ segir Guðni.“
Aðföng furða sig á því hversu
langan tíma afgreiðsla málsins tók
og ætla að leggja inn nýja innflutn-
ingsbeiðni í næstu viku áður en ný
sýnishorn af lambakjöti verða send
frá Nýja-Sjálandi.
Ráðuneytið hafnaði
innflutningi kindakjöts
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt karl-
mann í hálfs árs fangelsi fyrir að
hafa í 15 skipti pantað og neytt veit-
inga á veitingastöðum í Reykjavík
án þess að geta greitt fyrir þær.
Maðurinn hefur sjö sinnum áður
verið dæmdur fyrir sama athæfi í
samtals 34 skipti. Héraðsdómur
dæmdi manninn í 12 mánaða fang-
elsi en Hæstiréttur mildaði refs-
inguna og tók tillit til þess að upp-
hæðin, sem maðurinn sveik út, nam
samtals 65 þúsund krónum.
Raðafæta
dæmd