Morgunblaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Sigfús Austfjörð | 16. maí
Rafmagnssamgöngur
– já takk
FINNST tímabært að
deila skoðunum mínum
á umferðarómenningu
Íslendinga með öðrum
landsmönnum. Er ný-
kominn frá Osló þar
sem, þrátt fyrir mun
fleiri íbúa en í Reykjavík, umferðin
gengur sem smurð og menn sleppa
við að kafna í loftmengun eins og á
Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Meira: sigfusaustfjord.blog.is
Ragnhildur Birna Hauksdóttir | 16. maí
Er grunnskólinn
fyrir alla?
MIG langar til að vekja
athygli á máli sem
skiptir alla máli og það
er skólakerfið – margt
er gott en margt má
betur fara. Aðal-
námskrá grunnskóla
er gefin út af menntamálaráðherra
og setur sameiginleg markmið náms
og kennslu í öllum grunnskólum
landsins. Þar kemur fram að öll börn
skuli fá nám við sitt hæfi út frá mis-
munandi persónugerð, þroska, hæfi-
leikum, getu eða áhugasviði.
Meira: ragn.blog.is
Jóhann Elíasson | 16. maí
Vol, væl og ósannindi
ENN einu sinni kom Árni Finnsson
„vælandi“ í útvarpið og
sagði að hvalveiðar Ís-
lendinga sköðuðu
ferðaþjónustuna. Í
þetta sinn var það ekki
eingöngu hvalaskoðun
sem skaðaðist heldur
ferðaþjónustan í heild sinni.
Ekki frekar en áður rökstuddi
hann þessa fullyrðingu sína á nokk-
urn hátt, heldur sló hann þessum
rakalausa þvættingi fram, hann virð-
ist halda að við sem hlustum látum
bara „mata“ okkur á hvaða þvælu
sem er og „gleypum“ við öllu sem
sagt er án umhugsunar.
Meira: johanneliasson.blog.is
Í leiðara Mbl. í dag (16. maí) er
skoðuð samningsstaða stjórn-
arflokkanna um stjórnarmyndun í
kjölfar alþingiskosninga og þeim
veitt ráðgjöf af leiðarahöfundi um
framhaldið. Ráðgjöf sem kemur í
framhaldi af skoðanakönnun sem
sýnir mest fylgi við stjórn Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar.
Það vekur furðu í málflutningi
leiðarahöfundar hve stíft og ein-
arðlega horft er framhjá vilja kjós-
enda; hve stíft og einarðlega horft
er framhjá meginniðurstöðu kosn-
inganna, sem er alveg ótvíræð:
kjósendur vilja senda Framsókn-
arflokkinn í gott frí frá ríkisstjórn
Íslands og stjórnarráði, en halda
Sjálfstæðisflokki áfram við stjórn-
völinn.
Ráðgjöf leiðarhöfundar, alveg
þversum á þessa kosninganið-
urstöðu, sver sig einkar óþægilega í
ætt við hagsmunagæslu á sam-
keppnismarkaði; ráðgjöf sem öll
miðar að því að halda fengnum hlut
í samræmi við kjörorð sæhetjunnar
sem siglir hripleku: siglum meðan
ekki sekkur. Í veikri von um að
löskuð útgerð sé best til þess fallin
að halda öflugum keppinautum
niðri. Í veikri von um gleymsku og
fyrirgefningu markaðsaðila.
Sem betur fer, fyrir land, þjóð og
lýðræði, en því miður fyrir leið-
arhöfund Mbl., eru alþingismenn
þjóðarinnar ekki lengur staddir á
samkeppnismarkaði um stjórn þjóð-
arskútunnar. Þessi markaður er
bara opinn á kjördag. Umbjóðendur
alþingismanna hafa talað. Og þeirra
orð ber öllum alþingismönnum og
öðrum stjórnendum, sem í þeirra
umboði starfa, að virða og skipa til
öndvegis umfram önnur sjónarmið.
Niðurstaða kosninganna, nú studd
skoðanakönnun, er alveg skýr.
Og ber að virða.
JÓNAS GUNNAR
EINARSSON,
er rithöfundur og býr
í Reykjavík.
Á að hundsa úrslit kosninganna?
Frá Jónasi Gunnari Einarssyni
VIÐ erum nemendur í Fjölmennt,
fullorðinsfræðslu fatlaðra, sem höf-
um unnið ýmis verkefni tengd
mannréttindum og fordómum í
garð minnihlutahópa. Okkur langar
með þessum orðum að gera grein
fyrir niðurstöðum okkar af þeirri
vinnu.
Fordómar og einelti gagnvart
fólki með fötlun er okkur ofarlega í
huga og hefur oft borið á góma í
námi okkar. Að okkar mati er mik-
ilvægt að bregðast við þeim for-
dómum og einelti sem við mætum á
lífsleiðinni.
Við viljum að komið sé fram við
okkur eins og manneskjur. Við er-
um eins og aðrir, jafn mikilvæg og
þú. Við erum frábær, falleg og ein-
stök. Við erum öll ólík en með sömu
grunnþarfir. Margir þekkja ekki né
skilja fólk með fötlun. Sumir hugsa
bara um sjálfa sig og gleyma að
það þarf að vera pláss fyrir alla í
samfélaginu. Til eru þeir sem vilja
ekki eiga vini sem eru fatlaðir.
Okkur finnst það ekki rétt. Þessu
viðhorfi þarf að breyta..
Sumt fólk horfir og þorir ekki að
tala við okkur og enn aðrir stríða
okkur. Við viljum frekar að fólk
komi og tali við okkur, sem full-
orðið fólk. Við höldum að hægt væri
að gera eitthvað í þessu máli með
því að tala opið um málefni fólks
með fötlun. Opinská umræða er
mikilvæg. Við vonum að þetta fari
að lagast svo að öllum muni líða vel
í samfélaginu okkar.
Snúum okkur núna að Ferða-
þjónustu fatlaðra. Að komast leiðar
sinnar er mikilvægt fyrir alla sem
búa í samfélaginu. Það getur verið
erfitt að ferðast með strætó af því
að það er alltaf verið að breyta
strætókerfinu og ferðir stopular og
því erfitt fyrir mörg okkar að nota
strætó. Þau okkar sem hafa tök á
að nota strætó finnst stræt-
isvagnagjöld of há.
Mörg okkar eru háð Ferðaþjón-
ustu fatlaðra og við erum mjög
ánægð með að þjónustan skuli vera
til staðar. Þó er ýmislegt sem
mætti vekja athygli á varðandi
þjónustuna og betur mætti fara.
Við erum ekki alveg sátt. Við viljum
fá örugga og góða ferðaþjónustu.
Við þurfum oft að bíða of lengi
eftir ferðaþjónustubílunum eða að
þeir koma of snemma. Stundum
fara þeir á undan eða þeir koma
alls ekki. Það getur komið sér illa
og sum okkar hafa gefist upp á að
nota ferðaþjónustuna. Við þurfum
oft að sitja lengi í bílunum. Þeir
sem eru í hjólastólum hafa forgang
umfram aðra. Það þarf að jafna
þennan forgang.
Ferðaþjónustan á að virða þarfir
okkar, skyldur og langanir. Við
stundum atvinnu og höfum áhuga-
mál sem eru mikilvæg. Það er
óréttlátt og skrýtið að þurfa að
panta ferðaþjónustubíl með sólar-
hrings fyrirvara.
Látum fordóma ekki fara illa
með okkur. Stöndum saman vörð
um gott samfélag fyrir alla.
ANDRI FREYR
HILMARSSON,
ARNBJÖRG
MAGNEA JÓNSD.,
AUÐUN GUNNARSSON,
ÁSTRÓS YNGVADÓTTIR,
GUÐM. S. GUÐMUNDSS.,
HALLDÓR S.HALLDÓRSSON,
HALLDÓRA JÓNSDÓTTIR,
HILDUR SIGURÐARDÓTTIR,
RUT OTTÓSDÓTTIR,
SIGMUNDUR H.
VALDIMARSS.,
SIGURGEIR A. SIGMUNDSS.,
SKÚLI S. PÉTURSSON,
SOFFÍA ÞORKELSDÓTTIR,
STEFÁN ERLINGSSON,
STEINUNN Á. ÞORVALDSD.
Við erum
fullorðið fólk
með framtíðarsýn
Frá Fjölmenntarhópi í KHÍ
MARGIR Íslendingar koma til
Kaupmannahafnar að hlaupa sitt
fyrsta maraþon. Spáð er metþátt-
töku í hlaupinu nú og búist við
6.000-7.000 hlauparar taki þátt í
hlaupinu í ár.
Hlaupið ber nafnið Glitnir Copen-
hagen Marathon. Glitnir er að-
alstyrktaraðili hlaupsins, rétt eins
og Óslóar-maraþons og Reykjavík-
ur maraþons sem fer fram hinn 18.
ágúst.
Félag íslenskra maraþonhlaup-
ara heldur úti athyglisverðum
gagnagrunni. Í gagnagrunninn eru
skráðir allir þeir Íslendingar sem
hafa hlaupið maraþon. Skráður er
fjöldi maraþona og besti tími hvers
og eins.
Bryndís Svavarsdóttir hefur
hlaupið flest maraþon allra, eða 77
talsins og hún er enn að bæta við
fleiri hlaupum. Sigurður Pétur Sig-
mundsson hefur hlaupið maraþon
hraðast allra Íslendinga. Árið 1985
hljóp hann Berlínarmaraþon á tím-
anum 2:19:46. Það er afrek sem
hefði verið skráð í Íslendingasög-
urnar. Í dag er slíkt skráð í gagna-
grunn og hægt að lesa á Netinu.
Næstfljótastur er Daníel Smári
Guðmundsson, en hann hljóp á
2:28:30 í Dyflinni árið 1993. Íslensk-
ar konur eru mjög duglegar að
hlaupa maraþon. Í sérflokki er
Martha Ernstdóttir, en hún á bestan
tíma 2:35:15 frá Berlín árið 1999.
Næstbesta tíma kvenna á Anna Ree-
ves, 2:54:43, sett í London árið 1998.
Árið 2006 var Birgir Sævarsson
fljótastur allra Íslendinga þegar
hann hljóp Chigaco-maraþon á
2:43:09. Vissulega fínn árangur, en
enn ansi langt frá methlaupi Sig-
urðar Péturs. Met þeirra Sigurðar
Péturs og Mörthu hafa staðið lengi.
Á vefsíðu Félags maraþonhlaup-
ara, http://www.malbein.net/blog/,
er hægt að skoða maraþonskrána,
en hún inniheldur nú 862 Íslendinga
sem hafa hlaupið maraþon, og ár
hvert bætast stöðugt fleiri við. Stef-
án Þórðarson, sem sjálfur er mara-
þonhlaupari og búsettur í Dan-
mörku, hefur haft umsjón með
maraþonskránni síðastliðin ár. Fyr-
irtækið Hlaupaferðir hefur skipuleg-
ar ferðir frá Íslandi til erlendra
hlaupa, t.d. Berlínar, New York,
London, Boston.
STEFÁN ÞÓRÐARSON
er maraþonhlaupari,
búsettur í Danmörku.
Maraþonhlaup
í Kaupmannahöfn
Frá Stefáni Þórðarsyni
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
LAUS VIÐ KAUPSAMNING! Góð 3ja
herbergja íbúð á 1. hæð í Permaform húsi.
Sérinngangur, 2 stæði í bílageymslu fylgja.
Afgirtur sólpallur. Möguleiki á þriðja svefnh.
Verð 25,7 millj.
HRÍSRIMI - 112 RVK. 2 stæði í bílageymslu!
Opið hús í dag frá kl. 13.00–15.00
Hagamelur 34 - íbúð 101
Skrifstofur okkar í
Reykjavík og Hafnarfirði
eru opnar alla virka daga
frá kl. 9-17
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr., lögg. fast.- og skipasali
Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali
Sími: 533 6050 www.hofdi.is
Mjög aðlaðandi 5 herb., 135 fm, sérhæð á 1. hæð í fjórbýli. Sér
inngangur er í íbúðina. Góðar stofur og hol. Tvennar svalir. Góð
staðsetning í hjarta vesturbæjar. Verð 40,9 millj.
Sölumaður Höfða verður á staðnum í dag frá kl. 13 - 15.
Allir velkomnir.
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
Kambsvegur 23 - Opið hús
Falleg og sérstaklega vel skipulögð 130 fm neðri sérhæð ásamt 30 fm bílskúr.
Sérinng., 4 svefnherb, vinnuherb, baðherb., gestasnyrting, 2 stofur og eldhús.
Baðherb. og snyrting eru flísalögð og nýstandsett, eldhús mikið uppgert,
fataherbergi innaf hjónaherb. Parket. Frábær eign á eftirsóttum stað.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Viggó og Þórhildur sýna eignina í dag milli kl. 14-16.
Sími 588 4477