Morgunblaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 6
TÆPLEGA tuttugu punda urriði veiddist í
Þingvallavatni í fyrrakvöld. Fullorðinn veiðimað-
ur fangaði fiskinn við Arnarfell. Blaðamaður sem
var við veiðar um kvöldið fyrir landi þjóðgarðs-
ins hitti tvo veiðimenn, sem höfðu fyrr um kvöld-
ið aðstoðað þann sem veiddi stórurriðann við að
vega hann og mæla. Reyndist fiskurinn 87 cm
langur og 19 og hálft pund. Áttu sjónarvottarnir
varla orð til að lýsa mikilfengleik fisksins.
„Þetta er tvímælalaust einn af þeim stærstu,“
segir Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur sem
hefur á liðnum árum rannsakað lífshætti Þing-
vallaurriðans. „Árið 2005 veiddist einn 92 cm á
stöng í Vatnsvikinu, en það var hængur, álíka
þungur.“ Jóhannes segir alltaf veiðast eitthvað
af urriðum á bilinu 10 til 15 pund en fiskar stærri
en það eru sjaldgæfir. „Jafnstærstu fiskarnir
eru upp undir 90 cm. Sá stærsti sem ég hef náð
við rannsóknirnar var 96 cm. Það hægir á vext-
inum undir lokin, þetta eru þá orðin gam-
almenni.“
Fyrr í vikunni náði veiðimaður tveimur urr-
iðum á flugu fyrir landi þjóðgarðsins, tólf og
tveggja punda. Veiddust þeir nærri miðnætti.
Má líklegt telja að fleiri urriðar hafi fallið fyrir
agni veiðimanna í vatninu á síðustu vikum. Eins
og margir vita er þetta tíminn þegar Þingvalla-
urriðinn er mest í yfirborðinu og næst landi.
Freistar hann eðlilega margra veiðimanna, en
menn eru hvattir til að umgangast þennan
merka urriðastofn með nærgætni, og sleppa
stórum fiskum ef unnt er. „Þessir fiskar geta
hrygnt allt að sex sinnum þannig að þeir geta
styrkt stofninn betur ef þeim er sleppt aftur,“
segir Jóhannes.
Bleikjan farin að gefa sig
Reyndir Þingvallaveiðimenn hafa sagt að þeg-
ar kjarrið í þjóðgarðinum tekur að bruma megi
eiga von á að bleikjan fari að taka. Það hefur ver-
ið raunin síðustu daga. Menn hafa verið að
kroppa upp fiska kvölds og morgna, til að mynda
á Lambhaga og á Öfugsnáða. Reyndur veiðimað-
ur, sem blaðamaður hitti á Snáðanum í fyrra-
kvöld, var kominn með fjórar bleikjur í pokann,
þar af eina langa og mikla, sem vó sjálfsagt ein
fjögur pund.
6 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
8
1
3
1
SVONA NOTAR ÞÚ
GLITNISPUNKTANA
• Útborgun í peningum
• Ferðalög
• Innborgun á sparnað
• Góðgerðamál
og margt fleira
VILDAR
KLÚBBUR
GLITNIS
FYRSTU leikskólaliðarnir út-
skrifuðust í gær frá svokall-
aðri Leikskólabrú sem kennd
hefur verið á vegum Mímis-
símenntunar. Er starfið í sam-
starfi við Eflingu stéttarfélag
og Reykjavíkurborg en mark-
miðið er að stuðla að fjöl-
þættri fagþekkingu á sviði
uppeldis og kennslu.
Þrjátíu konur, allar 45 ára
og eldri, útskrifuðust í gær og
hafa þær áralanga reynslu af
störfum í leikskólum. Stund-
uðu þær námið samhliða starfi
en lögð var áhersla á uppeld-
isfræði, félagsfræði og sál-
fræði en kennslan nær einnig
til listsköpunar, leikja og sam-
skipta. Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson borgarstjóri var
viðstaddur útskriftina sem
fram fór í Höfða. Á annað
hundrað starfsmanna leik-
skólanna í Reykjavík stundar
nú námið.
Leikskólaliðar útskrifaðir í fyrsta sinn
Morgunblaðið/Ómar
STANGVEIÐI
Um 20 punda urriði úr Þingvallavatni
efi@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Farin að taka Sigurður Steindórsson með fjórar vænar bleikjur við Öfugsnáða á
Þingvöllum í fyrrakvöld. Nokkurt kropp hefur verið kvölds og morgna.
gögnum málsins megi ráða að líf
hans hafi á tíðum einkennst af mik-
illi óreglu.
Skaðabótakröfum tveggja fyrir-
tækja og tveggja einstaklinga var
vísað frá dómi.
Símon Sigvaldason héraðsdómari
kvað upp dóminn. Af hálfu ákæru-
valdsins flutti málið Einar Laxness,
fulltrúi lögreglustjórans á höfuð-
borgarsvæðinu. Verjandi var
Bjarni Hauksson héraðsdómslög-
maður.
en hann var fyrst dæmdur á árinu
1996.
Skaðabótakröfum vísað frá
Segir í niðurstöðu dómsins að
brot mannsins nú séu umtalsverð,
en hann hafi lagt í vana sinn að
brjótast inn í bifreiðar og stela það-
an ýmsu. Hafi hann með slíku hátt-
erni valdið fjölda manns tilfinnan-
legu tjóni. Sé ljóst að hann hafi með
slíku framferði fjármagnað fíkni-
efnaneyslu sína, en af rannsóknar-
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt 29 ára gamlan karl-
mann, Björn Bender, í tveggja ára
fangelsi fyrir fjölda innbrota í bif-
reiðar á höfuðborgarsvæðinu og
hylmingu. Maðurinn var með tals-
vert magn af þýfi í bíl sínum þegar
lögregla stöðvaði hann.
Einnig voru gerð upptæk um 7
grömm af amfetamíni sem maður-
inn var með í fórum sínum.
Fram kemur í dómnum að mað-
urinn eigi að baki nokkurn sakaferil
Í tveggja ára fangelsi
fyrir mörg innbrot í bílaHÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær
karlmann sem ákærður hafði verið
fyrir að ýta lögreglumanni við skyldu-
störf og þröngvað honum upp að
dráttarvél. Lögreglumenn höfðu haft
afskipti af syni mannsins fyrir um-
ferðarlagabrot og hafði maðurinn
reynt að koma í veg fyrir að lögreglu-
menn keyrðu inn á akur þar sem son-
urinn var á dráttarvél. Var maðurinn
sakfelldur fyrir þessa háttsemi af hér-
aðsdómi. Aftur á móti sýknaði héraðs-
dómur manninn af því að hafa ýtt lög-
reglumanni þar sem framburður
lögreglumanna var misvísandi. Stað-
festi Hæstiréttur þessa niðurstöðu.
Hindraði
lögreglu