Morgunblaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 24
neytendur 24 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Krónan Gildir 18. maí - 21. maí verð nú verð áður mælie. verð Krónu kryddaðar grísakótilettur ............. 1299 1698 1299 kr. kg Krónu lambagrillsneiðar læri ................. 1499 1898 1499 kr. kg Krónu lambaframpartssneiðar krydd. ..... 1278 1598 1278 kr. kg Krónu grísahnakkasneiðar kryddaðar ..... 1358 1698 1358 kr. kg Fjörfiskur ýsukubbar forsteiktir .............. 599 899 599 kr. kg Fjörfiskur reykt ýsuflök m/roði ............... 599 999 599 kr. kg Grillborgarar m/brauði 4 stk ................. 398 467 398 kr. pk. Krónubrauð stórt og gróft 770 gr ........... 99 121 128 kr. kg Roka núðlur 4 tegundir......................... 19 29 19 kr. stk. Super súkkulaðikex 2 pk 360 gr ............ 99 0 99 kr. pk. Fjarðarkaup Gildir 17. maí - 19. maí verð nú verð áður mælie. verð Ali spareribs soðin ............................... 885 1180 885 kr. kg Ali léttreyktar svínakótilettur.................. 1255 1673 1255 kr. kg Ali jurtakryddaðar svínakótilettur ........... 1255 1673 1255 kr. kg Fk jurtakryddað lambalæri .................... 1198 1744 1198 kr. kg 2x hamb. m/brauð 115g...................... 298 350 298 kr. pk. Matfugl kjúklingur læri/leggur ............... 426 609 426 kr. kg Goða vínarpylsur 10 í pk....................... 336 448 336 kr. pk. Hagkaup Gildir 17. maí - 20. maí verð nú verð áður mælie. verð Fyllt svínafiðrildi/kúrb/bas/tó kjöt......... 2498 0 2498 kr. kg Lambasirlon m/mintu/hvítl/sítr kjötb. ... 1998 0 1998 kr. kg Myllu Tómatbrauð ................................ 277 346 277 kr. stk. Myllu Veronabrauð ............................... 254 318 254 kr. stk. Myllu Ciabatta ..................................... 86 108 86 kr. stk. Myllu hvítlauksbrauð ............................ 270 337 270 kr. stk. Ítalía ravioli m/sveppum fersk............... 249 356 249 kr. pk. Ítalía ferskt heilhv. tagliatelle................. 150 214 150 kr. pk. Ítalía ólífuolía 500 ml. 2 fyrir 1.............. 559 1118 559 kr. stk. Nóatún Gildir 16. maí - 21. maí verð nú verð áður mælie. verð Grísagrillsteik miðjarðarhafskrydduð ...... 998 1298 998 kr. kg Ungnautasirloin ................................... 1798 2719 1798 kr. kg Lambalæri kryddað .............................. 899 1498 899 kr. kg Gourmet hunangsgrís léttreyktur............ 1346 1682 1346 kr. kg Grillspjót lambageiri rósmarín ............... 2698 2998 2698 kr. kg Nóatúns lambalærisn. Las Vegas........... 1953 2298 1953 kr. kg Nóatúns grísakótilettur/a.h.Grikkja........ 1443 1698 1443 kr. kg Maxwell house kaffi 500 gr ................... 399 421 798 kr. kg N.Y.S. Biscotti súkkul/möndlu 170 gr .... 239 299 239 kr. pk. Coke Light 2 ltr .................................... 99 184 50 kr. ltr Samkaup/Úrval Gildir 17. maí - 20. maí verð nú verð áður mælie. verð kjötborð lamba innralæri ...................... 2159 3096 2159 kr. kg Kjötborð lambaframp. hryggjarsneiðar ... 1178 1688 1178 kr. kg Gourmet lambalæri villikryddað............. 1259 1804 1259 kr. kg Borgarnes ostapylsur ........................... 740 1063 740 kr. kg Matfugl 1/1 kjúklingur ferskur............... 419 699 419 kr. kg Maryland coconut blár 150 gr. .............. 69 94 69 kr. stk. Trópí 0,33 lítrar plastflaska ................... 69 94 207 kr. ltr Egils pilsner 500 ml ............................. 79 98 158 kr. ltr Freyju djúpur 100 gr............................. 99 128 990 kr. kg kúrbítur............................................... 209 329 209 kr. kg helgartilboðin Kjöt á grillið fyrir helgina Litarefni, sem notuð eru tilað lita klæði og skó, hafafundist í kryddi á und-anförnum árum, aðallega í chilipipar og karríi. Að sama skapi er algengt að myglusveppaeitur greinist í hnetum og fíkjum, efni sem hafa áhrif á ónæmiskerfið eða ýmis önnur varanleg skaðleg áhrif, til dæmis stökkbreytandi og/eða krabbameinsvaldandi áhrif og er því strangt eftirlit orðið með þessum efnum. Í þessu sambandi má einkum nefna pistasíur frá Íran, heslihnetur og aðrar hnetutegundir frá Tyrk- landi og jarðhnetur frá Kína. Með öllum hnetu- og fíkjusendingum, sem koma til Íslands, verður að fylgja rekjanlegt rannsóknarvott- orð. Myglusveppaeitur sem nefnist aflatoxín myndast við ákveðið hita- og rakastig í matvælum og fóðri. Al- gengustu matvæli eru kornvörur, hnetur og fíkjur. Aflatoxín hefur þó einnig greinst í mjólk dýra, sem neytt hafa mengaðs fóðurs, að sögn Herdísar M. Guð- jónsdóttur, matmælafræðings á matvælasviði Umhverfisstofnunar. Vöktun með innflutningi Frítt flæði er á matvælum til Ís- lands svo framarlega sem ekki er getið um annað hjá öðrum eftirlits- stofnunum, í reglugerðum eða með tímabundnu banni. Eftirlit með innflutningi á mat- vælum til Íslands er á hendi nokk- urra aðila. Þannig sér Fiskistofa um fiskafurðir. Landbúnaðarstofnun hefur eftirlit með innflutningi á kjöt- vörum, en allur annar innflutningur er undir eftirliti Umhverfisstofn- unar. „Nokkrar undantekningar eru þó á frjálsu flæði matvæla milli landa sem takmarka innflutning á ýmsum hnetum vegna myglueitursins afla- toxíns. Eins eru takmarkanir á inn- flutningi á ýmsum kryddtegundum, til dæmis á karríi og chilipipar þar sem óleyfileg litarefni hafa fundist í þessu kryddi. Litarefni þetta kallast súdanlitur og er einkum notað til að lita skó og klæði. Það er mikið notað í Indlandi, en þaðan kom einmitt það krydd, sem í var þetta ólöglega lit- arefni. Innflutningur er því aðeins heimilaður ef innflytjandi framvísar rannsóknarvottorði, sem staðfestir að ekkert ólöglegt litarefni hafi verið sett í vöruna. Almenn vöktun á innflutningi með tilliti til hættulegra matvæla og fóð- urs er með tengingu Íslands við evr- ópska viðvörunarkerfið RASFF, sem stendur fyrir Rapid Alert Sys- tem for Food and Feed, þar sem til- kynningar eru sendar á milli landa Evrópubandalagsins og EFTA með tölvupósti. Tengiliður Íslands er staðsettur á Umhverfisstofnun. Árið 2006 bárust alls 6.594 tilkynningar í gegnum þetta kerfi og getur al- menningur fylgst með þessum til- kynningum á vef ESB þar sem viku- lega er birtur listi. Þar geta líka innflytjendur aflað sér upplýsinga um hvort verið sé að tilkynna til- teknar vörur meira en aðrar og hvort þær komi í ríkari mæli frá til- teknum löndum umfram önnur. Langflestar tilkynningar, sem bárust í gegnum RASFF, vörðuðu matvæli frá Kína, Tyrklandi, Íran og Bandaríkjunum, en mikið af banda- rískum vörum er á markaði í íslensk- um verslunum. Varasamt gæludýrafóður Í Bandaríkjunum hafa margar tegundir gæludýrafóðurs verið inn- kallaðar þar sem fundist hefur ólög- legt efni í gæludýrafóðri sem orsak- að hefur dauða margra gæludýra. Ólöglega efnið melamine hefur verið sett í ýmsar mjölblöndur til blekk- ingar í próteininnihaldsmælingum. Hætta er á að efni þetta verði sett í matvæli í stað próteinsdufts og eru öll aðildarríkin hvött til að rannsaka það. Innflutningur á nokkrum græn- metistegundum frá Taílandi hefur verið stöðvaður að undanförnu vegna salmonellu og E-coli meng- unar. Að auki bárust margar til- kynningar í gegnum viðvör- unarkerfið um flæði blýs og kadmíum úr leirvörum og flæði óæskilegra efna úr svörtum plastá- höldum frá Kína. Spænskum paprikum fargað Frá áramótum hafa svo mörg lönd tilkynnt um ólöglegt varnarefni í spænskum paprikum. Íslenska heil- brigðiseftirlitið hefur í ljósi þess tek- ið fjölmörg sýni til að ganga úr skugga um hvort skordýraeitrið iso- fenphos sé að finna í paprikum á ís- lenskum neytendamarkaði en ekk- ert hefur fundist ennþá. Í kjölfarið hafa hinsvegar fundist önnur ólögleg efni í spænskum paprikum hér á landi. Miklu magni af paprikum frá Spáni hefur verið fargað og fjöl- mörg paprikusýni send í rannsókn á kostnað inn- flytjenda. Tvær „hrein- ar“ sendingar þurfa að berast til landsins áður en eftirliti er hætt,“ segir Herdís. Auknar kröfur um rekjanleika Skyldur innflytjenda felast í því að sjá til þess að matvörur standist lög og reglur um matvæli. Rekjanleiki matvæla er mikilvægur við allt innflutningseft- irlit því neytendur eru í vaxandi mæli farnir að vilja vita um upp- runaland og meðhöndlun þeirra vara, sem lenda í innkaupakörfunni. Gera má ráð fyrir því að innflutn- ingseftirlitið eflist til muna eftir að nýjar reglur um hollustuhætti og eftirlit munu taka gildi innan tíðar. Þá getur innflutningseftirlitið far- ið fram á öllum stöðum, ekki aðeins við landamærin heldur líka þegar vörur eru komnar í verslanir og hjá birgjum. Myglueitur og skósverta leynast í mat Morgunblaðið/Jim Smart Ólögleg litarefni hafa fundist í austurlenskum kryddtegundum og inn- flutningur hefur verið takmarkaður á hnetum og fíkjum vegna myglu- eiturs. Matvælafræðing- urinn Herdís M. Guð- jónsdóttir sagði Jóhönnu Ingvarsdóttur að neyt- endur gerðu orðið vax- andi kröfur til rekj- anleika matvara. Sérfræðingurinn Herdís M. Guðjónsdóttir. Í HNOTSKURN » Umhverfisstofnun fer meðeftirlit með innflutningi mat- væla og er framkvæmdin í nánu samstarfi við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga. » Stofnunin hefur heimild tilað stöðva innflutning tiltek- inna matvæla í samráði við toll- stjóra, sé veruleg hætta talin á ferðum fyrir neytendur. » Stofnunin er tengiliður Ís-lands við RASFF, viðvör- unarkerfi ESB. Tilkynningarnar eru flokkaðar og ýmist af- greiddar af Umhverfisstofnun eða áframsendar til Fiskistofu eða Landbúnaðarstofnunar. » Sýni til varnarefnamælingaeru tekin af innlendri og er- lendri framleiðslu. Fari mæl- ingar yfir leyfileg mörk er heil- brigðiseftirliti gert viðvart og það grípur til aðgerða, sem þýtt geta innköllun eða förgun við- komandi vöru. Þetta er fimmta greinin af nokkr- um í greinaflokki, sem er sam- starfsverkefni matvælasviðs Um- hverfisstofnunar og Morgunblaðsins TENGLAR ..................................................... www.ust.is www.ec.europa.eu/ food/rapidalert Paprikur Fundist hafa ólögleg efni í spænskum paprikum hér á landi. Miklu magni af paprikum frá Spáni hefur því verið fargað og fjölmörg paprikusýni send í rannsókn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.